Hold
Einu sinni þótti fallegt að vera feit. Síðastliðna áratugi hefur feitt fólk mætt fordómum, sýnileg líkamsfita þótt útlitsgalli og mælikvarði á skapgerð, sjálfsaga, æskileika og færni. Persónulegt vandamál einstaklinga sem þeir hafi valið með því að velja óheilsusamlegt líferni og ættu að vilja leysa. Milljónaiðnaður hefur haldið fólki í baráttu við líkamann sinn með ýmsum lausnum sem oftar en ekki skilja fólk eftir enn feitara en fyrr. Fjöldi feitra lifir þó heilbrigðu og hamingjusömu lífi, óháð holdafari sínu. Offita er nú skilgreind sem alvarlegur og víðfemur sjúkdómur. Við þeim sjúkdómi hafa nýlega komið fram læknisfræðilegar lausnir svo sem þyngdarstjórnunarlyf og efnaskiptaaðgerðir. Ber þá feitu fólki þá skylda til að fara á lyf eða í aðgerð fyrst það er hægt? Hvaða áhrif hafa þessar lausnir á fitufordóma og átröskunarsjúkdóma? Eru þær líklegar til að draga úr offituvandanum eða auka hann? Og hvaða afleiðingar hafa þessar lausnir til langframa? Er alltaf betra að vera mjó? Brynhildur Björnsdóttir er 56 ára kona sem hefur verið feit alla ævi. Hún veltir þessum spurningum fyrir sér í þremur útvarpsþáttum ásamt ýmsum sérfræðingum og fólki með reynslu.
Odcinki
-
Geðveik mamma 3/3 05.09.2026 30minHvernig höldum við að geðveikar mæður séu? Í þessum þriðja og síðasta þætti veltir Hera fyrir sér hugmyndum um góðar og slæmar mæður. Hún heldur áfram leitinni að rödd langömmu sinnar og við heyrum fleiri sögur mæðra úr samtímanum: Sögur um fordóma og ótta en líka hreinskilni og von. Geta nýjar raddir breytt gömlum viðhorfum? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Geðveik mamma 2/3 29.08.2026 28minHvernig tölum við um veikindi sem við viljum helst ekki tala um?Í þessum þætti skoðar Hera hvernig þagnir, orð og fordómar móta skilning okkar á geðsjúkdómum.Við heyrum sögur annarra geðveikra mæðra og Hera heldur áfram að reyna að fylla í eyðurnar í sögu langömmu sinnar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Geðveik mamma 1/3 22.08.2026 29minLíf lítillar fjölskyldu á Akureyri umturnaðist einn daginn þegar ung móðir var send suður – suður á Klepp.Þegar langamma Heru var send suður á Klepp árið 1946 var amma hennar bara fjögurra ára. 80 árum síðar reyna þær í sameiningu að skilja hvað gerðist og hvers vegna enginn talaði um þetta. Í þessum fyrsta þætti tvinnast saman fjölskyldusaga, eigin reynsla Heru og spurningar um hvaða merkingu Kleppur hefur í samtímanum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Í upphafi var myndin 4/4: Kunnugleg kona á bókarkápu 15.08.2026 41minHver var danska konan sem var um tíma gift þeim sem af mörgum er talinn merkasti myndlistarmaður íslensku þjóðarinnar? Áður en þau fluttu til Íslands hafði hún haslað sér völl sem rithöfundur í Danmörku. Eftir að þau skildu flutti hún frá Íslandi, ferðaðist víða um lönd, varð fyrirmynd þekktrar skáldsagnapersónu, lenti í málaferlum vegna skottulækninga og átti umfangsmikinn feril á ritlistarsviðinu. Viðmælandi í þættinum er Kolbrún Kjarval, listakona. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Í upphafi var myndin 3/4: Maðurinn með hauskúpuna 08.08.2026 42minHvernig var hægt að finna út hver var pípureykjandi maðurinn sem geymdi mannabein í herberginu sínu? Sögð er saga af reykvískum strák úr Skólastræti sem menntaðist í læknisfræði og tungumálum og gerðist héraðslæknir í Vestur-Indíum. Viðmælandi í þættinum er Inga Lára Baldvinsdóttir, sagnfræðingur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Í upphafi var myndin 2/4: Ljósmóðirin og listamennirnir 01.08.2026 41minHvers vegna fór ung