Víðsjá

Víðsjá

RÚV
Страна Исландия
Жанры Arts
Язык IS
Эпизодов 572
Последний 03.06.2026

Víðsjá er íslenskur menningarþáttur sem fjallar um listir og menningu. Umsjónarmennirnir Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir varpa ljósi á það sem efst er á baugi hverju sinni, skoða menningu nær og fjær frá ólíkum sjónarhornum og setja skapandi miðla undir smásjána.

Эпизоды

  • Fischersund / Svipmynd 03.06.2026 48мин
    „Það er í raun mjög fyndið að við höfum öll farið þessa leið,“ segja systurnar Lilja, Ingibjörg og Sigurrós Birgisdætur um leiðina inn í myndlistina, en þær stofnuðu ásamt Jónsa bróður sínum ilmhúsið Fischersund sem hefur sprungið út sem hálfgerð sköpunarverksmiðja þar sem ilmvörur en líka myndlist og tónlist streyma út. „Pabbi er vélsmiður og mamma sjúkraliði, en það er kannski þetta traust og þetta frelsi sem að þau veita okkur sem gerir þetta að verkum. Þau eru ofboðslega skapandi og án þess að vera beint að skapa listaverk, þá eru þau lausnamiðuð og gera hlutina sjálf.“ Fischer systur eru gestir Víðsjár í dag og við ræðum ilmtónleika og hugmyndir að baki ilmi Listahátíðar Reykjavíkur en líka allt milli himins og jarðar; æskuna í Mosfellssveti, landasala, húsanda, útiveru og skapandi leiki. Lyktina af náttúru Íslands, minningarnar sem hún kveikir og lífið sem hún hefur gefið fjölskyldunni í formi sköpunarverka en einnig samveru og nýrra minninga.
  • Samfélag heilagra, barnaefni á 14. öld og Franziscuskóli á Skriðuklaustri 02.06.2026 50мин
    Í Víðsjá dagsins rennum við upp að herrasetrinu á menningar- og sögustaðnum Skriðuklaustri og hittum þar Oddnýju Eir Ævarsdóttur, nýjan forstöðumann Gunnarsstofnunar, sem tók við því starfi í janúar síðastliðnum. Meðal þess sem hún er með í farvatninu er glænýr skóli fyrir skrifandi fólk sem hún kallar Franziscuskóla. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, segir okkue frá Kálfi munki á 14. öld sem orti ekki bara helgikvæði heldur samdi líka barnaefni. Og við kynnum okkur nýútkomið bókverk úr smiðju Birtings, hóps rithöfunda í Ritlist við Háskóla Íslands og tveggja ritstjóra úr Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við sama skóla. Bókin Samfélag heilagra er sagnasveigur sem hverfist um rannsókn á mannlegu samfélagi þar sem umbreytandi tímamót í lífi og dauða fólks eru krufin.
  • Í beinni á Listahátíð 01.06.2026 51мин
    Sameiginleg bein útsending Víðsjár og Lestarinnar frá Iðnó, sem hefur nú verið umbreytt í klúbb Listahátíðar í Reykjavík. Viðmælendur í þættinum eru Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, Hrefna Lind Lárusdóttir, Eygló Höskuldsdóttur, Kjartan Hólm, Rósa Jóhannesdóttir, Helgi Zimsen, Jóhannes Zimsen, Viðar Eggertsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Chloe Loftus og Florent Devlesaver.
  • Heyr himna og glænýir nýræktarstyrkhafar 28.05.2026 52мин
    Við lítum í heimsókn í sögufrægt hús hér í borg, Englaborg við Klambratún, þar sem myndlistarmaðurinn Sigtryggur Bjarni Baldvinsson býr ásamt fjölskyldu sinni. Jón Engilberts og eiginkona hans Tove Engilberts byggðu húsið eftir heimkomu frá Kaupmannahöfn en örlögin höguðu því þannig að Sigtryggur og fjölskylda keyptu Englaborg af Engilberts-fjölskyldunni. Stór hluti hússins er vinnustofa og í dag opnar Sigtryggur Bjarni sýningu á vinnustofunni. Við fáum líka innlit frá glænýjum handhöfum nýræktarstyrkja frá Miðstöð íslenskra bókmennta, en tilkynnt var um styrkhafa þeirra í Gunnarshúsi kl 16 í dag.
