Synir Egils

Synir Egils

Gunnar Smári Egilsson, Sigurjón M. Egilsson
Land IJsland
Taal IS
Afleveringen 114
Laatste 16.08.2026

Synir Egils er hlaðvarp þar sem feðgarnir Gunnar Smári Egilsson og Sigurjón M. Egilsson, með áratuga reynslu af greiningu pólitískrar og samfélagslegrar umræðu, ræða við gesti úr stjórnmálum, fjölmiðlum og verkalýðshreyfingunni. Þættirnir fjalla um brýnustu málefni dagsins og birtast á sunnudögum.

Afleveringen

  • Sunnudagurinn 16. ágúst Synir Egils: Evrópusambandið, þjóðaratkvæði og klofin þjóð 16.08.2026 2u 36min
    Sunnudagurinn 16. ágúst Synir Egils: Evrópusambandið, þjóðaratkvæði og klofin þjóð Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við þau Sonju Ýr Þorbergsdóttur formann BSRB, Kristinn Hrafnsson ritstjóra Wikileaks og Piu Elizabeth Hansson forstöðumann Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Síðan koma fulltrúar frá Ungum Evrópusinnum og Ung gegn ESB-aðild og ræða kosti og kalla umsóknar um aðild að Evrópusambandinu: Óðinn Freyr Baldursson og Þórhildur Davíðsdóttir Söebech sem ætla að segja já þann 29. ágúst og Illugi Gunnarsson og Salma Björk Önnudóttir sem ætla að segja nei. Í lokin ræða þeir bræður um pólitíkina með sínu nefi.
  • Synir Egils 9. ágúst - Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar 09.08.2026 2u 33min
    Sunnudagurinn 9. ágúst Synir Egils: Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar Synir Egils, þeir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, fá gesti og ræða stöðu mála og stjórnmálin. Í fyrri hluta þáttarins koma þau Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB, klofna þjóð og fallna kjarasamninga. Síðan koma þær Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímaldsins, Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambandsins og Þóra Jónsdóttir lögfræðingur fjölmiðlanefndar og ræða veika stöðu fjölmiðla. Í lokin taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi.
  • Synir Egils 17. maí - Uppgjör kosninga 17.05.2026 2u 13min
    Sunnudagurinn 17. maí Synir Egils: Uppgjör kosninga Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um niðurstöður kosninganna. Fyrst koma þau Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir ráðgjafi og Árni Helgason nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fara yfir kosningabaráttuna, úrslitin og áhrif þeirra. Síðan koma starfsmenn stjórnmálaflokka, Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar, Tómas Þór Þórðarson starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar og fara yfir stöðu flokka og afleiðingar sveitarstjórnarkosninganna. Þeir bræður fara síðan yfir pólitíkina með sínu nefi.
  • Synir Egils 10. maí - Borgin, kosningamál, hneyksli og alvörumál 10.05.2026 2u 20min
    Sunnudagurinn 10. maí Synir Egils: Borgin, kosningamál, hneyksli og alvörumál Við byrjum á samtali við oddvita framboðanna sem njóta mest stuðnings í Reykjavík og flestir vilja sjá sem næsta borgarstjóra: Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks, Pétur H. Marteinsson oddviti Samfylkingar og Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti Vinstrisins ræða kosningarnar á laugardaginn og segja okkur hvað þau vilja gera í Reykjavík. Síðan förum við yfir fréttir vikunnar og stöðu mála: Eyrún Magnúsdóttir ritstjóri Gímaldsins, Jovana Pavlović, mannfræðingur og oddviti Borgarbyggðarlistans, og Karen Kjartansdóttir ráðgjafi greina helstu tíðindi og meta stöðuna. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
  • Synir Egils 3. maí - Fréttamaður, formaður, framkvæmdastjóri og forsætisráðherra 03.05.2026 1u 41min
