Bílar, fólk og ferðir
Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.
0
Rally Palli fær góða gesti í heimsókn til að spjalla um alls konar ferðir fólks á bílum, bæði ferðir í óbyggðum, erlendis, áætlanaferðum vöruflutningabílstjóra og hópferðamanna fyrr á tímum. Hlaðvarpið er sett upp til að heiðra minningu frumkvöðlana og minna á notagildi bílsins.
Afleveringen
-
#58 - Ómar Friðþjófsson 28.02.2026 1u 54minÓmar Friðþjófsson er sögumaður af guðs náð og hér segir talar hann um hvernig ferðamennskan er svo mikilvæg í lífi margra, td frá pabba sínum sem fór 1946 á Dyngjujöklul á sínum Willisjeppa, ástæðum þess er hann sjálfur er svo háður ferðalögum, en megin hluti þáttarins fór í að tala um einstaka "jeppaferð" með góðum félögum, þar sem ekið var m.a. á ís á hinu stóra Mackenzie fljóti, um óbyggðir og á ísilögðu hafi. Enginn fyrr né síðar hefur leikið þetta eftir um óbyggðir Kanada. -
#57 - Hlynur "Sæti" Bragason 10.02.2026 1u 1minGleðigjafinn og gæðadrengurinn Hlynur Bragason frá stór Fellabæjarsvæðinu er gestur minn að þessu sinni. Gaf sér tíma í þessari bæjarferð og segir hér sögu sína á góðan og skemmtilegan hátt. Kappinn er alltaf kallaður Hlynur Sæti og ber nafnbótina vel. -
#56 - Halldór Jónsson / Dóri Tjakkur 07.02.2026 1u 10minHann Halldór Jónsson, betur þekktur sem Dóri Tjakkur er einn af okkar alreynslumestu ökumönnum þessa lands. Hefur td starfað í 41 ár við að aka gámum um Höfuðborgarsvæðið. "Allir þekkja Dóra og bílinn hans", enda með eindæmum natinn við þrif og hafa allar perur í lagi, svo það sé nú sagt. Klárlega fyrirmynd margra yngi ökumanna í bransanum. Dóri fer hér vel yfir feril sinn í aksri frá unga aldri. -
#55 - Ómar Jóhannsson 18.01.2026 2u 11minVið Ómar Jóhannsson áttum langt og mikið spjall um allskonar kvisti, þar sem bílar, fólk og ferðir koma við sögu. Síðustu árin hefur hann verið ökumaður hjá Líflandi en lengst af var hann með eigin bíl í rekstri á Sendibílastöðinni Þresti. Óhætt er að segja að Ómar hefur komið víða víð í allskonar akstri og segir hér skilmerkilega frá. -
#54 - Ólafur Þór Erlingsson / Óli Skrjóður 09.01.2026 1u 1minÓlafur Þór Erlingsson vörubílstjóri á Þrótti er fyrsti gestur ársins 2026. Alltaf kallaður Óli Skrjóður, en það nafn festist á hann á unga aldri á Reykhólum. Óli er lífsglaður að eðlisfari og við förum hér hratt yfir málin en gleymdum örugglega fullt af sögum. -
#53 - Kerlingafjallaferð í júní 1978 28.12.2025 18minÞáttarstjórnandi les hér stuttar endurminningar sínar um skíðaferð í Kerlingafjöll í júní 1978. Fyrst birt á facebók í desember 2012. -
#52 - James Goodall Alexandersson 13.12.2025 1u 13minÞað er langt síðan þáttarstjórandin bað James Goodall Alexandersson um að koma í þáttinn og segja ma frá akstri sem hann tók að sér fyrir Rauða Krossinn fyrir rúmum 30 árum síðan í stríðinu í fyrrum Júgóslavíu.James sem hefur afar gott orðspor sem ökumaður og i raun algjör ljúflingur, segir hér afar skilmerkilega frá þessu viðburðaríka tímabili í lífi hans. -
