Þetta helst

Þetta helst

RÚV
Negara Iceland
Genre Berita
Bahasa IS
Episod 694
Terkini 25.09.2026

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Episod

  • Konan á bak við sögulegt dómsmál í Hæstarétti 25.09.2026 17min
    Anna Bryndís Einarsdóttir taugalækni voru í vikunni dæmdar skaðabætur frá íslenska ríkinu í Hæstarétti Íslands vegna þess að hún fékk skertar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði þegar hún flutti til Íslands frá Danmörku árið 2019. Anna Bryndís hefði átt að fá hærri fæðingarorlofssjóðsgreiðslur í Danmörku þar sem hún var í sérnámi í læk nisfræði og hafði unnið sem læknir og unnið sér inn réttindi til ákveðinna greiðslna í fæðingarorlofi. Þegar hún flutti heim til Íslands vildi Fæðingarorlofssjóður ekki greiða henni þegar tekjutengdar greiðslur heldur einungis lágmarksgreiðslur. Anna Bryndís ákvað að leita réttar sínar í málinu þar sem hún taldi niðurstöðuna vera brot á EES-samningnum. Hún ræðir um þessa sjö ára baráttu sína við íslenska ríkið í viðtali við Þetta helst. En hvaða máli skiptir þessi dómur í stóra samhengi hlutanna og er hann sögulegur? Gunnar Þór Pétursson er prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti. Hann segir dóminn í máli Önnu Bryndíar vera sögulegan að mörgu leyti og að hann hafi bæði lögfræðilegar og mögulega pólitískar afleiðingar. Dómurinn tengist hinni svokölluðu bókun 35 sem snýst tengsl EES-samningsins við löggjöfina í þeim ríkjum sem hafa tekið upp samninginn. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Skreiðarþurrkunin á Laugum og Nígeríuviðskipti Íslands 24.09.2026 18min
    Í síðustu viku var sagt frá því í fréttum að fiskþurrkun Samherja á Laugum í Þingeyjarsveit á Norðurlandi hefði lokað tímabundið. Þetta var í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem felldi niður starfsleyfi fiskþurrkunarinnar Fiskþurrkun hefur verið rekin á Laugum frá árinu 1980, lengi undir merkjum Útgerðarfélags Akureyringa en nú er reksturinn orðinn hluti af útgerðarrisanum Samherja. Þar er eru þorskhausar meðal annars þurrkaðir og seldir til Nígeríu og kallast skreið. Um hvað snýst þessi tímabundna lokun á fiskþurrkuninni og hversu umfangsmikil er skreiðarsala Íslendinga til Nígeríu? Rætt er við Elvar Einarsson fiskútflytjanda frá Dalvík, Ólöfu Rún Erlendsdóttur fréttakonu og birt svör frá Samherja um fiskþurrkunina. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Heimir Hallgrímsson í miðju stormsins 23.09.2026 14min
    Í þætti dagsins eru sjónum beint að deilum um leiki Írlands og Ísraels. Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra, stendur í miðju stormsins. Rætt er við Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamann, og Stefán Pálsson, sagnfræðing og sparkspeking.
  • Wolt-væðingin á Íslandi 22.09.2026 19min
    Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Maðurinn sem átti einkahlutafélagið sem gögnin fjalla um notaði félagið eingöngu til að fá greitt frá Wolt. Félag mannsins var stofnað árið 2023 en varð gjaldþrota árið 2025. Í gögnunum kemur jafnframt fram að fleiri en einn sendill hafi fengið greitt fyrir vinnu sína hjá Wolt í gegnum einkahlutafélag mannsins. Mikil umræða hefur verið um heimsendingarfyrirtækið Wolt síðustu vikuna eftir að sendlar sem keyra út fyrir fyrirtækið lögðu niður störf vegna kjaramála í síðustu viku. Sendlarnir vilja meina að þeir fái greidd laun sem eru undir kjarasamningsbundnu lágmarki, þeir séu gerviverktakar hjá Wolt og að laun þeirra fyrir sendlastörfin hafi verið lækkuð um helming á árinu. Rætt er við lögfræðinginn Karen Ósk Nielsen Björnsdóttur hjá ASÍ um Wolt og sænska doktorsnemann Pontus Blume sem skrifar doktorsritgerð um fyrirtækið og önnur giggfyrirtæki. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Ástæður og áhrif verkfalls flugvirkja 21.09.2026 13min
    Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags. Fundur í deilunni fyrir helgi reyndist árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Rætt er um stöðu viðræðna og mögulega lagasetningu stjórnvalda við Aldísi Guðnýju Sigurðardóttur, lektor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðing í samningatækni. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  • Rannsóknin á lögreglustjóranum eftir þorrablótið 18.09.2026 15min
    Þorrablót Flateyringa komst í fréttir síðasta vetur. Vikuna eftir það fluttu fjölmiðlar fréttir af því að kvartað hefði verið undan hegðun Helga Jenssonar, lögreglustjóra á Vestfjörðum, á þorrablótinu til Nefndar um eftirlit með lögreglu Fjallað er um mál Helga í þætti dagsins og rætt við Kolbrúnu Benediktsdóttur varahéraðssaksóknar um nefndina sem hefur eftirlit með störfum lögreglu. Umsjón: Gréta Sigríður Einarsdóttir
  • Microsoft verði eini kúnni gagnaversins á Bakka 17.09.2026 15min
    Bandaríska stórfyrirtækið Microsoft er fyrirhugaður viðskiptavinur gagnaversins á Bakka við Húsavík sem mögulega mun rísa þar. Verkefnið var kynnt á fundi á Húsavík á þriðjudaginn. Í umfjöllun í fréttum um þetta gagnavert hefur komið fram að alþjóðlegt fjárfestingar- og ráðgjafarfyrirtæki sem heitir Akur DC muni byggja gagnaverið og að búið sé að tryggja samning við ónafngreindan viðskiptavin. Samkvæmt heimildum fréttastofu er þessi viðskiptavinur Microsoft en stofnandi og eigandi þess er bandaríski kaupsýslumaðurinn Bill Gates sem er einn ríkasti maður í heimi. Ef gagnaverið verður byggt verður þetta í fyrsta skipti sem einn viðskiptavinur kaupir alla þjónustu tiltekins gagnavers á Íslandi. Rætt er við Þóru Helgadóttur Frost, viðskiptaþróunarstjóra hjá Akur Capital, og Bergþór Bjarnason, sveitarstjóra í Norðurþingi, um byggingu gagnaversins. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson og Ólöf Rún Erlendsdóttir
  • Ótengdir og óvirkir lífeyrissjóðir 16.09.2026 17min
    Hvenær er maður hæfur til að eiga banka? Hvernig geta menn verið ótengdir eigum sínum og jafnvel sér sjálfum á Íslandi? Hvers vegna virðast svokallaðar hlutfallstölur, það er að segja hversu stóran eignarhlut fjárfestar eiga í bönkum, þýða annað hér á Íslandi en víðast hvar annars staðar.? Þessu ætlum við að reyna að svara, í það minnsta velta upp í þætti dagsins. Lýður Guðmundsson, annar svokallaðra Bakkavararbræðra, hefur undanfarin misseri gert sig æ meira gildandi í íslenska fjármálakerfinu. Lýður er nú stærsti einkafjárfestirinn í tveimur íslenskum bönkum: Kviku banka og Arion banka. Félag Lýðs á núna 5,5% í Kviku banka, sem gerir hann að fimmta stærsta hluthafa bankans, en einungis fjórir lífeyrissjóðir eiga stærri hluti í bankanum. Stærstu hluthafar íslenskra banka eru þessir lífeyrissjóðir en þessir sjóðir eru hins vegar ekki mjög virkir hluthafar. Þannig geta einkafjáfestarnir, það er að segja þeir sem ekki eru lífeyrissjóðir, oft og tíðum ráðið talsvert meiru en hluthafallslegur eignarhlutur þeirra virðist bera með sér. Umsjón: Helgi Seljan
  • Herör gegn hraðtísku 15.09.2026 17min
    Í dag beinum við sjónum okkar að hraðtísku - og þeirri ákvörðun franskra stjórnvalda að setja sérstakt gjald á hverja flík sem tengist hluta þess iðnaðar. Rætt er við Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna, og Jóhannes Bjarka Urbancic Tómasson, sérfræðing hjá Umhverfis- og orkustofnun.
