Kynlífið
Indíana Rós Kynfræðingur og Aldís Þorbjörg kynlífsráðgjafi
0
Indíana Rós kynfræðingur og Aldís Þorbjörg sálfræðingur og kynlífsráðgjafi ræða kynlíf, kynheilbrigði og allt sem tengist því. Þátturinn er ætlaður fullorðnu fólki og fjallar um málefni sem snerta kynheilsu og nánd. Hlaðvarpið býður upp á fræðslu og umræður um viðfangsefni sem oft eru ekki rædd opinberlega.
Episod
-
#37 Langvinnir verkir og kynlíf- Herdís Kjartans kvenheilsusjúkraþjálfari 30.04.2025 1j 12minwww.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguHerdís Kjartansdóttir kveinheilsusjúkraþjálfari kom og ræddi við Indíönu (því Aldís var veik) um langvinna verki og áhrif þess á kynlíf. Hægt er að finna Herdísi hér á instagram. Herdís starfar á Stíganda og má finna upplýsingar um hana hér, hægt er bóka tíma í sjúkraþjálfun hjá henni þar.. Hér má finna fleiri kvenheilsusjúkraþjálfara sem Indíana hefur áður tekið saman (vantar eflaust á listann, tek glöð við ábendingum) -
#36 Kynlífsmarkþjálfun & unaður kvenna - Kristín Þórs kynlífsmarkþjálfi 13.04.2025 1j 14minwww.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguKristín Þórs markþjálfi ræddi við okkur um hvað felst í kynlífsmarkþjálfun og námskeiði sem hún bíður upp á en svo fór samtalið á víðan völl um unað kvenna og hvernig má huga að unaði fyrir sjálfan sig.Þið getið fundið Kristínu á instagram hér! -
#35 Kynlíf og langtímasambönd. Part 2 - Tilfinningalegt rými kynlífs 03.03.2025 56minwww.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguÍ þessum seinni þætti af tveimur um kynlíf og langtímasambönd förum við Aldís vel yfir tilfinningaleg rými okkar, og hvernig við komumst í rými kynlífs - og jú hvað kippir okkur úr því. Hér má finna teiknimynd sem lýsir þessu ágætlega sem við tölum um - bókin sem við vísum mikið í heitir Come Together: The Science (and Art!) of Creating Lasting Sexual Connections og er eftir Emily Nagoski. Njótið! -
#34 Kynlíf og langtímasambönd. Part 1 - Bensín og bremsur 21.02.2025 1j 8minwww.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguÍ þessum fyrra þætti af tveimur um kynlíf og langtímasambönd förum við Aldís vel yfir hvað kynlöngun er og hvernig hún virkar eiginlega!Hér má finna prófið sem við tölum um að hægt er að taka til að átta sig á hversu viðkvæm, eða ekki, bensíngjöfin ykkar eða bremsa er.Bókin sem við vísum mikið í heitir Come As You Are og er eftir Emily Nagoski.Njótið! -
#33 Skömmin og kynlíf - Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur 16.01.2025 1j 25minwww.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguGuðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur, höfundur bókarinnar Skömminn - úr vanmætti í sjálfsöryggi ræddi við okkur um skömmina. Mjög áhugavert samtal og að sjálfsögðu ræddum við hvernig það tengist kynverundinni okkar. -
#32 ADHD og áhrif þess á kynlíf 20.12.2024 58minwww.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguÍ þessum þætti skoðum við hvernig ADHD getur haft áhrif á kynlíf, sambönd og nánd. Við ræðum um hvernig einkenni ADHD geta bæði skapað áskoranir kynlífi en líka góðu hliðar ADHD í sambandi og kynlíf. Blessuðu þáttastjórnendurnir eru sjálfar báðar með ADHD og deila því eigin reynslu og gefa praktísk ráð til að efla skilning fyrir ykkur sjálf, en líka ef þið eigið maka með ADHD og því hvernig þig getið bætt samskiptin og aukin skilning. -
#31 Framhjáhöld & nafnlaust viðtal 28.11.2024 1j 21minwww.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguVið ræddum núna framhjáhöld, afhverju fólk heldur framhjá, hvernig er hægt að vinna úr því og hver vinnan er fyrir bæði sá svikna og þann sem sveik. En svo fengum við líka frábæran viðmælanda sem ræddi reynslu sína á því að hafa haldið framhjá. Hann er nafnlaus í þættinum. -
#30 Fjölástir, er bara ein rétt leið? 22.10.2024 1j 4minwww.indianaros.is // kynlifsradgjof.isIndíana Rós á Facebook, InstagramAldís Þorbjörg á Facebook, InstagramÞátturinn er í boði Elko Unaðsvörur - Kynntu þér 30 daga unaðstrygginguAldís Þorbjörg kynlífsráðgjafi og sálfræðingur hefur nú tekið fast sæti í stólnum hjá Kynlífinu og verðum við því héðan í frá alltaf tvær saman, vonandi einnig með aðra góða gesti. Í þætti dagsins ræðum við hvort það sé nú ein rétt leið fyrir fjölástir og opin sambönd, eða kannski, þarf bara ræða það eins og allt annað og finna út hvað hentar hverjum? Stóra spurningin sem við reynum að svara í þessum þætti! -
