Lof mér að tala

Lof mér að tala

Hanna og Kristín
Negara Iceland
Genre Comedy
Bahasa IS
Episod 44
Terkini 18.06.2026

Lof mér að tala er íslenskur podcast þáttur í boði Hönnu Birgisdóttur og Kristínar Sigrúnar. Þær eru málglaðar vinkonur sem fjalla um menningu, með áherslu á lágmenningu, og kryfja fréttir og atburði vikunnar. Þættirnir innihalda skemmtileg hljóðbrot og eru lýst sem ferskir, hamingjusamir og skemmtilegir.

Episod

  • Lof mér að tala: 46. Hvar er Bjarni Ben? 18.06.2026 54min
    Hæ, hó, jibbí jei og jibbí jei!Týpur í útilegum, sósíalísk nöfn, Bjarni Ben og 17. júní voru til umræðu í þessum nýjasta þætti Lof mér að tala. Stelpurnar veltu fyrir sér fáránlegum auglýsingum og Kristín furðar sig á því að sumt fólk virðist elska hundana sína meira en börnin sín. Fréttir vikunnar eru ekki af verri endanum og við heyrum hljóðbrot frá konu sem er í miklu uppáhaldi hjá stelpunum #spennandi!Það er eitthvað fyrir alla í nýjasta þætti Lof mér að tala!
  • Lof mér að tala: 45. Bíddu, má ekkert lengur? 10.06.2026 1j 4min
    New pod, who dis!? Abby Lee Miller, hundasamfélagið á Facebook, fantasíur ungra karlmanna og Bubbi Morthens eru meðal viðfangsefna þáttarins. Eitt heimsfrægt par sögðu skilið við hvort annað og ástin er tálsýn. Frétt vikunnar er af ógeðslegri kantinum og stelpurnar fara yfir stjörnuspánna, sem virðist vilja Hönnu eitthvað illt. Stelpurnar spyrja sig einnig að því hvers vegna það eru svona margar fallegar konur með ljótum karlmönnum og það er spurning hvort maður eigi að skella sér í bíó og sjá hryllingsmyndina, Obsession. Þetta og meira í nýjasta þætti Lof mér að tala!
  • Lof mér að tala: 44. Guð blessi Jónas Hallgrímsson 03.06.2026 59min
    LOF MÉR AÐ TALA ER EINS ÁRS! Gleðilegan júní og gleðilegt pride. Það er loksins komið að útskriftar-seasoni á Íslandi og fólk er í stuði! Hanna skrapp til Prag og Kristín fór á Patti Smith tónleikana, eins og allt fágað fólk í Reykjavík. Munnmök á hjólabáti, barir í kjallara, geggjaðar frænkur í veislum, Jónas Hallgrímsson og leiðinlegar íslenskar bíómyndir. Kristín vill vita hvað varð um minnka landsins en Hanna hatar fermingar. Eitthvað fyrir alla semsagt❤️
  • Lof mér að tala: 43. Bjór í strætó 20.05.2026 56min
    Við erum komnar aftur. Did you miss us?Það hefur aldrei liðið svo langt á milli þátta í sögu LMAT og það heyrist, enda einstaklega óreiðukenndur þáttur. Ný borgarstjórn og misgóð kosningaloforð, leiðinlegir foreldrar á samfélagsmiðlum, gallaðir Tiktok algóritmar, Eurovision (sem enginn fylgdist með), þjóðarréttur Búlgaríu og spurning hvort maður eigi bara að byrja að gefa börnum bjór í strætó. Hanna heldur því fram að Austur-Evrópa verði á alla vörum í sumar og Kristín vill opna salatbar. Það er rant-að mikið en aðallega hlegið í þessum nýjasta þætti Lof mér að tala!
  • Lof mér að tala: 42. Risa tilkynning 29.04.2026 54min
    það er RISA TILKYNNING í þessum þætti sem þú vilt ekki missa af! #spennandiStelpurnar fóru um víðan völl. Einstakt ástarævintýri Kristínar í Amsterdam (not), Rosalía, leiðinlegar sveitastjórnarkosningar og vafasamir leiðtogar. Svo eitthvað sé nefnt. Hvort sem að þú ert lengst uppi eða lengst niðri þá er þessi þáttur Lof mér að tala eitthvað fyrir þig!
  • Lof mér að tala: 41. Ljóð frá ástkonu 22.04.2026 57min
