Álhatturinn
Álhatturinn
0
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum. Þátturinn kostar 1290 kr. á mánuði og veitir aðgang að yfir 50 þáttum af samsæriskenningaefni. Áskriftarhlekkur er aðgengilegur í gegnum pardus.is.
Episoder
-
Artemis II tunglverkefnið var sviðsett 11.09.2026 1t 48minÍ yfir hálfa öld hefur mannkynið beðið eftir því að stíga aftur fæti á tunglið. Við höfum verið fóðruð á sögum af týndum gögnum og þeirri ótrúlegu staðreynd að NASA hafi hreinlega „eytt“ tækninni sem kom okkur þangað árið 1969. Teikningarnar og leiðarvísarnir týndust eða glötuðust á einhvern undarlegan hátt. Það bara gleymdist að taka afrit. En nú er NASA mætt aftur og að þessu sinni með Artemis-áætlunina. Erum við að horfa á spánýtt og ótrúlegt vísindaafrek eða dýrustu og tæknilega fullkomnu... -
P1: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 1 11.09.2026 2t 15minCharlie Kirk var ekki bara einhver gaur með sterkar skoðanir og hlaðvarp. Hann var táknmynd heillar kynslóðar ungs íhaldsfólks. Strákur úr úthverfi Chicago sem hætti háskólanámi til að stofna Turning Point USA, samtök sem börðust gegn því sem hann kallaði woke-heilaþvott og vinstri slagsíðu í bandarískum háskólum. Fyrir sumum var hann hetja sem sagði það sem aðrir þorðu ekki að segja. Fyrir öðrum var hann ógn og rödd sem kynti undir tortryggni og fordóma. En höfðu jafn mikla ástrí... -
Til er lækning við krabbameini sem haldið er frá almenningi 11.09.2026 1t 33minKrabbamein hefur fylgt manninum frá örófi alda, og í raun ekki bara manninum heldur öllum lífverum á jörðinni. Strangt til tekið ekki eitt stakt mein heldur heill hópur sjúkdóma sem falla undir regnhlífarhugtakið krabbamein. En hvernig getur ein stök stökkbreytt fruma endað sem svæsið meinvarp í líffærum um allan líkama?? Hvað gera læknar í dag þegar á reynir? Skera meinið í burt og dæla svo allskonar ólyfjan og geislavirkum efnum í fólk í von og óvon um að meinið hverfi? Og til h... -
Loch Ness skrímslið (stundum kallað Nessie) er til 11.09.2026 1t 57minÁ hálendi Skotlands liggur djúpt og dimmt stöðuvatn sem lengi hefur vakið athygli umheimsins: Loch Ness. Þar á, samkvæmt sögunni, að búa dulræn vera sem oftast er kölluð Nessie. Líklega eitt frægasta dýr eða vatnaskrímsli veraldar, sem þó engum hefur tekist að færa sönnur á að sé til á óyggjandi hátt. En hver eða hvað er Nessie í raun og veru? Er hún mögulega einhverskonar leifar eða minnismerki um forsögulega tíma risaeðlanna? Skynvilla eða hugarburður misvitra og brenglaðra ein... -
Tartaria var háþróuð siðmenning sem skrifuð hefur verið úr sögubókum og falin fyrir mannkyninu 11.09.2026 2t 18minVið lærum um Forn-Grikkland, Mesópótamíu, Egyptaland og allskonar forn stórveldi í skóla. En var heilt heimsveldi vísvitandi strokað út úr sögunni? Við erum að tala um Tartaríu. Risavaxið veldi sem náði allt frá Rússlandi og langt inn í Asíu og jafnvel yfir til Ameríku. Stórveldi sem nýtti sér framsækið orkukerfi, háþróaða byggingarlist og mögulega allskonar tækni sem við eigum erfitt með að skilja enn þann dag líkt og fría endurnýjanlega þráðlausa orku. En hvernig má það vera? Ef... -
Bandaríkin leyfðu árásinni á Pearl Harbor að gerast til að hafa ástæðu til að taka þátt í seinni heimstyrjöldinni 11.09.2026 2t 17minEitt fjölmargra menningarlegra stórvirkja hins kyngimagnaða og vanmetna leikstjóra, Michael Bay, er kvikmyndin Pearl Harbor. Kvikmynd sem lýsir því á dramatískan og stórfenglan hátt hvernig Bandaríkin drógust inn í seinni heimsstyrjöldina eftir árás Japana á herstöðina Pearl Harbor þann 7. Desember 1941. Árásin þótti mjög óvænt, rétt eins og þruma úr heiðskýru lofti og kom Bandaríkjamönnum og heimsbyggðinni allri i opna skjöldu. Aldrei hefði nokkurn Bandaríkjamann grunað að ráðist... -
NBA deildin í körfubolta er töluvert rigguð 11.09.2026 2t 1minNBA deildin í körfubolta er líklega stærsta körfuboltadeild í heimi. Eða í það minnsta sú lang stærsta og tekjuhæsta og sértu af aldamótakynslóðinni þá manstu vafalaust eftir NBA æðinu, sem greip um sig meðal ungra íslendinga, seint á síðustu öld og mögulega áttir þú eitthvað af körfuboltamyndum. NBA deildin er oft á tíðum gífurlega spennandi og skemmtileg og milljónir horfa á útsendingar frá deildinni í viku hverri. Margir leikmenn verða heimsfrægir eða jafnvel goðsagnir og það ... -
