Gullkastið

Gullkastið

Kop.is
Kraj Iceland
Gatunki Sports, Football, Soccer
Język IS
Odcinki 397
Najnowszy 30.05.2026

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Odcinki

  • Gullkastið – Arne Slot Rekinn 30.05.2026 54min
    Liverpool hélt spilunum þétt að sér varðandi framtíð Arne Slot voru voru flestir farnir að búa sig undir hann áfram sem stóra liðsins þrátt fyrir að hans staða væri orðin allt að því vonlaus. Það lá því ekkert í loftinu að fréttin Arne Slot rekinn væri yfirvofandi þó það sé ekki hægt að segja að hún komu á óvart. Andoni Iraola yfirburða langlíklegastur til að taka við. Hann hefur gert frábæra hluti með Bournemouth og var auðvitað ráðin þangað af Richard Hughes. Liverpool hefur ekki skipt oft um stjóra í sögulegu samhengi og þegar það gerist er jafnan tilefni fyrir Neyðarþátt. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Tölum Aldrei Um Þetta Aftur 26.05.2026 1godz 10min
    Liverpool spilar í Meistaradeild Evrópu næsta vetur þannig að það er óhætt að nota gamla góða Men In Black pennann á þetta tímabil og gleyma því. Tímabilið 2025-26 gerðist ekki. Skoðuðum lokaumferðina, stöðuna á toppliðunum í upphafi leikmannagluggans og hentum í létt uppgjör á tímabilinu Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Lokavikan 19.05.2026 1godz 13min
    Blessunarlega er þetta síðasta vika tímabilsins og Meistaradeildarsæti á næsta tímabili ekki enn í höfn. Liverpool er ennþá með þetta í sínum höndum og getur tryggt sæti í Meistardeild á erfiðum heimavelli sínum Anfield Road á sunnudaginn. Ekki tókst það á föstudaginn á Villa Park, alls ekki. Salah baunaði félagið og hefur umræða vikunnar heldur betur snúist um hans yfirlýsingi og ekki síst viðbrögð leikmanna Liverpool við henni, það er augljóslega ekki allt með felldu innan herbúða félagsins. Spáðum einnig í helstu fréttum vikunnar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Erfiður Heimavöllur? 12.05.2026 57min
    Anfield Road í vetur hefur verið völlurinn þar sem lið í frjálsu falli geta mætt og fengið sjálfstraust á ný. Amorim vann sem stjóri United, Totenham og Chelsea voru búin að tapa sex leikjum í röð áður en þau mættu á Anfield, Sean Dyche náði í 3-0 sigur áður en hann var rekinn og ekkert af nýliðunum hefur tapað á Anfield. Frammistaðan og leikurnn gegn Chelsea var alveg á pari við þessa verslu leiki og stuðningsmenn á Anfield orðnir það langþreyttir að baulað var hraustlega á liðið, það er ekki eðlilegt ástand á Anfield. Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er ekki staðfest ennþá en Liverpool fær gott tækifæri á Villa Park á föstudaginn. Sigurvegari í þeim leik verður í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Staða Arne Slot hefur töluvert mikið verið til umræðu þessa vikuna Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Óli Haukur Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Stórleikur um helgina 29.04.2026 1godz 8min
    Liverpool fer næst á Old Trafford og getur með sigri náð djöflunum að stigum sem væri hressandi eftir allt sem á undan er gengið í vetur. Risaslagur að vanda en Meistaradeildarsætið að ári er orðið ansi líklegt eftir annan góðan sigur í deildinni gegn Crystal Palace. Drógum svo m.a. tvo heppna í Bræðsluleiknum okkar en þeir fá sitthvora tvo miðana á Bræðsluna á Borgarfirði Eystri í sumar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf  
  • Gullkastið – Leiðtogarnir Afgreiddu Everton 20.04.2026 1godz 20min
