Skuggavaldið

Skuggavaldið

skuggavaldid
Страна Iceland
Жанры Society & Culture
Язык EN
Эпизодов 43
Последний 25.05.2026

Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu.

Эпизоды

  • #42 - Fljúgandi furðuhlutir - seinni þáttur 25.05.2026 59мин
    Gangast ráðamenn nú við torkennilegum fyrirbærum í háloftunum? Í síðari þætti um fljúgandi furður rýna Hulda og Eiríkur í hvernig yfirvöld hafa færst frá því að mæta öllum tilkynningum með afneitun - sem einmitt kynti undir langsóttum samsæriskenningum um að stjórnvöld leyni heimsókn geimvera - yfir í að viðurkenna nú takmarkaða þekkingu sína á ýmsu því sem örðugt er að greina. Það þýðir þó ekki að menn trúi nú á tilvist geimvera en samsæriskenningar nærast einmitt á slíkri óvissu, líkt og rakið er í þættinum. Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com
  • #41 - Geimverur fyrri þáttur 11.05.2026 54мин
    Leyna yfirvōld fljúgandi furðuhlutum frá fjarlægum hnöttum? Hulda og Eiríkur rekja sögu frásagna af fljúgandi furðuhlutum, afvegaleiðingu slíkra frásagna og til þess að bandarísk stjórnvöld viðurkenna nú að ekki sé hægt að útskýra allt sem sést hefur á himni. Sjónum er beint að því hvernig ríkið nýtti Robertson-nefndina á 6. áratugnum til að gera umræðuna „hallærislega“ og hvernig dularfull starfsemi í Area 51 í Nevada kynti enn frekar undir grunsemdum. Loks er rifjað upp þegar hópur Íslendinga beið eftir geimverum á Snæfellsjökli árið 1993. Með því að flétta saman stjórnmálasögu og sálfræði er leitað svara við því hvers vegna þessi fyrirbæri eru loks tekin alvarlega eftir áratugi af þöggun og háði.  Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com 
  • #40 - Neró: Harðstjóri eða fórnarlamb slaufunarmenningar? 06.05.2026 59мин
    Spilaði Neró fiðlu á meðan Róm brann? Við kryfjum mýtur um móðurmorð, brennuna miklu og hvernig nafn keisarans varð að hinu dularfulla dulmáli 666. Var hann andkristur sjálfur eða fórnarlamb ríkisstyrktrar ófrægingarherferðar? Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com
  • #39 - Loftárás, listaverkarán og sprengjugerð á tímum átakanna á Norður-Írlandi: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, seinni hluti 13.04.2026 47мин
    Hvernig knúði kúgun Breta á Norður-Írlandi enska yfirstéttarkonu til þess að leggja frá sér tebollann og stökkva ofan í skotgrafir ÍRA? Í þessum síðari þætti af tveimur um Rose Dugdale ræða Eiríkur og Hulda um aðgerðirnar sem fleyttu Rose í fremstu víglínu átakanna. Við fylgjumst með henni ræna þyrlu til að gera loftárás á lögreglustöð, skipuleggja stærsta listaverkarán Írlandssögunnar til að knýja fram pólitískar kröfur og hanna mannskæð vopn á borð við hina furðulegu en banvænu „Kex-vörpu“. Um leið er varpað ljósi á The Troubles, hin blóðugu og mannskæðu átök sem skóku Norður-Írland og Bretlandseyjar á síðustu öld. Skuggavaldið er í samstarfi við  bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghúsog veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com
  • #38 - Frá höllum drottningar til skotgrafa ÍRA: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, fyrri hluti 30.03.2026 52мин
    Hvað fær enska hefðarmey til að snúa baki við uppruna sínum og gerast skæruliði ÍRA? Rose Dugdale ólst upp í bresku yfirstéttinni, en andúð á stéttakerfinu og arðráni nýlendustefnunnar dró hana inn í blóðug átök á Norður-Írlandi. Eftir hrylling Blóðuga sunnudagsins árið 1972 rauf hún öll tengsl við fjölskyldu sína og valdi vopnaða byltingu. Í þessum fyrri þætti rekja Eiríkur og Hulda ótrúlega sögu yfirstéttarstúlkunnar sem gerðist hryðjuverkamaður, og varpa um leið ljósi á hin mannskæðu átök á Norður-Írlandi á síðustu öld sem þekkt eru sem The Troubles. Skuggavaldið er í samstarfi við, bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com
  • #37 - Sölumaður óttans: Alex Jones 16.03.2026 44мин
