Auðnast

Auðnast

Ghost Network®
Земја Исланд
Жанрови Society & Culture, Health & Fitness, Mental Health, Relationships
Јазик EN
Епизоди 31
Последна 13.05.2026

Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum, en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Markmiðið er að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks með áherslu á sálfélagslegt öryggi, sjálfbærni og heilbrigð samskipti.

Епизоди

  • Fjarvistir á vinnustað 15.06.2026 48мин
    Fjarvistir eru ekki bara kostnaður. Þær eru skilaboð.Í þessum þætti skoðum við hvað fjarvistir og óheilbrigð viðvera geta sagt okkur um menningu, stjórnun og sálfélagslegt öryggi á vinnustaðnum. Við veltum því einnig fyrir okkur hvers vegna stærsta vandamálið er stundum ekki hverjir eru frá vinnu, heldur hverjir mæta og líður ekki vel.
  • Þegar eitthvað vantar upp á - Um tómleika í nánum samböndum 13.05.2026 54мин
    Þátturinn fjallar um þá tilfinningu sem mörg pör kannast við en fá tala opinskátt um: Að vera í sambandi þar sem allt virðist í lagi á yfirborðinu en samt ríkir fjarlægð og einmanaleiki. Við skoðum hvað gerist þegar nándin dofnar hægt og rólega, hvers vegna pör detta úr takti og hvernig daglegt álag, samskiptamynstur og óuppfylltar þarfir geta skapað fjarlægð. Við ræðum hvað rannsóknir segja um tengsl og öryggi í samböndum og hvað hjálpar pörum að finna taktinn á ný. Þátturinn er fyrir öll sem hafa einhvern tímann spurt sig: "Verður þetta bara svona?" og fyrir þau sem eru í vangaveltu um hvort þau séu að ganga í gegnum tímabundna fjarlægð í sambandinu eða hvort þau séu jafnvel komið á endastöð.
  • Stjórnun í breytingum: Að leiða í gegnum óvissu og krefjandi tíma 27.04.2026 38мин
    Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvernig stjórnendur geta leitt fólk í gegnum óvissu, breytingar og erfiða tíma. Þær skoða hvað gerist hjá fólki þegar tilfinningin um öryggi breytist, hvaða mistök stjórnendur gera gjarnan og hvað rannsóknir segja um traust, skýrleika, sýnileika og samkennd í stjórnun. Þátturinn er fyrir stjórnendur, mannauðsfólk og alla sem vilja skilja betur hvernig hægt er að skapa öryggi, halda utan um teymi og leiða á mannlegan hátt.Heimildir: Bakker & Demerouti: Job Demands-Resources Model Amy Edmondson: Psychological Safety, Harvard Business School, Dan Siegel: Interpersonal Neurobiology Brené Brown: Dare to Lead
  • Þættinum hefur borist bréf: Álag, stjórnun og ábyrgð á vinnustað 24.03.2026 44мин
    Í þessum þætti svörum við spurningum frá hlustendum um margvíslegar áskoranir á vinnustað. Við förum beint í það sem raunverulega mótar líðan og samskipti; kulnun, álag, stjórnun og ábyrgð. Við ræðum: Er kulnun stundum misskilin sem skortur á þrautseigju? Eru stjórnendur gerðir ábyrgir fyrir líðan starfsfólks? Hvers vegna eru konur ekki teknar jafn alvarlega í ágreiningi? Hvað á stjórnandi að gera þegar virðing fyrir starfsmanni hverfur? Heiðarlegur og einlægur þáttur um flókin mál.
  • Einelti og óheilbrigð samskipti á vinnustað 23.02.2026 44мин
    Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna um óheilbrigð samskipti og einelti á vinnustað, hvernig það verður til og í hvers konar starfsumhverfi það þrífst. Þær fara yfir muninn á ágreiningi og einelti, ræða valdaójafnvægi og mynstur í samskiptum og skoða hvaða þættir í menningu og stjórnun geta ýtt undir eða dregið úr áhættu. Að lokum fara þær yfir hvað er hægt að gera þegar mál koma upp og hvaða forvarnir Skipta mestu máli.