  • Svipmynd af Skaftfelli á Seyðisfirði 27.05.2026 54мин
    Menningarmiðstöðin Skaftfell á Seyðisfirði var stofnuð árið 1998 og er ein langlífasta sjálfstæða listamiðstöð á landinu. Skaftfell hefur frá upphafi staðið fyrir öflugu sýningahaldi með áherslu á samtímalist og þar hefur líka verið starfrækt veitingahús og gestavinnustofa, sem að öllum líkindum er sú fyrsta sinnar tegundar á landinu. Að baki stofnun Skaftfells stóð öflugur hópur einstaklinga úr ólíkum áttum sem lagði til ómælda vinnu og mikla ástríðu til þess að sjá Skaftfell verða að veruleika. Við ætlum í svipmynd dagsins að huga að þessari merkilegu listamiðstöð, menningarhjarta Austurlands. Rætt er við Tinnu Guðmundsdóttur, myndlistarkonu, fyrrum forstöðukonu og höfund nýrrar bókar um tilurðarsögu Skaftfells, en auk þess Þóru Guðmundsdóttur, arkitekt og frumkvöðul, Pétur Kristjánsson, þjóðfræðing, myndlistarmann og fyrrum forstöðumann Tækniminjasafnsins á Seyðisfirði, Unu Björgu Magnúsdóttur, myndlistarkonu, Þóri Höskuldsson, myndlistarmann og Önnu Margréti Ólafsdóttur, verkefnastjóra í Skaftfelli.
  • Bókmenntir Venesúela, viðgerð á brothættri skál og pistill frá Hauki Þorgeirssyni 26.05.2026 52мин
    „Það sem bókmenntin hefur er að draga fólk saman. Við getum ekki elskað það sem við kunnum ekki. Þannig að það er minn heiður að geta gefið eitthvað út frá Venesúela, sem kannski kynnir fyrir Íslendingum hvernig við erum sem þjóð í Venesúela,“ segir Helen Cova rithöfundur og bókaútgefandi hjá Karíba útgáfunni, en hún var að gefa út fyrstu íslensku þýðinguna á skáldsögu frá Venesúela, Mamma mjöll og minningar hennar eftir Teresu da la Parra í þýðingu Kristínar Guðrúnar Jónsdóttur. Þær verða báðar gestir okkar í dag en á morgun verða þær einnig með erindi í Veröld á viðburði um bókmenntir Venesúela og svo aftur um helgina á Bókmenntahátíð Flateyrar. Meira um hana og Mömmu Mjöll í þætti dagsins. Einnig er sviðslistakonan Steinunn Knúts Önnudóttur heimsótt og Haukur Þorgeirsson flytur pistil um rímur frá 15.öld um frúna Ólíf
  • Skáldaþing í Múlaþingi, Ómur í Selárdal, Nína Hjálmars um Feneyjatvíæring 21.05.2026 51мин
    Í gær hófst 11 daga ljóðahátíðin Skáldaþing, með viðburðum á Egilsstöðum, Hallormsstað og Seyðisfirði, en á hátíðinni verða ýmsar ljóðatengdar uppákomur og viðburðir, myndlistarsýningar og gjörningar. Víðsjá byrjaði daginn á því að hlusta á ljóðalestur í sundi á Egilsstöðum og ræða við þær Kötlu Rut Pétursdóttur og Gunnhildi Þórðardóttur, skáld, myndlistarkonur og verkefnastjóra ljóðahátíðanna Skáldasuðs og Skáldaþings, og forstöðumann Sláturhússins á Egilsstöðum, Ragnhildi Ásvaldsdóttur. Við heyrum einnig í meðlimum Listvinnzlunnar sem opna sýninguna Ómur, í Selárdal í Arnarfirði um helgina, í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Og Nína Hjálmarsdóttir flytur pistil um Feneyjatvíæringinn þar sem hún spyr meðal annars; Geta lönd átt í diplómatískum samskiptum á sviði listarinnar í skugga þjóðarmorðs?
