Heilsuvarpid
Ragga Nagli
0
Podcast by Ragga Nagli sem fjallar um heilsu og vellíðan.
Episoder
-
#130 Kristín Berta heilsunuddari 18.05.2026 1t 10minKristín Berta Sigurðardóttir heilsunuddari og eigandi Birtu Heilsu er gestur Heilsuvarpsins. Hún vann í bankageiranum en sneri við blaðinu eftir að hafa greinst með krabbamein í miðju Covid og sneri sér að heilsunuddi, bandvefslosun, jóga nidra og hjálpar nú fólki í gegnum reynslu og þekkingu að bæta heilsu sína með heildrænni nálgun andlega og líkamlega. Hægt að fylgjast með Kristínu Bertu @birtaheilsa Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi. Kóði NAGLINOW20 @nowiceland
-
#128 Stopp í fitutapi - mögulegar lausnir án þess að borða minna 03.05.2026 29minEf þú upplifir að vera stopp í fitutapi geta verið margar mögulegar ástæður og lausnir án þess að grípa strax í að borða minna og æfa meira. Því færri hitaeiningar og meiri æfingar ætti ekki að vera fyrsta úrræðið, þar sem slíkt getur leitt til orkuskorts, vannæringar og ofþjálfunar. Hér fer ég yfir mögulega ástæður fyrir stöðnun í fitutapi, og hvað þú getur gert til að halda boltanum rúllandi. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi. @nowiceland KóðI: NAGLINOW20
-
#127 Magnesíum 15.04.2026 20minHeilsuvarpið snýr aftur með fræðslu um magnesíum, hvað er það, muninn á mismunandi tegundum, hvað gerir magnesíum í líkamanum, hvernig lýsa einkenni af skorti sér, hvenær er best að taka magnesíum, er hægt að blanda saman tegundum og fleiri spurningum svarað. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi @nowiceland
-
#126 Nanna Kaaber íþróttafræðingur fitubjúgur/Lipidema 13.01.2026 1t 5minNanna Kaaber íþróttafræðingur leiðir okkur í allan sannleika um sjúkdóminn fitubjúg (Lipidema), hvað er fitubjúgur og hvaða áhrif hann hefur á líkamlega og andlega vellíðan kvenna. Nanna er íþróttafræðingur og hefur sjálf fengið greiningu af fitubjúg og sótt fjölmargar ráðstefnur, haldið erindi, skrifað pistla og frætt sjálfa sig og aðra um sjúkdóminn. Nanna Kaaber @nannakaaber Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi. Kóði NAGLINOW20 = 20% afsláttur á Hverslun.is @nowiceland
-
#125 Helgi Ómars heilsumarkþjálfi - núvitund, öndun, tónheilun, streitulosun 16.12.2025 1tOkkar allra besti Helgi Ómars er orðinn heilsumarkþjálfi og fræðir okkur hér um núvitund, streitulosun, öndunaræfingar og tónheilun ´a sinn fallega og einlæga hátt. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi @nowiceland Kóði NAGLINOW20
-
#124 Unnur Valdís - Flot er allra meina bót 31.10.2025 51minUnnur Valdís Kristjánsdóttir vöruhönnuðuur og vatnsmeðferðaraðili er gestur Heilsuvarpsins Hún er hugmyndasmiður Flothettu sem er flotbúnaður sérhannaður ti að veita stuðning í vatni og skapa djúpslökun, draga úr verkjum í vöðva og stoðkerfi líkamans. Þetta slökunarástand í vatninu losar um streitu í öllu kerfinu og er gott fyrir kvíða, depurð og andlega heilsu. @flothetta Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi @nowiceland Afsláttarkóði á Hverslun.is NAGLINOW20
-
Alma Hafsteinsdóttir - Spilafíkn 12.10.2025 1tAlma Hafsteinsdóttir er spilafíklaráðgjafi, með B.S í sálfræði, viðskiptafræðingur og spilafíkill í bata. Hún situr í stjórn Samtaka Áhugafólks um spilafíkn sem vilja umræðu um spilakassarekstur Háskóla Íslands, og lokun spilakassa. Spilafíkn fylgir mikil skömm svo fólk ræðir ekki vandann opinberlega og þær alvarlegu samfélagsleg, efnahagslegu og heilsufarslegu afleiðingar sem hljótast af þessari fíkn. Við töluðum um spilafíkn, spilakassa, veðmálasíður og margt fleira tengt þessu útbreidda vandamáli sem því miður virðist færast í aukana. Styrktaraðili Heilsuvarpsins er NOW á Íslandi @nowiceland
-
#122 Bætiefni fyrir geðheilsuna 21.09.2025 31minÞessi þáttur fjallar um hvaða bætiefni eru góð fyrir geðheilsuna. Sem bæta svefn, minnka bólgur, lækka kortisól, minnka kvíða. Hvaða rannsóknir styðja notkun þeirra. Omega-3 L-theanine Magnesíum Glycinate D-vítamín Góðgerlar
-
Narsissmi - Eitruð samskiptamynstur og klækjabrögð 01.09.2025 18minKlækjabrögð og stjórnunartækni sem finnast oft í eitruðum samböndum og hjá narssistum.
