Hlaðvarp Myntkaupa

Hlaðvarp Myntkaupa

Myntkaup
Valsts Islande
Valoda IS
Epizodes 113
Jaunākā 15.08.2026

Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir.

Epizodes

  • Verðbólga í USA sýnir merki um hjöðnun - Mikið útflæði úr kauphallarsjóðum í vikunni 15.08.2026 1h
    Í þessum þætti er farið yfir nýjustu verðbólgutölur í USA, hvernig þær stóðust væntingar og hvaða áhrif þær virðast hafa á markaðinn. Þá er farið yfir uppfærða stöðu Clarity frumvarpsins, en það verður að teljast á brattann að sækja að ætla að ná að gera það að lögum á þessu ári. Þá er einnig fjallað talsvert um öryggismál og samspil þeirra við gervigreind. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Clarity frumvarpið verður líklega ekki að lögum í ár 08.08.2026 52min
    Innflæði hefur einkennt síðustu daga hjá kauphallarsjóðunum. Þeir félagar taka aftur fyrir Coldcard hakkið og gera því betur skil. Sömuleiðis er rætt um stöðu Clarity frumvarpsins hjá öldungardeildinni en allt lítur út fyrir að það verði ekki að lögum í ár. Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, vitnaði í Satoshi þegar hann tjáði sig um mikilvægi þess að Bandaríkin myndu taka af skarið og leiða crypto markaðinn. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Hræðsla brýst út vegna öryggisbrests hjá Coldcard 01.08.2026 55min
    Í vikunni bárust fréttir af því að um 38m USD virði af BTC hefði verið stolið af köldu veskjunum Coldcard vegna öryggisbrests hjá framleiðandanum. Mikil hræðsla brast út í kjölfarið og í kjölfarið vaknar spurningin: Hvernig geymir maður rafmyntir sínar með öruggum hætti? Í öðrum fréttum má nefna að Seðlabankinn í Bandaríkjunum ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum þar í landi í 3,5-3,75%. Þá hafa áhyggjur aukist af svokölluðum DAT fyrirtækjum, sem ganga út á það að kaupa BTC og hafa á efnahagsreikningi sínum, en fjölmörg þeirra hafa neyðst til að selja BTC til þess að geta staðið við skuldbindingar sínar. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Magnús Karl ræðir Nassim Taleb og ritverk hans 25.07.2026 1h 11min
    Í þessum þætti mætir Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðingur, í annað sinn í stúdíóið. Viðfangsefni þáttarins er fjárfestirinn og tölfræðingurinn Nassim Taleb, sem hefur gefið út fjölda ritverka sem miða að því að efla lesendur í ákvarðanatökum á mörkuðum. Taleb skrifaði formálann í The Bitcoin Standard en svo virðist sem undanfarin ár hafi hann misst trú á Bitcoin. Fjallað er um fjórar af hans helstu bókum og þær settar í samhengi við rafmyntamarkaðinn.
  • Góðar verðbólgutölur í USA gefa Bitcoin byr í seglin 18.07.2026 1h 3min
    Vikan hófst á mjög góðum verðbólgutölum í USA og markaðir tóku við sér. Segja má að það sem hafi fylgt á eftir hafi þó dempað viðbrögðin talsvert, en Kevin Warsh, seðlabankastjóri í USA, sagði að of snemmt væri að tala um fullnægjandi grundvöll fyrir vaxtalækkanir. Þá hefur versnandi ástand í átökum Bandaríkjanna og Írans leitt til áhyggna af því að olíuverð hækki á ný sem gæti hleypt verðbólgunni aftur upp. Áfram heldur jákvæð þróun við að færa raunheimaeignir á bálkakeðjur. Citadel Securities fjárfestir í einu stærsta cryptofyrirtæki heims. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Óvissuástand skapast á ný milli Írans og USA - Bitcoin reynir að halda sér yfir 60k 11.07.2026 53min
