Tengivagninn

Tengivagninn

RÚV
Земја Исланд
Жанрови Arts
Јазик IS
Епизоди 84
Последна 14.08.2025

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar. Þættirnir taka á ýmsum menningarviðburðum, listum og skemmtunum sem eiga sér stað á Íslandi. Hver þáttur kynnir áhugaverða viðburði og viðtöl við þátttakendur. Markmiðið er að halda hlustendum upplýstum um menningarlífið yfir sumartímann.

Епизоди

  • Ástin sem eftir er, sveppir, einleikir og Laxness í Hollywood 14.08.2025 1ч 48мин
    Í síðasta Tengivagni sumarsins ræðum við Hlyn Pálmason og Anton Mána Svansson um kvikmyndina Ástin sem eftir er, sem frumsýnd er í dag. Katla Ársælsdóttir rýnir í einleiki á Act alone-hátíðinni á Suðureyri, Kolbeinn Rastrick pælir í Hollywood-för Halldórs Laxness og Halla Harðardóttir fer í sveppamó. Tónlist: Ana Lua Caiano - Deixem O Morto Morrer Charlotte Adigéry & Bois Pupul - Blenda
  • Dínamískt jafnvægi, stuttbuxur og Safnasafnið 13.08.2025 1ч 49мин
    Í dag heimsækjum heimsækjum við Þórbergssetur á Hala í Suðursveit og ræðum við Maríu Sjöfn, myndlistarmann, um samsýninguna Dínamískt jafnvægi. Sýningunni er fléttað inn í umhverfi Hala og aðrar sýningar í Þórbergssetri, einna helst fyrirferðamikla sýningu um líf og verk Þórbergs Þórðarsonar. Við fáum líka pistil frá Ásdísi Sól Ágústsdóttur um sumarið og sumarfatnað. Að lokum heyrum við frá heimsókn Tengivagnsins í Safnasafnið við Svalbarðseyri í Eyjafirði. Tónlist úr þættinum: Locust - No one in the world Emilíana Torrini - Heartstopper Amaarae - Girlie-Pop! Oracle Sisters - Marseille
  • Pönkplata frá BKPM, Skaftfell og LungA-skólinn á Seyðisfirði, 100 ára afmæli Thors Vilhjámssonar 12.08.2025 1ч 51мин
    Meðlimir post-pönk hljómsveitarinnar BKPM segja frá sinni fyrstu hljómplötu, Bíddu ha? og ræða pönkið, hinsseginleikann og streymisveitur. Við heimsækjum Skaftfell, myndlistarmiðstöð Seyðisfjarðar og LungA-skólann. Synir Thors Vilhjálmssonar segja frá bókinni Og þaðan gengur sveinninn skáld sem gefin er út í tilefni af 100 ára afmæli höfundarins. Maó Alheimsdóttir veltir fyrir sér hafinu bláa og Auður Emilsdóttir les ljóð sitt Orðsifjar, sem bar sigur úr býtum í ljóðasamkeppni Hinsegin daga. Tónlist flutt í þætti: Hayley Williams - Ego Death At A Bachelorette Party The New Eves - Cow Song
  • Úr fullkomnu samhengi, endurkoma Of Monsters and Men og Shakespeare í Tjarnarbíó 07.08.2025 1ч 48мин
    Í dag heimsækjum við sýningarrýmið Verksmiðjuna á Hjalteyri við Eyjafjörð, ræðum við Gústav Geir Bollason og skoðum sýninguna Úr fullkomnu samhengi með verkum Julie Tremble og tvíkeykisins Philippe-Aubert Gauthier og Tönyu St-Pierre. Við bregðum okkur líka í Tjarnarbíó og spjöllum við tvo nýútskrifaða leikara sem setja upp leikrit eftir William Shakespeare í leikhúsinu. Svo setjast hjá okkur Nanna Bryndís og Ragnar, meðlimir hljómsveitarinnar heimsfrægu Of Monsters and Men, sem gáfu út nýtt lag í dag og eru á leiðinni á túr með nýja plötu. Tónlist: Of Monsters and Men - Television Love Of Monsters and Men - Ordinary Creature Of Monsters and Men - Dirty Paws Obongjayar - Holy Mountain Cornelia Murr - Different this time
  • Venus í Ásmundarsal og Flóra, Hringmyrkvi og söfnin á Húsavík 06.08.2025 1ч 42мин
