Samstöðin

Samstöðin

Samstöðin
País Islândia
Idioma IS
Episódios 600
Último 03.07.2026

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Episódios

  • Talaðu við mig - 5. þáttur: Alaska1867 og Míó Stora 03.07.2026 1h 15min
    Föstudagur 3. júlí Talaðu við mig - 5. þáttur: Alaska1867 og Míó Stora Í þættinum í dag ræddum við við eingin önnur en Alösku1867 og Míó Stora. Við ræddum um listina, innblástur, lífið og tilveruna, og fórum að sjálfsögðu í nokkra góða liði þar sem ýmislegt kom í ljós. Þetta var heldur betur skemmtilegt spjall sem hefði getað haldið áfram í alla nótt.
  • Sjávarútvegsspjallið - 85. þáttur: Fiskeldi 02.07.2026 1h 2min
    Fimmtudagur 2. júlí Sjávarútvegsspjallið - 85. þáttur: Fiskeldi Grétar Mar Jónsson ræðir fiskeldi á sjó og landi við þá Elvar Þór Jónsson, framkvæmdastjóra Verndarsjóðs íslenskra laxastofna, og Jóhann Helga Stefánsson, framkvæmdastjóra Landssambands veiðifélaga.
  • Rauða borðið 30. júní - Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar 30.06.2026 4h 37min
    Þriðjudagur 30. júní Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar Tekist er á um það fyrir dómstólum þessa dagana hvort akstur undir áhrifum megi réttlæta með neyðarrétti. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks. Gunnar Smári ræðir við Svein Mána Jóhannesson doktor í sagnfræði um bandaríska Demókrataflokkinn, ólíkar deildir hans, stefnu og markmið í aðdraganda kosninganna í haust. Öryrkjabandalagið telur að nýlegar breytingar á lögum um sjúkratryggingar geti stóraukið kostnað öryrkja og fatlaðra. Björn Þorláks ræðir við Gunnar Alexander Ólafsson, hagfræðing hjá ÖBÍ. Elskarðu mömmu þína? spyr Karla Kristjánsdóttir leikstjóri í samtali við Ásdísi Olsen eftir að hafa rannsakað mæðgnasambönd og skrifað um það nýtt íslenskt leikrit. Enginn sagði “Ég elska þig” Samband mæðgna er oft flókið og dýrmætt. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor hefur rannsakað matvendni barna og hvort hægt sé að þjálfa bragðlaukana okkar. Hún útskýrir þetta fyrir Gunnari Smára.
  • Rauða borðið 29. júní - Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum 29.06.2026 4h 55min
    Mánudagur 29. júní Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum Páll Heiðar Pálsson fasteignasali ræðir stöðuna á fasteignamarkaði í samtali við Björn Þorláks og hvernig sótt er að nafni hans fasteignasölu. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir um Evrópu við Gunnar Smára, um Úkraínu, Evrópusambandið og evruna, veltir fyrir hvort rekja megi fólksflótta frá ríkjum Austur-Evrópu til hagstjórnar með fastgengisstefnu. Ragnar Baldursson kínafræðingur ræðir um Taiwan og Suður-Kínahaf við Gunnar Smára. „Áður fyrr var ég með hnút í maganum og átti til að kasta upp af stressi á tónleikum,“ segir Kristján Viðar – eða Viddi í Greifunum – sem er viðmælandi Ásdísar í þættinum.
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Örnólfur Árna 27.06.2026 1h 41min
    Laugardagur 27. júní Helgi-spjall: Örnólfur Árna Örnólfur Árnason segir okkur frá lífshlaupi sínu, blaðamennsku, ferðamennsku, bókum, leikritum, óperum og listahátíðum, frá gildi þess að ferðast og leyfa heiminum að breytast sér og samfélagi sem mætti breystast til betra vegar.
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 26 26.06.2026 1h 46min
    Föstudagur 26. júní Vikuskammtur: Vika 26 Ásdís Olsen sér um Vikuskammt að þessu sinni með gestum sínum, þeim Árelíu Eydís Guðmundsdóttur dósent, rithöfundi og fráfarandi borgarfulltrúa, Einari Skúlasyni þjóðfræðingi og göngugarpi, Halldóri Baldurssyni myndlistarmanni og skopteiknara, og Stefáni Ingvari Vigfússyni sviðshöfundi og uppistandara.