    Hvernig fór Alex Jones að því að græða milljarða á samsæriskenningum? Í þessum þætti Skuggavaldsins rekja Hulda og Eiríkur þróun upplýsingahernaðar í samtímanum og rýna í feril sölumanns óttans“ sem vopnavæddi upplýsingaóreiðu og ruddi brautina fyrir nýja tegund popúlismans. Við skoðum „viðskiptamódel óttans“ þar sem bætiefni og neyðarbúnaður eru seld sem vörn gegn samsærum ríkisins, og ræðum Sandy Hook-harmleikinn þar sem siðlaust leikhús mætti raunverulegum sársauka og sögulegum skaðabótakröfum. Fjallað er um hlutverk Jones sem „ísbrjóts“ fyrir jaðarhugmyndir sem rata inn í almannarýmið og hvort kakkalakki upplýsingahernaðarins sé í raun fallinn eða einfaldlega mættur á nýjan vettvang. Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veitingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com
  • #36 - Rothschild-goðsögnin – stóra skrímslið í huga samsæriskenningasmiða 02.03.2026 44мин
    Ætlar Rothschild-ættin að sölsa allan heiminn undir sig? Í þessum síðari þætti af tveimur um hina frægu Rothschild-fjölskyldu skoða Eiríkur og Hulda hvernig ættin varð að holdgervingi hins illa og talin stjórna bandaríska seðlabankanum, sitja á toppi Illuminati-píramídans og stýra hinni Nýju heimsskipan. Undanfarin ár hafa sögurnar orðið enn fáránlegri og ættin hefur verið sökuð um að eiga einkaleyfi á Covid-19 og stjórna skógareldum með geimleiserum. Þá er blákaldur veruleikinn sá að þessi gamla evrópska bankaætt á ekki roð í risa á borð við BlackRock og Elon Musk. Skuggavaldið er í samstarfi við Öskju, Borg brugghús og veiðibúðina Vesturröst. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com
  • #35 - Rothschild-fjölskyldan — raunveruleikinn á bak við goðsögnina 16.02.2026 40мин
    Stýrir Rothschild-fjölskyldan seðlabönkum og styrjöldum? Eiríkur og Hulda ræða eitt stærsta nafnið í heimi samsæriskenninga: Rothschild-ættina. Sögur segja að fjölskyldan eigi helming auðæfa jarðar og fjármagni báðar hliðar í styrjöldum. En hver er raunveruleikinn? Í þessum þætti ferðumst við aftur til ársins 1760, skoðum hvernig ættin breiddi úr sér í fjármálalífi Evrópu og kryfjum hina lífseigu mýtu um orrustuna við Waterloo. Í þessum fyrri þætti af tveimur er kafað ofan í hina raunverulegu sögu fjölskyldunnar, en goðsagnirnar og samsæriskenningarnar verða teknar fyrir í þeim næsta. Skuggavaldið er í samstarfi við Borg brugghús og veiðibúðina Vesturröst. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com
  • #34 - Leyndardómar flugvallarins í Denver 02.02.2026 45мин
    Er heil hulduborg undir Denver-flugvelli, einskonar dómsdagsbyrgi, sem hýsa mun heimselítuna á efsta degi? Eiríkur og Hulda fjalla um hlaðborð samsæriskenninga tengdar flugvallarbyggingunni og hvernig stjórnendur hans sneru vörn í sókn og nýttu brjálæðislegar sögusagnirnar sér til framdráttar í stað þess að þagga niður í þeim. Sagt er frá því hvernig byggingaskilti um „felustað eðlufólksins“ og talandi ufsagrýlur urðu svar við þrálátum orðrómi um dómsdagsbyrgi og leynigöng. Einnig er kafað ofan í jarðveginn sem þessar sögur spruttu úr: Allt frá stjarnfræðilegri framúrkeyrslu og biluðu farangurskerfi til bláa hestsins „Blucifer“ og apokalyptískra veggmynda sem sumir þykja boða nýja heimsskipan.
  • #33 - Havana-heilkennið, seinni þáttur 19.01.2026 44мин
    Var háleynilegu hljóðvopni beitt gegn útsendurum Bandaríkjastjórnar á Kúbu? Í síðari þætti Skuggavaldsins um Havana-heilkennið rekjum við hvernig dularfull veikindi fóru að greinast um allan heim. Hulda og Eiríkur rýna í kenningar um örbylgjuárásir og rússnesk leynivopn sem standast illa skoðun, en skoðum líka hljóðvopn sem reyndust stundum vera tístandi krybbur. Gæti skýringin verið geðræn hópsýkingu þar sem streita og óvissa framkalla raunverulegan sársauka? Rýnt er í frásögn fórnarlamba sem hafa misst heilsu og starf sitt og nýjar skýrslur sem draga árásar-kenninguna í efa og hvernig klaufaleg viðbrögð stjórnkerfisins urðu að frjósömum jarðvegi fyrir samsæriskenningar. Skuggavaldið er í samstarfi við veiðibúðina Vesturröst. Ábendingar sendist á skuggavaldid@gmail.com