    Í þessum þætti ræða þeir félagar um það helsta sem gerst hefur frá því að þeir spjölluðu saman síðast. Er vopnahléi lokið milli USA og Írans? Það virtist mega lesa út úr orðum forseta Bandaríkjanna, en málið er kannski ekki svo einfalt eins og fjallað er um í þættinum. Áfram halda vandræði Saylor og Strategy, en Strategy seldi rúmlega 3500 BTC í tapi. Þá vakti umfjöllun Viðskiptablaðsins athygli Kjartans og ekki síst það sem blaðið fjallaði ekki um í tengslum við CASP starfsleyfi á grundvelli MiCA. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Lokafrestur MiCA liðinn í Evrópu - Hvaða áhrif hefur það? 04.07.2026 1h 1min
    Í þessum þætti fara þeir félagar yfir það helsta á markaðnum. Í upphafi mánaðar leið lokafrestur samkvæmt MiCA löggjöfinni í Evrópu. Það þýðir að þjónustuveitendur sýndareigna (rafmyntakauphallir) verða að hafa starfsleyfi sem slíkir (CASP) til að mega veita viðskiptavinum þjónustu innan ESB og EES. Töluvert hátt hlutfall af áður starfandi þjónustuveitendum hefur ekki tekist að tryggja sér starfsleyfið innan frestsins og ber þar helst að nefna stærstu rafmyntakauphöll heims, Binance. Farið er yfir nokkur grundvallaratriði sem fylgja MiCA og hvaða þýðingu þetta hefur fyrir neytendur. Einnig er bókahorn og margt fleira í þessum þætti.
  • Samtal við Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðing 27.06.2026 1h 1min
    Í þessum þætti mætti góður gestur í sitt fyrsta skipti í hlaðvarpið. Magnús Karl Ásmundsson er hagfræðingur að mennt, en starfar sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins Tímaveru. Magnús fer yfir víðan völl, en fjallar meðal annars um mörg grundvallaratriði hagfræðinnar, Bitcoin, hagkerfið og hvernig lífið og þroskinn sem fylgir því fær mann til að átta sig á að stundum er raunveruleikinn flóknari en svo að hægt sé að leysa öll heimsins vandamál með því að beita einfaldri hugmyndafræði. Þetta og margt fleira í þessu skemmtilega spjalli.
  • Nýr seðlabankastjóri USA slær á þunga strengi - Rauðu flöggin halda áfram að versna hjá Strategy 21.06.2026 54min
    Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Kevin Warsh, nýskipaður seðlabankastjóri Federal Reserve, fjallaði um í fyrstu ræðu sinni sem seðlabankastjóri hvernig hann sér fyrir sér breytt hlutverk seðlabankans gagnvart mörkuðum. Til þessa hafa fjárfestar treyst á leiðbeinandi stef frá seðlabankastjóra og jafnframt treyst því að seðlabankinn myndi alltaf grípa inn í þegar markaðir hafa lækkað verulega, að hleypa lífi í markaðinn með lækkun vaxta og öðrum tilslökunum. Warsh sagði að fjárfestar skyldu ekki treysta á slík inngrip. Þá halda áhyggjur af Michael Saylor, Strategy og Stretch áfram að aukast og í vikunni fór gengi Stretch, sem á almennt að haldast sem næst genginu 100, niður í 82. Samhliða þessu er Saylor að dreifa óábyrgu myndefni sem gefur til kynna að það að fjárfesta í Stretch sé ávísun á fjárhagslegt öryggi. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Verðbólga heldur áfram að aukast í USA - Örlög Clarity Act orðin tvísýn? 13.06.2026 59min
