Það er von

Það er von

thadervon
Земја Исланд
Жанрови Образование
Јазик IS
Епизоди 62
Последна 06.08.2025

Samtökin Það er von reka þetta hlaðvarp til að fræða og opna umræðu um fíknivandamál. Þau leggja sitt af mörkum til að aðstoða fólk sem glímir við fíkn og kanna hvað samfélagið getur gert betur til að styðja það. Markmiðið er að hjálpa fólki að finna leiðina að batanum.

Епизоди

  • Lokaþáttur þáttasériu fyrir aðstandendur fólks með fíkniraskanir 06.08.2025 8мин
    Aðgengilegt í fyrsta skipti efni sem hefur verið til umfjöllunar á stuðningsfundum Það er von fyrir aðstandendur fólks með fíkniraskanir. Umfjöllunarefni þáttarins smá samantekt. Takk fyrir að hlusta. 
  • Krísuplön og bjargráð - 6 þáttur 27.07.2025 8мин
    Aðgengilegt í fyrsta skipti efni sem hefur verið til umfjöllunar á stuðningsfundum Það er von fyrir aðstandendur fólks með fíkniraskanir. Umfjöllunarefni þáttarins eru krísuplön og bjargráð. 
  • Sjálfsvinna - 5 þáttur 18.07.2025 8мин
    Aðgengilegt í fyrsta skipti efni sem hefur verið til umfjöllunar á stuðningsfundum Það er von fyrir aðstandendur fólks með fíkniraskanir. Umfjöllunarefni þáttarins er sjálfsvinna
  • Gagnleg ráð við meðvirkni - 4 þáttur 17.07.2025 11мин
    Aðgengilegt í fyrsta skipti efni sem hefur verið til umfjöllunar á stuðningsfundum Það er von fyrir aðstandendur fólks með fíkniraskanir. Umfjöllunarefni þáttarins eru gagnleg ráð við meðvirkni
  • Birtingarmyndir meðvirkni - 3 Þáttur 16.07.2025 9мин
    Aðgengilegt í fyrsta skipti efni sem hefur verið til umfjöllunar á stuðningsfundum Það er von fyrir aðstandendur fólks með fíkniraskanir. Umfjöllunarefni þáttarins eru birtingarmyndir meðvirkni 
  • Fókuspunktar, skömm og fordómar - 2 Þáttur 15.07.2025 10мин
    Aðgengilegt í fyrsta skipti efni sem hefur verið til umfjöllunar á stuðningsfundum Það er von fyrir aðstandendur fólks með fíkniraskanir. Umfjöllunarefni þáttarins eru fókuspunktar, skömm og fordómar
  • Æðruleysi - 1 þáttur 14.07.2025 12мин
    Aðgengilegt í fyrsta skipti efni sem hefur verið til umfjöllunar á stuðningsfundum Það er von fyrir aðstandendur fólks með fíkniraskanir. Umfjöllunarefni fyrsta þátts er stutt hugvekja um æðruleysi
  • Sigurþóra Bergsdóttir framkvæmdastýra Bergið Headspace 10.04.2022 43мин
    Sigurþóra Bergsdóttir er viðmælandi þáttarins. Sigurþóra er framkvæmdastýra Bergið Headspace og er með mastersgráðu í vinnusálfræði, nýlega var hún valin kona ársins hjá Bandalagi kvenna í Reykjavík. Hún segir okkur frá stofnun Bergið Headspace. Við fáum allskonar fróðleik um Bergið Headspace, tölfræði og allskonar skemmtilegt. 
  • Brynjar Logi 03.04.2022 1ч 1мин
    Brynjar Logi er 19 ára strákur sem deilir reynslu sinni. Hann segir okkur frá því hvernig hann þróaði með sér fíkn. Hann talar um tímana þar sem hann var samþykktur af vinsæla liðinu og hvernig hann klúðraði framhaldsskólanum. Í dag hefur hann verið edrú í 2 ár og líf hans hefur tekið miklum framförum.  
  • Pálmi Snær Rúnarsson 25.03.2022
    Viðmælandi þáttarins er Pálmi Snær rappari og öðlingur. Pálmi segir okkur frá því hvernig var að alast upp í ghettóinu og hvernig erfiðleikar á barnsaldri höfðu áhrif á viðhorf hans til lífsins. Hann var ungur þegar hann byrjaði að selja fíkniefni og segir hann okkur ástæðuna fyrir því... sem er ekki sú sem þú heldur.
  • Jóhanna Björk verkefnastýra Frú Ragnheiðar á suðurnesjum 18.03.2022 1ч 11мин
    Viðmælandi þáttarins er Jóhanna Björk sem er verkefnastýra Frú Ragnheiðar á suðurnesjum. Hún hefur einnig unnið á Konukoti, gistiskýlinu og Frú Ragnheiði í Reykjavík. Hún segir okkur frá mikilvægi skaðaminnkunar, fræðir okkur um skjólstæðinga hennar. Ásamt því að hún gefur okkur einstaka innsýn í þau neyðarúrræði sem hún hefur unnið á. Þetta er skylduhlustunar þáttur! 
