Fotbolti.net

Fotbolti.net

Fotbolti.net
Negara Iceland
Genre Sports
Bahasa IS
Episod 2811
Terkini 01.06.2026

Podcastþættir Fótbolta.net fjalla um íslenskan og erlendan fótbolta. Í hverjum þætti ræða gestir og umsjónarmenn um nýjustu fréttir, leiki og þróun í fótboltaheiminum. Þættirnir eru á íslensku og koma út reglulega.

Episod

  • Harkið - Hiti í Vogunum 02.06.2026
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í fimmtu umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir drauma tengdasyni og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum. - Uppgjör 3 deildar - 06:00 - Uppgjör 2 deildar - 30:00 - Leikmaður umferðarinnar og spá - 01:07 - Gatorade bikarinn - 01:17 Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
  • Uppbótartíminn - Allt var það eftir bókinni 01.06.2026
    Sjöundu umferð Bestu deildar kvenna er lokið og er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Arnar Páll Garðarsson, Magnús Haukur Harðarson og Snæbjört Pálsdóttir komu saman til að fara yfir leikina. Einnig er snert á landsliðinu sem er að koma saman fyrir mikilvægan leik gegn Úkraínu í undankeppni HM. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
  • Innkastið - Farið yfir geggjaða umferð með Gulla Jóns 31.05.2026
    9. umferð Bestu deildarinnar gerð upp. Elvar Geir Magnússon og Valur Gunnarsson og sérstakur gestur Gunnlaugur Jónsson.
  • Útvarpsþátturinn - Slot rekinn og þrjú lið í Bestu í lagi 30.05.2026
    Í þætti dagsins er íslenski boltinn aðalmálið en þátturinn hefst hinsvegar á stóru tíðindunum sem voru að berast. Arne Slot er farinn frá Liverpool. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestasérfræðingur: Baldvin Borgarsson. Rýnt í leiki vikunnar í Bestu deildinni og helstu fréttir skoðaðar. Spáð í næstu leiki og einnig er fjallað um Lengjudeildina. Þá er að sjálfsögðu rætt um úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
  • Hugarburðarbolti GW Uppgjörið með Villa Neto og Tönju Sif 28.05.2026
    Villi Neto og Tanja Sif komu til okkar og við gerðum upp tímabilið. Lið tímabilsins valið og besti leikmaðurinn auðvitað. Við þökkum ykkur fyrir tímabilið kæru hlustendur.
  • Harkið X Ásgeir Frank 28.05.2026
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í fjórðu umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir flottustu treyjurnar í 2 deild og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum. Sérstakur gestur var Ásgeir Frank Ásgeirsson, aðstoðarþjálfari Fjölnis. - Uppgjör 3 deildar - 07:00 - Uppgjör 2 deildar - 37:00 - Q&A, leikmaður umferðarinnar og spá - 0:11 - Gatorade bikarinn - 01:28 Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. Harkið er í boði Serrano.
  • Enski boltinn - Verðlaun fyrir tímabilið 25.05.2026
    Ensku úrvalsdeildinni 2025/26 er formlega lokið. Arsenal er meistari, Sunderland og Bournemouth komust í Evrópudeildina og Tottenham náðu að halda sér uppi. Í lokaþætti tímabilsins af Enski boltinn hlaðvarpinu voru ýmis verðlaun gefin, svo sem lið ársins, leikmaður ársins, besti stjórinn og versti stjórinn. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur sjá um þáttinn sem er í boði Coke.
  • Uppbótartíminn - Algjör sigur fyrir þessa deild 25.05.2026
    Það er komið að nýjum Uppbótartíma eftir sjöttu umferðina í Bestu deild kvenna. Breiðablik og FH buðu upp á stórskemmtilegan leik þar sem stórkostlegt málefni var styrkt. Það mættu rúmlega 1200 áhorfendur á leikinn sem fengu frábæran fótboltaleik. Jafnt í nýliðaslagnum, Stjarnan og Valur með sterka útisigra og staðan er ekki góð fyrir norðan. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Magnús Haukur Harðarson fóru yfir stöðuna en Maggi þurfti að hlaupa frá eftir 10 mínútur og sáu Guðmundur og Arnar um restina af þættinum. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
  • Hugarburðarbolti GW 38 Sigurvegarinn krýndur! 25.05.2026
    Lokaumferðin og Englandsbikarinn fór á loft. Ræddum umferðina og sigurvegarinn var krýndur!
  • Útvarpsþátturinn - Blikar kveikja á sér en rýr uppskera á Akranesi 23.05.2026