    Trölla sigurmark fyrirliðans gegn Everton á 100.mínútu er nokkuð auðveldlega besta moment þessa tímabils og tryggði í leiðinni ákaflega  mikilvæg þrjú stig og 100% árangur Liverpool á þessum nýja heimavelli Everton. Borgin er svo sannarlega rauð eftir sem áður. Meistaradeildarsæti er því enn meira innan seilingar eftir helgina. Það er hinsvegar ekki nóg að komast í Meistaradeildina það þarf spila eins og menn þar líka, Liverpool gerði það vissulega öllu betur á Anfield heldur en í París um daginn en niðurstaðan varð sú sama, 0-2 tap og samanlagt 0-4 gegn PSG sem er bara alls ekkert ásættanlegt hjá Liverpool. Tvö vonbrigðatímabil í röð í Meistaradeildinni og klárlega eitthvað sem félagið þarf að stefna á að laga strax í sumar. Allar fréttir frá klúbbnum eru líka á þá leið að félagið þurfi að láta taka til sín á leikmannamarkaðnum enda stór skörð sem þarf að fylla og ljóst í vetur að stórar holur eru í hópnum fyrir. Skoðum aðeins þann markað líka. Bræðslan 2026 – Gjafaleikur Við framlengjum gjafaleikinn okkar með Bræðslunni í nokkra daga. Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár. Það er koluppselt á hátíðina og því um að gera að freista gæfunnar að vinna miða. Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu á Facebook síðu Kop.is Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Er Ennþá Séns? 13.04.2026 1godz 10min
    Einvígið gegn PSG er í brennidepli og ljóst að Liverpool er í gríðarlegri brekku núna þegar einvígið er hálfnað eftir vond úrslit og enn verri frammistöðu í París. Ef það er eitt lið sögulega sem getur snúið svona stöðu þá er það að sjálfsögðu Liverpool þannig að höldum ennþá aðeins í vonina. Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er hinsvegar ennþá möguleiki eftir nokkuð góða helgi í ensku deildinni. Chelsea og Aston Villa töpuðu stigum á meðan Liverpool vann góðan sigur á Fulham. Spáum aðeins í stöðuna í deildinni almennt enda áhugaverð staða á flestum vígsstöðvum. Bræðslan 2026 – Gjafaleikur Áskell Heiðar Bræðslustjóri var með okkur að þessu sinni en þeir bræður eru einmitt að fara hefja sölu miða á Bræðsluna 2026 og kynntu byrjunarliðið á Bræðslunni í dag. Sjá nánar hér Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og af þessu tilefni hlöðum við í gjafaleik og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár. Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu eða þessa færslu á Facebook síðu Kop.is og hafa netfang með. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og Áskell Heiðar Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Allt Undir 07.04.2026 1godz 1min
    Frammistaða Liverpool um helgina var í beinu framhaldi af tímabilinu í heild og því lá við að skoða hvað væri raunverulega í boði á þjálfaramarkaðnum í sumar. Hvaða nöfn eru þetta sem eru efst hjá veðbönkum og er hægt að máta þá stjóra við Liverpool? Verkefni þessarar viku ráða svo líklega úrslitum um þetta tímabil og jafnvel næsta tímabil líka. Ef að Liverpool liðið ætlar að sýna eitthvað baráttuþrek og hjarta í vetur þá þetta tímapunkturinn til að byrja. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Sumarið Er Tíminn 02.04.2026 58min
    Hvað gerir Liverpool í sumar? Það þarf að fylla fleiri stór skörð en bara það sem Mo Salah skilur eftir sig til að koma Liverpool aftur á rétta braut. Landsleikjapásunni er lokið og komið er að stórleik á útivelli í FA Cup. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Salah Kveður í Sumar 24.03.2026 1godz 12min