  • Yrsa Roca Fannberg / Svipmynd 20.05.2026 52мин
    Yrsa Roca Fannberg er gestur Víðsjár í dag en hún er tilnefnd til Edduverðlauna sem leikstjóri ársins. Yrsa er fædd í Reykjavík árið 1973 en hefur búið stóran hluta ævi sinnar á Spáni og í Svíþjóð. Hún ólst upp við ferðalög og ævintýri á jafn ólíkum eyjum og Formentera og Flatey, svo forvitni og áhugi á eðli manneskjunnar varð snemma hluti af lífinu. Hún sökk inn heim kvikmyndanna þegar hún var við nám í myndlist í London en eftir að hafa séð verk armenska leikstjórans Harutyun Khachatryan á kvikmyndahátið í Edinborg, þá var ekki aftur snúið. Við tók nám í heimildamyndagerð í Barcelona þar sem hún hóf vinnu við sína fyrstu mynd, Salóme. Myndin átti að vera portrett af móður hennar, veflistakonunni Salóme E. Fannberg, en varð á endanum mynd um samband þeirra mæðgna og um eðli heimildamynda. Árið 2019 kom Síðasta haustið, sem fjallar um síðasta haust ábúenda á afskekktum sauðfjárbæ á Ströndum og í fyrra frumsýndi Yrsa sína þriðju mynd, Jörðin undir fótum okkar. Hún gerist á dvalarheimilinu Grund og fjallar um síðasta æviskeið lífsins. Yrsa hefur starfað á Grund undanfarin 13 ár meðfram því að búa til heimildamyndir og kenna skapandi heimildamyndagerð við Háskóla Íslands.
  • Rót brúðusýning, Huldur Í fossgljúfri og Nína Hjálmars í Feneyjum 19.05.2026 52мин
    Kammerkórinn Huldur var stofnaður fyrir um fimm árum síðan. Kórinn samanstendur að mestu af fyrrverandi meðlimum kórs Menntaskólans við Hamrahlíð en stofnandi kórsins og kórstjóri er Hreiðar Ingi Þorsteinsson. Huldur hefur nú gefið út plötu sem kallast Í fossgljúfri en meirihluti verkanna er saminn af meðlimum kórsins. Við fáum tvo þeirra til að segja okkur frá plötunni, þá Kormák Loga Bergsson og Arvid Ísleif Jónsson Schirmacher. Rót er ný ljóðræn brúðuleiksýning fyrir alla fjölskylduna sem sýnd verður á Listahátíð í Reykjavík. Verkið er úr smiðju Handbendi, margverðlaunaðs brúðuleikhúss á Norðvesturlandi sem stofnað var árið 2016 af Gretu Clough leikstjóra, leikara og flytjanda. Þau Sigurður Arent Jónsson, leikari og brúðuleikari heimsækja hljóðstofu. Nína Hjálmarsdóttir, menningarrýnir, segir okkur frá sinni upplifun af Feneyjatvíæringnum, en hún er nýkomin heim eftir að hafa verið á svæðinu að skoða myndlist í heila fimm daga.
  • Jöklaminni, Tumi Árna um Jazzþorpið, Haukur Þorgeirs pistill #8 18.05.2026 54мин
    „Við reiðum okkur á gögn sem eru útreiknuð í samhengi við náttúru og veðurfar og erum auðvitað griðarlega þakklát fyrir það. En að sama skapi þá býr það til þessa fjarlægð, og þessa kannski stjórnunaráráttu okkar gagnvart náttúru og umhverfi. Að halda að við getum nýtt okkur þessi gögn að öllu leyti, sem er auðvitað ekki rétt. Og það er kannski þetta hráa og berskjaldaða í okkur sem þarf að vera til, af því að það býr til rás inn í ímyndunaraflið og kraft inn í það að geta hugsað í lausnum.” Þær Julie Sjöfn Gasiglia, Vala Sigþrúðar Jónsdóttir og Þóranna Björnsdóttir segja frá þverfaglegu verkefni sem kallast Art/Earth: Jöklaminni. Í því mætast lista og vísindafólk frá Íslandi og Belgíu til að rannsaka loftslagsbreytingar á svæðum þar sem áhrifin eru þegar orðin áþreyfanleg. Við sögu koma skógarbotnar, vindar, ár og bjórar. Í þætti dagsins segir Tumi Árnason einnig frá Jazzþorpinu í Garðabæ og Haukur Þorgeirsson fer með okkur í heim rímna á 14.öld.
