Run and Gun with Mate Dalmay

Run and Gun with Mate Dalmay

Run&Gun
País Islândia
Géneros Esportes, Basquetebol
Idioma IS
Episódios 40
Último 07.10.2026

Umræðuþáttur í umsjón Mate Dalmay um íslenskan körfubolta þar sem slegið er á létta strengi en farið í dýptina.

Episódios

  • Run and Gun 26/27 (Þáttur 6 Stóri Upphitunarþátturinn fyrir efstu deild) 07.10.2026 1h 33min
    Menn skiluðu inn lokaspám fyrir deildina og rýndu í vonbrigði og allskonar fyrir tímabilið sem hefst á morgun. Þjálfari Íslandsmeistara Grindavíkur, Jóhann Ólafsson, var á línunni og skoðaði voru að sjálfsögðu allir leikirnir í fyrstu umferð.
  • Run and Gun 26/27 (Þáttur 5 Stóri 1. deildar þátturinn) 06.10.2026 1h 41min
    Geir Helagson kom til okkar og fór yfir 1. deildina.  Ein umferð er búin og hægt að "overreacta" af alvöru.  
  • Run and Gun 26/27 (Þáttur 4 Tindastóll, Höttur og Sindri) 01.10.2026 1h 48min
    Biðjumst afsökunar á hversu seint þátturinn kemur inn en hér er hann. Landsbyggðin tekin fyrir í þætti kvöldsins. Gestur í Run and Gun studio er Sauðkræklingurinn Halli Karfa. Rætt er við Arnar Guðjónsson þjálfara Tindastóls og rýnt í liðin fyrir komandi tímabil.
  • Run and Gun 26/27 (Þáttur 3 Reykjavík) 24.09.2026 1h 26min
    Steinar Arons kíkir í Run and Gun og rýnir í liðin fjögur sem eru á Reykjavíkursvæðinu. Valur, ÍR, bikarmeistara KR og Ármenningar sem kláruðu The Great Escape í fyrra.
  • Run and Gun 26/27 (Þáttur 2 Suðurnes) 17.09.2026 1h 32min
    Manni Vill mætti og var farið yfir Keflavík, Njarðvík og Íslandsmeistarana í Grindavík. Rætt var við Rúnar Ingar og Daníel Guðna þjálfara Njarðvíkur og Keflvíkinga en spjallið við Jóhann Ólafsson þjálfara Grindavíkur fáum við í næstu viku í þriðja þætti!
  • Run and Gun 26/27 (Þáttur 1 Stjarnan og Álftanes) 10.09.2026 1h 41min
    Fyrsti þáttur tímabilsins. Hitað verður upp öll miðvikudagskvöld í beinni útsendingu þar til Bónus deildin hefst í október. Í kvöld verður rýnt í tvö af sterkustu liðum deildarinnar, Álftanes og Stjörnuna. Við heyrum í þjálfurum beggja liða og ræðum málin með Gunnari Bjarti og Slæma í settinu.
  • Run and Gun - Þáttur 41 (Mið-sumar talning með Slæma og Hrafni Kristjáns) 01.07.2026 1h 48min
    Það er komið að því að taka stöðuna á öllum liðum efstu deildar fyrir komandi tímabil. Margir alvöru bitar eru búnir að skipta um lið, Run and Gun teymið fékk þjálfara Blika Hrafn Krisjánsson til að koma í þáttinn. Á tveimur klukkutímum var skipt liðum deildarinnar í fjögur þriggja liða level. 1. Álftanes, Tindastóll, Grindavík (menn ósammála hér). 2. Stjarnan, KR, Keflavík. 3. ÍR, Njarðvík, Valur. 4. Ármann, Höttur, Sindri.
  • Run and Gun - Þáttur 39 (Sá Slæmi og Manni Vill) 18.05.2026 1h 7min
    Eftir ákall úr öllum áttum tók Run and Gun upp þátt á sunnudags hádegi eftir messu hjá gestum þáttarins. Úrslita einvígið var loksins rætt í þaula og efnið ekki týnt. Þjálfara möguleikar Garðbæinga voru ræddir, Sindra mönnum óskum við til hamingja með sæti í deild þeirra bestu og gestir þáttarins fóru í giskleik - hvaða þjálfarar og leikmenn hafa fengið tækni villur í vetur?
  • Run and Gun - Þáttur 38 (Tommi og Manni Vill) 12.05.2026 42min
    Bras á þætti 38 þar sem síðustu 20 mínútur týndust.  Umræður í Myntkaup Aréna eru því einungis um 1.deildina, Stjörnuna og Val. Allir spáðu Tindastól sigri í leik tvö. Hlökkum til að ræða leik 2 og 3 eftirá, áfram allir.
  • Run and Gun - Þáttur 37 (Manni og Slæmi beint eftir leik) 05.05.2026 1h 8min
