Rauða borðið
Gunnar Smári Egilsson
0
Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Эпизоды
-
Rauða borðið 30. júní - Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar 30.06.2026 4ч 37минÞriðjudagur 30. júní Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar Tekist er á um það fyrir dómstólum þessa dagana hvort akstur undir áhrifum megi réttlæta með neyðarrétti. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks. Gunnar Smári ræðir við Svein Mána Jóhannesson doktor í sagnfræði um bandaríska Demókrataflokkinn, ólíkar deildir hans, stefnu og markmið í aðdraganda kosninganna í haust. Öryrkjabandalagið telur að nýlegar breytingar á lögum um sjúkratryggingar geti stóraukið kostnað öryrkja og fatlaðra. Björn Þorláks ræðir við Gunnar Alexander Ólafsson, hagfræðing hjá ÖBÍ. Elskarðu mömmu þína? spyr Karla Kristjánsdóttir leikstjóri í samtali við Ásdísi Olsen eftir að hafa rannsakað mæðgnasambönd og skrifað um það nýtt íslenskt leikrit. Enginn sagði “Ég elska þig” Samband mæðgna er oft flókið og dýrmætt. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor hefur rannsakað matvendni barna og hvort hægt sé að þjálfa bragðlaukana okkar. Hún útskýrir þetta fyrir Gunnari Smára.
-
Rauða borðið 29. júní - Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum 29.06.2026 4ч 55минMánudagur 29. júní Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum Páll Heiðar Pálsson fasteignasali ræðir stöðuna á fasteignamarkaði í samtali við Björn Þorláks og hvernig sótt er að nafni hans fasteignasölu. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir um Evrópu við Gunnar Smára, um Úkraínu, Evrópusambandið og evruna, veltir fyrir hvort rekja megi fólksflótta frá ríkjum Austur-Evrópu til hagstjórnar með fastgengisstefnu. Ragnar Baldursson kínafræðingur ræðir um Taiwan og Suður-Kínahaf við Gunnar Smára. „Áður fyrr var ég með hnút í maganum og átti til að kasta upp af stressi á tónleikum,“ segir Kristján Viðar – eða Viddi í Greifunum – sem er viðmælandi Ásdísar í þættinum.
-
Rauða borðið - Helgi-spjall: Örnólfur Árna 27.06.2026 1ч 41минLaugardagur 27. júní Helgi-spjall: Örnólfur Árna Örnólfur Árnason segir okkur frá lífshlaupi sínu, blaðamennsku, ferðamennsku, bókum, leikritum, óperum og listahátíðum, frá gildi þess að ferðast og leyfa heiminum að breytast sér og samfélagi sem mætti breystast til betra vegar.
-
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 26 26.06.2026 1ч 46минFöstudagur 26. júní Vikuskammtur: Vika 26 Ásdís Olsen sér um Vikuskammt að þessu sinni með gestum sínum, þeim Árelíu Eydís Guðmundsdóttur dósent, rithöfundi og fráfarandi borgarfulltrúa, Einari Skúlasyni þjóðfræðingi og göngugarpi, Halldóri Baldurssyni myndlistarmanni og skopteiknara, og Stefáni Ingvari Vigfússyni sviðshöfundi og uppistandara.
-
Rauða borðið 25. júní - Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn 25.06.2026 4ч 38минFimmtudagur 25. júní Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn Tófan, hvalurinn og selurinn eru hluti af verðmætum sem Íslendingum ber að vernda. Þetta segir Rósa Líf Darradótir læknir sem segir að manninn hafi borið af leið eins og lýsi sér í svokallaðri “”mannmiðjuvillu”. Björn Þorláks ræðir við hana. Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir og María Hjálmtýsdóttir, framhaldsskólakennarar, ræða stöðu framhaldsskólans með Laufeyju Líndal. Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð ræðir fjölbreyttar birtingarmyndir ofbeldis við Ragnheiði Davíðsdóttur. Ólafur Kristjánsson, einnig þekktur sem Óli tölva, ræðir um notkun gervigreindarinnar við Ásdísi Olsen. Víðir Sigurðsson ræðir að lokum við Sigurjón Magnús m.a. um framvindu og stöðuna á HM.