    Áttunda umferð Bestu deildarinnar er aðalmálið í þættinum. Elvar Geir og Valur Gunnars eru í hljóðveri og sérstakir gestasérfræðingar frá Akranesi mæta; Sverrir Mar Smárason og Andri Júlíusson. Kári Snorrason og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson gefa skýrslur úr tveimur leikjum. Einnig er fjallað um Lengjudeildina í þættinum og Daníel Geir Moritz, stuðningsmaður Arsenal, velur úrvalslið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og ræðir um landsliðsval Tuchel.
  • Enski boltinn - Eftir 22 ár af sársauka 21.05.2026
    Arsenal er Englandsmeistari 2026. Eftir 22 ár af sársauka er Englandsmeistarabikarinn aftur mættur til Norður-London. Stuðningsmenn Arsenal eru í skýjunum og tveir þeirra mættu á skrifstofu Fótbolta.net í kvöld til að fara yfir þetta allt saman. Einnig var rætt um brottför Pep Guardiola frá Manchester City, Xabi Alonso til Chelsea, fallbaráttuna, Spygate og margt fleira. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum en með honum í þessum þætti eru Jóhann Fjalar Skaptason og Vignir Már Eiðsson.
  • Uppbótartíminn - Bæði lið áttu núll stig skilið 21.05.2026
    Fimmta umferð Bestu deildar kvenna fór fram í heild sinni í kvöld. Breiðablik er áfram með fullt hús stiga og Þór/KA er í vandræðum, FH var fyrsta liðið til að taka stig af ÍBV, Valur og Fram gerðu markalaust jafntefli í tíðindalitlum leik, Þróttur vann útisigur í Víkinni og jafntefli var niðurstaðan í Njarðvík. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört fóru yfir þessa leiki og allt það helsta í kringum Bestu deild kvenna ásamt því að snerta á Mjólkurbikarnum og landsliðsvali.
  • Hugarburðarbolti GW 37 Arsenal er Englandsmeistari eftir 22 ára bið 20.05.2026
    Arsenal er Englandsmeistari eftir 22 ára bið. Bournemouth og Man. City gerðu 1-1 jafntefli á Suðurströndinni. Þetta og allt hitt í þætti kvöldsins með frábærum gestum í setti.
  • Harkið - Króksarar með fullt hús 18.05.2026
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í þriðju umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir flottustu treyjurnar í 3. deild og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum. - Uppgjör 3. deildar og flottustu treyjur: 3 mín - Uppgjör 2. deildar: 34 mín - Leikmaður umferðarinnar og spá: 57 mín Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
  • Innkastið - Vafasöm vegferð 17.05.2026
    Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Maggi Hödd. KR og Fram gerðu jafntefli, Valur vann Breiðablik, FH tapaði fyrir KA, Víkingur vann ÍBV, Þór tapaði fyrir ÍA og jafntefli varð niðurstaðan í leik Keflavíkur og Stjörnunnar.
  • Útvarpsþátturinn - Bikarskellir og Ágúst Orri 16.05.2026
    Elvar Geir, Tómas Þór og Kári Snorra í hljóðveri. Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir bikarvikuna, næstu umferð í Bestu, fréttir vikunnar og fleira. Ágúst Orri Þorsteinsson, leikmaður Breiðabliks, er gestur í seinni hálfleiknum.
  • Fótbolta nördinn: Úrslit - Fótbolti.net vs Draumaliðið 14.05.2026
    Úrslitaþáttur Fótbolta nördans, en þátturinn var upphaflega í beinni útsendingu þann 12. maí. Í þættinum eigast við Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fyrir Fótbolti.net. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
  • Harkið - Haukavélin byrjuð að malla 12.05.2026
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í 2 umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir helstu félagaskiptin, bestu stuðningsmannalögin og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum. - 3. deild: 5 mín - 2. deild: 33 mín Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
  • Hugarburðarbolti GW 36 VAR tæknin fær tvö rauð spjöld! 12.05.2026
    Arsenal í dauðafæri á fyrsta Englandsmeistaratitlinum í 22 ár eftir leiki helgarinnar. Fórum vel yfir stóru málin og GW36. Sigurvegarinn kemur inn á FB síðu Hugarburðarbolta.
  • Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Heimir mætir FH og Jökull á síðasta séns? 12.05.2026
    16-liða úrslit Mjólkurbikarsins fara fram á miðvikudag og fimmtudag. Kári Snorrason og Almarr Ormarsson hituðu upp fyrir leikina átta. Rýnt var í hvern leik fyrir sig og spáð í spilin.

Popular di

Podcast ini turut muncul dalam senarai podcast negara-negara ini.