EKKI AUMINGI
Eva Matta
0
Eva Matta endurrammar umræðuna um endurhæfingu og kulnun. Af hverju er svona erfitt að hægja á, án þess að líða eins og aumingja?
Episódios
-
S1E1 - Lóan er komin að segja mér að vera ekki aumingi 05.05.2026 1h 14minFyrsti þáttur í fyrstu seríu! Þetta podcast er tilraun Evu til þess að endurramma orðræðuna um hvíld, endurhæfingu og allt sem fylgir. Hún fer yfir hvers vegna í ósköpunum henni datt í hug að henda í þetta podcast og að sjálfsögðu þurfum við að ræða þessa aumingjahræðslu okkar... TAKK FYRIR AÐ VERA MEÐ: LYFJA, NORDAID, SAN PELLEGRINO & BATI.APP <3
-
S1E2 - "Ekki ganga yfir Vatnajökul einn" - Matti Osvald 12.05.2026 1h 30minKæri hlustandi það er komið að fyrsta viðmælanda þessa ágæta hlaðvarps.. og fyrst ég er að vanda mig að halda taugakerfinu rólegu í endurhæfingunni þá var best að fá hann pabba minn bara með mér í fyrsta þátt. Hann er engum líkur, fagmaður í því að koma fólki í gegnum krefjandi tímabil, Matti Osvald gjöriðisvovel!
-
S1E3 - "Hvað er líkaminn að reyna að segja þér?" - Hólmfríður sjúkraþjálfari 19.05.2026 1h 20minHólmfríður B. Þorsteinsdóttir eða Hófí eins og við þekkjum hana mörg, er sjúkraþjálfari sem ég fór til í minni endurhæfingu, og það breytti öllu. Hófí starfar hjá Verkjalausnum og er önnur stofnenda Stoðkerfis- og heilsuskóla Hólmfríðar og Þórhöllu, ásamt allskonar öðrum áhugaverðum úrræðum fyrir fólk í leit af lausnum fyrir líkamann. Þetta er fagkona sem þú vilt hlusta á. Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid spreyvítamína, Bati.app og San Pellegrino - TAKK
-
S1E4 - Er baðið að sjóða þig lifandi? 26.05.2026 1hHvað einkenndi langlífustu konu heims? Skammar þú þig einhverntíman? Ertu að bíða eftir að einhver sjái þig? Hvað er temmilegt hitastig á baði? Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid spreyvítamína, San Pellegrino og Bati.app - TAKK
-
S1E5 - "Ég er ekki lengur með áfallastreituröskun" - Svava Brooks 02.06.2026 1h 14minSvava Brooks er er mögnuð kona, TRE® leiðbeinandi og ein af stofnendum samtakanna Blátt áfram. Hún hefur áratuga reynslu af því að styðja fólk á batavegi eftir áföll og erfiðleika. Ég er vægast sagt þakklát fyrir að hafa tekið þetta spjall við Svövu og þú verður eiginlega að heyra þetta. Í þættinum ræðum við meðal annars TRE® (Tension & Trauma Releasing Exercises), aðferð sem hjálpar líkamanum að losa um uppsafnaða spennu, streitu og áföll, og Svava deilir sinni innsýn í tengsl áfalla, taugakerfisins og bataferlisins, og hvernig hægt er að finna leiðina aftur til sín með mildi, öryggi og sjálfsást.
Popular em
Este podcast também aparece nas paradas de podcasts destes países.