    Bjartey Elín Hauksdóttir og Anna Guðrún Tómasdóttir segja frá danssýningunni Venus sem þær undirbúa og sýna í Ásmundarsal á næstunni. Við heimsækjum sýningu byggða á dómi Guðmunds Sigurjónssonar glímukappa í Safnahúsinu á Húsavík, fáum leiðsögn um safnið og kynnumst starfsemi Flóru menningarhúss á Akureyri. Helga Lára Þorsteinsdóttir fjallar um Hringmyrkva, listasýningu í Síldartönkunum á Raufarhöfn. Tónlist flutt í þætti: Anna Erhard - Botanical Garden Inspector Spacetime - Catch planes Saskia - Shine A Light
  • GIV MÍ TYGGIGÚMMÍ, Ljóðaunnendur á Austurlandi og Steinunn Eldflaug Harðardóttir 05.08.2025 1ч 53мин
    Við heimsækjum tónlistarkonuna Steinunni Eldflaug Harðardóttur, sem einnig er þekkt sem DJ Flugvél og Geimskip, í hljóðver hennar á Grandanum. Við ræðum við Magnús Stefánsson, formann félags ljóðaunnenda á Austurlandi um ljóðlistina og nýjustu útgáfur félagsins á austfirskum ljóðum. Við lítum komum við á Korpúlfsstöðum í Mosfellsveit þar sem fyrsta einkasýning Ingibjargar Rannveigar Guðlaugsdóttur, 86, stóð yfir um helgina. Sýningin ber heitið GIV MÍ TYGGIGÚMMÍ og sýningarstjórinn er Silfrún Una Guðlaugsdóttir, sonardóttir Ingibjargar. Tónlist úr þættinum: Dj. Flugvél Og Geimskip - Zosimos Nino Rota - Mi ha anche dato 10,000 lire... Yma Sumac - Chuncho Martin Denny - Quiet Village Dj. Flugvél Og Geimskip - Hjari veraldar Dj. Flugvél Og Geimskip; Skuggasveinn - Náttdrottning Hlökk - Mosagræna
  • Barbara Árnason á Gerðarsafni, Alicja Kwade í i8 gallerí og Ars Longa á Djúpavogi 31.07.2025 1ч 47мин
    Listin liggur heldur betur ekki í dvala á sumrin. Verk eftir Barböru Árnason eru sýnd á Gerðarsafni í Kópavogi. Melkorka Ólafsdóttir fjallar um þessa merkilegu listakonu og Pétur Magnússon ræðir við Brynju Sveinsdóttur, forstöðumann Gerðasafns. Una Schram ræðir við pólsku listakonuna Alicju Kwade á i8 gallerý þar sem sýning hennar, Silent Archibionts, stendur yfir. Við heimsækjum samtímasafnið Ars Longa á Djúpavogi og heyrum frá yfirstandandi sýningu, Í lággróðrinum. Kolbeinn Rastrick kvikmyndagagnrýnandi fjallar um Targets eða Skotmörk frá árinu 1968, hryllingsmynd sem veltir fyrir sér hvernig eðlilegur drengur verður að fjöldamorðingja. Tónlist flutt í þætti: Jack J - Falling Down a Well Men I Trust - Space Is the Place
  • Stuttmyndin Aldrei einn, Bláa kirkjan á Seyðisfirði, Bach í nýjum búning og Kómedíuleikhúsið 30.07.2025 1ч 47мин
    Í þætti dagsins förum í heimsókn í bláu kirkjuna á Seyðisfirði og heyrum í Elfu Hlín Sigrúnar Pétursdóttur sem segir frá tónleikum sem haldnir eru í kirkjunni í kvöld. Kristján Guðjónsson forvitnast um nýjustu plötu nafna síns og píanóleikara Kristjáns Martinssonar, og Elfar Logi Hannesson segir okkur frá Kómedíuleikhúsinu og Act alone hátíðinni á Suðureyri. Arngunnur Hinriksdóttir, Garðar Hinrksson og Sölvi Dýrfjörð segja okkur frá stuttmyndinni Aldrei Einn sem þau tóku upp og sýna á Flateyri. Tónlist flutt í þætti: Gudrid Hansdottir - Sakna Mig Lög af plötunn 1035 - Kristján Martinsson Party 4 U - Charli XCX Chintamani - Celíne Dessberg SOS - Birnir og Alaska1867 Everything in it's right place - Radiohead
  • Currents 10 ára og Svavarssafn á Höfn í Hornafirði 29.07.2025 1ч 46мин
    Við fögnum 10 ára afmæli plötunnar Currents eftir ástralska tónlistarmanninn Kevin Parker eða Tame Impala. Platan blandar saman ný-síkadelíu, rokki, poppi og fönki og er með yfir fimm milljarða spilana á Spotify. Una Schram ræðir við tónlistarfræðinga og helstu aðdáendur Tame Impala á Íslandi. Birta Guðjónsdóttir starfar á nýlistasafni Svavars Guðnasonar á Höfn í Hornafirði. Hún ræðir við Pétur Magnússon um safnið og listina.