Virginia Giuffre (fórnarlamb Jeffrey Epstein) var sjálfsmyrt 11.09.2026 2t 3minJeffrey Epstein var viðrini og viðbjóður sem misnotaði börn og fólk og auðveldaði öðrum ógeðum að gera slíkt hið sama. Það vitum við öll. Rétt eins og morgunljóst að hann féll ekki fyrir eigin hendi. Það sjá allir menn. Hann flaug auðjöfrum og valdamiklum mönnum ítrekað til eyju sinnar little St James þar sem haldin voru tryllt teiti þar sem ógeðsleg svöll þessum viðrinum til yndisauka og ánægju á meðan fórnarlömbin þjáðust og allt var fest á filmu. Eitt þessara fórnarlamba, Virginia Gi... -
Fæðuráðleggingar yfirvalda snúast ekki um heilsu þína heldur gróða stórfyrirtækja 11.09.2026 2t 26minÞú ert það sem þú borðar, eða svo segir máltakið og mýtan, sem okkur hefur verið matreidd ofan í okkur af yfirvöldum og fjölmiðlum. Við berum öll sjálf ábyrgð á eigin heilsu og ef við hlustum á yfirvöld og fylgjum ráðleggingum landlæknis og borðum og hreyfum okkur reglulega þá lifum við hollu, góðu og áhyggjulausu lífi. Heilsuhraust og hamingjusöm. Ekki satt? En hvaðan koma eiginlega þessar ráðleggingar yfirvalda og hverjir skrifa þær? Snúast þær raunverulega um að nýta bestu mögulegu vísinda... -
Blackrock og Vanguard stjórna heiminum í gegnum krosseignarhald 11.09.2026 2t 15minFjárfestingasjóðirnir BlackRock & Vanguard ættu að vera flestum Álhöttum og samsærissmiðum vel kunnugir. Enda eru þessir sjóðir oftar en ekki nefndir á nafn þegar samsæri og eitthvað vafasamt ber á góma. En hvaða sjóðir eru þetta? Hverjir eiga þá og hverra erinda gegna þeir? Samanlagt eiga þessir tveir sjóðir og litli bróðir þeirra State street uþb 22% allra hlutabréfa í veröldinni og sitja þeir saman eins og ormur á gulli á tæplega 5% heildar auðs heimsins. Auk þess er þessir sjóði... -
Dauði Elvis Presley var sviðsettur 11.09.2026 1t 39minElvis Aaron Presley er einn merkasti tónlistarmaður allra tíma og að margra mati óumdeildur konungur rokksins. Með sínum mjaðmahnykkjum og einstakri sviðsframkomu og söng náði hann að heilla heimsbyggðina og verða að ótrúlegri stórstjörnu sem naut hylli allra. En rétt einsog með aðrar stórstjörnur þá var stutt í sukkkið og smám saman fór að síga á ógæfu hliðina. Elvis sökk djúpt í fen óreglu og fíknar og endaði sem offitusjúklingur og lyfjafíkill sem lést af völdum hjartaáfalls langt fy... -
Risa drónarnir sem svífa um Bandaríkin eru leynivopn hulduafla til að blekkja og stjórna okkur 🚀 11.09.2026 2t 35minRisastór hátæknileg og afar hljóðlát flýgildi(drónar) hafa sést á vappi um Bandaríkin og víðar að undanförnu og vakið undran margra. Hvaðan koma þessir drónadónar og hvað vilja þeir upp á dekk? Eru geimverurnar loksins mættar til þess að fylgjast með okkur og gera á okkur umfangsmiklar tilraunir? Eða eru Kínverjar og aðrar óvinveittar þjóðir að prakkarast og grallarast með því að njósna um Bandaríkin til þess að komast yfir hernaðarleyndarmál og hávísindalega framtíðar tækni?&nbs... -
Úrslitum í handbolta er reglulega hagrætt með vitneskju og samþykki Alþjóða Sambandsins 11.09.2026 1t 51minÍ Janúar á hverju ári fyllist íslenska þjóðin af miklum eldmóð og fær skyndilega brennandi áhuga á handknattleik. Fólk flykkist erlendis til þess að styðja við bakið á “strákunum okkar” og við sannfærumst öll um að nú sé stundin loks runninn upp og að gullið sé okkar. En svo kemur slæmi kaflinn, besti maðurinn okkar meiðist og dómararnir dæma okkur út úr mótinu. Alltaf sama óheppnin og þjóðin bölvar og ragnar þjálfaranum og liðinu. En getur verið að þetta hafi ekkert með liðið, þjálfarann óh... -