-
Rauða borðið 24. júní - Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur 24.06.2026 4ч 35минMiðvikudagur 24. júní Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Ólafur Páll Jónsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára Egilsson um tíma Trump. Sigurjón Magnús ræðir við Guðmund Hálfdánarson um átökin innanlands í samtímanum. Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara ,ræðir við Gunnar Smára um niðurskurð. Lárus Ýmir Óskarsson velti því fyrir sér í spjalli með Birni Þorláks hvort auðræði sé að granda heiminum. Alþýðusönglist og hvernig sá siður hefur haldist víða að syngja í röddum og miðla milli kynslóða verður til umræðu hjá Margréti Bóasdóttur söngkonu og kórstjórnanda og Ingveldi Ýr Jónsdóttur söngkonu og kórstjórnanda. Gildi kórastarfs verður til umræðu.
-
Rauða borðið 23. júní - Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður 23.06.2026 3ч 45минÞriðjudagur 23. júní Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður Óðinn Freyr Baldursson formaður Ungra Evrópusinna og Þórhildur Pálsdóttir stjórnarkona í Ungum gegn ESB útskýra fyrir Gunnari Smára hvers vegna þjóðaratkvæðagreiðslan í lok ágúst skiptir máli. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitamál í fréttum líðandi stundar. Utanvegaakstur, hvalveiðar, réttur fólks til að lifa af hitabylgjur og fleira verður til umræðu í spjalli Gísla við Björn Þorláks. Hvernig við munum og lærum er til umræðu í viðtali Ásdísar Olsen við dr. Unni Óttarsdóttur. Hún bendir á að stór hluti mannkyns hugsi fyrst og fremst í myndum fremur en orðum og að skólakerfið taki ekki nægilegt mið af því. Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður var í hópi Íslendinga sem hlutu fálkaorðu á þjóðhátíðadeginum. Hún fer yfir áherslur sínar í samtali við Björn Þorláks.
-
Rauða borðið 22. júní - Starmer, hvalir, Kína, gervigreind, arkitekt og hjólastígar 22.06.2026 4ч 7минMánudagur 22. júní Starmer, hvalir, Kína, gervigreind, arkitekt og hjólastígar Keir Starmer hefur sagt af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og þar með sem forsætisráðherra Breta. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur í London spáir í spilin í breskum stjórnmálum og innan Verkamannaflokksins í spjalli við Gunnar Smára. Valgerður Árnadóttir hvalavinur ræðir við Björn Þorláks um mótmæli gegn hvalveiðum og þá ekki síst nýjustu viðburði. Hún telur augljóst að veiðarnar stangist á við lög. Ragnar Baldursson kínafræðingur ræðir við Gunnar Smára um uppruna hugmyndarinnar um mörg kerfi innan sama ríkis og hvers vegna hún er mikilvæg í stefnu kínverska kommúnistaflokksins. Haukur Arnþórsson, doktor í stjórnsýslufræði, ræðir við Björn Þorláks um kosti og galla gervigreindar. Arnhildur Pálmadóttir arkitekt hefur verið heiðruð af hálfu Reykjavíkurborgar sem borgarlistamaður. Hún ræðir í samtali við Björn Þorláks hvernig henni hefur tekist að marka sérstök spor í byggingarlist. Magne Kvam er goðsögn og frumkvöðull í útivistarmenningu okkar Íslendinga sem fann það upp hjá sjálfum sér að leggja gönguskíðaspor og móta fjallahjólastíga fyrir almenning í sjálfboðavinnu. Ásdís ræðir við Magna um fjallahjólasportið.