  • Roma-fólk í sögu Íslands 14.09.2026 15min
    Fyrstu skjalfestu heimildirnar um komu Roma-fólks til Íslands eru frá því í byrjun tuttugustu aldarinnar. Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur hefur stundað rannsóknir á sögu Roma-fólks hér á landi. Hann er þátttakandi í rannsóknarverkefni um þessa sögu þar sem hún er tengd við samtímann. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Svikin í Alicante 11.09.2026 15min
    Íslenskir ferðamenn hafa stigið fram og lýst reynslu sinni af því að hafa verið sviknir í viðskiptum með leiguhúsnæði í Alicante á Spáni. Fyrirtækið sem um ræðir heitir Sammlind og eigandi þess Samúel Jón Samúelsson. Fólkið hefur lýst því hvernig það borgaði mörg hundruð þúsund eða jafnvel milljónir fyrir leiguíbúðir sem það fékk svo aldrei. Gögn frá spænskum yfirvöldum og fréttir í þarlendum fjölmiðlum sýna hvers algeng slík svik í ferðamannageiranum í landinu eru. Rætt er við tvö af fórnarlömbum Sammlindar og fjallað um þetta leigusvikamál í víðara samhengi. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Umdeildu hafmeyjarbrotin sem enduðu sem stofustáss 10.09.2026 15min
    Tvö vegleg brot úr verkinu Hafmeyjunni eftir Nínu Sæmundsson eru þessa dagana til sýnis á Listasafni Reykjanesbæjar. Brotin hafa varðveist eftir að listaverkið var sprengt í loft upp á nýársnótt 1960. Á sýningunni kemur fram að brotin séu í einkaeigu en þó eru þau skráð sem eign Listasafn Reykjavíkur. Í Þetta helst verður sögð saga brota af einu umdeildasta listaverki Íslands, hvernig það var uppgötvað fyrir tíu árum að þau væru horfin úr geymslu listasafnsins og leitað svara hvort það sé rétt að listasafnið hafi ætlað að farga þeim fyrir aldarfjórðungi eða hvort það sé vegna misskilnings að brotin eru nú stofustáss á Suðureyri. Umsjón: Erla Björg Gunnarsdóttir
  • MAST fjarlægir búfé af sveitabæ í Eyjafirði í þriðja sinn 09.09.2026 15min
    Matvælastofnun fjarlægði mörg hundruð dýr af sveitabænum Brimnesi í Eyjafirði í sumar vegna vanhirðu og slælegrar meðferðar. Bæði var um að ræða kindur, hross og hrúta segir bóndinn á bænum, Arnar Gústafsson. Hann segir stofnunina meðal annars hafa fjarlægt 450 kindur, 26 hrúta og 36 hross. Kindurnar voru færðar í sláturhús um helgina, segir Arnar, og hrútunum var lógað og þeir notaðir í moltu segir bóndinn. Matvælastofnun hefur reynt að selja hrossin eftir að þetta inngrip átti sér stað og einhverjum mun hafa verið lógað. Að mati Arnars fer MAST fram með ofríki og einelti í málinu og telur hann að ríkisstofnunin ætli sér að knésetja hann og hans búskap í Brimnesi. Rætt er við Arnar og forstjóra Matvælastofnunar, Hrönn Jörundsdóttur í þættinum. Hrönn segir sjaldgæft að stofnunin fari í vörslusviptingu á dýrum á sveitabæjum og að þetta sé þrautalending þegar önnur úrræði hafa ekki dugað. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Fyrsta skrefið í að draga úr vægi verðtryggingar 07.09.2026 14min
    Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá því í Vikulokunum á laugardaginn að frumvarp um að draga úr vægi verðtryggingar verði lagt fram í haust. Rætt er við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, og Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, um áhrif þess að takmarka lengri verðtryggð lán og setja skilyrði um lágmarks eignamyndun. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  • Fjárfestar deila um hlutabréfaviðskipti í Sýn 04.09.2026 14min
    Félag Reynis Grétarssonar, Gavia Invers, stærsta hluthafi Sýnar hefur stefnt eiganda félagsins Ursus hf, Heiðar Guðjónssyni. Heiðar Guðjónsson er fyrrverandi forstjóri Sýnar og áður stjórnarformaður, sem lét af störfum og seldi allan hlut sinn í Sýn árið 2022 fyrir 2,2 milljarða króna. Félag Grétars, Gavia, keypti hlut Heiðars. Reynir Grétarsson og meðeigendur hans í Gavia telja að Heiðar hafi leynt, bæði þá, aðra hluthafa og markaðinn allan dýrmætum upplýsingum sumarið 2022. Upplýsingar sem hefðu orðið til þess að Heiðar hefði fengið mun minna fyrir bréfin sem hann seldi Gavia. Fjallað er um þessa deilu í þætti dagsins og útskýrt um hvað hún snýst. Umsjón: Helgi Seljan
  • Eitt stærsta skattamál Íslandssögunnar: Gæti krafið bílaleigur um 25 milljarða 03.09.2026 14min