    Sunnudagurinn 3. maí Synir Egils: Fréttamaður, formaður, framkvæmdastjóri og forsætisráðherra Þrjár konur mæta í Vettvang dagsins að þessu sinni. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir framkvæmdastjóri BSRB. Af nógu er að taka. Til að mynda fagnar Rósa Björk því að VG, flokkurinn hennar, mælist loks með þingmenn. Það kom fram í nýjustu skoðanakönnunum. Annars er farið vítt yfir sviðið. Núna þegar pólitíkin er að ná athygli nánast allra. Enda er kosið eftir tær vikur. Kristrún Frostadóttir er sannarlega upptekin þessi dægrin. Hún sá af tíma sínum til að koma til okkar. Því ber að fagna. Margt ber á góma. Ríkisstjórnin, efnahagsmálin, þjóðaratkvæðagreiðslan, þingið, breyttur heimur, og það til hins verra, utanríkismál og fleira og fleira.
  • Synir Egils 26. apríl - Ráðherrar, kennarar, kosningar og ESB 26.04.2026 1u 42min
    Sunnudagurinn 26. apríl Synir Egils: Ráðherrar, kennarar, kosningar og ESB Í Vettvang dagsins komu þau Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins og Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki og varaþingmaður fyrir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Margt ber á góma í fyrri hlutanum. Mest þó um stjórnmál og samband ráðherra og kennara. Árangur þessa þingvetrar, komandi byggðakosningar, og hvernig þau meta afgreiðslu mála þessa þingvetrar. Eins verður snertilending á ESB. Í seinni hlutanum mæta þau Haraldur Ólafsson og Helga Vala Helgadóttir sem eru fjarri sammála um Ísland og ESB. Við höldum áfram að heyra ólík sjónarmið í þessu viðkvæma máli.
  • Synir Egils 19. apríl - Sveitarstjórnir, skólamál og ESB 19.04.2026 1u 48min
    Sunnudagurinn 19. apríl Synir Egils: Sveitarstjórnir, skólamál og ESB Það verður gestkvæmt í Sonum Egils þennan sunnudaginn. Í fyrri hluta þáttarins, það er Vettvang dagsins, koma fjórar konur: Kolbrún Þorsteinsdóttir kennari, Eyrún Magnúsdóttir ritstjóri, Eva H. Önnudóttir prófessor og Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikaráðgjafi. Í síðari hluta koma þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Bartoszek. Þeir skiptast á skoðunum um Evrópusambandið og hvort við eigum erindi þangað eða ekki. Í fyrri hlutanum verður örugglega eitthvað rætt um komandi kosningar, til sveitarstjórna og hvort við eigum að halda áfram viðræðum við ESB eða ekki. Menntamál og Inga Sæland munu örugglega verða til umræðu. Sem og ýmislegt annað.
  • Synir Egils 22. mars - Stýrivextir, kjarasamningar, átök og Sjálfstæðisflokkurinn 22.03.2026 1u 51min
    Sunnudagurinn 22. mars Synir Egils: Stýrivextir, kjarasamningar, átök og Sjálfstæðisflokkurinn Fyrst koma Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins og Þorsteinn Víglundsson forstjóri BM. Vallár og formaður Samtaka iðnaðarins koma til okkar í fyrri hluta þáttarins. Efnahagsmálin verða í forgrunni, og er víst að þessir fínu gestir okkar hafa margt um það að segja. Hvers vegna sökkvum alltaf í sama vesenið. Sama hvaða fólk stýrir landinu og hvað fólk er í stafni hjá launafólki og atvinnurekendum. Guðrún Hafsteinsdóttir kemur vel nestuð frá flokkstjórnarfundi Sjálfstæðisflokksins. Víst er að flokkkurinn eigi mikið undir hvern til tekst nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna.
  • Synir Egils 15. mars - Stjórnmál, stríðsrekstur, einkarekstur og niðurskurður 15.03.2026 1u 26min
    Sunnudagurinn 15. mars Synir Egils: Stjórnmál, stríðsrekstur, einkarekstur og niðurskurður Að þessu sinni taka þátt í umræðunni þau; Einar Kárason rithöfundur, Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður, Steinunn Bragadóttir hagfræðingur hjá ASÍ og Theodóra S. Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi. Eðlilega er margt á málaskrá. Stjórnmál, stríðsrekstur Bandaríkjanna og Ísrael og viðbrögð við honum, er einfalt eða tvöfalt heilbrigðiskerfi hér á landi, er verið að draga úr framlögum til menningar, komandi kosningar og svo margt annað.
  • Synir Egils 8. mars - Evrópusambandsaðild eða ekki 08.03.2026 1u 11min
    Sunnudagurinn 8. mars Synir Egils: Evrópusambandsaðild eða ekki Þátturinn verður einþáttungur að þessu sinni, en til Sigurjóns mæta þau Ólafur Adolfsson, María Rut Kristinsdóttir, Magnús Skjöld og Birgir Ármannsson. Eftir óheyrilegt basl tókst að fá þessa fjórmenninga svo þátturinn verður eins þátta að þessu sinni. Þarna eru tvær fylkingarinnar. Birgir og Ólafur saman sinnis og svo María og Magnús eru sömu skoðunar í Evrópumálunum. Rætt verður einnig um aðra pólitík. Fylgi flokka, straum fólks frá XD og yfir XM.