-
Rauða borðið - Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir 20.06.2026 2ч 14минLaugardagur 20. júní Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir Lífshlaup Jóhönnu minnir helst á dramatíska kvikmynd þar sem söguhetjan býr við allsnægtir, frægð og frama þegar eiginmaðurinn biður um skilnað og veröldin hrynur til grunna. Í ljós kemur að á bak við glansmyndina er brotin kona með skelfilega áfallasögu og átröskun. Samhliða því að upplifa líf sitt í rúst fer Jóhanna að stunda hugleiðslu sem færir hana nær sínu innra lífi og síðan upplifun af allsherjar alsælu. Í samtali við Ásdísi Olsen lýsir Jóhanna andlegri vegferð sinni, m.a. sjö ára námi í orkuheilun og kynnum sínum af Barböru Brennan og Dr. Joe Dispenza, sem leiðir merkilega andlega vakningu sem miðar að kærleika og heilun.
-
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 25 19.06.2026 1ч 37минFöstudagur 19. júní Vikuskammtur: Vika 25 Við förum yfir fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins á þessum kvenfrelsisdegi með þeim fjórum konum. Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur, Hlédís Maren Guðmundsdóttir varaborgarfulltrúi, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona og Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð greina málin, stöðuna og stefnuna.
-
Rauða borðið 18. júní - Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn 18.06.2026 3ч 41минFimmtudagur 18. júní Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn Við byrjum á spjalli Björns, Ásdísar og Gunnar Smára. Svo kemur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisràðherra og fer yfir átakamál í ítarlegu samtali við Björn Þorláks. ESB, Trump, Gaza, efnahagsmálin innanlands og hræðsluáróður ber á góma. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir samkomulag Trumpstjórnarinnar og klerkastjórnarinnar í Íran í samtali við Gunnar Smára. Hvað fékk Trump út úr stríðinu? Hver er staða Íran á eftir? Og hvar stendur Ísrael? Ingibjörg Ottesen, sem verið hefur með gagnrýna umræðu á Facebook, lætur flest flakka um pólitíkina, sjálftöku, það sem hún kallar spilllingaraflanna, mannréttingarmál, skort á náttúruvernd og margt fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir talaði við hana. Í lokin fer Sigurjón yfir HM í fótbolta með Víði Sigurðssyni í Bekknum og eflaust íslenskan fótbolta líka.
-
Rauða borðið 16. júní - Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti 16.06.2026 3ч 47минÞriðjudagur 16. júní Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fer yfir samgönguáætlun með Gunnari Smára, ræðir mikla umferð á veikbyggðum vegum, göng, brýr, sjóflutninga og innanlandsflug. Viðar Halldórsson félagsfræðingur fer yfir kosti og galla þess að banna börnum aðgengi að samfélagsmiðlum. Bretar hafa fylgt fordæmi Ástrala og hyggjast banna öllum 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla. Guðmundur Auðunsson, einn af stofnendum VG, ræðir að forysta vinstra flokkanna er með neikvætt viðhorf gagnvart aðild að ESB í andstöðu við eigin flokksmenn samkvæmt könnunum. Björn Þorláks ræðir við hann. Guðmundar Gunnlaugssonar sem flestir þekkja sem Gumma Gull, er einn af helstu máttarstólpum íslenskrar skíðasögu. Ásdís ræðir við hann, m.a. örlög nokkra afreksmanna á skíðum. Rausnarlegur fjárstyrkur frá verkalýðsfélagi þýðir að hægt verður að framlengja félagsstarf körfuboltastúlknanna í Aþenu í Breiðholti. Þetta segir Brynjar Karl forsvarsmaður, hann þakkar Sólveigu Önnu og Eflingu í samtali við Björn Þorláks.
