Vandað til verka
Iðan fræðslusetur
0
Vandað til verka fjallar um byggingariðnaðinn, fagmennsku og fólkið sem býr yfir þekkingu og reynslu í greininni. Iðan fræðslusetur stendur að hlaðvarpinu, og Bergþór Ingi Sigurðsson stýrir þáttunum. Þar ræðir hann við fjölbreyttan hóp fólks úr bygginga- og mannvirkjageiranum. Viðræðurnar snúast um verkefni, þróun og það sem skiptir máli í faginu.
Episod
-
2. Björgvin Stefánsson: Tjón, viðgerðir og endurbætur 05.10.2026 1j 23minHvað gerir þú fyrstu mínúturnar eftir vatnstjón og hvaða mistök geta gert lítið tjón að stóru? Bergþór Ingi ræðir við Björgvin Stefánsson um viðbrögð við tjónum, algengustu orsakir vatnstjóna, falinn raka og hvað þarf að hafa í huga þegar tjón verður. Þeir ræða líka hvernig faglegt tjónaviðbragð fer fram og hvað má gera til að fyrirbyggja tjón. -
1. Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir: Raki og mygla 28.09.2026 48minViðmælandi þáttarins er Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur og stofnandi Verkvistar. Í þættinum ræða hún og Bergþór Ingi, stjónandi þáttarins, meðal annars um hvað veldur rakavandamálum, hvernig þau hafa áhrif á byggingar og innivist og hvers vegna mikilvægt er að bregðast rétt og tímanlega við.
Popular di
Podcast ini turut muncul dalam senarai podcast negara-negara ini.