#29 Sjálfsfróun 27.05.2024 43minwww.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - elko.is/unadsvorur - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Durex Smokkar - @artasanÍ þessum þætti ræði ég um allt sem viðkemur sjálfsfróun! Hversu margir stunda sjálfsfróun, hvernig, unaðstæki, sleipiefni og margt fleira! -
#28 Reynsla af brjóstpúðaveiki & leið að líkamssátt - Tinna Björk Kristinsdóttir 20.05.2024 1j 47minwww.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - elko.is/unadsvorur - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Durex Smokkar - @artasanTinna Björk Kristinsdóttir, atvinnugrínari og snillingur með meiru, ræddi við mig um reynslu sína af brjóstpúðaveiki, en hún fékk sér brjóstpúða árið 2016 sem hún lét svo fjarlæga eftir nokkur ár af óútskýrðum einkennum og veikindum. Einlægt og frábært spjall sem leiddist svo í fleiri umræður, til dæmis um leiðina að líkamssátt! -
#27 Þráhyggjur, áráttur og áhrif þeirra kynlíf og sambönd - Ásmundur Gunnarsson sálfræðingur 13.05.2024 1j 49minwww.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - elko.is/unadsvorur - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Durex Smokkar - @artasanÁsmundur Gunnarsson sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni kom til mín og ræddi áráttu og þráhyggjuröskun og líkamsskynjunarröskun (Body dysmorphic disorder) og áhrif þeirra á kynlíf og sambönd. Hægt er að bóka tíma hjá Ása eða öðrum í OCD teyminu hjá kms á kms@kms.is! Upplýsingarnar sem Ási bendir á má finna hér:Intrusivethoughts.orgÍ þessum hlekk Hér má sjá fjöggura daga meðferðina við OCDHér eru alþjóðleg OCD samtök með allskonar fræðsluefni : IOCDF.comBækur:When a loved one won't seek mental health treatment: How to promote recovery and reclaim your family's well-BeingBreak free from OCD: Overcoming Obsessive Compulsive Disorder with CBT -
#26 Ófrjósemi og áhrif á andlega líðan, kynlíf og sambandið Salka Sól Eyfeld 06.05.2024 1j 14minwww.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - elko.is/unadsvorur - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Durex Smokkar - @artasanSalka Sól Eyfeld, tónlistarkona og skemmtikraftur, móðir, eiginkona og vinkona kom til mín og ræddi reynslu sína af ófrjósemi og hvaða áhrif það ferli hafði á andlega líðan. Þá að sjálfsögðu ræddum við líka áhrif ófrjósemi á kynlífið og sambandið. Einlæg og falleg frásögn frá frábærri konu! -
#25 Swing og hópkynlíf - Sigga Dögg kynfræðingur 29.04.2024 1j 2minwww.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - elko.is/unadsvorur - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Durex Smokkar - @artasanSigga Dögg kynfræðingur kom til mín og við ræddum swing, eða svokallaðann ''lífstíl'', og einnig hópkynlíf. Fórum yfir góð ráð og hvað þarf að hafa í huga fyrir áhugasöm sem vilja fara leika. -
#24 Þunglyndi, kvíði, geðrof, lyfin og kynlíf - Tómas sérnámslæknir í geðlækningum 22.04.2024 1j 9minwww.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - elko.is/unadsvorur - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Durex Smokkar - @artasanTómas Ágústsson sérnámslæknir í geðlækningum kom til mín og ræddi við mig um þunglyndi, kvíða og geðrof og áhrif þessa geðsjúkdóma á kynlíf, þá ræddum við einnig hvernig lyf við þessum sjúkdómum geta haft áhrif á kynlíf og hvað er þá hægt að gera.Hér er hlekkur sem við ræddum í þættinum sem er svona ''á mannamáli'' -
#23 Kynlíf eftir kynferðilegt ofbeldi og áföll - Aldís Þorbjörg sálfræðingur og kynlífsráðgjafi 15.04.2024 1j 19minwww.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - elko.is/unadsvorur - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu!Durex Smokkar - @artasanAldís Þorbjörg Kynlífsráðgjafi og sálfræðingur kom og ræddi við mig um allt milli himins og jarðar þegar kemur að kynlífi eftir áföll og kynferðislegt ofbeldi. Hvaða áhrif það hefur og veitti nokkur góð ráð. Hægt er að kynna sér Aldísi Þorbjörgu og kynlífsráðgjöf á heimasíðunni hennar Kynlifsradgjof.is -