  • Myndleysa, áhrif Autechre og skáldskapur Þórdísar Helgadóttur 24.07.2025 1ч 50мин
    Í dag fjöllum við um Myndleysu sýningu ljósmyndarans Önnu Maggýar í Gallery Þulu, ræðum við raftónlistarþríeykið sideproject um raftónlistartvíeykið Autechre, setjumst niður með Þórdísi Helgadóttur rithöfundu og flytjum pistil eftir Ásdísi Sól Ágústsdóttur um Anthony Bourdain.
  • Svipmynd af Listasafninu á Akureyri, Þóra Sigurðardóttir, Margrét Jónsdóttir og ljóðasamkeppni Hinsegin daga 23.07.2025 1ч 48мин
    Tengivagninn er á Listasafninu á Akureyri í dag. Þóra Sigurðardóttir vinnur með skúlptúra, vídjóverk, textíl og teikningar. Hún leiðir okkur um yfirgripsmikla sýningu sína, Tími - Rými - Efni. Margrét Jónsdóttir keramík listamaður lítur yfir fjöutíu ára starfsferil með sýningunni Kimarek. Sigríður Örvarsdóttir safnstjóri segir okkur hvað er á dagskrá safnsins það sem eftir er sumars. Elín Elísabet Einarsdóttir flytur síðasta pistilinn í bili. Viðar Eggertsson og Bergrún Íris Sævarsdóttir segja okkur frá ljóðasamkeppni Hinsegin daga - árlegri keppni þar sem reynd og ný skáld senda nafnlaus ljóð um hinseginleika. Tónlist flutt í þætti: Only When I - Alice Pheobe Lou Raat Ki Rani - Arooj Aftab (Sylvan Esso remix)
  • Jórunn Viðar, Marlene Dietrich og Allt sem ég vil segja þér 22.07.2025 1ч 47мин
    Söngleikurinn Þar lá mín leið er byggður á verkum Jórunnar Viðar. Þær Steinunn María Þormar og Ólína Ákadóttir segja okkur frá verkefninu sem er hluti af Skapandi sumarstörfum í Kópavogi og flytja lög úr sýningunni. Sýningin Allt sem ég vil segja þér eftir listakvárin Sadie Cook og Jo Pawlowska í Listasafni Reykjavíkur. Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, bæjarlistamaður Borgarbyggðar, setur upp söngleik í Sjálfstæðissalnum sem byggður er á lífi Marlene Dietrich. Afhverju eru fjöllin blá? spyr Maó Alheimsdóttir. Lagalisti: All Night All Day - Big Thief Mind Loaded - Blood Orange ásamt Caroline Polacheck, Lorde og Mustafa Blue World - Mac Miller Just Can't Wait - Kokoroko
  • Erlendur Sveinsson og súrrealískir söngleikir 17.07.2025 52мин
    Erlendur Sveinsson segir frá fjölbreyttum ferli við kvikmynda- og tónlistarmyndbandagerð. Kolbeinn Rastrick mælir með súrealískum söngleikjamyndum. Lag í þætti: 3LNA - alles verlieren
  • Pínulítil bók, Eyjafjarðarsveit og Krautz á Seltjarnarnesi 16.07.2025 53мин
    Melkorka Ólafsdóttir fer í Dyngjuna og heimsækir Smámunasafnið í Eyjafjarðarsveit. Kristján Guðjónsson ræðir við Fríðu Þorkellsdóttur um nýútgefna og pínulitla bók. Kilian Briansson og Jónsi Hannesson segja frá gamanþáttaseríunni Krautz in Seltjarnarnes sem verður sýnd á RÚV í sumar, og Elín Elísabet Einarsdóttir flytur sinn þriðja pistil í Tengivagninum. Tónlist flutt í þætti: Stefán Elí & Óli Bjarnar - Leyfðu þér að sjást Little Simz - Mood Swings
  • Vorverk í hAughúsi og listasumar á Akureyri 15.07.2025 52мин
    Í dag stoppum við í hAughúsi í Héraðsdal í Skagafirði og skoðum sýninguna Vorverk með listakonunum Þórdísi Öldu og Rúrí. Við fræðumst líka um listasumar á Akureyri með aðstoð Jóns Hauks Unnarssonar, verkefnastjóra sumarhátíða hjá Akureyrarbæ, og Karólínu Baldvinsdóttur, sem stendur fyrir hátíðinni Karnivölu.
  • Ljóðaganga með Múkk, sumarópera, SÍM og Geislagarður 10.07.2025 1ч 46мин
