Meðal fólks

Meðal fólks

RÚV Hlaðvörp
Land IJsland
Taal IS
Afleveringen 15
Laatste 19.06.2026

Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt. Í þættinum er rætt við ólíka einstaklinga um líf þeirra og reynslu.

Afleveringen

  • Fyrir fótboltaleik 19.06.2026 51min
    Hvað þarf til að halda stærsta fótboltaleik sumarsins? Við mætum á Víkingsvöll og verjum tíma með sjálfboðaliðum Víkings á meðan þeir undirbúa toppslag við erkifjendurna í Knattspyrnufélagi Reykjavíkur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Bjór 12.06.2026 57min
    Einhvern tímann á síðasta áratug varð breyting á því hvernig við drekkum bjór. Handverksbrugghús opnuðu um land allt sem brugguðu flókna, krefjandi, stundum skrítna bjóra. Svo varð önnur breyting.Hvað gerðist?Í dag heimsækjum við handverksbrugghús og ræðum við bruggmeistara og bjórsagnfræðing og köfum ofan í bjór- og drykkjumenningu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Tilraunastöðin 05.06.2026 56min
    Sumarexem, sýklalyfjaónæmi, smitsjúkdómar í fiskeldum. Í dag heimsækjum við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og kynnum okkur rannsóknirnar sem fara þar fram. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Veiruheimur 29.05.2026 52min
    „Þetta er veiruheimur sem við búum í, ekki öfugt,“ segir Zarko Urosevic, náttúrufræðingur sem starfar við veirurannsóknir á Landspítala. Í dag fræðumst við um veirur og komumst að því hvort veirur geti verið góðar, hvaða áhrif Covid hafði á veirurannsóknir og hvort við séum tilbúin undir næsta veirufaraldur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Allra meina bót 22.05.2026 55min
    Ættu læknar að skrifa upp á list til að lækna sjúkdóma? Erum við ekki að horfa nógu lengi á hlutina í kringum okkur? Þetta er spurningar sem fyrstu útskriftarnemar af námsbrautinni Listir og velferð við Listaháskóla Íslands varpa fram í sínum lokaverkefnum. Í maí eru haldnir fjölmargir viðburðir þar sem útskrifarnemar verja og kynna lokaverkefnin sín, og við mætum á einn þeirra til að læra meira um samband listar og samfélags. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Þar sem sólin skín ekki 09.05.2026 56min
    Dagsbirta er mikilvæg. Engu að síður byggjum við stundum rými þar sem hana skortir. Í dag heimsækjum við Hlíðarendahverfið í Reykjavík ásamt Páli Jakobi Líndal og ræðum við Önnu Sigríði Jóhannsdóttur, arkíktekt og sérfræðing í dagsbirtu í byggðu umhverfi Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Labbið 04.05.2026 54min
    Hvernig lyktar E.coli? Hvernig finnur þú ávaxtaflugumeyjar? Hvers vegna hvílir leynd yfir starfsemi músarannsóknarstofa? Í dag fylgjum við Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, í gegnum þrjár mismunandi rannsóknarstofur þar sem rannsóknir eru gerðar á lífverum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Kokteilar og barmenning 24.04.2026 58min
    Í dag köfum við dýpra ofan íslenska barmenningu og rekjum sögu handverkskokteilgerðar í Reykjavík til fyrsta barþjónsins á Slippbarnum. Við ræðum við Teit Riddermann Schiöth, forseta barþjónaklúbbs Íslands, Leó Snæfeld, íslandsmeistara í kokteilgerð, og Ásgeir Má Björnsson, kokteilbarþjón. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Íslandsmeistaramót barþjóna 17.04.2026 56min