  • Rauða borðið 25. júní - Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn 25.06.2026 4h 38min
    Fimmtudagur 25. júní Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn Tófan, hvalurinn og selurinn eru hluti af verðmætum sem Íslendingum ber að vernda. Þetta segir Rósa Líf Darradótir læknir sem segir að manninn hafi borið af leið eins og lýsi sér í svokallaðri “”mannmiðjuvillu”. Björn Þorláks ræðir við hana. Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir og María Hjálmtýsdóttir, framhaldsskólakennarar, ræða stöðu framhaldsskólans með Laufeyju Líndal. Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð ræðir fjölbreyttar birtingarmyndir ofbeldis við Ragnheiði Davíðsdóttur. Ólafur Kristjánsson, einnig þekktur sem Óli tölva, ræðir um notkun gervigreindarinnar við Ásdísi Olsen. Víðir Sigurðsson ræðir að lokum við Sigurjón Magnús m.a. um framvindu og stöðuna á HM.
  • Sjávarútvegsspjallið 84. þáttur: Þingmenn ræða sjávarútvegsmál 25.06.2026 56min
    Fimmtudagur 25. júní Sjávarútvegsspjallið 84. þáttur: Þingmenn ræða sjávarútvegsmál Grétar Mar Jónsson ræðir við þingmennina Dag B. Eggertsson og Eydísi Ásbjörnsdóttur um misræmi í verðlagningu á fiski og fleira sem fjallað hefur verið um á Alþingi upp á síðkastið.
  • Rauða borðið 24. júní - Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur 24.06.2026 4h 35min
    Miðvikudagur 24. júní Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Ólafur Páll Jónsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára Egilsson um tíma Trump. Sigurjón Magnús ræðir við Guðmund Hálfdánarson um átökin innanlands í samtímanum. Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara ,ræðir við Gunnar Smára um niðurskurð. Lárus Ýmir Óskarsson velti því fyrir sér í spjalli með Birni Þorláks hvort auðræði sé að granda heiminum. Alþýðusönglist og hvernig sá siður hefur haldist víða að syngja í röddum og miðla milli kynslóða verður til umræðu hjá Margréti Bóasdóttur söngkonu og kórstjórnanda og Ingveldi Ýr Jónsdóttur söngkonu og kórstjórnanda. Gildi kórastarfs verður til umræðu.
  • Græna borðið - 18. þáttur: Plastmengun og umhverfishreinsun 24.06.2026 1h 2min
    Miðvikudagur 24. júní Græna borðið - 18. þáttur: Plastmengun og umhverfishreinsun Tómas Knútsson í Bláa hernum og Ragnhildur Katla Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Landverndar ræða plastið í náttúrunni, plastið í sjónum, plastlistaverkauppboð og ruslahreinsun. Með þeim situr Björg Eva Erlendsdóttir.
  • Rauða borðið 23. júní - Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður 23.06.2026 3h 45min
    Þriðjudagur 23. júní Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður Óðinn Freyr Baldursson formaður Ungra Evrópusinna og Þórhildur Pálsdóttir stjórnarkona í Ungum gegn ESB útskýra fyrir Gunnari Smára hvers vegna þjóðaratkvæðagreiðslan í lok ágúst skiptir máli. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitamál í fréttum líðandi stundar. Utanvegaakstur, hvalveiðar, réttur fólks til að lifa af hitabylgjur og fleira verður til umræðu í spjalli Gísla við Björn Þorláks. Hvernig við munum og lærum er til umræðu í viðtali Ásdísar Olsen við dr. Unni Óttarsdóttur. Hún bendir á að stór hluti mannkyns hugsi fyrst og fremst í myndum fremur en orðum og að skólakerfið taki ekki nægilegt mið af því. Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður var í hópi Íslendinga sem hlutu fálkaorðu á þjóðhátíðadeginum. Hún fer yfir áherslur sínar í samtali við Björn Þorláks.