  • #32 - Havana heilkennið – fyrri þáttur 05.01.2026 59мин
    Beittu stjórnvöld á Kúbu, eða jafnvel í Rússlandi, leynilegu hátæknivopni til að slá bandaríska sendimenn í Havana út af laginu? Óútskýrð veikindi bandarískra diplómata seint á árinu 2016 urðu upphaf að einni undarlegustu og umdeildustu pólitísku ráðgátu samtímans. Eiríkur og Hulda rekja hér sögu hins svokallaða Havana-heilkennis í sögulegu, pólitísku og sálfræðilegu samhengi allt frá byltingu Castros og áratugalangri tortryggni, í gegnum varfærna þíðuna í tíð Obama, og til hins snögglega afturhvarfs þegar Trump tók við völdum.
  • #31 - Er jólasveinninn til? 22.12.2025 48мин
    Er sagan um jólasveininn eitt útbreiddasta samsæri mannkynssögunnar? Eða er samsæriskenningin kannski sú að afneita tilvist hans? Í þessum sérstaka jólaþætti Skuggavaldsins rekja Eiríkur og Hulda sögu jólasveinsins frá leyndardómsfullu ráni á beinum heilags Nikulásar til mótunar hinnar bandarísku Santa Claus-ímyndar. Sérstök athygli er veitt íslensku jólasveinunum, sem gætu allt eins verið álitnir skipulagður glæpahringur þar sem hver sveinn gegnir sérhæfðu hlutverki í markvissum matarránsferðum undir stjórn Grýlu. Við veltum fyrir okkur sálfræðinni á bak við „stóru lygina“ – ef hún er þá lygi – og spyrjum hvort við höfum vanmetið getu fullorðinna til að sammælast um blekkingu, en þátturinn tekur óvænta stefnu þegar sjálfur Gáttaþefur ryðst inn í stúdíóið til að verja heiður sinn.   Skuggavaldið er í samstarfi við Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró Sendið okkur ábendingar á skuggavaldid@gmail.com
  • #30 - Hver felldi tvíburaturnana? — árásirnar 11. september 2001, síðari hluti 08.12.2025 1ч 1мин
    Vissi Bandaríkjastjórn af árásunum 11. september og lét þær gerast – eða átti jafnvel sjálf hlut að máli? Í seinni þætti Skuggavaldsins um hryðjuverkin rýna Hulda og Eiríkur í lífseigar kenningar um aðkomu innlendra aðila, pólitíska eftirmála og mistök bandaríska kerfisins, auk hins umdeilda Sádi-Arabíu-vinkils. Þau fara yfir ný gögn, málaferli aðstandenda og hvernig óvissa og vantraust urðu frjósamur jarðvegur fyrir langlífar samsæriskenningar.   Skuggavaldið er í samtarfi við veiðibúðina Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró.   Ábendingar sendist í skuggavaldid@gmail.com
  • #29 - Fall tvíburaturnanna — árásirnar 11. september 2001 fyrri hluti 24.11.2025 1ч 5мин
    Voru Tvíburaturnarnir felldir í stýrðu niðurrifi? Í þessum þætti rýnir Skuggavaldið í lífseigustu samsæriskenningar um 11. september: að stjórnvöld hafi komið að sprengingu turnanna og síðar byggingar 7, og að á Pentagon hafi ekki lent farþegaþota heldur flugskeyti. Eiríkur og Hulda skoða af hverju slíkar hugmyndir lifa áfram, þrátt fyrir að bæði hrun bygginganna og árásina á Pentagon megi skýra án slíkra innri leyniaðgerða.   Skuggavaldið er í samtarfi við veiðibúðina Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró. Ábendingar sendist í skuggavaldid@gmail.com
  • #28 - Úkraína og innrásin – vopnvæðing samsæriskenninga í Rússlandi 10.11.2025 55мин
    Var Úkraína í raun nasistaríki og peð Vesturlanda sem ógnaði Rússlandi? Eiríkur og Hulda rýna í það hvernig rússnesk stjórnvöld byggðu upp kerfisbundna frásögn þar sem nágrannalandið var málað sem leppur siðspilltra vestrænna afla – „nasistaríki“ sem þyrfti að „hreinsa“ – á sama tíma og sjálfstæði þess var afneitað sem tilbúnningi. Þau rekja uppruna og þróun þessarar samsærisorðræðu, sýna hvernig hún varð að hugmyndafræðilegu vopni og forspili innrásarinnar, og greina jafnframt hvernig gagnkvæm tortryggni og andúð Vesturlanda og Rússlands í Kalda stríðinu varð að frjókorni óttans og auðveldaði dreifingu slíkra sagna.   Skuggavaldið er í samstarfi við Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró Sendið ábendingar á skuggavaldid@gmail.com. 