-
Rauða borðið 15. júní - Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB 16.06.2026 5ч 11минMánudagur 15. júní Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB Réttarhöld um svokallað Edition mál þar sem tvennt lét lífið fjalla um fjarstæðukenndan hrylling. Magnea Marínósdóttir ræðir við Björn Þorláks um hvernig það var að vera viðstödd réttarhöldin. Kristín Ástgeirsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir og Þröstur Ólafsson ræða við Sigurjón Magnús um helstu þjóðmál, erjur í Samfylkingunni og fleira. Hafrún María Zsoldos snyrtifræðingur var nær dauða en lífi vegna sílikonbrjóstapúða. Ásdís Olsen ræðir við Hafrúnu Maríu. Ragnar Baldursson, prófessor í kínverskum fræðum, segir Gunnari Smára frá afstöðu Kínverja til samfélags, ríkis og flokks og veltir fyrir sér hvers vegna Kína sé nú orðið í forystu varðandi sjálfbæra þróun. Henry Alexander Henrysson heimspekingur ræðir þjóðaratkvæðagreiðsluna fram undan, rökræðuna um ESB, lýðræði, siðferði, unglingaveiki smáþjóðar og heiðarleika í samtali við Björn Þorláks.
-
Rauða borðið - Helgi-spjall: Árni Pétur 13.06.2026 1ч 41минLaugardagur 13. júní Helgi-spjall: Árni Pétur Árni Pétur Guðjónsson leikari ársins kemur í helgi-spjall og segir frá hippanum í sér, leikaranum, hommanum, alkanum og ýmsum fleiri.
-
Föstudagur 12. júní Vikuskammtur: Vika 24 12.06.2026 1ч 14минFöstudagur 12. júní Vikuskammtur: Vika 24 Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla, Björgvin G. Sigurðsson, fyrrum ráðherra, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og Björn Leví Gunnarsson, fyrrum þingmaður, ræða ólguna í Samfó, útlendingamál, menntamál, ESB, efnahagsmál og íslenska blíðviðrið. Björn Þorláks sér um þáttinn.
-
Rauða borðið 11. júní - Flokksórói, menntun öryrkja, lögblind börn, ESB og list 11.06.2026 3ч 4минFimmtudagur 11. júní Flokksórói, menntun öryrkja, lögblind börn, ESB og list Þórarinn Snorri Sigurgeirsson stjórnmálafræðingur og skristofufstjóri hjá Þroskahjálp er einn hvatamanna yfirlýsingar fjölda fólks úr Samfylkingunni gegn stefnubreytingar forystu flokksins í málefnum flóttafólks. Hann segir Gunnari Smára hvers vegna. Anna Margrét Bjarnadóttir, Hrönn Stefánsdóttir og Þórdís Bjarnleifsdóttir ræða fötlun og fjárhag, aðgengi að tækifærum í samtali við Björn Þorláks. Ekki sitja allir við sama borð er kemur að menntamöguleikum við HÍ. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Sigurlaugu Gísladóttur móður þriggja lögblindra drengja um lífið og tilveruna og baráttu við kerfið. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur telur einsýnt að Ísland eigi af menningarlegum orsökum ekki síður en efnahagslegum samleið með ESB. Einangrun landsins er stórvarasöm að mati Guðmundar Andra og válegir straumar í vestri. Björn Þorláks ræðir við hann. Á sunnudaginn opnar ný sýning í gluggagalleríinu STÉTT í Bolholti 6. Berglind Ágústsdóttir listakona segir Laufeyju Líndal frá list sinni.