#22 Mýtan um bleika skýið eftir fæðingu - Elín Ásbjarnardóttir heimspekingur 08.04.2024 1j 35minwww.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - elko.is/unadsvorur - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex Smokkar - @artasanElín Ásbjarnardóttir Strandberg er heimspekingur og jógakennari og hefur rannsakað endurmótun sjálfsins eftir fæðingu og meðgöngu, og við ræðum því allskonar tilfinningar og upplifanir eftir meðgöngu og fæðingu. Við erum saman hluti af teymi sem er með námskeiðið Móðir í Mótun; Endurheimt eftir meðgöngu og fæðingu sem haldið er á Fæðingarheimili Reykjavíkur. Þið getið kynnt ykkur niðurstöður rannsóknarinnar hennar hér á instagram. -
#21 Vandi með kynferðislega hegðun og hugsun - Jóhanna frá Taktu Skrefið 01.04.2024 1j 7minwww.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - elko.is/unadsvorur - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Jóhanna Dagbjartsdóttir er sálfræðingur á Taktu Skrefið. Taktu skrefið er úrræði fyrir fólk sem hefur áhyggjur af kynferðislegri hegðun sinni eða hefur beitt kynferðisofbeldi. Þar starfar hópur sálfræðinga með sérþekkingu á þessu sviði sem aðstoða ungmenni og fullorðna. Við ræðum algengar mýtur, hvernig þau vinna með fólki sem hefur áhyggjur af kynferðislegum hugsunum sínum eða hegðun og einnig einstaklinga með barnagirnd eða sem eru gerendur kynferðislegs ofbeldis. Hér má finna fræðsluefni sem hún vísar í, Stop It Now. -
#20 Áhrif krabbameins á sambandið og kynlífið - Egill Þór og Inga María 25.03.2024 1j 30minwww.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - elko.is/unadsvorur - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - Artasan.is - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumEgill Þór greindist með krabbamein í Júní 2021. Þá áttu hann og Inga María eins og hálfs árs gamlann strák og áttu von á sínu öðru barni. Við tók meðferð og var hann talinn vera laus við krabbamein um mánuði fyrir settan dag hjá stelpunni þeirra - en um viku fyrir fæðingu hennar kom í ljós að krabbameinið var komið til baka. Við tók krefjandi barátta sem tók skiljanlega á alla þætti lífsins og er hann núna laus við krabbameinið þó hann sé enn að glíma við allskonar afleiðingar. Þau komu og ræddu við mig um áhrif krabbameinsins á sambandið og kynlífið á svo einlægan og fallegann máta. Það má greinilega heyra að þetta fallega par hefur lært ýmislegt á þessari reynslu sem hefur styrkt þeirra tengsl. -
#19 Reynslan mín sem trans kona á Íslandi - Bríet Blær Jóhannsdóttir 18.03.2024 1j 30minwww.indianaros.isIndíana Rós er líka á Facebook, Instagram Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - elko.is/unadsvorur - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - Artasan.is - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumBríet Blær er trans kona og talar við mig um reynslu sína á því að vera trans kona á íslandi. Hún fjallar um hvernig hún áttaði sig á því að hún væri trans og hvernig kerfin brugðust henni þegar hún var yngri. Þá ræðir hún sitt kynstaðfestandi ferli og biðina löngu eftir aðgerð. Þá gætu mörg kannast við hana frá Twitter en þar deildi hún reglulega frá raunum sínum að vera trans kona og öllu því sem fylgir því. -
#18 Áhrif tengslamynstra á sambönd, samskipti, ágreininga og kynlíf - Soffía Bæringsdóttir fjölskyldufræðingur 11.03.2024 1j 24minIndíana Rós er á Facebook, Instagram og heimasíðan er hér!Þátturinn er í boði:ELKO Unaðsvörur - elko.is/unadsvorur - Kynntu þér 30 daga unaðstryggingu! Durex smokkar - Artasan.is - Fæst í öllum helstu verslunum, apótekum og bensínstöðvumSoffía Bæringsdóttir er með master í fjölskyldumeðferð, diplómu í handleiðslu og hefur starfað sem doula frá 2008. Hún sinnir pararáðgjöf og fjölskyldumeðferð með styrk og tengsl í huga. Hún ræddi við mig um mismunandi tengslamynstur, áhrif þess á sambönd, samskipti, ágreining og kynlíf. Hér má kynna sér betur Soffíu og þá er hægt að fylgja henni á Instagram hér.
Popular di
Podcast ini turut muncul dalam senarai podcast negara-negara ini.