  • Reiði – ógn eða leiðarvísir? 02.02.2026 46мин
    Reiði er oft misskilin tilfinning bæði í einkalífi og starfi. Í þessum þætti kryfjum við reiðina og hvernig hún tengist mörkum, sjálfsvirðingu, valdaleysi og tengslum – og af hverju hún situr svona lengi í okkur. Við skoðum fræðin og hagnýt skref til að vinna með reiði á uppbyggilegan hátt.https://www.harrietlerner.com/https://hbr.org/2013/11/emotional-agilityhttps://drdansiegel.com/
  • Hamingja í vinnu - Markmið eða óraunhæf krafa? 27.01.2026 49мин
    Hvað þýðir hamingja í vinnu og ertu með raunhæfar væntingar um hamingju? Við skoðum bæði mannlega og fræðilega sjónarhornið og veltum því fyrir okkur hvort hamingja sé frekar orðin krafa en markmið. Við skoðum hvað vísindin segja og kynnum praktískt verkfæri bæði fyrir einstaklinga og stjórnendur.https://skemman.is/handle/1946/40537https://www.mdpi.com/2076-3387/15/9/351
  • Sjálfstraust 02.01.2026 42мин
    Hvað er raunverulegt sjálfstraust? Í þessum þætti ræðum við hvað sjálfstraust er, hvernig það mótast og hvernig það getur birst í ólíkum myndum - bæði heilbrigðum og óheilbrigðum. Við skoðum sjálfstraust út frá sálfræðinni, tengslamyndun, fjölskyldumynstrum og lífeðlisfræðinni, með það að markmiði að hjálpa þér að þekkja sjálfstraustið þitt og efla það á heilbrigðan hátt.
  • Allt sem þú þarft að vita fyrir aðventuna 05.12.2025 40мин
    Í þessum þætti ætlum við að vera á ljúfu og léttu nótunum - Við förum yfir væntingar, tenglslamyndun og könnum hvers konar aðventutýpa þú ert. Að lokum förum yfir við nokkur atriði sem undirbúa taugkerfið þitt fyrir komandi vikur. Ef þu vilt gera aðventuna enn betri, hlustaðu þá á þennan þátt því hinn raunverulegi undirbúningur hefst með því að virkja sefkerfið. 
  • Ágreiningur - allt sem þú þarft að vita 27.11.2025 50мин
    Ef þú vilt skilja ágreining þá er þetta þáttur fyrir þig. Við rýnum í hugtakið, skoðum hvers vegna hann vekur svona sterk viðbrögð og hvernig við getum farið úr forðun yfir í færni. Við ræðum ágreining í vinnu, parsamböndum, vináttu og upprunafjölskyldu og förum yfir hvað er algengast að fari úrskeiðis. Við fyllum á verkfærakassann með hagnýtum aðferðum - meðal annars hvernig er best að bregðast við óvæntum ágreiningi. Þátturinn er fyrir öll sem vilja eiga heiðarlegri, hlýlegri og skýrari samskipti – hvort sem er heima fyrir, í vinnu eða í mikilvægum samböndum.
  • Hver er þinn fjölskylduarfur? Sagan sem mótar samböndin okkar 05.11.2025 46мин
    Ef þú vilt skilja þig og þín sambönd betur – skaltu hlusta. Í þessum þætti skoðum við hvernig sagan okkar og tengsl í barnæsku hafa áhrif á samskipti og heilsu á fullorðinsárum. Við skoðum líka hvernig gömul mynstur frá fyrri kynslóðum og tilfinningakerfi fjölskyldunnar móta viðbrögð okkar og hafa áhrif bæði á ástarsambönd sem og önnur sambönd í þínu lífi.Lesefni: https://www.amazon.com/Love-Never-Enough-Misunderstandings-Relationship/dp/0060916044https://www.thebowencenter.org/introduction-eight-concepts
  • Frá innri ró til ytri áhrifa: sjö lykilþættir í leik og starfi 24.10.2025 44мин
    Við förum yfir sjö hæfniþætti sem gott er að tileinka sér bæði í leik og starfi. Sum vilja kalla þetta mjúka hæfileika – okkur finnst þetta vera mikilvægu hæfileikarnir. Hlustaðu á þáttinn og kannaðu hvort það liggi sóknartækifæri hjá þér.
  • Bjargráð: Lausnamiðuð, tilfinningaleg og minna gagnleg 01.10.2025 45мин
