Sjókastið
Aríel Pétursson
0
<p>Sjókastið er hlaðvarp sem tengir sig við hafið með lifandi hætti, stýrt af Aríel Péturssyni, formanni Sjómannadagsráðs.</p>
Эпизоды
-
#28 Anna Kristjánsdóttir - vélstjórinn þjóðþekkti 02.06.2026 1ч 47минÍ þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel Pétursson við Önnu Kristjánsdóttur, vélstjóra, sjómann, pistlahöfund og eina þekktustu samfélagsrödd Íslands. Anna segir frá uppvextinum, árunum á sjónum, starfinu sem vélstjóri og fjölskyldulífinu áður en hún steig fram og hóf eitt eftirtektarverðasta persónulega ferðalag sem íslenskt samfélag hefur orðið vitni að. Við ræðum um lífið á sjó, fjölskylduna, innri togstreitu, samfélagsbreytingar, Tenerife-árin, vinsæla pistla hennar og hvernig húmor, sjál...
-
#27 Gísli Jóhann Hallsson - yfirhafnsögumaður 26.05.2026 1ч 9минHvað þarf til að taka við stjórninni þegar stærstu skip heims sigla inn á íslenskar hafnir? Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Gísla Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumann Faxaflóahafna, manninn sem hefur það hlutverk að leiða risaskip óhult inn til hafnar. Gísli segir frá leiðinni inn í starfið, ábyrgðinni sem fylgir því að taka ákvarðanir undir mikilli pressu og hvernig það er að stíga um borð í erlend skip og taka við leiðsögninni þegar ekkert má fara úrskeiðis. Við ræðum skemmtiferða...
-
#26 Jón Steinar Árnason - áhættusækni skipstjórinn og frumkvöðullinn 28.04.2026 1ч 47минÍ þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Steinar – skipstjóra, útgerðarmann og frumkvöðul sem hefur tekið stóra slagi, unnið mikla sigra en jafnframt tekið dýfur og alltaf lent á fótunum aftur. Hann ólst upp á Seyðisfirði, fór ungur á sjó og mótaðist snemma af hörðum veruleika sjómennskunnar. Leiðin lá á Gullfoss, í stýrimannaskólann og áfram í skipstjórn þar sem ábyrgðin var algjör. En sagan stoppar ekki þar. Jón fór út í viðskipti af krafti, byggði upp eignir og rekstur – og lét ekk...
-
#25 Hörður Kjartansson – húsvörður á daginn, bjargvættur á kvöldin 15.04.2026 1ч 2минHörður Kjartansson er einn af þessum mönnum sem halda samfélaginu gangandi án þess að berja sér á brjóst Í áratugi starfaði hann sem húsvörður hjá Hrafnistu og Sjómannadagsráði – þar sem hann varð fljótt þekktur sem maðurinn sem vissi allt, gat lagað allt og sagði aldrei nei. Hann náði einstöku sambandi við íbúa hjúkrunarheimilisins og var hvers manns hugljúfi, en á bak við hlýjuna leyndist líka uppátækjasamur hrekkjalómur og ótal sögur sem lifa enn í veggjum staðarins. Samhliða þessu var Hör...
-
#24 Gaui „Smái“ Hafsteinn – stökk í ískaldan sjó til að bjarga flugmanni 09.03.2026 1ч 7минÍ þessum þætti af Sjókastinu sest Aríel niður með sjómanninum Guðjóni Hafsteini Guðmundssyni, eða Gauja smáa, sem byrjaði aðeins 14 ára gamall til sjós og á að baki nær fjörutíu ára feril á íslenskum togurum. Guðjón segir frá fyrstu ferðinni sem messagutti á Gullfossi, lífinu á síðutogurunum, hvernig menn gátu farið þrisvar á kaf á einni vakt, og þeirri miklu byltingu sem varð þegar skuttogararnir komu til sögunnar. Í þættinum rifjar hann einnig upp magnað björgunarafrek á togaranum Vigr...
-
#23 Frosti Logason - alltaf á móti straumnum 09.02.2026 1ч 11минÍ þessum þætti ræðir Aríel við Frosta Logason, rokkara, fjölmiðlamann og hlaðvarpsstjórnanda sem hefur orðið ein umdeildasta rödd íslenskrar samfélagsumræðu á síðustu árum. Farið er yfir lífshlaup Frosta; fjölmiðlaferil hans, trúleysið og síðar meir trúrækni, menningardeilur samtímans og sjómennskuna sem Frosti hellti sér út í og togar alltaf í hann. Þetta er opið, persónulegt og krefjandi samtal þar sem leitað er að því sem liggur undir yfirborðinu.