  • Synir Egils 1. mars - Pólitík innanlands og utan, framboðslistar, svekkt fólk og glatt 01.03.2026 2u 1min
    Sunnudagurinn 1. mars Synir Egils: Pólitík innanlands og utan, framboðslistar, svekkt fólk og glatt Að venju verður farið yfir helstu fréttir líðandi stundar með góðum gestum. Rætt um nýja frambjóðendur og þá líka sem flokkar hafna. Ekki síst hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík þar sem reyndum borgarfulltrúum er fórnað fyrir nýja. Meðal helstu frétta sem verða til umfjöllunar eru 60 milljarða staðgreiðsla Kerecic á Ísafirði, Íran, Sjálfstæðisflokkur klofnar á Akureyri Þórhallur Jónsson boðar nýtt framboð. Heimir Örn Árnason og Berglindi Ósk Guðmundsdóttur eru í fyrstu sætunum hjá Sjálfstæðisflokki. Reykjadalur fær peninga sem verða þá teknir frá öðrum ámóta úrræðum. Stjórnmálaaflið sem kenndi sig við Heimaey og bæði Íris Róbertsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri og Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar tilheyrði, hefur hætt störfum. Heiða Björg er ekki á framboðsmynd Samfylkingarinnar. Sprengiflaugar frá Ísrael hafa dunið yfir Íran. Staðfestir er að æðstiklerkur Írans Ali Khamenei sé látinn. Vopnakaup Íslands fyrir Úkraínu, Epstein-skjölin, Dorrit og Ólafur Ragnar, eiga Íslendingar að óska eftir frekari upplýsingum? Hvað með Gaza, gleymt og grafið?
  • Synir Egils 22. feb - Börn, glæpir, efnahagsmál, flokkar og heimsmálin 22.02.2026 1u 54min
    Sunnudagurinn 22. febrúar Synir Egils: Börn, glæpir, efnahagsmál, flokkar og heimsmálin Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Drífa Snædal talskona Stígamóta, Brynjar Níelsson lögfræðingur og fyrrum þingmaður og Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og ræða fréttir vikunnar og stöðu mála, hér heima og erlendis. Sigurjón ræðir við Þorstein Pálsson um pólitíkina hér heima, heimsmálin og þær breytingar sem hafa orðið frá því að Þorsteinn hóf þátttöku í pólitískri baráttu
  • Synir Egils 15. feb - Ógnargróði, verðbólga, öryggi, spilling, bráðavaktin 15.02.2026 2u 32min
    Sunnudagurinn 15. febrúar Synir Egils: Ógnargróði, verðbólga, öryggi, spilling, bráðavaktin Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Pawel Bartozsek formaður utanríkismálanefndar Alþingis, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar og ræða fréttir vikunnar, stjórnmál og samfélag. Þeir bræður fara yfir pólitíkina með sínu nefi og síðan koma þær Helga Rósa Másdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands og Sandra B. Franks formaður Sjúkraliðafélags Íslands og ræða grafalvarlega stöðu á bráðavaktinni og í heilbrigðiskerfinu.
  • Synir Egils 8. feb - Framboð, börn, efnahagur og Epstein 08.02.2026 2u 28min
    Sunnudagurinn 8. febrúar Synir Egils: Framboð, börn, efnahagur og Epstein Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingkona Pírata, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og Andrea Sigurðardóttir blaðakona á Morgunblaðinu og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins. Síðan ræða þau Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Kvenréttindafélags Íslands, Jenný Kristín Valberg teymisstjóri í Bjarkarhlíð, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis og Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur Epstein-skjölin, hverju þau lýsa og hvaða áhrif þau kunna að hafa á stjórnmálin víða um okkar heimshluta. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
  • Synir Egils 25. jan - Pólitísk átök, heimsveldi, veikt alþjóðakerfi og breytt heimsmynd 25.01.2026 2u 30min
    Sunnudagurinn 25. janúar Synir Egils: Pólitísk átök, innan flokka og utan, heimsveldi, veikt alþjóðakerfi og breytt heimsmynd Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Kjartan Sveinsson formaður Landssambands smábátaeigenda og María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélags og heimsmála. Við förum síðan yfir breytta heimsmynd með Jóni Baldvin Hannibalssyni, fyrrum utanríkisráðherra og sendiherra, ekki síst stöðu Íslands og Evrópu.