    Menn voru ennþá volgir hálftíma eftir leik Vals og Grindavíkur á mánudagskveldi í Myntkaup Aréna. 
  • Run and Gun - Þáttur 36 (Tommi og Slæmi í playoffs neyðar pod) 27.04.2026 1h 8min
    Eftir ákall komu sérfræðingar saman á mánudegi í Myntkaup Aréna og ræddu úrslitakeppnina sem náði um helgina hápúnkti til þessa. 
  • Run and Gun - Þáttur 35 (Mannig Vill og GB Jr.) 22.04.2026 1h 9min
    Run and Gun settist niður í Myntkaup Aréna eftir svakalega fyrsta leik í undanúrslitum í gær. Við gerðum leikinn upp með Manna Vill og Gunnari Bjarti og spáðum svo augljóslega í leik kvöldsins. Seth Le Day fékk afsökunarbeiðni í beinni og þá var rýnt í 1.deildina þar sem spennan er að magnast.
  • Run and Gun - Þáttur 34 (Sá Slæmi og Rúnar Birgir ráðgjafi þjóðarinnar) 16.04.2026 1h 43min
    Það var nýr gestur af gamla skólanum í Myntkaup Arena á þessum apríl miðvikudegi. Liðin sem hafa kvatt í bæði Bónus og 1.deild voru rædd og seasoninu gefin einkunn. Hvað gerist svo í næstu einvígum í báðum deildum?
  • Run and Gun - Þáttur 33 (Steinar og Tommi Steindórs) 09.04.2026 1h 12min
    Eftir tvo fyrstu leikina í úrslitakeppninni settust sérfræðingar landsins í Myntkaup Arena og rýndu í það sem við höfum séð. Þáttastjórnandinn er hálfan þáttinn ekki í mynd en það er eins og það er sumir fagna því.  Hvernig getum við minnkað skjáfíkn dómara? 
  • Run and Gun - Þáttur 32 (Steinar og Manni: Uppgjör og Playoffs) 31.03.2026 1h 19min
    Á þessum mánudegi var tímabilið gert upp í Bónus deildinni í Myntkaup Aréna, gestir gáfu öllum liðum, þjálfurum, íslenskum og erlendum leikmönnum einkunnir. Bragi Guðmunds var kosinn undisputed MVP Run and Gun. Að lokum var að sjálfsöðgu rýnt í playoffs einvígin og opinber spá Run and Gun sett saman.
  • Run and Gun - Þáttur 31 (Tommi og Geir gera upp 1.deildina) 25.03.2026 1h 15min
    31. þáttur tímabilsins í Myntkaup Aréna var helgaður 1.deild karla. Tveir pjúristar mættu í heimsókn og gáfu öllum liðum ítarlegar einkunnir, Geir Elías Úlfur Helgason og Tommi Steindórs. Þátturinn í dag er í boði Myntkaups, Körfufrétta en einnig voru með okkur Chad Grooming menn að þessu sinni.
  • Run and Gun - Þáttur 30 (GB Jr. og Bóbódan) 18.03.2026 1h 4min
    Þrítugasti þáttur Run&Gun og það aðeins tveimur umferðurm fyrir úrslitakeppni. Gestir í Myntkaup sem hafa ekki komið lengi og mikið stuð.
  • Run and Gun - Þáttur 29 (Slæmi og Tommi Steindórs) 11.03.2026 1h 8min
    Tommi Steindórs og Steinar Arons voru gestir dagsins í Myntkaup Aréna þennann miðvikudag þegar þrjár og aðeins þrjár umferðir eru eftir af regular season. Spáð var í næstu umferð Bónus deildar og umferðirnar tvær sem eru eftir í Fyrstu deild karla. Gestirnir hlóðu meðal annars í 5 hötuðustu leikmenn deildarinnar lista og MVP race pælingar.
  • Run and Gun - Þáttur 28 (Slæmi og Manni Vill) 05.03.2026 1h 25min
    Eftir landsliðspásu var tekið upp á fimmtudegi í Myntkaup Aréna. Gestir settu þig í stóla stjórnarmanna liða sem funda á þessum tíma um næsta tímabil. Rýnt var í næstu fjórar umferðir og sett saman loka spá fyrir tímabilið og útlit úrslitakeppninnar.
  • Run and Gun - Þáttur 27 (Slæmi og Tommi Steindórs) 19.02.2026 1h 12min
    Það var mikil stemning í Myntkaup Arena þennan miðvikudag. Rýnt var í 1.deild karla og næstu umferð í þeirri efstu. Farið var yfir þrjá bestu uppöldu leikmenn allra félaga efstu deildar sem enn eru að spila ásamt allskonar öðrum skemmtilegheitum.

Popular em

Este podcast também aparece nas paradas de podcasts destes países.