  • Dagbjört Felstead 11.03.2022
    Viðmælandi þáttarins er Dagbjört Felstead, hún deilir lífsreynslu sinni. Hún er móðir ungs manns sem er í dag edrú. Hún leiðir okkur í gegnum þá áhrifaþætti sem höfðu áhrif og hvað hún gerði til þess að reyna að koma í veg fyrir að hann myndi fara þessa leið. Dagbjört segir okkur svo frá því að hún lendir svo sjálf í slysi og hvernig aðrir hlutir hafa áhrif á hennar hlutverk. 
  • Svavar Georgsson 28.11.2021 1ч 9мин
    Viðmælandi þáttarins er Svavar, sagan er stór og viðsnúningurinn enn stærri. Svavar fagnaði 2 ára edrúmennsku nýlega og leiddi hann okkur í gegnum lífið, allt frá því að vera polli í vestmannaeyjum yfir í að búa á götunni í yfir 10 ár. 
  • Klara Óskarsdóttir 14.11.2021 1ч 6мин
    Viðmælandi þáttarins er hún Klára Óskarsdóttir. Klara segir okkur frá lífi sínu og hverrnig lífið tók breytingum þegar hún fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Englands. Hún segir okkur frá því hvernig lífið varð einn blekkingarleikur... Í dag er Klara edrú og í virkilega góðum málum að gera flotta hluti í lífinu. Við mælum með að hlusta á þáttinn 
  • Eðvarð Þór 07.11.2021 1ч 4мин
    Viðmælendur þáttarins er Eðvarð og dóttir hans Anna. Eðvarð er alkahólisti í bata, sjómaður, stjórnar meðlimur það er von og umfram allt pabbi. Anna er dóttir Eðvarðs. Þetta er einstakur þáttur en í þáttinum þræðir Eðvarð sögu sína og Anna fær að segja okkur hennar upplifun af því hvernig er að eiga pabba sem gat ekki verið til staðar á yngri árum. 
  • Davíð Tómasson 31.10.2021 1ч 1мин
    Viðmælandi þáttarins er enginn annar en Davíð Tómasson, gekk undir listamannsnafninu Dabbi T. Þátturinn er pakkaður af einlægni, heiðarleika og ábyrgð. Davíð rekur sögu sína af sjálfsþekkingu og er ljóst að hann hefur unnið í sjálfum sér og sér hlutina með einstakri yfirsýn. Við hvetjum ykkur til að deila frásögninni á sem flesta staði. 
  • Heiðdís Austfjörð 24.10.2021 1ч 4мин
    Viðmælandi þáttarins er engin önnur en Heiðdís Austfjörð, hún segir okkur frá lífi sínu og upplifunum. Hún deilir með okkur skoðunum og já er allskonar! Skemmtilegur þáttur 🥰 Ef ykkur líkar vel munið að deila og tagga okkur á samfélagsmiðlum það er von. 
  • Óli Sigurðsson 17.10.2021 58мин
    Viðmælandi þáttarins er líklegasta með eldri sálum sem við höfum hitt, en hann Óli segir okkur frá lífshlaupi sínu sem spannar nú samt ekki nema 20 og eitthvað ár. Hann er sveitastrákur og gefur okkur innsýn í sína upplifun. Við minnum ykkur á að deila og tagga okkur á samélagsmiðlum það er von. 
  • Svava Sigurðardóttir 10.10.2021 1ч 5мин
    Viðmælandi þáttarins er Svava Sigurðardóttir. Í þættinum segir hún okkur frá feluleiknum, grímunni sem hún hélt útávið. Hún segir okkur að það hafi verið sjokk fyrir fólk að heyra að hún væri á leið í meðferð. Saga Svövu gefur okkur svo góða innsýn í stóran hóp af fólki sem þróar alkahólisma á fullorðinsárum. Við minnum ykkur á að deila og tagga okkur á samfélagsmiðlum það er von
  • Davíð Máni 03.10.2021 43мин
    Viðmælandi þáttarins er enginn annar en Davíð Máni. Davíð gefur okkur einstaka sýn í hvernig er að vera með einhverfu og ánetjast hugbreytandi efnum. Við vonum að þið hlustið vel á frásögn Davíðs, við erum þakklát fyrir að hafa fengið hann í þáttinn, við minnum ykkur á að deila og tagga okkur á samfélagsmiðlum það er von 🥰

Популарен во

Овој подкаст се појавува и на подкаст-листите на овие земји.