    Sprengja á meðan við vorum að taka upp, Egypski kóngurinn Mo Salah tilkynnti að hann ætlar að kveðja í sumar, við bregðumst við þeim fréttum þegar um 10 mínútur eru liðnar af þættinum. Brottför hans þurfum við auðvitað að gera mun betri skil þegar líður á vorið enda Salah einn af þeim allra stærstu í sögu félagsins. Hér er t.d. dæmi um þá gleði sem hann hefur gefið okkur sem kannski sést ekki á metalistanum Including Man Utd players, Mohamed Salah is the eighth-highest PL scorer at Old Trafford in the 2020s Liverpool er annars í frjálsu falli í deildinni og Meistaradeildarsæti ólíklegt eins og liðið er að spila. Framundan eru fjórir leikir í þremur keppnum sem gætu haft töluvert að segja um framhaldið. Staða Arne Slot er vægast sagt ekki góð, skoðum aðeins hvaða nöfn við gætum verið að horfa sig í sumar (eða fyrr) geri Liverpool breytingar á toppnum sem verða að teljast ansi líklegar (nauðsynlegar) eins og staðan er núna. Skoðum leiki vikunnar, góðan sigur á Gala og ömurlegt tap í kjölfarið gegn Brighton. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Algjört þrot á Anfield 16.03.2026 47min
    iverpool afrekaði það bara að vinna ekki þetta Tottenham lið sem kom inn í leikinn með eitt minnsta sjálfstraust sem nokkuð lið hefur verið með í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og þar að auki með 13 leikmenn fjarverandi. Þeir hlupu 9 km meira en Liverpool í þessum leik þrátt fyrir þetta og höfðu næga orku í lokin til að kvitta fyrir mark Liverpool sem auðvitað kom úr föstu leikatriði því liðið tengir varla saman venjulega sókn núorðið. Þetta var næsti deildarleikur á eftir tapinu gegn Wolves um daginn, einu versta liði í sögu ensku úrvalsdeildarinnar fram að þeim leik. Viðbrögð fjölmiðla og ekki síst stuðningsmanna Liverpool hafa verið í takti við þetta sem eðlilegt er. Félagið virkar fast í handbremsu innan sem utan vallar! Næsta verkefni er seinni leikurinn gegn Galatasaray en Liverpool afrekaði að sjálfsögðu að tapa fyrri leiknum gegn þeim í síðustu viku, það var í annað skipti í vetur sem Liverpool tapaði á þeirra heimavelli. Takist Liverpool ekki að vinna Galatasaray í þremur tilraunum hefur liðið nákvæmlega ekkert að gera í Meistaradeild Evrópu. Minnum annars áfram á Árshátíð Liverpool klúbbsins í 21.mars í Kaplakrika sem við hvetjum alla til að tryggja sér miða á. Miðasala fer fram í gegnum abler Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Óstöðugleikinn er stöðugleikinn 12.03.2026 49min
    Ósöðugleiki Liverpool er eini stöðugleiki liðsins. Liverpool leiðrétti hærðilegt tap gegn Wolves með 1-3 sigri á sama velli í bikarnum en tapaði svo í annað skipti í vetur 0-1 gegn Galatarsaray í Tyrklandi. Liverpool er því núna búið að tapa gegn Wolves og Galatarsaray á einni viku sem er bara alls ekkert nógu gott. Næst er það Tottenham sem hafa ekki unnið leik á þessu tímabili en voru vissulega með Liverpool í köðlunum í fyrri leiknum þrátt fyrir að vera 9 gegn 11 undir lokin. Minnum annars áfram á Árshátíð Liverpool klúbbsins í 21.mars í Kaplakrika sem við hvetjum alla til að tryggja sér miða á. Miðasala fer fram í gegnum abler Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Dalglish 04.03.2026 47min
    Gullkastið var tekið upp í Smárabíó að þessu sinni þar sem Liverpool klúbburinn var með viðhafnarsýning á heimildarmynd um King Kenny Dalglish sem er 75 ára í dag. Björg Arna mætti í byrjun þáttar og kynnti einni árshátíð Liverpool klúbbsins í 21.mars í Kaplakrika sem við hvetjum alla til að tryggja sér miða á. Miðasala fer fram í gegnum abler Liverpool spilaði tvo leiki í vikunni, flottur 5-2 sigur á West Ham og allt í blóma en svo algjört skiptsbrot í gærkvöldi gegn Wolves sem var svolítið tímabilið í hnotskurn. Bikar og Meistaradeild framundan í næstu viku Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Liverpool fór með öll stigin frá Skíriskógi 23.02.2026 58min