    Verðbólga jókst um 0,5% á ársgrundvelli milli mánaða í USA og nýjum seðlabankastjóra þar í landi virðist ansi þröngur stakkur sniðinn gagnvart breytingu stýrivaxta. Þá hafa líkur lækkað verulega á veðmálamörkuðum á því að Clarity frumvarpið verði samþykkt á þessu ári og eru þær nú metnar á um 50%. Fjallað er talsvert um þessi atriði, en sömuleiðis fjallar Björn ítarlega um þróun og sögu síðustu tveggja bjarnarmarkaða og varpar fram spurningunni hvort eitthvað megi læra af sögunni. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Þrettán dagar af samfelldu útflæði úr kauphallarsjóðum keyrir BTC undir 60k 06.06.2026 1h
    Í þessum þætti er rætt um stöðuna á crypto mörkuðum sem er vægast sagt uggvænleg um þessar mundir. Látlaust útflæði hefur verið úr kauphallarsjóðum eða um 4,4 milljarðar dollara á 13 dögum. Samhliða því hefur Fear and Greed mælikvarðinn hrapað niður á við og mælist nú 15, eða sem öfgakennd hræðsla. Sömu sögu, og reyndar verri, er að segja um aðrar helstu rafmyntir markaðarins. Tímar sem þessir reyna á jafnvel reyndustu fjárfesta og spurningin sem allir þátttakendur ættu að spyrja sig er einfaldlega: Hef ég trú á þessu fyrirbæri til framtíðar?
  • Útflæði úr kauphallarsjóðum eykst verulega - Bitcoin nálgast 70k 30.05.2026 1h 4min
    Í þessum þætti er rætt um það helsta á mörkuðum. Crypto markaðurinn heldur áfram að síga niður sem verður að teljast nokkur vonbrigði í ljósi þess að S&P500 vísitalan heldur áfram góðri siglingu. Áfram er óbreytt staða á Clarity frumvarpinu, þ.e. ekki er annað að segja en að reiknað er með því að frumvarpið verði tekið til afgreiðslu öldungardeildarinnar á næstunni. Þá er einnig fjallað talsvert um Ethereum og ýmsar vendingar þar á bæ í bókahorninu.
  • Bitcoin missir dampinn og strögglar við að komast yfir 80k á ný 23.05.2026 1h 2min
    Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Ekkert nýtt er að segja um Clarity-frumvarpið en væntingar standa áfram til þess að það verði lagt fyrir öldungardeildina á næstunni. Útflæði heldur áfram úr BTC og ETH kauphallarsjóðum, en innflæði er sterkt í XRP, SOL og HYPE kauphallarsjóðina. Þá búa fjárfestar sig undir aukna táknvæðingu á eignamörkuðum. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Verðbólgutölur valda vonbrigðum - Clarity frumvarpið færist nær lagasetningu 16.05.2026 59min
    Í þessum þætti er farið yfir viðburðaríka viku. Vikan hófst á slæmum fréttum, en verðbólga í Bandaríkjunum virðist vera að aukast umfram spár og bjartsýni fjárfesta um stýrivaxtalækkanir þar í landi fer minnkandi. Ekki bætti úr skák að 13. maí var sá dagur sem mest útflæði var úr BTC kauphallarsjóðum, meira en 630 milljónir dollara. Hins vegar bárust stór tíðindi úr öldungardeildinni en Clarity frumvarpið var afgreitt úr bankanefnd öldungardeildarinnar með 15 atkvæðum gegn 9. Í kjölfarið þykja líkurnar hafa aukist allverulega á að lagasetning sé innan seilingar og virðist markaðurinn fastlega gera ráð fyrir því að frumvarpið verði að lögum í nánustu framtíð. En hvað þýðir það nákvæmlega fyrir rafmyntamarkaðinn? Þetta og margt fleira er rætt í þessum þætti.
  • Ætlar Michael Saylor að selja BTC?? 09.05.2026 1h
    Í þessum þætti ræða þeir félagar helstu vendingar á markaðnum. Bjartsýni heldur áfram að aukast á mörkuðum, en BTC hefur haldið sæmilega velli yfir 80k síðustu daga og hlutabréfavísitölur víðs vegar um heiminn slá endurtekið ný met. Þá hafa líkur á samþykki Clarity Act á þessu ári aukist talsvert og er reiknað með því að það verði að lögum á þessu ári. Helsta fréttin er hins vegar án nokkurs vafa að Michael Saylor, dyggasti kaupandi og talsmaður Bitcoin, sem hefur jafnframt ávallt haldið því fram að hann muni aldrei selja Bitcoin, virðist hafa skipt um skoðun. Hvernig mun markaðurinn bregðast við?
