Vísir

Vísir

visirhladvarp
Земја Исланд
Жанрови Вести
Јазик EN
Епизоди 2
Последна 19.08.2026

Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum skilningi. Frá stjórnmálum til poppkúltúrs – og öllu þar á milli.

Епизоди

  • Guðmundur Hálfdánarson - Jón Sigurðsson talaði aldrei um sjálfstæði 19.08.2026 1ч 8мин
    Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur er gestur dagsins en hann hefur helgað stóran part starfsævinnar því að rannsaka þjóðernisvitund Íslendinga og sögu hennar. Hvernig sú merking sem landar leggja í hugtök á borð við fullveldi og framsal á því, hvað Evrópa er í augum okkar og hvort við teljum okkur hluta af henni eður ei. Já, og svo hvað það þýðir eiginlega þegar til kastanna kemur.
  • Birgir Ármannsson - Salami-aðferðin, stjórnarskráin og málskotsrétturinn 18.08.2026 49мин
    Fáir þekkja íslensku stjórnarskránna betur en Birgir Ármansson, lögmaður og fyrrverandi forseti Alþingis, en hann var áður þingmaður Sjálfstæðisflokksins en er nú viðloðinn nei-hreyfinguna Áfram Ísland. Hann útskýrir að gera þurfi ýmsar breytingar á stjórnarskránni ef Ísland ætli að ganga inn í Evrópusambandið og slíkar breytingar þurfi eins konar tveggja þátta auðkenningu frá Alþingi. Málskotsrétturinn yrði enn á sínum stað en myndi þó ekki ná til Evrópulöggjafar. Hann fer um víðan völl og talar meðal annars um „salami-aðferðina“ en þannig lýsir hann aðlögunarferlinu að Evrópusambandinu. 
  • Jón Bjarnason - Kvótinn gerði allt vitlaust í Brussel 17.08.2026 1ч 33мин
    Vorið 2009 tók við ríkisstjórn Vinstri grænna og  Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Eitt umdeildasta  verkefni hennar varð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.  Jón Bjarnason sat í stjórninni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þótt hann væri sjálfur eindreginn andstæðingur  aðildar. Í þessum þætti rekur Jón þessa sögu frá sínu sjónarhorni:  stjórnarmyndunina, varnagla Alþingis, umsóknarbréfið, makrílinn, óþægilega rússíbanareið og hótelið fræga í Kaliforníu.
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 13.08.26 13.08.2026 47мин
    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, kveðst ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg aðspurð um hvort hún myndi ráðleggja þjóðinni að hafna aðildarsamningi, fáist ekki undanþágur í sjávarútvegi, þrátt fyrir þann mikla  ávinning í öryggismálum, sem hún telur að felist í aðild að Evrópusambandinu. Elísabet Inga settist niður með ráðherra. 
  • Kristrún Frostadóttir - 23.06.26 13.08.2026 22мин
    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var gestur Íslands í dag þar sem hún settist niður með Elísabetu Ingu Sigurðardóttur fréttamanni og fór meðal annars yfir störf þingsins á liðnum vetri, efnahagsmálin og þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst.
  • Borgarlínan: Hvað er verið að byggja — og af hverju? 02.07.2026 1ч 12мин
    Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum, fer yfir Borgarlínuverkefnið í heild. Hvað er Borgarlínan? Hvaða vandamál á hún að leysa? Hvað kostar hún? Hvaða framkvæmdir fylgja henni? Af hverju á að fækka akreinum á sumum stöðum ef bílaumferð á samt eftir að aukast samkvæmt líkönum? Við ræðum fyrstu lotuna, Suðurlandsbraut, áhyggjur íbúa og fyrirtækjaeigenda, þjóðarhöllina í Laugardal og stóru spurninguna um framtíð samgangna á höfuðborgarsvæðinu.
  • Reykvíkingar muni finna fyrir breytingum á næstunni 16.06.2026 51мин
    Hildur Björnsdóttir fagnaði á dögunum stórafmæli á sama tíma og hún tók við sem borgarstjóri. Í glænýju hlaðvarpi Vísis ræðir Oddur Ævar Gunnarsson við Hildi um næstu skref í borgarstjórastólnum og en líka um æskuna og fjölskyldulífið. Síðasta kjörtímabil, meirihlutaviðræður og ósætti Miðflokksmanna auk fyrirhugaðra breytinga í borginni eru meðal þess sem fær að fljóta með.
  • Hlaðvarp Vísis - Kynning 11.06.2026
    Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum skilningi. Frá stjórnmálum til poppkúltúrs – og öllu þar á milli.

Популарен во

Овој подкаст се појавува и на подкаст-листите на овие земји.