kona úr Vesturbænum, sem starfaði við bókhald hjá heildverslun, skyndilega til Kaupmannahafnar sumarið 1917? Hver urðu örlög hennar og hvers vegna fluttu tveir danskir listamenn til Íslands skömmu eftir seinni heimsstyrjöld? Viðmælandi í þættinum er Ari Karlsson, lögfræðingur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Í upphafi var myndin 1/4: Dæmd í vændishús 25.07.2026 43minRakin er saga hótelstjóradóttur sem fæddist í Hafnarstrætinu í Reykjavík. Á unglingsárum sigldi hún til Kaupmannahafnar og lenti þar á refilstigum í strætum sem mörgum þóttu býsna vafasöm. Frá Danmörku flakkaði hún til fleiri landa, tókst á við leynilegt verkefni og komst ítrekað í kast við lögin. Viðmælandi í þættinum er Kristín Svava Tómasdóttir, sagnfræðingur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Hold 3/3 06.06.2026 39minÍ þriðja þættinum af Holdi skoðar Brynhildur nokkrar auglýsingar um offitulausnir og ræðir við sérfræðinga með ólík sjónarhorn, þær Erlu Gerði Sveinsdóttur, sérfræðilækni í offitumeðferð, Töru Margréti Vilhjálmsdóttur félagsráðgjafa og líkamsvirðingarsinna og Elínu Vigdísi Guðmundsdóttur, formann SÁTTar, samtaka um átröskun og aðrar tengdar raskanir.Lesari í þættinum er Ævar Örn Jósepsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Hold 2/3 30.05.2026 42minSápan FatOff og megrunarkaramellurnar AYDS eru meðal umfjöllunarefna í öðrum þætti af Holdi. Brynhildur ræðir líka við þær Lindu Guðmundsdóttur og Ósk Gunnlaugsdóttur um reynslu þeirra af þyngdartapslyfjum og - aðgerðum. Ennfremur er fjallað um fitufordóma. ATH að í þættinum er komið inn á ýmislegt sem gæti reynst flókið fyrir þau sem hafa glímt við átröskun. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Hold 1/3 26.05.2026 39minBrynhildur tekur stöðuna á nútíma holdafarsumræðu og segir sögu sína í nokkrum megrunarkúrum. Í framhaldi af því veltir hún fyrir sér hvort hún eigi að nýta sér þær aðferðir sem læknavísindin bjóða upp á í baráttunni við ofþyngd og leitar ráða hjá konu með reynslu.Rætt er við Ragnheiði Bjarman Eiríksdóttur og lesari í þættinum er Helgi Seljan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Vinur minn Germani 15.05.2026 43minÞegar Jón Magni Ólafsson var ungur maður kolféll hann af einhverjum ástæðum, fyrir orgeltónlist og töfrum hennar sem minnti hann á gilin og fossana í sveitinni í Mýrdalnum. Hann hélt sérstaklega upp á plötu sem hann eignaðist 17 ára gamall með Fernando Germani, sem var organisti Péturskirkjunnar í Róm á tímum Píusar páfa (1939-1958). Þegar Germani heimsótti Ísland á áttunda áratugnum, tókst með þeim Magna óvænt, en djúpstæð vinátta sem entist allt þar til Germani lést.Þeir skrifuðust á í 25 ár um lífið, listina, mennina, illskuna, ástina og Guð.Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Land og sonur 3/3: Svo mælir Svarthöfði 09.05.2026 45minIndriði G. Þorsteinsson var ekki aðeins rithöfundur. Hann starfaði lengi sem blaðamaður og ritstjóri og tók virkan þátt í þjóðmálaumræðunni, beitti sér í fyrirtækjarekstri og framleiðslu kvikmynda og var einn helsti skipuleggjandi hátíðarhaldanna í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974. Umdeildastur var hann þó sem pistlahöfundurinn Svathöfði. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Land og sonur 2/3: Norðan við stríð 02.05.2026 48minSkáldsögur Indriða G. Þorsteinssonar gerast í samfélagi þar sem hið gamla víkur fyrir nýjum vonum og nýjum siðum. Indriða voru þessar miklu breytingar á íslensku þjóðfélagi um miðja 20. öld hugleiknar og hann speglaði þær iðulega í því samfélagi sem hann hafði sjálfur kynnst á yngri árum, sveitasamfélaginu. En hann benti líka stöðugt á að margt var bogið við það og að þrátt fyrir fegurð og yndisleika voru þjófar á ferð í paradís. