Með lífið í lúkunum
HeilsuErla
0
<p>Í hlaðvarpinu <em>Með lífið í lúkunum </em>fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.</p><p><br></p><p>Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.</p>
Odcinki
-
118. Beinþynning er hinn þögli sjúkdómur. (Næring, hreyfing, þyngdarstjórnunaraðgerðir, lyf og beinþéttni). Dr.Sigríður Björnsdóttir 29.05.2026 51minÍ þættinum ræðir Erla við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni um beinheilsu, hvað ákvarðar beinþéttni og hvers vegna við töpum beinþéttni í kringum tíðahvörf, hinn þögla sjúkdóm sem beinþynning er og hvað við getum gert með lífstíl okkar til þessa að fyrirbyggja eða snúa við þeirri þróun. Þær ræða einnig um áhrif ofþjálfunar, átröskunar, þyngdarstjórnunaraðgerða og lyfja á beinheilsu okkar og hversu mikilvægt það er að reyna að koma í veg fyrir að beinþéttni minnki til þ...
-
117. How Challenges Fuel Growth. (Resilience, self-sabotage, self-love and building habits). Katie Boshko 25.05.2026 1godz 39minIn this inspiring interview, Katie shares her journey through injury, mental health, and resilience, offering deep insights into mindset, habits, and holistic health. Discover how her experiences shaped her approach to coaching and life, emphasizing the importance of self-love, connection, and perseverance. She also shares practical strategies to enhance your well-being, performance, and self-love through stories and expert advice, helping you build habits for a fulfilling life. F...
-
116. Við þurfum að finna veikleikana okkar til að finna hugrekkið. (Mia Magic, langveik börn, hugarfar og andleg heilsa). Þórunn Eva G. Pálsdóttir 15.05.2026 1godz 52minViðmælandi þáttarins er hin dásamlega Þórunn Eva stofnandi Mía Magic. Þær Erla ræða um lífið og tilveruna, andlega heilsu, heilsubrest, langveik börn, hugarfar, hugrekki og margt fleira. Hvað er Mia Magic? Það er íslenskt góðgerðarfélag sem einbeitir sér að því að gleðja og styðja langveik börn og foreldra þeirra. Félagið gefur út fræðslubækur um sjúkdóma og aðgerðir sem hjálpa börnum að skilja algenga sjúkdóma og inngrip á þeirra forsendum, svo sem Mía fær lyfjabrunn, Mía fer í blóðpru...
-
Næringarpælingar og heilsulæsi (Heilsumoli 43) 13.05.2026 11minErla er að gera smá ,,tilraun" á sjálfri sér þessa dagana. Hún er að breyta til í mataræði sínu og borða eins og ráðlagt er fyrir íþróttakonur á besta aldri (sem eru að lyfta þungt). Þetta er frábrugðið því mataræði sem hún hefur tamið sér hingað til og talið vera æskilegt fyrir góða heilsu. Það er nauðsynlegt að gera tilraunir að sjálfum sér og prófa sig áfram því að það er ekki það sama sem hentar öllum. Við berum ábyrgð á eigin heilsu og það er því mikilvægt að læra að þekkja ...
-
115. Hvernig lifum við lengur? (Næringarlæsi, gjörunnin matvæli, trefjar, hugleiðsla og bláu svæðin). Helga Arnardóttir 01.05.2026 1godz 26minÍ þættinum ræðir Erla við Helgu Arnardóttur fjölmiðlakonu, handritshöfund og heilsuáhrifavald um langlífi, próteinæðið í heiminum, mikilvægi trefja, gagnsemi þyngdarstjórnunarlyfja, lífsbreytandi áhrif hugleiðslu, gjörunnin matvæli og hvað við getum gert til þess auka líkurnar á því að lifa vel og lengi. Helga hefur meðal annars gert þættina Lifum lengur og Blóðbönd sem ég mæli mikið með að þið horfið á. Helga hefur einnig gert kvikmyndirnar Birta og Röskun ásamt eiginmanni sínum Brag...
