Sterk saman
Tinna Gudrun Barkardottir
0
Sterk saman er spjallþáttur þar sem fólk með reynslu kemur og segir söguna sína auk þess sem við fáum sérfræðinga og fagfólk í settið til okkar.
Episoder
-
#183 Kara Guðmunds - þakklát fyrir sársaukann 31.05.2026 2t 24minKara hefur lent í röðum áfalla sem hún hefur verið að vinna í síðustu ár. Áföllin eru stór og ná yfir mörg ár. Í dag er hún þakklát fyrir sársaukann og lærdóminn en hún hefur verið edrú í 11 ár.
-
#182 Fjögurra barna móðir flýr ofbeldi 24.05.2026 57minHún er 44 ára fjögurra barna móðir og hjúkrunarfræðingur sem segir okkur frá ofbeldissambandi sem braut hana niður, sneri börnum og barnaverndarkerfinu gegn henni og börnum hennar.
-
#181 Sindri Daði 17.05.2026 2t 23minSindri Daði er 48 ára gamall faðir númer eitt, tvö og þrjú. Hann á stóra fortíð og sögu en frábært líf í dag.
-
#180 Ragna Guðrún 10.05.2026 1t 9minRagna Guðrún er 23 ára stelpa með BS í sálfræði. Hún er barn alkóhólista og faðir hennar tók eigið líf árið 2018 eftir harða baráttu við sinn sjúkdóm.
-
#179 Ólafur Egilsson 03.05.2026 59minÓlafur Egill Egilsson er þjóðþekktur fyrir sín verk innan kvikmyndageirans og leikhúsanna. Hann er aðstandandi og hefur skoðanir á málefninu. Hann segir okkur sína sögu.
-
# 178 Bjartur Hrafn Jóhannsson 19.04.2026 1t 8minBjartur Hrafn er 26 ára strákur sem ólst upp við erfiðar aðstæður og í fósturkerfinu frá átta ára aldri. Hann leiddist ungur út í neyslu en kerfið brást á marga vegu.
-
#177 Björg Magnúsdóttir 12.04.2026 57minBjörg Magnúsdóttir er 41 árs oddviti Viðreisnar í Reykjavík. Hún er á slæmri íslensku no bullshit kona sem vill láta verkin tala, koma inn og stytta alla ferla og setja fólk í fyrsta sæti. Við áttum gott spjall.
-
#176 Dómurinn, ferlið, biðin og líðanin 29.03.2026 1t 3minTinna segir frá þessu ferli sem dómsmálið hefur verið eftir líkamsárás árið 2022. Hvernig kerfið vinnur með gerendum og gegn þolendum. Margt nýtt sem ekki hefur verið sagt frá áður.
-
#175 Brynja Ýr Baugs 22.03.2026 1t 6minBrynja Ýr Baugsdóttir er móðir drengs sem aðeins 17 ára lenti í alvarlegu ofbeldissambandi með 18 ára stelpu. Hún vill opna umræðuna um að strákar og menn lendi líka í ofbeldi.
-
#174 Blanca 15.03.2026 1t 5minBlanca, eins og hún kallar sig, flutti frá Vestmannaeyjum sjö ára eftir áföll. Hún byrjaði að deyfa sig með áfengi og hassi aðeins tíu ára.
-
#173 Elín Auður Eyfjörð 08.03.2026 2t 8minElín er 24 ára stelpa úr Garðabænum sem ólst upp við vanrækslu og andlegt ofbeldi. Hún þróaði snemma með sér fíknihegðun sem byrjaði með mat en endaði í áfengi og lyfjum eftir magaermisaðgerð.
-
#172 Ingibjörg Einars 01.03.2026 1t 20minIngibjörg er móðir sem hefur gengið í gegnum margt. Hún fer ekki fögrum orðum um kerfið sem hefur brugðist henni og fimmtán ára syni hennar illa.
-
#171 Barbie 22.02.2026 1t 47minBarbie er 37 ára stelpa sem á stóra og átakanlega sögu frá því hún var skírð yfir kistu afa síns og til dagsins í dag.
-
#170 Nonni Lobo og týndu börnin 08.02.2026 1t 36minNonni Lobo hefur verið óstöðvandi í að berjast fyrir týndu börnunum eftir andlát sonar síns á Stuðlum. Hann þekkir stöðuna betur en flestir.
-
#169 Þórdís Rögn 01.02.2026 1t 6minÞórdís Rögn Jónsdóttir hannaði og bjó til Bata - appið eftir að litli frændi hennar lést eftir ofskömmtun. Hún og samstarfsmenn hennar vinna í samstarfi við meðferðaraðila.
-
#168 Steinunn 25.01.2026 1t 4minSteinunn er 44 ára aðstandandi.
-
#167 Köllum hana Katarinu 18.01.2026 1t 24minKatarina kom þriggja ára til Íslands frá Rússlandi. Hún passaði ekki inn hjá jafnöldrum í skóla og upplifði höfnun. Kynntist manni frá Albaníu á Íslandi 18 ára og var í 8 ára ofbeldissambandi.
-
#166 Klara - móðir Anítu 12.01.2026 1t 45minKlara er móðir Anítu sem hefur setið inni á Hólmsheiði síðan í september en þá var hún í tíu vikur í einangrun. Klara segir sögu þeirra og einelti af hálfu lögreglu sem spannar sjö ár.
-
#165 Móðir sextán ára stúlku - ætla ekki að jarða hana! 14.12.2025 1t 46minMóðir sextán ára stúlku með fjölþættan vanda. Kerfið hefur brugðist, hún er komin í búsetuúrræði en hvað mun taka við?
-
#164 Karen Ösp Randversdóttir 07.12.2025 1t 15minKaren Ösp er 37 ára móðir, kennari og aðstandandi en bróðir hennar, Jón Einar, lést í október 2017 eftir langa baráttu við fíkn. Hún gefur okkur innsýn í líf aðstandandans og hans líf í baráttunni.
Populær i
Denne podkasten finnes også i podkast-listene til disse landene.