  • Synir Egils 18. jan - Afsögn, dómsmál, heilbrigði, heimsmál og húsnæði 18.01.2026 2u 33min
    Sunnudagurinn 18. janúar Synir Egils: Afsögn, dómsmál, heilbrigði, heimsmál og húsnæði Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Ragnar Freyr Ingvarsson læknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur og Lára Zulima Ómarsdóttir upplýsingafulltrúi og ræða fréttir vikunnar, stöðu samfélagsins og ástand heimsins. Ragnar Þór Ingólfsson, nýr félags- og húsnæðismálaráðherra, fer síðan yfir verkefni sín næstu árin, einkum hvernig hann ætlar að koma skikki á húsnæðismarkaðinn svo hann þjóni almenningi. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
  • Synir Egils 4. jan: Árásir, kjarakrísa, pólitík og menning 04.01.2026 2u 45min
    Synir Egils 4. jan: Árásir, kjarakrísa, pólitík og menning Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði og ræða stríð og friður í upphafi árs, lífskjör, efnahagsmál og pólitíkina hér heima og erlendis. Síðan ræðum við íslenska menningu á viðsjárverðum tímum. Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri, Auður Jónsdóttir rithöfundur, Kristín Gunnlaugsdóttir málari og Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri ræða áhrif tímanna á menninguna og áhrif menningarinnar á tímann. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
  • Synir Egils 14. des - Samgöngur, fæðingarorlof, EES, Trump, Evrópa og þingið 14.12.2025 2u 32min
    Sunnudagurinn 14. desember Synir Egils: Samgöngur, fæðingarorlof, EES, Trump, Evrópa og þingið Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Andrea Sigurðardóttir blaðamaður á Mogganum, Benedikt Erlingsson leikstjóri og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélagsins. Við förum síðan yfir stöðuna á Alþingi á aðventunni. Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknar, Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingar ræða góðu málin sem verða samþykkt, málin sem ætti ekki að samþykkja og mikilvægu málin sem ekki verða afgreidd. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi í síðasta þættinum fyrir hátíðirnar.
  • Synir Egils 7. des - Pólitískt hneyksli, jarðgöng, risa og fall flokka, fjölmiðlar og öryggisstefna 07.12.2025 2u 13min
    Sunnudagurinn 7. desember Synir Egils: Pólitískt hneyksli, jarðgöng, risa og fall flokka, fjölmiðlar og öryggisstefna Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þær Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknar, Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímaldsins og Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata og ræða fréttir vikunnar og pólitíkina; skólastjóramál, samgönguáætlun, fjárlög, stöðu flokka í könnunum til þings og borgar, veika fjölmiðlar og veikan húsnæðismarkaður. Við ræðum síðan sögulega öryggisstefnu Bandaríkjanna sem Trumpstjórnin birti við þá Albert Jónsson fyrrum sendiherra og ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum og Guðlaug Þór Þórðarson fyrrum utanríkisráðherra.
  • Synir Egils 30. nóv - Nató, fjölmiðlar, atvinna, leikskólar, jafnrétti, öryggi 30.11.2025 2u 30min
    Sunnudagurinn 30. nóvember Synir Egils: Nató, fjölmiðlar, atvinna, leikskólar, jafnrétti, öryggi Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þær Guðrún Johnsen prófessor og deildarforseti viðskiptadeildar á Bifröst, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins og Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins; fjölmiðla, jafnrétti, atvinnustefnu, Evrópu og margt fleiri. Síðan ræðum við Nató og öryggismál Íslands og Evrópu við Davíð Stefánsson formann Varðbergs og Stefán Pálsson sagnfræðing. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.

Populair in

Deze podcast verschijnt ook in de podcastlijsten van deze landen.