Meginlandið
Evrópuhreyfingin
0
<p>Meginlandið er hlaðvarp Evrópuhreyfingarinnar í stjórn Helgu Völu Helgadóttur og Páls Rafnar Þorsteinssonar. Þau bjóða til sín góðum gestum til að ræða það sem er efst á baugi í Evrópumálum, heima og að heiman. </p>
Odcinki
-
Meginlandið XII: Að kíkja í pakkann 31.05.2026 1godz 2minGestur þáttarins er Dr. Margrét Einarsdóttir prófessor og sérfræðingur í Evrópurétti við Háskólann í Reykjavík. Í þættinum ræða þær Helga Vala saman um það hvernig mögulegur samningur Íslands við Evrópusambandið gæti litið út.
-
Meginlandið XI: Evrópudagurinn 10.05.2026 1godz 1minÞað var á þessum degi árið 1950 sem Robert Schuman, þáverandi utanríkisráðherra Frakklands lýsti yfir fyrirhugaðri stofnun Kola- og stálbanalags, sem miðaði að því að samhæfa kola- og stáliðnað í sex Evrópuríkjum. Og þar með hófst sú vegferð sem síðan átti eftir að verða að Evrópusambandinu. Við tölum gjarnan um að þessi vefgerð sé drifin áfram af ákveðinni hugsjón – Evrópuhugsjónni. En til þess að hjálpa okkur að kryfja þá hugsjón og þær hugmyndastefnur sem hafa mótað Evrópu samtímans, höfum við fengið til okkar góðan gest: Guðmund Hálfdánarson, sem er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi forseti Hugvísindasviðs. Hann er sérfræðingur í stjórnmálasögu Evrópu og hefur m.a. rannsakað og ritað um þjóðhyggju og þjóðernishyggju.
-
Meginlandið X: Samstarf Íslands við Evrópu 03.05.2026 1godz 1minEvrópuumræðan er á fleygiferð og nýjar upplýsingar um Evrópusambandið birtast okkur daglega. Gestur þessa þáttar Meginlandsins er reynslubolti í stjórnmálum og jafnframt einn af virkustu greinahöfundum um Evrópumál. Þorsteinn Pálsson, fv. forsætis- og fjármálaráðherra, sjávarútvegs- sem og dómsmálaráðherra fer yfir fortíð og framtíð samstarfs Íslands og Evrópu í skemmtilegu og upplýsandi spjalli.
-
Meginlandið IX: Allt um ESB 12.04.2026 1godz 4minGestur þáttarins er Dr. Eiríkur Bergmann, prófessor við Háskólann á Bifröst sem hefur stundað rannsóknir á alþjóðamálum um áratugaskeið og meðal annars skrifað bókina Frá Evróvisjón til Evru.
-
Meginlandið VIII: Aðildarviðræður 29.03.2026 54minGestur þáttarins er Ragnheiður Elva Þorsteinsdóttir lektur við Háskólann á Akureyri og sérfræðingur í stjórnskipunarrétti. Í umræðunni hefur borið á misskilningi um það hvernig aðildarviðræður fara fram og við hvern Ísland er að semja. Yfir þetta er rækilega farið í þættinum.
-
Meginlandið VII: Þjóðaratkvæði 29. ágúst 08.03.2026 54minÞjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB fer fram 29. ágúst næstkomandi. Um þetta var tilkynnt á föstudag og kemur mörgum á óvart hve skammt er til kosninga. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er gestur þáttarins og talar meðal annars um upplýsingaóreiðu, afskipti erlendra ríkja og hvað sé í húfi fyrir okkur Íslendinga.
-
Meginlandið VI: Aðildarviðræður 22.02.2026 52minAð þessu sinni ræðir Dr. Gunnar Þór Pétursson, deildarforseti lagadeildar HR, við þau Helgu Völu og Pál Rafnar um aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu, hvernig þær gætu mögulega litið út og hvort undanþágur séu á teikniborðinu eða ekki.
-
Meginlandið V: Unga fólkið 08.02.2026 43minGestir þáttarins eru þau María Malmquist og Sverrir Páll Einarsson en María hefur verið virk innan Ungra Evrópusinna og Sverrir er forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Meginlandið að þessu sinni er helgað unga fólkinu og vangaveltum um áhugaleysi þeirra á Evrópusambandinu.
-
Meginlandið IV: Efnahagsmálin 25.01.2026 53minGestur þáttarins er Gylfi Magnússon, prófessor í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra.
-
Meginlandið III: Ísland á alþjóðasviðinu 28.12.2025 54minGestir þáttarins eru þær Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherrar. Í þessum sérstaka hátíðarþætti ætlum við að horfa til alþjóðlegs samstarfs í víðri merkingu og rödd Íslands í alþjóðakerfinu. Gestir þáttarins eru reynsluboltar í pólitík en koma einnig úr ólíkum áttum og hafa því líklega ólíka sýn á stöðu Íslands á alþjóðasviðinu.
-
Meginlandið II: EES-samningurinn 13.12.2025 57godz 39minÍ þessum þætti beinum við sjónum okkar að EES samningnum, sem varð þrjátíu ára í fyrra og hefur, að margra mati, að stórum hluta skilgreint samband Íslands við Evrópusambandið. Gestur Meginlandsins er Dóra Sif Tynes lögmaður og sérfræðingur í Evrópurétti. Dóra hefur starfað hvort tveggja hjá Eftirlitsstofnun EFTA og starfsstöð EFTA í Brussel, auk þess sem hún hefur rekið fjölda mála fyrir EFTA dómstólnum og Evrópudómstólnum.
-
Meginlandið I: Fullveldi Íslands 30.11.2025 55godz 44minÍ dag hefur göngu sína Meginlandið – nýtt Hlaðvarp Evrópuhreyfingarinnar. Hlaðvarpið er leitt af Páli Rafnar Þorsteinssyni og Helgu Völu Helgadóttur en ætlun þeirra er að halda uppi umræðu um Evrópumál – Evrópusambandið og alla anga þess hvað felst í því að halda mögulega áfram aðildarviðræðum við þetta ríkjasamband. Þau munu leitast við að takast á við Evrópumálin bæði á dýptina og breiddina - allt frá álitaefnum sem varða þessi grundvallargildi - til hversdagslegri spurninga um áhrif aðildar á okkar daglega líf. Í hverjum þætti fyrir sig munu þau taka fyrir ákveðin viðfangsefni – hvaða málum sem þau tengjast. Þau munu bjóða til sín fólki víðsvegar úr þjóðfélaginu til þess að ræða þessi mál; fólk með þekkingu, reynslu eða hugmyndir sem vonandi geta hjálpað hlusteum að skilja betur hvaða áskoranir og tækifæri felast í Evrópusamstarfinu. Af því að fyrsta þátt ber upp á sjálfan fullveldisdaginn, 1. desember, er tilvalið að fara beint í kjarnann, í stóru spurninguna sem oft kemur upp þegar umræða um Evrópusambandið er annars vegar - sjálft fullveldið – hvort aðild að Evrópusambandinu kunni að skerða fullveldi Íslands eða jafnvel styrkja það. Gestur þáttarins er Davíð Þór Björgvinsson, deildarstjóri lagadeildar Háskólans á Akureyri, fyrrum dómari við Mannréttindadómstól Evrópu og Landsrétt.
Popularny w
Ten podcast pojawia się również w listach podcastów tych krajów.