    Eitt stærsta mögulega skattamál Íslandssögunnar er nú á borði skattayfirvalda. Skatturinn hefur sent nokkrum bílaleigum hér á landi bréf og sagt þeim frá því að til skoðunar sé að krefja einhverjar þeirra um virðisaukaskatt af tekjum þeirra vegna sölu á vátryggingum aftur í tímann. Ef Skatturinn endurákvarðar skattgreiðslur þessara bílaleiga getur heildarupphæðin numið allt að 25 milljörðum króna. KPMG er að vinna fyrir nokkrar af stærstu bílaleigum landsins í málinu. Lögfræðingurinn Kristinn Jónasson, segir að bílaleigurnar hafi verið í góðri trú í málinu og að þæt hafa leitað ráðgjafar hjá bæði Skattinum og skattasérfræðingum í málinu. Rætt er við Kristinn um deiluna við Skattinn. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Kastljósið beinist að Íslandi og krísu Evrópusambandsins 02.09.2026 15min
    ,,Skilaboðin frá Íslandi”; ,,Þetta er synd fyrir Evrópu”; ,,Sterk tengsl Íslands við Evrópusamband fela í sér að niðurstaðan er ekki sambærileg við Brexit” eru nokkrar af þeim fyrirsögnum sem birst hafa í dagblöðum í Evrópu um þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi á laugardaginn. Ísland, og fréttir frá Íslandi, eru ekki til umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum á hverjum degi. Síðustu daga hefur þetta hins vegar verið raunin. Líklega þarf að fara aftur til ársins 2016 til að finna sambærilegt umfang af fréttum í erlendum miðlum um eitt mál sem tengist Íslandi og síðustu daga. Þetta var þegar íslenska landsliðið lagði enska landsliðið í Evrópukeppninni í fótbolta og eins var talsverð umfjöllun um Ísland erlendis út af Panamaskjölunum svokölluðu skömmu áður. Túlkanir og greiningar á niðurstöðunni hafa verið allt frá því að Íslendingar hafi hafnað Evrópu og yfir í það að Ísland sé alls ekki að gera það þar sem landið sé þegar í djúpri samvinnu við Evrópusambandið í gegnum EES-samninginn og Schengen. Rætt er við hagfræðinginn og ritstjórann Ásgeir Brynjar Torfason og alþjóðastjórnmálafræðinginn Guðbjörgu Ríkeyju Thoroddsen um viðbrögðin í erlendum fjölmiðlum við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Eldsneytisverðið hækkar á ný 01.09.2026 17min
    Eflaust hafa hlustendur tekið eftir því að bensinverðið er hærra í dag en í gær – því tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi á miðnætti. Rætt er við Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra FÍB, Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, og Hjalta Óskarsson, hagfræðing. Þá er rætt við ökumenn á bensínstöðvum. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  • Sýn hættir með kvöldfréttir eftir að ekkert varð af viðskiptum við Símann 31.08.2026 18min
    Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir að sú ákvörðun stjórnenda Sýnar að hætta með sjónvarpsfréttir sé gríðarleg vonbrigði. Sýn greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallar Íslands núna í morgun. Síðasti kvöldfréttatími Sýnar verður í kvöld. Með þessu lýkur 40 ára samfelldri sögu kvöldfrétta á Sýn og fyrrirennara Sýnar, Stöðvar 2. Fyrsti fréttatíminn á Stöð 2 var sendur út þann 9. október árið 1986. Fjallað er um þessa ákvörðun og hún sett í samhengi við þá ákvörðun að Sýn seldi ekki stóran hluta af fjölmiðlum sínum til Símans fyrir 5,25 milljarða króna líkt og til stóð. Sýn skilaði árshlutauppgjöri í síðustu viku sem Björn Steinar Birgisson greinandi ræðir um. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Lykilinnviðir og hættan af eldgosum 28.08.2026 14min
    Nýtt langtímahættumat vegna Reykjanesskaga sem Veðurstofa Íslands gerði sýnir að áhrifasvæði eldgosa ná allt frá Reykjanestá að Ölfusá og Hvalfirði. Á þessu svæði eru lykilinnviðir, meðal annars allar fjórar, stjóru jarðmarmavirkjanirnar á svæðinu: Reykjanesvirkjun, Svartsengisvirkjun, Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun. Eldgos í Hengli gæti haft mikil áhrif á þær. Halldór Halldórsson, öryggisstjóri Landsnets og formaður neyðarsamstarfs raforkukerfisins, og Þráinn Friðriksson, se, leiðir jarðhitarannsóknir hjá Orkuveitunni, segja Þetta helst frá þeim sviðsmyndum sem gerðar hafa verið og áhrifum þess ef þær rættust.

Popular di

Podcast ini turut muncul dalam senarai podcast negara-negara ini.