#51 - Arngrímur Hermannsson 06.12.2025 1u 29minAllt áhugafólk um ferðir þekkja frumkvöðullinn Arngrím Hermannson, en hann er gestur þáttarins að þessu sinni. Addi er klárlega einn af okkar allra bestu fjallamönnum og hefur staðið fyrir eða komið að flestum mest krefjandi leiðöngrum um hálendi Íslands. Hér í þessum þætti er td farið vel yfir ferð sem var kölluð, "Yfir jöklanna þrjá" sem farin var fyrst á skíðum árið 1975 og svo aftur sömu leið á jeppum tíu árum síðar. -
#50 - Úr dagbók Sigurjóns Jóhannessonar frá Húsavík 22.11.2025 40minHann Björn Sigurðsson frá Húsavík sendi mér nokkrar síður úr dagbók Sigurjóns Jóhannessonar, er snýr að ferðalagi Ferðafélags Húsavíkur hingað suður um Kjöl í júlí 1959. Svo var farið haldið heim á leið um Sprengisand, en þá þurfti að aka yfir Hófsvað í Tungná, sem var mikill farartálmi, enda löngu áður en brýr og virkjanir komu á svæðið. Um er að ræða fróðlega, ítarlega og skemmtilega frásögn er lagt var í vaðið sjálft.Hlustendur verða þó að taka viljann fyrir verkið, sum orð eru ansi framandi, auk þess að ekki var auðvelt að lesa þetta inn eftir skönnun. -
#49 - Tvíburarnir Pétur og Eggert 16.11.2025 55minÞeir Pétur Hoffmann og Eggert Sigurðs Karlssynir eru viðmælendur þáttarins að þessu sinni. Flestir muna eftir þeim tvíburum að aka rútumseinni árin hjá Norðurleið, en sem ungir menn störfuðu þeir við alls konar akstur bíla og tækja, td hjá Vestfjarðarleið, Ræktunarsambandi Dalamanna, Vegagerðinni,Kaupfélagi Hvammsfjarðar og víðar. Þessir strákar úr Steingrímsfirðinum hafa engu gleymt. -
#48 - "Banaslys" á Óshlíðinni II 02.06.2025 1u 1minEins og talað var um í síðasta þætti, þá var ákveðið að Snorri S Konráðsson bifvélavirkjameistari myndi koma í heimsókn þar sem hann myndi fara vel yfir sín gögn og þær niðurstöður sem voru kynntar í þætti Sigursteins Mássonar um Íslensks Sakamál.Snorri segir í fyrstu örstutt frá sínum bakgrunni í fræðunum og frá reynslu sinni vegna starfa sinna í 14 ár við að rannsaka vettvang og bíla þar sem slys hafa orðið.Seinni hluti þáttarins fer í að ræða þær 4 - 5 sekúntur sem tekur umræddan bíl á Óshlíðinni fara af veginum, niður í fjöruna, auk annara ummerkja sem sjást á myndum frá þessum tíma, sem sanna að umræddur útafakstur var ekki slys.Hér er þáttur sem enginn má láta framhjá sér fara. -
#47 - "Banaslys" á Óshlíðinni I 29.05.2025 1u 38minEftir nýlegan sjónvarpsþátt Sigursteins Mássonar um Íslensk Sakamál, þar sem fjallað var ítarlega um útafakstur leigubíls á Óshlíð í september 1973, gerði þáttarstjórnandi örsuttan pistil á facebók sem fékk mikil viðbrögð. Í framhaldi af þeim viðbrögðum þótti einsýnt að saga þess látna yrði að koma enn betur fram, enda allt of mikið af rangfærslum í lögregluskýrslum, auk þess sem að heilbrigð skynsemi kallar á að yfirvöld rannsaki málið allt uppá nýtt. Hér segir Þórólfur Hilbert sögu bróður síns, Kristins H Jóhannesarsonar, auk þess sem við ræðum atburði umræddar nætur. -
#46 - Dætur þáttarstjórnandans 20.04.2025 2u 6minÍ þessum þætti snerust hlutirnir við, er dæturnar Sólveig Steinunn, Rebekka Helga og Auður Margrét tóku yfir stjórn þáttarins. Fóru þær yfir eitt og annað sem sneru að uppeldi og æsku þeirra, þar sem bílar og ferðalög ýmiskonar spiluðu stóran þátt. -