    Sólin skein í Reykjavík og hér er mikið um að vera. Týpurnar á Bastard, efnahagsvandamál Færeyinga, hvað er með óléttar konur og Vesturbæjarlaug? Stelpurnar leituðu til hlustenda og lesa upp það sem liggur þeim á hjarta. Kristín liggur ekki á skoðunum sínum um trúbadora og þá sérstaklega einn ákveðinn - en hún er svo sem ekki vön því að liggja á skoðunum sínum. Hanna les upp lista sem lítið vit er í og vitleysan nær ákveðnu hámarki hér í 41. þætti Lof mér að tala!
  • Lof mér að tala: 40. Dánartilkynning á Coachella 15.04.2026 58min
    Við erum #beliebers Stelpurnar eru flippkisar í dag, enda voru þær í galsa á meðan upptöku stóð. Hiti á Coachella, Justin Bieber að fara á kostum, falsaðar dánartilkynningar og lágflug yfir Vestmanneyjum eru meðal viðfangsefna þáttarins. Okkur finnst Ari Edwald taka furðulegar ákvarðanir og Hönnu finnst fólk sem veltir fyrir sér bílastæðum í borginni leiðinlegt. Kristín lenti í fyrirferðamiklum júllum á tónleikum og vill ræða það. Lets talk about it.
  • Lof mér að tala: 39. Krossfestu mig á Smitten 08.04.2026 1j 2min
    Þögn er betri en þarflaus ræða. Brandarahorn Hönnu lítur dagsins ljós. Krossfestingar, víkingaþrep með Gumma Emil á hálendinu, trúboðar á Pride, að sprauta sig með HGH efni, Smitten að vera með óþarfa upplýsingar um fólk og leitin að sumarvinnu sem ætlar engan enda að taka. Jú og Kristín stofnaði nýjan sértrúnaðarsöfnuð, Náttúrubörn. Endilega tjékkið á því. Ert þú náttúrubarn og góður leiðtogi? Ert þú góð fyrirmynd? Þá færð þú sumarvinnu hjá Lof mér að tala ehf. Fyrsta verkefnið: hlusta á nýjasta þáttinn.
  • Lof mér að tala: 38. Páskaunginn les fan fiction (feat. Tinna Tynes) 01.04.2026 1j 3min
    Tinna Tynes, aka Penis, kom til okkar í stúdíóið. Penis er einstaklega glögg og hnyttin en hún er upprennandi sviðshöfundur. Misskemmtilegar grunnskólagöngur, Wattpad, Inga Sæland og verstu páskar frá upphafi eru meðal umræðuefna þáttarins. Vegna mikillar eftirspurnar tók Tinna það á sig að skrifa fan fiction um stelpurnar sem þið, kæru hlustendur, fáið að njóta góðs af. Kristín les upp óhuggulega kynlífsfantasíu sem tengist hryðjuverkum (þið lásuð rétt), á meðan Hanna lítur yfir farinn veg… #takkfans
  • Lof mér að tala: 37. Swing klúbbur á Nesinu 25.03.2026 59min
    Seint koma sumir en koma þó. Ógöngur pars í barneignum, swing klúbbar á Seltjarnarnesi, Netflix þættirnir Inside the manosphere, afmælisgleði hjá Hönnu og ógeðsleg hostel eru meðal viðfangsefna þáttarins. Stelpurnar velta fyrir sér hvort það sé eðlilegt að sálfræðingurinn manns hætti með manni og fara yfir kostulegar ferðasögur sem tengjast öpum og geðveikum breskum konum. Jú, svo er nýtt hljóðbrot!
  • Lof mér að tala: 36. Jesúbull í Múlaþingi 18.03.2026 1j 1min
    Íslenski barinn, ástarsamband Kristínar og Marons Birnis, sumarbústaðir, Jésúbull í Múlaþingi og stúdentakosningar. En Kristín vill að fólk hlutgeri sig meira sem og bandarísku leikkonuna, Meryl Streep. Enda er hún einstaklega sexý. Stelpurnar svara spurningum hlustenda, sem voru jú margar en snerust líka margar hverjar að… samkynhneigð?Lífið er veisla og þið, kæru hlustendur, eruð veislugestir.
  • Lof mér að tala: 35. vbmm? (feat. Una Ragnars) 12.03.2026 58min
    Una Ragnarsdóttir er komin aftur til okkar! Í þetta sinn til að ræða dægurmenningu og leiksýninguna Kabarett, sem hún mun frumsýna í næstu viku í Þjóðleikhúskjallaranum. Abudabí, Timothee Chalamet að vera hrokafullur (með eða á móti?), nýja platan hjá Harry Styles og Óskarsverðlaunin. Kristín segist hafa verið með vafasamar hugmyndir sem barn og Hanna er komin með nóg af tónlistinni á Röntgen! Takk Una fyrir komuna.
  • Lof mér að tala: 34. Suicide boys og kaþólska kirkjan 04.03.2026 1j 4min