    „Bjargráð eru ekki töfrabrögð – þau eru verkfæri. Í þesstum þætti förum við yfir tilfinningamiðuð, lausnamiðuð og minna gagnleg bjargráð, og tölum heiðarlega um það hvernig kynslóðararfurinn og karaktereinkenni hafa áhrif. 
  • Sálfélagslegt öryggi á vinnustað 09.09.2025 47мин
    Hvað þarf til þess að fólki líði vel á vinnustað? Kannski er það ekki bara jógasalur eða hópefli heldur grunnstoðir í skipulagi og vel upplýstir stjórnendur. Við tölum um það sem Auðnast stendur fyrir alla daga: Sálfélagslegt öryggi. Lesefni sem við mælum með:    https://bmcpublichealth.biomedcentral.com/articles/10.1186/s12889-023-16246-x?utm 
  • Tilfinningagreind 05.09.2025 41мин
    Við ræðum hvað tilfinningagreind er út frá mismunandi sjónarhornum og hvernig við getum verið misgóð í henni eftir því í hvaða hlutverkum við sinnum. Við skoðum líka mat á eigin tilfinningagreind og hvernig við getum eflt hana í daglegu lífi. Hlustaðu og vertu í takt við tilfinningar þínar!
  • Stöðutékk - á þér... 27.07.2025 39мин
    Við ræðum einfaldar leiðir til að taka stöðu á sér persónulega og hvers vegna við erum líkleg til þess að festast í sama mynstrinu aftur og aftur. Við skoðum vanabrautir og hvernig sjálfsmildi getur varðað veginn í átt að farsælli breytingu. Það er að segja ef það er eitthvað sem þú vilt breyta. https://www.youtube.com/watch?v=hiiEeMN7vbQ – Carol dweck https://self-compassion.org/wp-content/uploads/2022/08/PsychReviewInPress.pdf https://www.thebowencenter.org/multigenerational-transmission-process 
  • Sumarfrí sem streituvaldur 16.07.2025 29мин
    Við ræðum hvers vegna sumarfrí er stundum streituvaldur  bæði út frá starfshlutverkinu en ekki síður út frá fjölskyldulífinu. Við skoðum líka fjögur gagnleg ráð sem geta nýst þér og þínum.   https://hrreview.co.uk/har-news/wellbeing-news/majority-of-working-brits-feel-pressure-to-check-company-emails-while-on-holiday/371705? https://www.sciencedaily.com/releases/2018/08/180810091553.htm?utm_source 
  • Að vinna með einhverjum sem þér líkar ekki við. 27.05.2025 28мин
    Í þessum þætti förum við yfir reynslu sem mörg þekkja en fá kannski ræða opinskátt. Hvað gerum við þegar okkur líkar ekki vel við samstarfsfélaga. Við köfum beint í kjarnann, reynum að skilja og skoða þær tilfinningar sem skjóta upp kollinum þegar okkur finnst einhver pirrandi, ekki starfi sínu vaxinn eða bara leiðinlegur. Greinar  sem við mælum með:  https://www.frontiersin.org/journals/aging-neuroscience/articles/10.3389/fnagi.2016.00074/full 
  • Framhjáhald – út frá sjónarhóli þess sem haldið er framhjá 19.05.2025 44мин
    Í þessum þætti förum við yfir algenga upplifun og líðan hjá fólki sem haldið er framhjá. Viðfangsefnið er sannarlega viðkvæmt og sársaukafullt en engu að síður mikilvægt.
  • Samskipti - Mikilvægasta verkfærið á vinnustaðnum 04.04.2025 32мин
    Í þessum þætti förum við yfir víðan völl þegar kemur að samskiptum á vinnustað, hvaða áhrif ógagnleg samskipti hafa á líðan starfsfólks og hvaða leiðir eru farsælar til þess að efla samskipti á vinnustað.  Lesefni sem við mælum með: https://www.shrm.org/in/topics-tools/news/organizational-employee-development/cost-poor-communication?  https://www.mckinsey.com/locations/mckinsey-client-capabilities-network/our-work/strategic-and-change-communications/the-communications-exchange/unlocking-organizational-communication-five-ways-to-ignite-employee-engagement? 

Популарен во

Овој подкаст се појавува и на подкаст-листите на овие земји.