Hold

Hold

RÚV Hlaðvörp
Land Iceland
Genres Society & Culture, History, Documentary
Taal IS
Afleveringen 18
Laatste 30.05.2026

Einu sinni þótti fallegt að vera feit. Síðastliðna áratugi hefur feitt fólk mætt fordómum, sýnileg líkamsfita þótt útlitsgalli og mælikvarði á skapgerð, sjálfsaga, æskileika og færni. Persónulegt vandamál einstaklinga sem þeir hafi valið með því að velja óheilsusamlegt líferni og ættu að vilja leysa. Milljónaiðnaður hefur haldið fólki í baráttu við líkamann sinn með ýmsum lausnum sem oftar en ekki skilja fólk eftir enn feitara en fyrr. Fjöldi feitra lifir þó heilbrigðu og hamingjusömu lífi, óháð holdafari sínu. Offita er nú skilgreind sem alvarlegur og víðfemur sjúkdómur. Við þeim sjúkdómi hafa nýlega komið fram læknisfræðilegar lausnir svo sem þyngdarstjórnunarlyf og efnaskiptaaðgerðir. Ber þá feitu fólki þá skylda til að fara á lyf eða í aðgerð fyrst það er hægt? Hvaða áhrif hafa þessar lausnir á fitufordóma og átröskunarsjúkdóma? Eru þær líklegar til að draga úr offituvandanum eða auka hann? Og hvaða afleiðingar hafa þessar lausnir til langframa? Er alltaf betra að vera mjó? Brynhildur Björnsdóttir er 56 ára kona sem hefur verið feit alla ævi. Hún veltir þessum spurningum fyrir sér í þremur útvarpsþáttum ásamt ýmsum sérfræðingum og fólki með reynslu.