-
Hver er HeilsuErla 2.0? (Heilsumoli 42) 29.04.2026 14minHver er HeilsuErla? Er hún enn sama manneskjan og tók upp kynningarþáttinn í júlí 2023? Í þessum Heilsumola veltir Erla því fyrir sér hvernig hún varð ,,jáhrifavaldur" í eigin lífi og hvernig hún hefur vaxið og þroskast með aukinni þekkingu, reynslu og viðtölum. Ert þú jáhrifavaldur í eigin lífi? Ert þú með lífið í lúkunum? Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
114. Fjárhagslegt frelsi. (Sjálfstraust, fjármálahegðun og hagnýt ráð). Íris Líf Stefánsdóttir 18.04.2026 1godz 32minViðmælandi þáttarins er Íris Líf Stefánsdóttir bókari og gleðisprengja. Þær Erla ræða um sparnað, fjárhagslegt frelsi, mikilvægi sjálfstrausts, fjármálahegðun Íslendinga, fjárhagslega heilsu og svo veitir Íris Líf hlustendum frábær fjármálaráð til að bæta heimilisbókhaldið. Íris Líf sem er aðeins 25 ára rekur eigið bókhaldsfyrirtæki, Accounta.is, og er meðstofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Virkum. Á TikTok og Instagram deilir hún góðum ráðum um fjármál og sparnað fyrir áhugasama. Sérst...
-
113. Healthy at 98 years. (Diet, attitude, purpose, excercise and never stop moving). Zona Merryman 11.04.2026 58minIn this interview Erla speaks with Zona Merryman a remarkable 98 year old lady and inspiration to everyone. She tells us how she has maintained good health over the years. Zona says that we are responsible for our own health and that our mindset is extremely important. In addition to how diet and social factors play a big role in good health, she emphasizes that we should never stop exercising and moving. She lives by herself, walks her dog several times a day and travels alone by plane fro...
-
112. Að draga úr ótímabærri öldrun. (Mataræði, hormónar, bætiefni, sykurfíkn, styrktarþjálfun ofl). Þorbjörg Hafsteinsdóttir 03.04.2026 1godz 40minÍ þættinum ræðir Erla við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur, hjúkrunarfræðing, næringarþerapista, rithöfund og lífsstíls þjálfara um hennar bakgrunn og nálgun á heilsu, mýtur í mataræði, hormóna og konur, ótímabæra öldrun, sykurfíkn, bætiefni, þarmaflóru, mikilvægi styrktarþjálfunar, breytingarskeið kvenna og margt fleira. Þorbjörg er einn helsti brautryðjandi landsins á sviði heilsueflingar og mataræðis og hefur í áratugi aðstoðað fólk bæði á Íslandi og í Danmörku, þar sem hún er búsett, að bæta h...
-
111. Öndun er mitt hjartans mál. (Streita, öndunaræfingar, ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu og meðvirkni). Lilja Steingrímsdóttir 20.03.2026 1godz 17minÍ þætti vikunnar ræðir Erla við Lilju Steingrímsdóttur, hjúkrunarfræðing og öndunarkennara um streitu, gagnsemi öndunaræfinga, mikla ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu, meðvirkni og að snúa neikvæðum hlutum upp í jákvæða. Lilja sem hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur í 44 ár segir öndun hafa bjargað lífi sínu og geðheilsu þegar hún skildi, flutti og fékk nýja vinnu allt á sama tíma. Hún kynntist þá óvænt öndunaræfingum sem hún gerði daglega í 9 ár og stundar enn 20 árum seinna. L...
-
110. Allt mótlæti kemur frá okkur sjálfum. (Ævintýri, ögrun og sjálfsþroski). Inga Þóra Ingadóttir 07.03.2026 1godz 19minÍ þættinum ræðir Erla við Ingu Þóru Ingadóttur, dásamlega stelpukonu um ævintýri lífsins, áskoranir, að ögra sjálfum sér, sjálfsvinnu, tækifæri og hvernig það er að flytja í ný lönd og kynnast ólíkri menningu. Inga er algjör nagli en samt með svo ótrúlega róandi og trausta nærveru sem skín í gegn í viðtalinu. Hún er íþróttakona, þjálfari og móðir sem brennur fyrir það að hjálpa fólki að vera besta útgáfan af sjálfu sér. Hún þjálfar nú hjá Mayhem perfomance coaching hjá Rich Froning sem ...
-
109. A better you. (Declining nutrient status, food processing, soil degredation, absorption of supplements and wellness.) Andrew Thomas 28.02.2026 1godz 12minIn this conversation, Andrew Thomas, founder of Better You, shares his personal journey from the fashion industry to the health sector, driven by his own health challenges as an asthmatic. He discusses the importance of magnesium and its role in overall health, the decline in nutritional quality of food, and the significance of vitamins and minerals in our diets. Andrew emphasizes the need for education in making informed health choices and the benefits of innovative supplementation met...