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Land og sonur 1/3: Vegir liggja til allra átta 24.04.2026 48minIndriði G. Þorsteinsson hóf feril sinn sem rithöfundur og blaðamaður rétt upp úr tvítugu. Hann sagði frá sveitalífinu sem hann hafði kynnst í Skagafirði og bæjarbragnum á Akureyri í Reykjavík. Æska hans og unglingsár voru mörkuð af sífelldum flutningum, mögnuðum ættingjum, hersetu og nýju lífi mölinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Ljóslæknirinn 1/1: Hinn íslenski Nóbelshafinn 17.04.2026 49minÁrið 1903 hlaut Niels Ryberg Finsen Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á ljósmeðhöndlun við hörundsberklum og öðrum sjúkdómum. Hann var fyrsti danski handhafi Nóbelsverðlaunanna sem þá voru nýtilkomin og vegna sérsviðs síns var hann gjarnan kallaður ljóslæknirinn. Uppruni Finsens teygir sig þó líka til Færeyja, þar sem hann fæddist, og til Íslands en á hann rætur að rekja til Íslands í föðurætt auk þess sem hann bjó hér um nokkurt skeið og lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum sem þá hét. Í aðalbyggingu Menntaskólans í Reykjavík er enn minnisvarði um námsár Finsens. Þrátt fyrir það er hann mörgum Íslendingum gleymdur og í þessum þætti verður hans minnst, fjallað um tengslin við Ísland, námsárin og afrekin á sviði læknavísinda.Umsjón: Jóhannes Ólafsson Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Mundi: Seinni þáttur 10.04.2026 58minGuðmundur Arnfinnsson var bráðkvaddur bíðandi eftir strætó í Hamraborginni með poka fullan af bókum sem hann hafði keypt í Bónus. Örfáum mínútum áður hafði hann verið í viðtali hjá umsjónarmanni Lestarinnar á Rás 1 sem var að ræða við farþega í strætó. Þessi ótrúlega tilviljun er upphafið að ferðalagi þar sem Kristján Guðjónsson reynir að kynnast Munda, fyrrum sakarskrárritara, sérstæðum og hlédrægum hæfileikamanni sem skilur eftir sig mikinn fjölda kvæða og gríðarlegt bókasafn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Mundi: Fyrri þáttur 10.04.2026 51minUmsjónarmenn Lestarinnar vörðu heilum föstudegi í desember 2023 um borð í leið 4, strætó sem keyrir úr Mjódd niður á Hlemm um Breiðholtið. Í þættinum heyrast sögur fólks sem ferðaðist með vagninum þann daginn. Strákur á leið að fá sér drekatattú, venesúelskur söngvari á leið til sálfræðings, danskur kökuskreytingameistari og hagmælti bókasafnarinn Mundi. Á páskadag fór í loftið nýr útvarpsþáttur á Rás 1 um ævi eins viðmælandans Guðmundar Arnfinnssonar og var strætóþátturinn endurfluttur að því tilefni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Bein 3/3: Um kærleikann í beinunum 04.04.2026 41minÍ miðri leit að uppruna lærleggjanna, berast Sigrúnu nýjar upplýsingar um uppruna sinn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Bein 2/3: ...nema ekki fyrir mömmu 28.03.2026 40minAllt leitar yfirborðsins. Lærleggirnir una sér ekki í moldu og sögur úr æsku systkinanna af Lækjarbakka brjótast fram. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Bein 1/3: Lærleggurinn verndar okkur... 20.03.2026 39minHafrún býr á Vestri Loftsstöðum með Sigurði manninum sínum, fimm af sjö börnum þeirra, hundinum Tarfi og lærlegg úr 400 ára gömlum galdramanni. En hvaðan kom þetta bein, þessi saga, og er einhver leið að rannsaka það með tilkomu nútíma tækni? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Popularny w
Ten podcast pojawia się również w listach podcastów tych krajów.