  • Rauða borðið 22. júní - Starmer, hvalir, Kína, gervigreind, arkitekt og hjólastígar 22.06.2026 4h 7min
    Mánudagur 22. júní Starmer, hvalir, Kína, gervigreind, arkitekt og hjólastígar Keir Starmer hefur sagt af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og þar með sem forsætisráðherra Breta. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur í London spáir í spilin í breskum stjórnmálum og innan Verkamannaflokksins í spjalli við Gunnar Smára. Valgerður Árnadóttir hvalavinur ræðir við Björn Þorláks um mótmæli gegn hvalveiðum og þá ekki síst nýjustu viðburði. Hún telur augljóst að veiðarnar stangist á við lög. Ragnar Baldursson kínafræðingur ræðir við Gunnar Smára um uppruna hugmyndarinnar um mörg kerfi innan sama ríkis og hvers vegna hún er mikilvæg í stefnu kínverska kommúnistaflokksins. Haukur Arnþórsson, doktor í stjórnsýslufræði, ræðir við Björn Þorláks um kosti og galla gervigreindar. Arnhildur Pálmadóttir arkitekt hefur verið heiðruð af hálfu Reykjavíkurborgar sem borgarlistamaður. Hún ræðir í samtali við Björn Þorláks hvernig henni hefur tekist að marka sérstök spor í byggingarlist. Magne Kvam er goðsögn og frumkvöðull í útivistarmenningu okkar Íslendinga sem fann það upp hjá sjálfum sér að leggja gönguskíðaspor og móta fjallahjólastíga fyrir almenning í sjálfboðavinnu. Ásdís ræðir við Magna um fjallahjólasportið.
  • Bridgeþátturinn - EM að hefjast 21.06.2026 42min
    Sunnudagurinn 21. júní Bridgeþátturinn - EM að hefjast Björn Þorláks fær þrjá briddsara í spjall til sín um EM sem hefst í næstu viku, laugardaginn 27. júní í Riga. Matthías Imsland, Jón Hersir Elíasson og Magnús Magnússon eru sammála um að ögurstund sé fram undan í opna flokknum. Alls sendir Ísland þrjú lið og spennan er mikil.
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir 20.06.2026 2h 14min
    Laugardagur 20. júní Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir Lífshlaup Jóhönnu minnir helst á dramatíska kvikmynd þar sem söguhetjan býr við allsnægtir, frægð og frama þegar eiginmaðurinn biður um skilnað og veröldin hrynur til grunna. Í ljós kemur að á bak við glansmyndina er brotin kona með skelfilega áfallasögu og átröskun. Samhliða því að upplifa líf sitt í rúst fer Jóhanna að stunda hugleiðslu sem færir hana nær sínu innra lífi og síðan upplifun af allsherjar alsælu. Í samtali við Ásdísi Olsen lýsir Jóhanna andlegri vegferð sinni, m.a. sjö ára námi í orkuheilun og kynnum sínum af Barböru Brennan og Dr. Joe Dispenza, sem leiðir merkilega andlega vakningu sem miðar að kærleika og heilun.
  • Talaðu við mig - 3. þáttur 19.06.2026 59min
    Föstudagur 19. júní Talaðu við mig - 3. þáttur: Tónlistarbransinn Í þættinum í dag spjölluðum við við tvo unga listamenn. Við ræddum listina, framtíðina, björtustu vonir bransans og margt fleira. Það var sannur heiður að fá að kynnast þessum meisturum. Við vonum að þið njótið í botn ❤️
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 25 19.06.2026 1h 37min
    Föstudagur 19. júní Vikuskammtur: Vika 25 Við förum yfir fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins á þessum kvenfrelsisdegi með þeim fjórum konum. Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur, Hlédís Maren Guðmundsdóttir varaborgarfulltrúi, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona og Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð greina málin, stöðuna og stefnuna.
  • Rauða borðið 18. júní - Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn 18.06.2026 3h 41min
    Fimmtudagur 18. júní Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn Við byrjum á spjalli Björns, Ásdísar og Gunnar Smára. Svo kemur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisràðherra og fer yfir átakamál í ítarlegu samtali við Björn Þorláks. ESB, Trump, Gaza, efnahagsmálin innanlands og hræðsluáróður ber á góma. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir samkomulag Trumpstjórnarinnar og klerkastjórnarinnar í Íran í samtali við Gunnar Smára. Hvað fékk Trump út úr stríðinu? Hver er staða Íran á eftir? Og hvar stendur Ísrael? Ingibjörg Ottesen, sem verið hefur með gagnrýna umræðu á Facebook, lætur flest flakka um pólitíkina, sjálftöku, það sem hún kallar spilllingaraflanna, mannréttingarmál, skort á náttúruvernd og margt fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir talaði við hana. Í lokin fer Sigurjón yfir HM í fótbolta með Víði Sigurðssyni í Bekknum og eflaust íslenskan fótbolta líka.