-
108. Lífið og tilveran. (Tilvistarkreppa, breytingarskeið, streita, foreldramissir, ADHD og draumar.) Kristborg Bóel Steindórsdóttir 20.02.2026 1godz 6minÍ þættinum ræðir Erla við Kristborgu Bóel Steindórsdóttur, fyrrum blaðamann, dagskrárgerðarkonu, rithöfund og nú nýjast ömmu og hlaðvarps stjórnanda. Þær stöllur ræða um lífið og tilveruna og öllu sem því fylgir, um það að vera einstætt foreldri, að missa foreldra, tilvistarkreppu, breytingarskeið, streitu, ADHD og drauma. Ástríða Kristborgar liggur í því að segja sögur og fá aðra til þess að segja sögur og stóri draumurinn er að ferðast um heiminn, standa á sviði og tala, vera nokkurs konar ...
-
107. Óútskýrðir langvinnir verkir. (Verndarkerfi líkamans, næming, öryggi, ótti og aðlögunarhæfni taugakerfisins.) Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur 07.02.2026 50minÍ þættinum ræðir Erla við samrýmdu systurnar Thelmu Rut og Heru Rut um óútskýrða langvinna verki. Þær eru báðar sjúkraþjálfarar í fæðingarorlofi og eru saman með námskeiðið Náðu stjórn á verkjum auk þess að vera með ókeypis fræðslu á Hreyfilausnir bæði á Instagram og Facebook. Í þættinum ræða þær um skilgreiningu óútskýrðra langvinnra verkja og hvað er til ráða þegar þeir eru til staðar. Það sem er afar áhugavert er að slíkir verkir eru sjaldan beintengdir skaða heldur mótast af taugakerfinu,...
-
Hvað er blóðsykurstjórnun? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 41) 30.01.2026 34minÍ þessum þriðja Heilsumola frá Betu Reynis er fjallað um Blóðsykustjórnun, en með því er átt við að nota mataræðið til að stjórna blóðsykrinum. Þær stöllur ræða um skammtastærðir, sterkju, tímasetningu máltíða, kynjamun, að taka ábyrgð á eigin mataræði og eigin heilsu með því að hlusta á líkamann og margt fleira. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Magasýrur, hvers vegna skipta þær miklu máli? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 40) 30.01.2026 18minÍ þessum öðrum Heilsumola af þremur ræðir Erla við Betu Reynis um magasýrur, einkenni um lágar magasýrur og einkenni ef magasýrur eru háar, hvernig við eigum að bregðast við og hvað við getum gert með mataræði til þess að hafa góð áhrif. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Hvað er Nikkel óþol? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 39) 30.01.2026 11minÍ þessum fyrsta Heilsumola af þremur ræðir Erla við Elísabetu Reynisdóttir næringarfræðing og næringarþerapista um Nikkel óþol. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Frábær febrúar, 28 daga heilsuáskorun HeilsuErlu. (Heilsumoli 38) 29.01.2026 5minHefur þig lengi langað til þess að gera einhverjar breytingar á heilsuhegðun þinni en það gerist einfaldlega bara ekki eða þú kemur þér ekki í að fara af stað? Stundum þurfum við einfaldlega smá spark í rassinn til þess að komast af stað og þá verður allt auðveldara í kjölfarið. Ein af uppáhalds tilvitnunum mínum er ACTION OFTEN COMES BEFORE MOTIVATION en þýðir að stundum þurfum við einfaldlega að bara byrja, taka ábyrgð og gera eitthvað í málunum og síðan kemur hvatningin. Ekki bíða ef...
-
106. Að veikjast á dularfullan hátt. (Óþol fyrir tækni, hljóðfælni, verkir, P-DTR meðferð, samvægi og núllstilling taugakerfisins). Sölvi Freyr Valdimarsson 23.01.2026 1godz 32minÍ þættinum ræðir Erla við Sölva Frey Valdimarsson, nýútskrifaðan dúx Menntaskólans við Hamrahlíð, sem veiktist á mjög dularfullan hátt þegar hann var í 10.bekk. Eftir að hafa gengið á milli lækna og annara fagmanna eins og barnalækna, taugalækna, heimilislækna, sjúkraþjálfara, naprapata, heilara, nálastungu og margra fleiri fann hann loksins bót meina sinna eftir 10 kvalarfulla og krefjandi mánuði. Sölvi segir okkur frá þessari erfiðu lífsreynslu sinni og stefnir nú sjálfur á nám ...
-
Byrjaðu árið með stæl. (Heilsumoli 37) 17.01.2026 8minSmá pepp frá HeilsuErlu inn í árið 2026. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Popularny w
Ten podcast pojawia się również w listach podcastów tych krajów.