    Á hverju ári eru haldnar fjölmargar barþjónakeppnir, þar sem barþjónar búa til upprunalegan kokteil, hella upp á og framreiða hann eftir öllum kúnstarinnar reglum. Stærsta keppni ársins hér á landi er Íslandsmeistaramót barþjóna, sem haldin er á Reykjavík Cocktail Week að vori. Björg Elva Friðfinnsdóttir, barþjónn á Geira Smart, er meðal keppenda í ár og við fylgjum henni eftir á meðan hún undirbýr sig og keppir á sinni fyrstu barþjónakeppni.Viðmælendur:Björg Elva FriðfinnsdóttirTeitur Riddermann SchiöthLeó Snæfeld PálssonRóbert Aron Garðarsson ProppéPétur Hafsteinn Kolka ÚlfssonVictoría Lazar SorinsdóttirÓlíver Goði Dýrfjörð Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Arkítektúrkennararnir 10.04.2026 53min
    Við erum ennþá í arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands. Í síðasta þætti vörðum tíma með nemendum. Í dag heyrum við í kennurunum. Hvernig takast kennarar í eina arkítektúrskóla landsins á við ábyrgðina að kenna arkítektum framtíðinnar að hugsa um arkítektúr. Eru tengsl milli akademíunnar og raunheimsins? Er LHÍ búbbla?Viðmælendur eru:Auður AtladóttirElísabet Auður GuðnadóttirÞuríður Guðrún PétursdóttirÞórdís Lind JónsdóttirArnbjörg Guðný AtladóttirAnna Sigríður JóhannsdóttirSahar G. Kvaran Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Arkítektúrnemarnir 27.03.2026 56min
    Er byggða umhverfið okkar ljótt? Hvernig lætur það okkur líða? Hvers vegna virðist fólk svona ósátt með nýbyggingar? Til að svara þessum spurningum leitum við á stað þar sem fólk hugsar mikið og gagnrýnið um arkítektúr: Arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands.Við verjum deginum með fimm fimmta árs nemum í arkítektúr sem eru að keppast við að klára meistaraverkefnið sitt. Við ræðum við Evu Lind Elíasdóttur, Svövu Ragnarsdóttur, Kristrúnu Lárusdóttir Hunter, Unu Haraldsdóttur og Joan Tolentino.Aðrir viðmælendur:Þórdís DaðadóttirÍsabella ArnarsdóttirUrður Ýr ÞorsteinsdóttirEmilía ArnarsdóttirKaren Ósk MagnúsdóttirSaule Viktoría TyschenkoGuja Dögg Hauksdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Dragfjölskyldutengsl 20.03.2026 56min
    Í þættinum verjum við tíma með dragdrottningunum Lolu von Heart og Chardonnay Bublée á meðan þær undirbúa dragsýninguna House of Heart á skemmtistaðnum Kiki, fræðumst um þetta áhugaverða listform og kynnumst dragsenunni í Reykjavík. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Bílaumboð og geópólitík 13.03.2026 57min
    Af hverju myndu alþjóðleg glæpasamtök gera stórfellda tölvuárás á íslenskt bílaumboð? Til að svara þessari spurningu heimsækjum við Brimborg, framkvæmum ferilsrannsókn á tölvuárás á ónefnt íslenskt fyrirtæki og fræðumst um hópana sem standa að baki aðferðunum sem eru að gjörbreyta hinu geópólitíska landslagi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Frúin 06.03.2026 54min
    Skjólstæðingar Frú Ragnheiðar nota vímuefni í æð, sumir eru heimilislausir, allir í mjög viðkvæmri stöðu. Við förum á vakt í Frúnni, bíl Frú Ragnheiðar sem keyrir um höfuðborgarsvæðið og veitir heilbrigðisþjónustu, nálaskipti og sálfélagslegan stuðning, og ræðum við sjálfboðaliðana og fólkið sem leitar í Frúnna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Fjórar klukkustundir og fimmtán mínútur á skilunardeild Landspítala 27.02.2026 57min
    Í dag stöndum við vaktina á skilunardeild Landspítala. Þetta er svolítið sérstök deild, lítið þekkt nema meðal þeirra sem tengjast henni með beinum hætti. Skjólstæðingar skilunardeildar verja hér miklum tíma og dvölin hefur oft víðtæk áhrif á líf þeirra. Við ræðum við starfsfólkið á deildinni og fólkið sem ver fjórum klukkustundum og fimmtán mínútum tengt við blóðskilunarvélar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Populair in

Deze podcast verschijnt ook in de podcastlijsten van deze landen.