    Kæru hlustendur, velkomin í 34. þátt Lof mér að tala. Stelpurnar eru eldhressar og eins og svo oft áður leyfa þær hlustendum að svamla um í viskubrunni sínum. Davíð Oddsson, Kaþólska kirkjan, 69, BBL, Jim Carrey, Laufey gerir collab, Bjarkar eftirherma og síðan er spurning hvort Erika Kirk sé orðin… lesbía? Kristín kemur með reynslusögu sem tengist slæmum tónlistarsmekk og Hanna fer á kostum.
  • Lof mér að tala: 33. Kjarnorka og Grafarvogur 18 26.02.2026 52min
    Nýr þáttur! Stelpurnar ræddu um kjarnorkuvopn, konudaginn og Rússa á Ólympíuleikum. Óheppilegt atvik á verðlaunahátíð er rætt (úff) og Kristín segir frá ótrúlegum næturævintýrum sínum um helgina sem tengjast Grafarvogi 18. Jú og hvað gerði Bill Gates eiginlega af sér? Þátturinn er í samstarfi við Regn app!
  • Lof mér að tala: 32. Cancelled í leðuról 20.02.2026 1j 1min
    Það var mikið hlegið í þessum nýjasta þætti Lof mér að tala. Ætti að vera hægt að fara í þungunarrof í Bónus? Af hverju er ekki til nein íslensk bíómynd um BDSM? Kristín gefur einhleypum karlmönnum ráð fyrir konudaginn en Hanna segir frá traumatíserandi reynslu sem tengist klippingu. Framhjáhald, tær, bolludagurinn og Andrés (ekki öndin) voru meðal viðfangsefna þáttarins.Þátturinn er í samstarfi við Regn app
  • Lof mér að tala: 31. Maka- og markalausar á Valentínusardeginum 11.02.2026 1j 1min
    Stelpurnar gefa öllum ástföngnu hlustendum sínum ráð um hvað væri gaman að gera á Valentínusardeginum, sem er næstkomandi laugardag. Ofurskálin, fólk á tánum í ræktinni og andlega veikir unglingar eru meðal viðfangsefna þáttarins. Annars er bernskan krufinn en börn eru víst byrjuð að mynda tilfinningaleg tengsl við vélmenni á netinu. Við förum yfir stöðu snapchat kvennanna í samfélaginu í dag, enda þurfum við á þeim að halda. Þátturinn er í samstarfi við Regn app.
  • Lof mér að tala: 30. Guð er andlega veik kona 04.02.2026 58min
    LOF MÉR AÐ TALA ER 30 ÁRA!Stelpurnar deila sögum úr lífi þeirra. Kristín les úr dagbókarfærslum frá skiptinámsdögunum sínum á Spáni en þar koma við sögu ástarjátning spænsks bekkjarbróðurs og graftarkýli, betur þekkt undir nafninu Tvíburabróðir. Grammy verðlaunin, fuglaflensan og dauðir smáhundar. Stelpurnar velta því fyrir sér af hverju allir og ömmur þeirra eru í Epstein skjölunum. Jú, svo tók önnur stelpnanna Hopphjól í jarðaför ömmu sinnar… tune in til að vita hvor þeirra framdi þann glæp
  • Lof mér að tala: 29. Alþjóðlegt kyntákn 30.01.2026 1j 2min
    Hæhæ stelpur, verið velkomnar í 29. þátt Lof mér að tala! Margt er rætt og völlurinn er víður, eins og svo oft áður. Prófkjör, kyntáknið Kristín, handbolti, Beckham drama, Hallmark myndir og komment hjá gaurum á instagram. Jú svo er Dónald víst pabbi Íslands…
  • Lof mér að tala: 28. Lesbíur í krísum 21.01.2026 55min
    Þessi þáttur er ekki af verri endanum! Stelpurnar ræða til að mynda vændiskaup þingmanna og eitt ákveðið deyjandi listform. Þær fengu fagmann til að þýða internet slangur og veittu hlustendum ýmis ráð við vandamálum sem þeir sendu inn - margt var um lesbíur í krísum en sumt beintist að strætóskýlum. Vonandi nýtast ráðin sem flestum hlustendum! Þetta og margt fleira í þessum þætti af Lof mér að tala!
  • Lof mér að tala: 27. Háskólagellur 14.01.2026 50min
    Gleðilegan nýjan þátt! Þessi er stuttur og laggóður… flugdólgar, Golden Globes, endurkoma Harry Styles, jamaíski hreimurinn, borgarpólitíkin og litlir kóngar (iykyk), enn og aftur, TAKK FYRIR AÐ HLUSTA!

Popular di

Podcast ini turut muncul dalam senarai podcast negara-negara ini.