  • #27 - Pussy Riot og Navalny – vopnvæðing samsæriskenninga í Rússlandi 27.10.2025 54мин
    Voru meðlimir Pussy Riot og andófsmaðurinn Alexei Navalny í raun útsendarar vestrænna óvina Rússlands? Eiríkur og Hulda kafa ofan í rússneska samsærisheiminn – þar sem list, trú og pólitík fléttast saman í eitruðum kokteil. Þau rekja söguna af pönkbæn Pussy Riot í dómkirkju Moskvu, réttarsalnum, fangelsunum og flóttanum til Íslands. Þau ræða einnig um Alexei Navalny, eitrunina, fangelsun hans og andlátið í haldi Kremlarvaldsins. Fyrst og fremst fara þau yfir það hvernig gagnrýni á rússnesk stjórnvöld er snúið uppí frásögn um landráð og svik, hvernig öllu snúið upp í að vera hluti af hinu stóra samsæri Vesturlanda gegn Rússlandi.    Skuggavaldið er í samtarfi við veiðibúðina Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró. Ábendingar sendist í skuggavaldid@gmail.com
  • #26 - Er jörðin flöt? — upptaka á Vísindavōku 13.10.2025 52мин
    Hvernig fékk hugmyndin um að jörðn væri flöt nýtt líf á netinu? Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann rekja söguna frá sönnunum forn-Grikkja um hnattlögun jarðar til sprellifandi samsærissamfélags síðasta áratugar. Við kynnumst Rowbotham og viktoríönsku Zetetic-samfélagi, förum yfir tilraunir Mad Mike til þess að skjóta sér á loft, hlutverk YouTube algrímsins, ráðstefnur og kannanir sem sýna lítinn merkilega stóran hóp efasemdafólks. Skemmti- og fræðsluferð inn í furðulegan afkima samtímans þar sem traust, vísindi og samsæriskenningar togast á.   Kostendur Skuggavaldsins eru Vesturröst veiðiverslun  og Plantan kaffihús og bistro.  Sendið ábendingar á skuggavaldid@gmail.com
  • #25 - Dramatísk lausn Julian Assange, seinni hluti viðtals við Kristinn Hrafnsson – WikiLeaks, fjórði þáttur 29.09.2025 1ч 26мин
    Var dramatísk lausn Julian Assange sigur réttlætisins – eða kaldur hráskinnaleikur stórveldanna? Í fjórða og síðasta þætti syrpunnar um WikiLeaks segir Kristinn Hrafnsson frá leynilegum samningaviðræðum sem leiddu til þess að Assange var loksins leystur úr haldi eftir fimmtán ár. Eiríkur og Hulda ræða við hann um æsilegan lokasprettinn, alþjóðlega diplómatíu og hvernig baráttan fyrir frelsi uppljóstrara hélt áfram til síðasta dags – og leggja að lokum mat á þetta heimssögulega mál.
  • #24 - Viðtal við Kristinn Hrafnsson fyrri hluti – WikiLeaks, þriðji þáttur 15.09.2025 1ч 21мин
    Hvernig endaði íslenskur fréttamaður í miðju stærsta tjáningarfrelsismáls samtímans? Í þessum þætti segir Kristinn Hrafnsson frá fyrstu kynnum sínum af Julian Assange, dramatískum uppljóstrunum Wikileaks og því þegar stórveldin fóru að sýna klærnar. Skuggvaldið er í samstarfi við Vesturröst og Plöntuna Bístro og kaffihús.  Skuggavaldið verður á Vísindavöku RANNÍS í Laugardalshöll þ. 27. september 2025 kl 15:40.  Sendið okkur línu á skuggavaldid@gmail.com
  • #23 - Julian Assange og andsvar stórveldanna – WikiLeaks, annar þáttur 01.09.2025 55мин
    Var Julian Assange á mála hjá Rússum eða jafnvel CIA? Sameinuðust leyniþjónustur heims kannski öllu heldur í því að þagga niður í honum? Hulda og Eiríkur rekja hvernig hetjan sem afhjúpaði stríðsglæpi í Írak breyttist í lýjandi gest sem enginn vildi. Þau fara yfir hið meinta kynferðisbrotamál í Svíþjóð, árin í sendiráði Ekvador og allt til reyfarakenndrar atburðarrásar þegar Assange fékk loks frelsi í júní 2024. Í þættinum er fjallað um það hvernig stórveldi beita sér frá ófrægingu til fangelsunar til að ná böndum á þeim sem ógna þeim. Skuggvaldið er í samstarfi við Plöntuna Bístro og kaffihús, Atlantsolíu og Vesturröst.  Skuggavaldið verður á Vísindavöku RANNÍS í Laugardalshöll þ. 26. september 2025.  Sendið okkur línu á skuggavaldid@gmail.com

Популярен в

Этот подкаст также попадал в подкаст-чарты этих стран.