    Fógetinn í Nottingham var vondi kallinn í Hróa Hetti og það á svo sannarlega líka við um vægast sagt skrautlegan fógeta Nottingham Forrest liðsins og því sérstæklega sætt að sækja öll þrjú stigin þangað á eins ógeðslegan hátt og mögulegt var. Frammistaða Liverpool var vægast sagt áhyggjuefni en tvö flautumörk dugðu til að breyta allri umfjöllun um leikinn til hins betra. Risastór þrjú stig í baráttunni um Meistaradeildarsæti sem er ekki eins dökk og fyrir nokkrum dögum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Jákvæð vika 18.02.2026 57min
    Liverpool var mun líkara liðinu sem við þekkjum í síðustu viku, tveir sigrar, ekkert mark fengið á sig og leikjaprógram framundan þar sem krafan er áframhald af þessum frammistöðum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Toxic Tap 09.02.2026 1godz 1min
    Það fellur gjörsamlega ekkert með Liverpool þessa dagana og sæti í Meistaradeild á næsta ári að verða ólíklegra með hverri umferð. Hópurinn er orðin verulega þunnur í ofanálag og það lagaðist ekki fyrir leikina í þessari viku. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Leikmannaglugganum Lokað 02.02.2026 50min
    Tveir góðir sigrar á Anfield þar sem Liverpool skoraði samanlagt 10 mörk gegn 1. Nauðsynleg þrjú stig í deildinni og 3.sæti tryggt í Meistaradeildinni og situr Liverpool því hjá í næstu umferð. Öguverk liðið var á sínum stað og um næstu helgi mætir Man City á Anfield. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
  • Gullkastið - Endurkoma til Einskis 26.01.2026 54min
    Liverpool tapaði stigum í fimmta skipti á þessu tímabili eftir að hafa fengið á sig mark í uppbótartíma. Hugarfarið virðist vera í molum hjá liðinu og gjörsamlega ekkert fellur með Liverpool í ár. Bournemouth sem hafði unnið einn leik af síðustu 14 tók öll þrjú stigin og niðurstaðan engin sigur það sem af er þessu ári og ekki var staðan beint glæsileg fyrir áramót. Hvar liggur vandinn og hvað gerir Liverpool síðustu daga þessa leikmannaglugga? Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Ingimar Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
  • Gullkastið – Eru batamerki á Liverpool liðinu? 22.01.2026 51min
    Flottur sigur í Marseille í gærkvöldi og nokkuð góð staða í Meistaradeildinni fyrir lokaumferðina. Hinsvegar afleit úrslit í annars frábærri Kop.is ferð á Anfield þar sem Burnley náði í verulega pirrandi stig. Stigasöfnun í deildinni undanfarið klárlega töluvert áhyggjuefni en viss batamerki á liðinu inn á milli. Leikjaprógrammið framundan er töluvert þyngra á pappír, hentar það Liverpool? Bournemouth á útivellli er næsta verkefni seinnipartinn á laugardaginn. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf
  • Gullkastið – Engar Fréttir Af Leikmannamarkaðnum 13.01.2026 55min
    Þjálfaramarkaðurinn er öllu líflegri þessa dagana en leikmannamarkaðurinn þó hvorugur hafi mikið með Liverpool að gera. Ágætt jafntefli í London og sigur í bikarnum afrakstur síðustu viku og framundan er Kop.is ferð á Liverpool – Burnley á Anfield. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf

Popularny w

Ten podcast pojawia się również w listach podcastów tych krajów.