#45 - Hörður Kristjánsson 05.04.2025 57minÍsfirðingurinn Hörður Kristjánsson er sannur áhugamaður um góðar samgöngur á Íslandi, bara rétt eins og pabbi hans Kristján Jónsson. Kitti á Ítunni eins og hann var alltaf kallaður var svo sannarlega frumkvöðull í vegagerð og bjó til veginn um Óshlíð á árunum 1946 til 1950, auk þess að koma að gerð fyrstu jarðgangna á Íslandi í gegnum Arnarneshamar. Við Hörður ræðum í þessum þætti um samgöngur fyrri ára og stöðuna í dag. -
#44 - Ari Arnórsson 23.02.2025 1u 55minAri Arnórsson er sannkallaður frumkvöðull eins og hlustendur þáttarins munu átta sig á eftir hlustun. Ari er heimsmaður, hefur mikla og góða sannfæringu fyrir lífsins gildum. Sem barn bjó hann ásamt foreldrum sínum víða og í 3 löndum og eflaust hefur það haft góð áhrif á hugsanahátt, viljastyrk og þá staðreynd að heimurinn er í raun pínu lítill. Kappinn hefur um nokkurt skeið lagt tíma og metnað í að hanna og koma að framleiðslustigi alíslenskan bíl frá grunni, Eins nálægt lokatakmarkinu og raunin er, segir Ari okkur sögu sína á mjög skilmerkilegan hátt. Henn segir marga sem hafa kynnt sér Ísar verkefnið segja það líklegt til að verða næsta Íslenska ævintýri á borð við Marel, Össur o.fl. -
#43 - Þorgrímur St Árnason - "Toggi Keflavík" Ö-250 09.02.2025 50minÞað hefur staðið lengi til að Þorgrímur St Árnason úr Keflavík kæmi í þáttinn til að segja sína sögu, en Toggi eins og kappinn er ofast kallaður á meðal annara jeppamanna og um leið kenndur við heimabæ sinn Keflavík og bílnúmerið Ö-250. Er einn af þeim fáu sem hafa ekið jeppa sínum heima á hlað á Hornbjargsvita og fengið kaffi hjá Óla komma. Nýverið greinist Toggi með Alzheimer sjúkdóminn, en mætir hér einlægur í viðtalsþátt með kjarkinn að vopni, nú sem áður. -
#42 - Thorsteinn Hjaltason - Dossi 01.02.2025 1u 34minFlestir þekkja Dossa er hann var kóngurinn í Bláfjöllum, en færri þekkja sögu hans er snýr að bílum og ferðalögum víða um land. Dossi er frábær og var greinilega frumkvöðull í svo mörgu og gaman að fá að heyra sögur frá hans yngri árum. -
#41 - Jóhannes Árnason 22.04.2024 1u 38minÞað var sérlega gaman að fá Jóhannes Árnason í heimsókn fyrr í dag, en hann hefur eiginlega alla sína ævi unnið við akstur bíla ýmiskonar. Jói er góður sögumaður eins og margir kolleka hans úr flutningabílabransanum og segir hér vel frá lífi og starfi sl ára. -
#40 - Harald Teitsson 20.04.2024 55minVið þekkjum öll gulu hópferðabílana sem eru svo víða hér um borg á ferðinni. Vel merktir TEITUR og hér segir Harald Teitsson sonur Teits Jónassonar sögu pabba síns og fyrirtækisins sem hefur starfað í rúm 60 ár. -
#39 - Einar Indriðason 04.04.2024 1u 54minStrandamaðurinn Einar Indriðason mætti óvænt í heimsókn og auðvitað stukkum við niður í stúdeóið og tókum upp einn þátt. Einar hefur stundað akstur um langt skeið, ekið vöruflutningabílum og rútum ýmiskonar, þar á meðal eitt sumar með hinum eina sanna Guðmundi Jónassyni fjallabílstjóra. Skemmtilegur þáttur að mati þáttarstjórnanda, sem hefur ekki hlegið jafn mikið í langan tíma.
Populair in
Deze podcast verschijnt ook in de podcastlijsten van deze landen.