  • Tveir grænir mánuðir í röð fyrir Bitcoin - Mesta innflæði í kauphallarsjóði á árinu í apríl 02.05.2026 1h 1min
    Í þessum þætti ræða þeir félagar það helsta sem gerðist á markaðnum í vikunni. Stýrivöxtum var haldið óbreyttum í Bandaríkjunum. Bitcoin ráðstefnan í Las Vegas vekur lítinn áhuga og lítið umtal. Stofnanafjárfestar virðast mjög bjartsýnir gagnvart Bitcoin og bálkakeðjutækninni. Bókahornið og margt fleira í þessum þætti.
  • Norður-kóreskir tölvuþrjótar valda enn á ný titringi 25.04.2026 1h 1min
    Bitcoin hefur aðeins sótt í sig veðrið samhliða sannfærandi hækkunum á öðrum mörkuðum. Því miður varð DeFi markaðurinn hins vegar fyrir áfalli þegar hakkarar, sem taldir eru vera á vegum Norður-Kóreu, náðu að komast yfir umtalsverð verðmæti af svokölluðu rsETH og nota það til að taka gríðarleg verðmæti af einum rótgrónasta DeFi vettvangi markaðarins, Aave. Fjárfestar spyrja sig nú hvort raunverulega sé hægt að treysta dreifstýrðum fjármálalausnum eða hvort bæta þurfi öryggi enn frekar áður en slíkt traust er verðskuldað. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • S&P500 og Nikkei ná hæstu hæðum - Bitcoin hótar 80k 18.04.2026 1h 1min
    Í þessum þætti er farið yfir það helsta á rafmyntamarkaðnum. Hlutabréf í Bandaríkjunum hafa, þrátt fyrir ólguna í heimsmálunum, náð hæstu hæðum á ný og rafmyntir hafa sömuleiðis haldið áfram upp á við eftir miklar lægðir á undan. Goldman Sachs, einn stærsti fjárfestingabankinn í Bandaríkjunum, hefur bæst í hóp þeirra aðila sem munu bjóða upp á Bitcoin kauphallarsjóð. Þetta og margt fleira er rætt í þessum þætti.
  • Bitcoin heldur sjó yfir 70k samhliða talsverðu innflæði í kauphallarsjóði 11.04.2026 1h 2min
    Í þessum þætti er farið yfir stöðuna á markaðnum. Morgan Stanley BTC kauphallarsjóðurinn fer ágætlega af stað og Bitcoin hefur tekist ágætlega að halda sér yfir 70k. Þeir félagar Kjartan og Björn velta nokkrum stjórnspekilegum álitaefnum fyrir sér. Þá er fjallað um nýlegar kenningar um hver Satoshi Nakamoto er.
  • Morgan Stanley kynnir til leiks BTC kauphallarsjóð á bestu kjörum markaðarins 04.04.2026 1h 2min
    Í þessum þætti er rætt um nokkurn veginn óbreytt ástand markaðarins. Allir markaðir virðast um þessar mundir hanga á ummælum Trumps um framgang átakanna í Íran og virðast hver ummæli sveifla mörkuðum í báðar áttir. Eins og rafmyntafjárfestar hafa fengið að venjast virðast góðar fréttir hreyfa takmarkað við markaðnum eins og sakir standa, en það verður að teljast stórfrétt að Morgan Stanley, einn stærsti bankinn í Bandaríkjunum, hefur ákveðið að veðja á Bitcoin. Hefur bankinn nú opnað fyrir sinn eigin BTC kauphallarsjóð á betri kjörum en allir samkeppnisaðilar. Segja má að fréttnæmasta atriðið er sú staðreynd að Morgan Stanley rekur mjög fáa kauphallarsjóði í samanburði við samkeppnisaðilana og hefur það fengið marga til að draga þá ályktun að bankinn sé með þessu framtaki að veðja á Bitcoin sem trausta eign til framtíðar. Þetta og margt fleira í þessum þætti.

Populārs valstī

Šis podkasts parādās arī šo valstu podkastu topos.