My way morðin

Á árunum 2002-2012 voru framin alla vega 12 morð á Filippseyjum sem tengjast söng á laginu My Way í karaoke. Hvernig má þetta vera? Hvað þarf að skoða?

Í þessum þríleik dveljum við ekki við hvert og eitt morð heldur reynum að finna mögulegar orsakir þess að alla vega 12 menn voru myrtir á Filippseyjum þegar þeir sungu sama lagið í karaoke.

Við skoðum samfélags-strúktúr og menningu, þýðingu lagsins í filippeysku samfélagi, ást Filippseyinga á söng, karaoke sem útrás og listform, karaoke sem órjúfanlegan hluta af filippeysku samfélagi, stéttaskiptingu, nýlenduherrana Spánverja á 16. öld, kaup Bandaríkjanna á Filippseyjum í lok 19. aldar, kúgun, stolt þjóðar, áhrif raddarinnar og söngsins á tilfinningar okkar og mögulega yfirnáttúrulega krafta og andsetið lag.

Viðmælendur:

Bragi Valdimar Skúlason

Eygló Höskuldsdóttir Viborg

Hannes Þórður Hafstein Þorvaldsson

Ingibjörg Stefánsdóttir

Margrét Erla Maack

Marj Einarsson

Michael Charlston (Xiao) Chua

Lestur:

Gígja Hólmgeirsdóttir

Jóhannes Ólafsson

Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal

Aðstoð við framleiðslu: Gígja Hólmgeirsdóttir

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Епизоди

1. þáttur 29.05.2025 39минÍ þessum fyrsta þætti ætlum við að fara langt aftur í tímann sem og rýna aðeins inn á við. Við skoðum hina mennsku rödd og áhrifin sem söngurinn hefur á tilfinningar okkar en einnig hvers vegna söngur er svona stór hluti af lífinu á Filippseyjum. Við heyrum af því hvernig ást Filippseyinga á söng hefur þróast frá landnámi til dagsins í dag og hvaða áhrif Spánverjar og Bandaríkjamenn hafa haft á sjálfsmynd þjóðarinnar og hvernig þetta allt saman endurspeglast í ást Filippseyinga á karókí. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

2. þáttur 29.05.2025 40минÍ miðjukaflanum ætlum við að setja karókíið í fyrsta sæti og heyra ýmsar reynslusögur frá viðmælendum okkar sem eru sérfræðingar að syngja í, keppa í og að stjórna karókískemmtunum. Við skoðum karókídrauminn, þessa þrá að vera uppgötvuð sem stórstjörnur á karókíbar og hvað það getur gert fyrir okkur að fá listaverk annara að láni í 3 mínútur. Af hverju er karókíið svona gríðarlega vinsælt á Filippseyjum, en þar er það ekki bara partý á föstudagskvöldi heldur lífstíll og karókísöngurinn hluti af daglegu lífi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

3. þáttur 29.05.2025 40минÍ lokaþættinum kynnum við okkur hugtakið karaoke-rage eða karókí-ofsa sem er svo sannarlega ekki einskorðaður við Filippseyjar. Við rýnum í lagið sjálft og textann og reynum að átta okkur á því hvort og þá hvað það er við þetta lag og þennan texta sem gæti leyst úr læðingi ofsafengin viðbrögð áhorfenda þegar lagið er sungið á karókíbar á Filippseyjum. Liggur bölvun á laginu? Hefði texti David Bowie við lagið haft einhver áhrif á þessa þróun mála? Hefði þetta lag kallað fram þessi viðbrögð annars staðar en á Filippseyjum? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Популарен во
Овој подкаст се појавува и на подкаст-листите на овие земји.