Sirhan Sirhan, sem skaut Robert Kennedy, var dáleiddur af CIA til að fremja morðið, Zoolander style 11.09.2026 2t 25min-> Special Guest appearance: Fulltrúar allra stjórnmálaflokka fyrir alþingskosningar 2024 (fyrir utan Vinstri Græn) gefa sína skoðun á JFK og RFK morðunum. Robert Kennedy, einnig þekktur sem Bobby Kennedy var einhver mesta vonarstjarna bandarískra stjórnmála á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann var bróðir John F Kennedy, fyrrum forseta sem hafði verið myrtur, og hafði jafnframt setið í ríkisstjórn bróður síns. Árið 1968 ákveður Bobby Kennedy nokkuð óvænt að bjóða sig fram gegn sitjandi fo... -
Valdastéttin mótar menntakerfið til að framleiða undirgefna borgara 11.09.2026 2t 4minStundum er sagt að mennt sé máttur og góð menntun sé lykillinn að árangursríku og góðu lífi. Nám erv vinna og vinnan göfgar manninn, ekki satt? En hvaðan kemur menntakerfi okkar og á hvaða grunni eða hugmyndafræði er það byggt? Er markmið yfirvalda að undirbúa okkur öll sem best fyrir lífið svo við höfum sem mesta möguleika opna á vinnumarkaði og tilgangurinn að tryggja sem flestum velgengni eða gefa sem flestum tækifæri? Eða búa aðrar og annarlegar ástæður að baki? Hvað ræður því hvað... -
Hollywood og Netflix eru heilaþvottavélar hulduaflanna 11.09.2026 2tKvikmyndir og sjónvarpsþættir eru gífurlega vinsælt afþreyingarefni og líklega eftirsóttasta dægurmenning samfélagsins. Iðnaðurinn veltir gífurlegum fjárhæðum og 5 stærstu kvikmyndaverin í Hollywood hafa ótrúlega mikil tök á samfélaginu öllu og ráða að stærstum hluta hvaða efni á upp á pallborð og erindi við almenning og hvað ekki. Almenningur drekkur í sig þessa afþreyingu og hámhorfir af áfergju á nánast allt sem að streymisveiturnar og stóru stúdíóin senda frá sér. Enda fínasta dægra... -
Dauði Adolf Hitler var sviðsettur, hann lifði af og flúði til Argentínu 11.09.2026 1t 49minAdolf Hitler er líklega eitt þekktasta illmenni og fauti mannkynssögunnar. Framganga hans og nasista sveita hans í seinni heimsstyrjöldinni var ekki beint til fyrirmyndar og hvorki þeim né neinum öðrum til framdráttar. Milljónir saklausra borgara létu lífið að ósekju vegna galinna ranghugmynda Hitlers og fylgisveina hans, sem vildu draga fólk í dilka eftir kynþætti og útrýma þeim sem þeir álitu óæðri. Hvort sem það var vegna trúar, litarhafts, fötlunar eða einhvers annars. Áður en langt um le... -
Mandela áhrifin eru raunveruleg, og eru ekki afleiðing sameiginlegra falsminninga 11.09.2026 2t 6minManstu þú eftir því þegar Nelson Mandela dó í fangelsi? Eða eftir myndinni Shazaam með Sinbad? Ef svo er þá ert þú ertu mögulega víddaflakkari eða einfaldlega eitthvað að misminna. Þó að mörg hver okkar munum kannski ekki eftir dauða Nelson Mandela í fangelsi eða myndinni Shazaam með Sinbad þá er til fólk sem á mjög sterkar og ljóslifandi minningar af þessum hlutum og fjölmörgum öðrum hlutum sem eiga sér hugsanlega enga stoð í raunveruleikanum. Eða eru þau mögulega þau ein... -
Dularfullt andlát Kurt Cobain var ekki sjálfsvíg, heldur skipulagt morð 11.09.2026 2t 16minEf þú ólst seint á síðustu öld þá manstu eflaust eftir söngvaranum Kurt Cobain og hljómsveit hans Nirvana. Fáar, ef einhverjar, hljómsveitir höfðu jafn mikil áhrif á tónlistarsmekk tíunda áratugarins og meðlimir sveitarinnar voru dýrkaðir og dáðir af síðhærðum unglingum í snjáðum gallabuxum um allan heim. Gruggið(e.grunge rock) tröllreið gjörsamlega öllu á tímabili og þar fóru Nirvana svo sannarlega í fararbroddi. En frægðin og áreitið sem fylgdi í kjölfarið fór misvel í með... -
Efnarákum (e.chemtrails) er spreyjað í andrúmsloftið án vitneskju almennings, með annarleg markmið að leiðarljósi 11.09.2026 2t 43minHvaða rákir eru þetta sem standa aftan úr þotum og flugvélar, sem þekja himininn? Er þetta einfaldlega saklaust samanþjappað loft og raki eða eru einhverjir illa innrættir fantar og fúlmenni, með annarlegar hvatir, mögulega að dreifa einhverjum hroðbjóði í andrúmsloftið? Ef svo er, hverju er verið að spreyja og hversvegna? Ganga þessir aðilar erinda lyfjarisa og tryggingafélaga, sem hagnast verulega af veikindum almennings, eða eru þetta mögulega brjálaðir vísindamenn sem v...
Populær i
Denne podkasten finnes også i podkast-listene til disse landene.