-
#22 Sigurður Jökull - talsmaður skemmtiferðaskipa 27.01.2026 1ч 9минSkemmtiferðaskipin eru eitt umdeildasta mál íslenskrar ferðaþjónustu. Gullnáma eða ágangur? Í þessum þætti af Sjókastinu ræðum við við Sigurð Jökul, lobbyista skemmtiferðaskipabransans á Íslandi. Við förum yfir stærð greinarinnar, efnahagsleg áhrif, álag á hafnir og samfélög – og spyrjum stóru spurninganna um ábyrgð, umhverfi og siðferði. Hversu miklu skila skemmtiferðaskipin raunverulega til þjóðarinnar? Eru hafnir og innviðir að bera kostnaðinn? Hvað með kolefnisspor skipanna og loftgæði í ...
-
#21 Kári Stefánsson - Óþægilega heiðarleigi vísindamaðurinn 13.01.2026 1ч 2минKári Stefánsson í Sjókastinu – kjaftshögg, húmor og kaldur sannleikur Í þessum þætti fáum við Kára Stefánsson í eitt beittasta og skemmtilegasta viðtal sem við höfum tekið í Sjókastinu. Við förum vítt og breitt og stingum á ýmis kýli en alltaf með húmorinn og heiðarleikann í forgrunni. Við ræðum meðal annars: af hverju Kári „býður fólki reglulega upp á kjaftshögg“ í umræðunniskoðanir hans á sjávarútvegi og sjómönnumhvers vegna hann nennir ekki kurteisisleik þegar sannleikurinn er í húfi...
-
#20 Reynir Traustason - umdeildi blaðamaðurinn af sjónum 16.12.2025 1ч 10минKrassandi viðtal við Reyni Traustason í Sjókastinu. Reynir er sjómaður að upplagi sem fór inn í blaðamennsku af fullum þunga og hefur lifað lífi sem minnir fremur á skáldsögu en ferilskrá. Í viðtalinu ræðum við meðal annars: þegar hann smyglaði amfetamíni frá Amsterdamhótanir og átök vegna blaðamennskureynslu hans af lífsbjörg á sjórithöfundastörf og lífsviðhorfhvernig sjómennska mótar karakter og dómgreindÓritskoðað, hreinskiptið og stundum óþægilegt – eins og góð viðtöl eiga að vera.
-
#19 Hanna Katrín atvinnuvegaráðherra 26.11.2025 1ч 1минÍ þessum þætti tekur Aríel á móti Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Við ræðum persónulega reynslu hennar og förum svo beint í stærstu hitamál sjávarútvegsins: • hækkun veiðigjalda og áhrif þeirra á smærri fyrirtæki • hvort auknar álögur dragi úr fullvinnslu og störfum á Íslandi • fiskeldi – þjóðhagslegur ávinningur strax eða í fjarlægri framtíð? Beinskeyttur og upplýsandi þáttur fyrir þá sem vilja kafa í raunveruleg áhrif stefnumótunar á sjávarútveg og samfélag.
-
#18 Þór Sigfússon - Guðfaðir Sjávarklasans 13.11.2025 51минÞór Sigfússon hefur gegnt lykilhlutverkum í íslensku viðskiptalífi allt frá því að stýra Verzlunarráði og Sjóvá yfir í að stofna og leiða Íslenska sjávarklasann. Í þessum þætti ræðum við líf hans og leiðir, hugmyndina um „100% nýtingu“ sjávarauðlinda og hvernig samstarf, tengslanet og nýsköpun geta umbreytt heilli atvinnugrein. Við förum líka inn í manneskjuna sjálfa. Hvað drífur hann áfram og hvaða lærdóma hann hefur dregið frá árunum í viðskiptum og frumkvöðlastarfi. Hefur klasinn í raun sk...
-
#17 Jón Frímann Eiríksson - skipstjórinn kornungi 21.10.2025 1ч 24минÍ þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Frímann Eiríksson, skipstjóra sem hóf feril sinn ungur og hefur alla tíð lifað og andað fyrir sjómennsku. Jón Frímann segir frá fyrstu árum sínum á sjó, ábyrgðinni sem fylgir því að stýra skipi og þeirri sýn sem hann hefur mótað á lífið og tilveruna úti á hafi. Þeir ræða einnig um hvernig breyttir umhverfisþættir hafa áhrif á lífríki sjávar — og hvernig gervigreind og ný tækni gæti í framtíðinni orðið nytsamleg við fiskleit og ákvarðanir til ha...
-
#16 Vilhjálmur Birgisson - Baráttumaður af Skaganum 07.10.2025 1ч 25минÍ þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel Pétursson við Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambands Íslands og Verkalýðsfélags Akraness. Vilhjálmur hefur lengi verið einn skýrasti og beinskeyttasti talsmaður launafólks á Íslandi — maður sem hikar ekki við að segja hlutina eins og þeir eru. Í þættinum fer Aríel með Vilhjálmi yfir lífshlaup hans, baráttu fyrir réttlæti á vinnumarkaði og hvernig uppeldi og reynsla úr sjávarplássi mótaði sýn hans á samfélagið. Þeir ræða stöðu sjómanna, kjaras...