Afleveringen

  • Hold 2/3 30.05.2026 42min
    Sápan FatOff og megrunarkaramellurnar AYDS eru meðal umfjöllunarefna í öðrum þætti af Holdi. Brynhildur ræðir líka við þær Lindu Guðmundsdóttur og Ósk Gunnlaugsdóttur um reynslu þeirra af þyngdartapslyfjum og - aðgerðum. Ennfremur er fjallað um fitufordóma. ATH að í þættinum er komið inn á ýmislegt sem gæti reynst flókið fyrir þau sem hafa glímt við átröskun. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Hold 1/3 26.05.2026 39min
    Brynhildur tekur stöðuna á nútíma holdafarsumræðu og segir sögu sína í nokkrum megrunarkúrum. Í framhaldi af því veltir hún fyrir sér hvort hún eigi að nýta sér þær aðferðir sem læknavísindin bjóða upp á í baráttunni við ofþyngd og leitar ráða hjá konu með reynslu.Rætt er við Ragnheiði Bjarman Eiríksdóttur og lesari í þættinum er Helgi Seljan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Vinur minn Germani 15.05.2026 43min
    Þegar Jón Magni Ólafsson var ungur maður kolféll hann af einhverjum ástæðum, fyrir orgeltónlist og töfrum hennar sem minnti hann á gilin og fossana í sveitinni í Mýrdalnum. Hann hélt sérstaklega upp á plötu sem hann eignaðist 17 ára gamall með Fernando Germani, sem var organisti Péturskirkjunnar í Róm á tímum Píusar páfa (1939-1958). Þegar Germani heimsótti Ísland á áttunda áratugnum, tókst með þeim Magna óvænt, en djúpstæð vinátta sem entist allt þar til Germani lést.Þeir skrifuðust á í 25 ár um lífið, listina, mennina, illskuna, ástina og Guð.Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Land og sonur 3/3: Svo mælir Svarthöfði 09.05.2026 45min
    Indriði G. Þorsteinsson var ekki aðeins rithöfundur. Hann starfaði lengi sem blaðamaður og ritstjóri og tók virkan þátt í þjóðmálaumræðunni, beitti sér í fyrirtækjarekstri og framleiðslu kvikmynda og var einn helsti skipuleggjandi hátíðarhaldanna í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974. Umdeildastur var hann þó sem pistlahöfundurinn Svathöfði. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Land og sonur 2/3: Norðan við stríð 02.05.2026 48min
    Skáldsögur Indriða G. Þorsteinssonar gerast í samfélagi þar sem hið gamla víkur fyrir nýjum vonum og nýjum siðum. Indriða voru þessar miklu breytingar á íslensku þjóðfélagi um miðja 20. öld hugleiknar og hann speglaði þær iðulega í því samfélagi sem hann hafði sjálfur kynnst á yngri árum, sveitasamfélaginu. En hann benti líka stöðugt á að margt var bogið við það og að þrátt fyrir fegurð og yndisleika voru þjófar á ferð í paradís. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Land og sonur 1/3: Vegir liggja til allra átta 24.04.2026 48min
    Indriði G. Þorsteinsson hóf feril sinn sem rithöfundur og blaðamaður rétt upp úr tvítugu. Hann sagði frá sveitalífinu sem hann hafði kynnst í Skagafirði og bæjarbragnum á Akureyri í Reykjavík. Æska hans og unglingsár voru mörkuð af sífelldum flutningum, mögnuðum ættingjum, hersetu og nýju lífi mölinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Ljóslæknirinn 1/1: Hinn íslenski Nóbelshafinn 17.04.2026 49min
    Árið 1903 hlaut Niels Ryberg Finsen Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á ljósmeðhöndlun við hörundsberklum og öðrum sjúkdómum. Hann var fyrsti danski handhafi Nóbelsverðlaunanna sem þá voru nýtilkomin og vegna sérsviðs síns var hann gjarnan kallaður ljóslæknirinn. Uppruni Finsens teygir sig þó líka til Færeyja, þar sem hann fæddist, og til Íslands en á hann rætur að rekja til Íslands í föðurætt auk þess sem hann bjó hér um nokkurt skeið og lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum sem þá hét. Í aðalbyggingu Menntaskólans í Reykjavík er enn minnisvarði um námsár Finsens. Þrátt fyrir það er hann mörgum Íslendingum gleymdur og í þessum þætti verður hans minnst, fjallað um tengslin við Ísland, námsárin og afrekin á sviði læknavísinda.Umsjón: Jóhannes Ólafsson Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Mundi: Seinni þáttur 10.04.2026 58min
    Guðmundur Arnfinnsson var bráðkvaddur bíðandi eftir strætó í Hamraborginni með poka fullan af bókum sem hann hafði keypt í Bónus. Örfáum mínútum áður hafði hann verið í viðtali hjá umsjónarmanni Lestarinnar á Rás 1 sem var að ræða við farþega í strætó. Þessi ótrúlega tilviljun er upphafið að ferðalagi þar sem Kristján Guðjónsson reynir að kynnast Munda, fyrrum sakarskrárritara, sérstæðum og hlédrægum hæfileikamanni sem skilur eftir sig mikinn fjölda kvæða og gríðarlegt bókasafn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Mundi: Fyrri þáttur 10.04.2026 51min
    Umsjónarmenn Lestarinnar vörðu heilum föstudegi í desember 2023 um borð í leið 4, strætó sem keyrir úr Mjódd niður á Hlemm um Breiðholtið. Í þættinum heyrast sögur fólks sem ferðaðist með vagninum þann daginn. Strákur á leið að fá sér drekatattú, venesúelskur söngvari á leið til sálfræðings, danskur kökuskreytingameistari og hagmælti bókasafnarinn Mundi. Á páskadag fór í loftið nýr útvarpsþáttur á Rás 1 um ævi eins viðmælandans Guðmundar Arnfinnssonar og var strætóþátturinn endurfluttur að því tilefni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Bein 3/3: Um kærleikann í beinunum 04.04.2026 41min
    Í miðri leit að uppruna lærleggjanna, berast Sigrúnu nýjar upplýsingar um uppruna sinn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Bein 2/3: ...nema ekki fyrir mömmu 28.03.2026 40min
    Allt leitar yfirborðsins. Lærleggirnir una sér ekki í moldu og sögur úr æsku systkinanna af Lækjarbakka brjótast fram. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Bein 1/3: Lærleggurinn verndar okkur... 20.03.2026 39min
    Hafrún býr á Vestri Loftsstöðum með Sigurði manninum sínum, fimm af sjö börnum þeirra, hundinum Tarfi og lærlegg úr 400 ára gömlum galdramanni. En hvaðan kom þetta bein, þessi saga, og er einhver leið að rannsaka það með tilkomu nútíma tækni? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Aukaþáttur: Tollararnir 07.07.2024 39min
    Guðrún Hálfdánardóttir ræðir við Brynjólf Karlsson og Jónas Hall sem kynntust þegar þeir voru 12 ára og störfuðu sem tollverðir um árabil.Tónlist: Stolin stef - Gunnar GunnarssonSpeak softly - Haukur Heiðar Ingólfsson Catching Lightning - Alex Mastronardi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Eldflaugaförin 5. þáttur: Komu aldrei til hafnar 06.07.2024 40min
    Birgir Þór Helgason var boðaður á fund í höfuðstöðvum bandaríska varnarmálaráðuneytisins haustið 1986 og fenginn til að stýra leiðangri hringinn í kringum jörðina; leynilegum siglingarleiðangri sem tók á annað ár í þeim tilgangi að flytja mikilvægan farm. Þessi farmur kom aldrei til hafnar samkvæmt opinberum gögnum. Samt, átti hann eftir að setja mark sitt á hernaðarsögu heimsins.  Viðmælendur í þættinum eru: Albert Jónsson, Birgir Þór Helgason og Jón Ingi Þórarinsson.  Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Eldflaugaförin 4. þáttur: Út í óvissuna 29.06.2024 39min
    Haustið 1986 tók Birgir Þór Helgason vélstjóri að sér verkefni án þess að vita hvað það fól í sér. Næstu misserin sigldi hann, ásamt áhöfn, gömlu smyglskipi heimsálfa á milli. Það var ekki fyrr en seint og um síðir að upplýst var um hver förinni var heitið og hvað biði þeirra þar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Eldflaugaförin 3. þáttur: Baráttan við Bakkus 22.06.2024 39min
    Íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason hefur tekist á við ýmislegt á sinni löngu ævi. Meðal annars leyniför hringinn í kringum jörðina. Baráttan við Bakkus er aldrei langt undan í fjölskyldu Birgis og sú barátta tekur toll sem enginn vill þurfa að greiða. Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór Helgason og Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingum í alþjóðamálum.Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Eldflaugaförin 2. þáttur: Framtíðin ráðin 15.06.2024 40min
    Birgir Þór Helgason vélstjóri var boðaður á leynilegan fund haustið 1986. Fund sem markaði upphaf háskafarar um heimsins höf. Birgir hefur reynt ýmislegt um ævina og í þessum þætti heyrum við meðal annars af smygli og sjóskaða.Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór Helgason, Brynjólfur Karlsson og Jónas Hall.Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Eldflaugaförin 1. þáttur: Vandræðabarn frá byrjun 07.06.2024 38min
    Haustið 1986 var íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason boðaður á leynilegan fund. Það var upphafið að mikilli háskaför hinum megin á hnettinum. En hver er þessi Birgir?Í þessum þætti fáum við að kynnast bakgrunni hans og hvað gerði hann að þeim manni sem hann er nú. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Populair in

Deze podcast verschijnt ook in de podcastlijsten van deze landen.