-
#120 Hærri Grunnbrennsla - hvernig hækkarðu grunnbrennsluna? 29.07.2025 41minMargir upplifa að grunnbrennslan virðist hægari en áður. Þessi þáttur fjallar um grunnbrennsluna og svarar vonandi mörgum spurningum. Hvað er grunnbrennsla? Hvers vegna lækkar grunnbrennsluhraðinn þegar við förum í megrun? Hvernig hækkum við grunnbrennsluna aftur? Hvernig getum við misst fitu á heilbrigðan hátt með dúndur grunnbrennslu?
-
#119 Prótín-Allt sem þú þarft að vita 23.06.2025 27minAllt sem þú þarft að vita um prótín. Hvað er prótín. Hvað gerir prótín fyrir okkur í líkamanum? Hversu mikið prótín þarftu til að byggja og viðhalda vöðvamassa? Hvaða matvæli eru prótínrík? Hver er munurinn á mismunandi prótíndufti. Af hverju er prótín mikilvægt. Af hverju er mikilvægt að byggja upp vöðva.
-
#118 Halldóra Skúla- Breytingaskeiðið og fjármál kvenna 20.05.2025 1t 10minHalldóra Skúla frá Kvennaráð er óendanlegur brunnur visku og þekkingu þegar kemur breytingaskeiðinu. Halldóra heldur úti fróðleikssíðu og fyrirlestra um breytingaskeiðið fyrir vinnustaði en i þessum þætti tölum við um áhrif breytingaskeiðs á atvinnuþátttöku og fjármál kvenna og hvað vinnustaðir geta gert til að vera breytingaskeiðsvænir og styðja við konur svo þær detti ekki út af vinnumarkaði a þessum besta aldri.
-
#117 Magnús Friðrik Ólafssson sálfræðingur - Skjánotkun barna og Adolescence þættirnir 27.04.2025 1t 17minMagnús F Ólafsson sálfræðingur hjá Sálstofunni vinnur með hegðunarvanda barna/ unglinga ásamt ráðgjöf til foreldra, starfaði áður með Fjölkerfarmeðferð, fjölskyldumiðað úrræði á vegum Barna – og fjölskyldustofu fyrir unglinga með alvarlegan hegðunarvanda. Magnús er hokinn af reynslu af vinnu með börnum og unglingum. Við ræddum skjánotkun barna/ unglinga og áhrif á andlega/ líkamlega heilsu. Hvaða hættur blasa við þeim, sem og þættina Adolescence á Netflix. Mgnús kemur með góð ráð fyrir foreldra til ná betur til barna sinna og setja skýrari mörk.