-
#15 Pétur Jakob Pétursson - svissneski vasahnífur sjávarútvegsins 30.09.2025 1ч 2минÍ þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Pétur Jakob Pétursson, fyrrum sjómann og margfróðan sjávarútvegsfræðing sem ólst upp í Grímsey og á að baki langa reynslu á sjó og í sjávarútvegi. Við förum yfir æskuárin á eyjunni, störf hans hjá Samherja og hvernig hann sér íslenskan sjávarútveg í samanburði við erlendan. Einnig ræðum við sóknarfæri í veiðum, vinnslu og tækni, viðkvæm mál eins og auðlindagjöld og samskipti við viðskiptaþjóðir – og ekki síst, hvort hann sakni þess að vera sjálfur ...
-
#14 Guðrún Hafsteinsdóttir - Formaður Sjálfstæðisflokksins 23.09.2025 1ч 52минGuðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, sest niður í Sjókastinu. Við ræðum persónulega hlið hennar sem sjómannsfrú, fjölskylduna, reynsluna úr atvinnulífinu og starfið í ráðherrastól. En við förum líka í stóru pólitísku málin: klofinn flokk, landamærin, veiðigjöldin, brennivín í búðir og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn getur endurheimt tiltrú almennings. Opinskátt og persónulegt spjall sem veitir innsýn í konuna sem leiðir XD – og framtíð stærsta f...
-
#13 Guðmundur Helgi Þórarinsson - formaður VM 16.09.2025 1ч 51минÍ þessum þætti af Sjókastinu sest Aríel niður með Guðmundi Helga Þórarinssyni, einum af röddum sjómanna á Íslandi undanfarna áratugi. Við ræðum æskuár hans og fyrstu skref á sjó, baráttuna í kjaramálum, gagnsæi í verðlagningu, auðlindarentumál og lífeyrisréttindi sjómanna. Guðmundur Helgi fer líka yfir helstu áfanga í félagsmálum, áskoranir sem sjómenn hafa staðið frammi fyrir, og framtíð íslensks sjávarútvegs – með beinskeyttum skoðunum og umbúðalausu samtali. Þetta er viðtal sem enginn sem ...
-
#12 Valdimar Víðisson - sjómaður sem varð bæjarstjóri 02.09.2025 1ч 14минÍ þessum þætti af Sjókastinu hittum við Valdimar Víðisson, bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Hann segir frá uppvexti sínum á Vestfjörðum, árum sínum á sjó og hvernig leiðin lá þaðan í kennslu, skólastjórn og pólitík. Við ræðum áherslur hans í bæjarstjórn, sýn hans á framtíð Hafnarfjarðar og gagnrýna umræðu um íslenska menntakerfið. Kynntu þér manninn á bak við titilinn – sjómaðurinn, skólastjórinn og bæjarstjórinn.
-
#11 Kjartan Páll - strandveiðibaráttumaður og háskóladoktor 24.06.2025 1ч 17минÍ þessum þætti hittum við Kjartan Pál Sveinsson, formann Félags strandveiðimanna, og föru yfir það hvað strandveiðar eru í raun: lífsviðurværi, táknræn barátta fyrir réttlátari dreifingu auðlindarinnar – eða kerfi óhagkvæm leið til að afla þjóðarbúinu tekna. Við kynnumst Kjartani sem er doktor í félagsfræði, flakkaði heimshorna á milli og lenti í fangelsi í Egyptalandi. Við skyggnumst í hugmyndafræðina á bak við strandveiðihreyfinguna, gagnrýni á kvótakerfið og spyrjum hvort þjóðin vilji mát...
-
#10 Markús Alexandersson - níræður skipstjóri í fullu fjöri 17.06.2025 55минMarkús Alexandersson hóf sjómannsferil sinn í Noregi aðeins 18 ára gamall og sigldi meðal annars á olíuskipum milli Asíu og Miðausturlanda á tímum Kóreustríðsins. Í þessum þætti segir hann frá ævintýrum sínum á úthöfunum, lífinu um borð og kraftmikilli ævi á sjó og landi.
-
#9 Georg Lárusson - forstjóri Landhelgisgæslunnar 10.06.2025 1ч 17минÍ þessum þætti ræðum við við Georg Kr. Lárusson, forstjóra Landhelgisgæslunnar. Við kynnumst Georgi á persónulegu nótunum, ræðum við hann um hvort fókus Gæslunnar eigi að vera á leit og björgun eða þá varnarmál. Við heyrum um fjaðrafok í kringum hugmyndir um sölu á flugvél Gæslunnar, olíukaup skipanna í Færeyjum, samspil ríkis og varnarstefnu, gagnrýni á utanríkisstefnu Íslands og framtíð landsins sem herlaus þjóð. Við köfum í pólitíska ábyrgð, fjármögnun og öryggishugsun í brey...
Популярен в
Этот подкаст также попадал в подкаст-чарты этих стран.