    Kristján Guðjónsson tekur yfir seinni hluta Tengivagnsins í næstu viku. Þá verður spilað viðtal í fjórum hlutum við Jóhann Pál Árnason heimspeking og félagsfræðing. Hann kom og sagði frá seríunni. Næstu helgi verður í fyrsta sinn sett á svið ópera á sumartónleikum í Skálholti. Við heyrum frá listrænum stjórnanda hátíðarinnar, Benedikti Kristjánssyni. Helmingur ljóðagengisins Múkk heldur af stað í Ljóðagöngu frá Borgarbókasafninu í Grófinni í kvöld. Tengivagninn hitti þær Karólínu og Önnu Rós á safninu og fór svo í nokkrar gallery heimsóknir. Samsýningin Leiðir yfir land stendur yfir í sýningarsal SÍM og Geislagarð er að finna Y gallery í Kópavogi. Tónlist spiluð í þætti: Black Country, New Road - Besties Saya Grey - Lie Down Erika De Casier - Delusion
  • Hátíðir um land allt og Þjóðaróperan 09.07.2025 1ч 51мин
    Tengivagninn er á flakki um landið. Melkorka Ólafsdóttir fór á Siglufjörð og fræddi okkur um fjöllistahátíðina Frjó. Helga Lára Þorsteinsdóttir fjallar um Melrakkann á Raufarhöfn og Elín Elísabet heldur sýninguna Sækja heim í Glettu í Borgarfirði Eystri. Við kíkjum einnig á Borðeyri þar sem Hátíðni stóð yfir um helgina. Kristján Guðjónsson er í höfuborginni og ræðir við Þórunni Sigurðardóttur um Þjóðaróperu. Tónlist flutt í þætti: Falin myndavél - Ditzy Augnarráð - KUSK & Óviti The Kids Are Out Tonight - Ditzy Planta - Stirnir
  • Þorskar, Grænlendingar og Íslendingar á Hróarskeldu 08.07.2025 1ч 48мин
    Tengivagninn heyrir hljóðið í Íslendingum á tónlistarhátíðinni Hróarskjöldu í Danmörku. Maó Alheimsdóttir gengur fjöll og fjallar um örnefni. Listasafn Íslands sýnir Græna Landið eftir Inuk Silis Høegh, listamann og kvikmyndagerðarmann, og Sögufélagið gefur út bók Sumarliða Ísleifssonar um viðhorf umheimsins til Íslands og Grænlands. Lagalisti: Africa Express - Morals FKA Twigs - Childlike Things Ungklang - Du spør' mig om håbet Doechii - Catfish Uuummatimaa - Tarrak og Suspekt
  • Akademísk hrollvekja, ljóðaþýðingar og Þjóðlagahátíð á Sigló 03.07.2025 1ч 45мин
    Rachel Britton fluttist til Íslands frá New York fyrir fimm árum síðan og þýðir nú íslensk ljóð yfir á Ensku. Hún segir okkur frá starfi sínu sem þýðandi og áhuga hennar á íslenskri list. Akademíska hrollvekjan Marginalía kom út á dögunum og ritlistarnemendur við Háskóla Íslands komu í Tengivagninn og sögðu okkur frá útgáfunni. Melkorka Ólafsdóttir er stödd á Siglufirði og gefur hlustendum smjörþef af stemmningunni á Þjóðlagahátíð sem er haldin þar í 25. sinn. Tónlist spiluð í þætti: Djákninn á Myrká - Rósa Ingólfsdóttir primabalerina - Coals Umlíðun - hist og lúpínu bossa nova - lúpína Lost Song - Sykur
  • Kvenlæg keramiklistaverk og tónleikahald í Reykjavík og Köben 02.07.2025 1ч 49мин
    Hvernig er að halda tónleika í Reykjavík? En í Kaupmannahöfn? Óli Dóri og Snorri Ástrásson hafa starfað sem tónleikaskipuleggjendur lengi. Við ræðum við þá um tónleikahald og annað tónlistartengt. Við kynnumst líka þremur tónlistarkonum sem eru nýsnúnar aftur heim eftir framhaldsnám í klassískri tónlist erlendis, og koma fram á tónleikaröðinni Velkomin heim. Við kíkjum einnig á myndlistarsýninguna Þætti sem Valgerður Sigurðardóttir opnaði í Ásmundarsal síðustu helgi. Tónlist úr þættinum: O.N.E. - Ute. Sólveig Steinþórsdóttir - Sonata no.2 in A minor : II. Malinconia: Poco lento. Gugusar - Crazy Brokeboi - Juno Paul Ruby Francis - Lanzarote EoO - Bad Bunny Red Bottom Sky - Yung Lean Time - Sturla Atlas Að elska og þrá - K.óla

Популарен во

Овој подкаст се појавува и на подкаст-листите на овие земји.