-
Rauða borðið 10. júní - Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga 10.06.2026 5ч 5минMiðvikudagur 10. júní Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga Margrét Friðriks á frettin.is ræðir spillta íslenska yfirstétt sem hún segir stöðugt vinna gegn sér. Hún ræðir nýfallinn ærumeiðingadóm, eigin áfallasögu og gönguna með Jesú Kristi í samtali við Björn Þorláks og Ásdísi Olsen. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um heimsmálin, stríðin og ESB. Hallgrímur Oddsson hagfræðingur í Brussel ræðir glænýja skýrslu um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja. Tollar, gjaldmiðlar og geópólitískar sviptingar koma til umræðu í spjalli hans við Björn Þorláks. Bjarni M. Bjarnason rithöfundur hefur varið tímanum á kaffihúsum undanfarið. Ekki til að slæpast heldur til að skrifa doktorsritgerð! Björn Þorláks ræðir við Bjarna. „Þjáningin varð fæðingarhríðir skilningsins”, segir Marta Eiríksdóttir, kennari og jógakona um erfiðustu ár ævi sinnar í samtali við Ásdísi Olsen.
-
Rauða borðið 9. júní - Persónulegt hrun, heilahreistingur, áfengi, stengjafræði og veitingahús 09.06.2026 5ч 9минÞriðjudagur 9. júní Persónulegt hrun, heilahreistingur, áfengi, stengjafræði og veitingahús Einlægt samtal um persónulegt hrun og þá miklu auðmýktina sem þarf til að biðja um hjálp, í viðtali Ásdísar við Arnór Má Másson markþjálfa. Mjög alvarlegur heilahristingur leiddi til þess að Valgerður Árnadóttir missti getu til að sinna einföldustu verkefnum. Hún komst í gegnum erfiðleikana eins og hún segir Birni Þorláks frá. Björn Þorláks ræðir við forvarnafulltrúann Árna Guðmundsson um hvort hinir fullorðnu eiga sjálfir að hjálpa börnunum að komast yfir áfengi. Lárus Thorlacius prófessor í eðlisfræði útskýrir strengjafræði fyrir Gunnari Smára og Bjarni Óskarsson veitingamaður segir frá nokkrum veitingastöðum sem hann hefur stofnað og rekið í samtali við Gunnar Smára.
-
Rauða borðið - Helgi-spjall: Sigfinnur 09.06.2026 2ч 24минLaugardagur 6. júní Helgi-spjall: Sigfinnur Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur segir okkur frá kvíða æskunnar, veikindum foreldra sinna, trúrrleit sinni, reynslu af dauðanum og hvernig fólk tekur honum, voninni og öðru sem hjálpar.
-
Rauða borðið 8. júní - Sprungnir meirihlutar, röddin, Hildur, túrismi og HM 08.06.2026 5ч 5минMánudagur 8. júní Sprungnir meirihlutar, röddin, Hildur, túrismi og HM Ofurlaun nokkurra sveitarstjóra hafa verið til umræðu að loknum kosningum. Þá gekk meirihluti í Hafnarfirði úr skaftinu vegna trúnaðarbrests. Þorsteinn Gunnarsson hefur skrifað ritgerð sem kann að varpa ljósi á álitamál í íslenskri sveitarstjórnarpólitík. Björn Þorláks ræðir við hann. Að finna sína eiginlegu rödd fæst með því að tengja við sálina sína segir Þórey Sigþórsdóttir leikkona og raddþjálfi sem kennir fólki að nota röddina, finna sinn eigin styrk í tjáningunni og ná athygli fólks í viðtali við Ásdís Olsen. Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfó, Freyja Gunnlaugsdóttir, skólastjóri Menntaskóla í tónlist og Ingveldur G. Ólafsdóttir, móðir Hildar Guðnadóttur, ræða skilyrði árangurs í tónlist og hvort þeim er sinnt sem stendur. Hinrik Ólafsson leikari, leiðsögumaður, framleiðandi og leikstjóri ræðir við Gunnar Smára um túrisma á Íslandi. HM með Víði Sigurðssyni. Gestur þáttarins að þessu sinni er einn reyndasti íþróttafréttamaður landsins. Heimsmeistarakeppnin er við það að hefjast. Svo er mikið gaman að fylgjast með íslenska boltanum.
Популярен в
Этот подкаст также попадал в подкаст-чарты этих стран.