-
#116 Liðleika Lilja - Liðleiki, hreyfanleiki, lyftingar 06.04.2025 1tLilja Sigurgeirsdóttir eða Liðleika Lilja er ÍAK einkaþjálfari sem sérhæfir sig í liðleika og hreyfanleika. Hún heldur úti námskeiðunum Flex Fit, Stirðir strákar, lyftingar fyrir konur, liðleiki fyrir golfara og margt fleira. Lilja er hafsjór af fróðleik um liðamót, líkamsstöðu og allt sem viðkemur þjálfun líkamans. Hún setur inn myndbönd af góðum liðleikaæfingum á Instagram @lidleika_lilja Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og vil ég sérstaklega mæla með Female Balance sem er einstök blanda af jurtum og næringarefnum til að styðja við heilsu kvenna. Heilsuvarpið er í boði NETTÓ og vil ég mæla sérstaklega með Anglamark vörunum sem eru lífrænar, svansvottaðar og umhverfisvænar. @nowiceland @netto.is
-
#115 Svefn -Verkfæri fyrir dúndur góðan svefn 27.02.2025 22minVerkfæri fyrir góða svefnrútínu til að stuðla að dúndur góðum svefni, hvers vegna við vöknum oft kl 2-3 á nóttunni og dettum í ofhugsanir, og hvað við getum gert til að róa líkamann niður og sofna aftur. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
-
#114 Erla Guðmundsdóttir (HeilsuErla)- Streita, kulnun, mataræði, hreyfing 16.02.2025 59minErla Guðmundsdóttir, HeilsuErla, er íþróttafræðingur og markþjálfi sem starfar sem íþróttakennari og heldur úti hlaðvarpinu 'Með lífið í lúkunum'. Við töluðum um hennar reynslu af kulnun og streitu, og hvað hjálpaði henni tækla það sem og allskonar mýtur í heilsubransanum. Ótrúlega skemmtilegt spjall enda erum við á sömu bylgjulengd í öllu þessu heilsubrölti. @heilsuerla Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
-
#113 Berglind Sigmars sálfræðingur - Uppbyggileg samskipti og lausn ágreininga 24.01.2025 1t 5minGestur þáttarins er Berglind Sigmarsdóttir sálfræðingur hjá Samkennd heilsusetri og veitir einstaklingsmeðferð og heldur námskeiðið Tölum saman samskiptanámskeið. Svo hún er hokin af reynslu þegar kemur að heilbrigðum uppbyggilegum samskiptum. Við fórum um víðan völl í hvernig við setjum mörk hvað einkennir góð samskipti, og virka hlustun og hvernig við leysum deilur á uppbyggilegan hátt. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
-
#112 Næring fyrir + eftir æfingu 13.01.2025 22minÞetta sólóvarp fjallar um hvers vegna við þurfum að næra okkur vel fyrir og eftir æfingu og hvað sé best að borða. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó. @nowiceland @netto.is
-
#111 Breytingaskeiðið mitt 03.01.2025 31minÞessi þáttur er sólókast þar sem ég tala um vegferð mína á breytingaskeiðinu, hvað ég þurfti að gera í heilbrigðiskerfinu og hverju ég breytti varðandi lífsstíl, bætiefni, mataræði og æfingar til að fara í gegnum þetta skeið eins þægilega og kostur er. Vonandi einhverjum konum þarna úti til gagns og jafnvel gamans. Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á Íslandi @nowiceland @netto.is
-
#110 Ég alla leið - sjálfsrækt 22.12.2024 1t 2minGestir Heilsuvarpsins eru Helga Fríður Garðarsdóttir félagsráðgjafi, Inga Guðlaug Helgadóttir sálfræðingur, Margrét K. Pétursdóttir jógakennari standa að baki Ég alla leið, sem er sjálfsræktardagbóka helguð sjálfseflingu sem og sjálfsstyrkingarnámskeiðum. Við spjölluðum um allt sem tengist sjálfsrækt, núvitund, sálfræði með allskonar ráð til að hlúa að andlegu hliðinni. @eg.allaleid Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is Ég mæli með mysuprótíni eftir æfingu frá NOW sem fæst bæði í Hverslun og í Nettó.
Populær i
Denne podkasten finnes også i podkast-listene til disse landene.