  • Græna borðið - 17. þáttur: Dýravelferð og dýravernd 17.06.2026 1h
    Miðvikudagur 17. júní Græna borðið - 17. þáttur: Dýravelferð og dýravernd Ný stjórnarskrá sem fyrst til að tryggja réttindi dýra. Löggjafinn þarf að hlusta á þjóðina og banna hvalveiðar, blóðmerarhald og loðdýraeldi. Samtök bænda eiga að axla ábyrgð á dýravelferð. Við þurfum draga stórlega úr þjáningasporinu á bak við það sem við borðum og láta af þessari mannmiðjuvillu sem hrjáir mannkynið. Þetta er meðal þess sem kemur fram við Græna borðið þar sem Gunnar Theodór Eggertsson, rithöfundur, Valgerður Árnadóttir frá Hvalavinum, Rósa Líf Darradóttir frá Samtökum um Dýravelferð ræddu við Kristínu Helgu Gunnarsdóttur um ástandið í dýraverndarmálum.
  • Rauða borðið 16. júní - Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti 16.06.2026 3h 47min
    Þriðjudagur 16. júní Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fer yfir samgönguáætlun með Gunnari Smára, ræðir mikla umferð á veikbyggðum vegum, göng, brýr, sjóflutninga og innanlandsflug. Viðar Halldórsson félagsfræðingur fer yfir kosti og galla þess að banna börnum aðgengi að samfélagsmiðlum. Bretar hafa fylgt fordæmi Ástrala og hyggjast banna öllum 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla. Guðmundur Auðunsson, einn af stofnendum VG, ræðir að forysta vinstra flokkanna er með neikvætt viðhorf gagnvart aðild að ESB í andstöðu við eigin flokksmenn samkvæmt könnunum. Björn Þorláks ræðir við hann. Guðmundar Gunnlaugssonar sem flestir þekkja sem Gumma Gull, er einn af helstu máttarstólpum íslenskrar skíðasögu. Ásdís ræðir við hann, m.a. örlög nokkra afreksmanna á skíðum. Rausnarlegur fjárstyrkur frá verkalýðsfélagi þýðir að hægt verður að framlengja félagsstarf körfuboltastúlknanna í Aþenu í Breiðholti. Þetta segir Brynjar Karl forsvarsmaður, hann þakkar Sólveigu Önnu og Eflingu í samtali við Björn Þorláks.
  • Rauða borðið 15. júní - Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB 16.06.2026 5h 11min
    Mánudagur 15. júní Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB Réttarhöld um svokallað Edition mál þar sem tvennt lét lífið fjalla um fjarstæðukenndan hrylling. Magnea Marínósdóttir ræðir við Björn Þorláks um hvernig það var að vera viðstödd réttarhöldin. Kristín Ástgeirsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir og Þröstur Ólafsson ræða við Sigurjón Magnús um helstu þjóðmál, erjur í Samfylkingunni og fleira. Hafrún María Zsoldos snyrtifræðingur var nær dauða en lífi vegna sílikonbrjóstapúða. Ásdís Olsen ræðir við Hafrúnu Maríu. Ragnar Baldursson, prófessor í kínverskum fræðum, segir Gunnari Smára frá afstöðu Kínverja til samfélags, ríkis og flokks og veltir fyrir sér hvers vegna Kína sé nú orðið í forystu varðandi sjálfbæra þróun. Henry Alexander Henrysson heimspekingur ræðir þjóðaratkvæðagreiðsluna fram undan, rökræðuna um ESB, lýðræði, siðferði, unglingaveiki smáþjóðar og heiðarleika í samtali við Björn Þorláks.

Popular em

Este podcast também aparece nas paradas de podcasts destes países.