  • Aldrei las ég Laxness / Salka Valka 13.05.2026 56мин
    Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Salka Valka sem kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932, og segir verkið sögu Salvarar Valgerðar Jónsdóttur, sem er kölluð Salka Valka, en hún elst upp á Óseyri við Axlarfjörð, á miklum umbrotartímum í lífi íslensku þjóðarinnar. Samlesari Sölku Völku og sérstakur gestur þáttar er Bergur Ebbi, rithöfundur og fyrirlesari. Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta verk sem tekið verður fyrir í bókaklúbbnum verður smáskáldsagan Úngfrúin góða og húsið; dagsetning verður nánar auglýst síðar.
  • Í hæfilegu magni, leturgerðin Rúna og Mzungo/rýni 12.05.2026 48мин
    Ljóðskáldið Heiða Vigdís Sigfúsdóttir gaf nýverið út ljóðabókina Í hæfilegu magni hjá Forlaginu. Þar fylgir lesandi konu sem virðist í upphafi falla að öllum helstu viðmiðum samfélagsins, en reynist eftir því sem á líður búa yfir fjölbreyttari karaktereinkennum en þar rúmast. Við ræðum við Heiðu í þætti dagsins og kynnum okkur einnig nýja leturgerð sem kallast Rúna en það er grafíski hönnuðurinn og myndlýsarinn Elías Rúni sem hannaði letrið upp úr handskrift listakonunnar Rúnu, en hún féll frá 99 ára að aldri í byrjun mánaðarins. Og Gauti Kristmannsson fjallar um skáldsöguna Mzungu, eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur og Simon Okoth Aora, sem kom út hjá Angustúru fyrr í vetur
  • Gabríela Friðriksdóttir, Hinsegin Salka Valka, Haukur Þorgeirs pistill #7 11.05.2026 52мин
    „Ef maður er ekki alltaf að, þá er hjartað manns ekki opið fyrir tækifærunum. Í gamla daga voru menn oft að vinna bara fyrir ákveðnar sýningar, en ég held að þetta sé öfugt. Þú bara gerir og gerir og þá kemur sýningin til þín. Þetta er þannig sem þetta virkar,“ segir Gabríela Friðriksdóttir. Í vikunni verður sýndarveruleika innsetningin Playing with Fire, sem hún gerði í samstarfi við píanóstjörnuna Yuja Wang og leikstjórann Pierre-Alain Girraud, frumsýnd í Cannes, en verkið er tilnefnt til Gullpálmans í flokki alltumlykjandi innsetninga. Verkið var frumflutt í Fílharmóníunni í París fyrr í vetur og verður sýnt víða um heim í framhaldinu, en Gabríela segir það vera einskonar mannkynssögu fyrir skilningarvitin. Meira um það í þætti dagsins. Ásta Kristín Benediktsdóttir, bókmenntafræðingur, lítur einnig við og segir frá hinsegin lestri á skáldsögunni Sölku Völku eftir Halldór Laxness, og Haukur Þorgeirsson veltir fyrir sér raunveruleikanum á bak við helgikvæði um konur sem dóu fyrir trúarsannfæringu sína.
  • Ásta Fanney, Álfheiður Erla og Ása Bríet 07.05.2026 55мин
    Lady Lazarus, tónleikar sópransönkonunnar Álfheiðar Erlu Guðmundsdóttur og píanistans Kunal Lahiry, eru lokatónleikar á svokallaðri ECHO Rising Stars tónlistarhátíð, sem fer fram í Hörpu um helgina. ECHO Rising Stars er verkefni á vegum samtaka evrópskra tónleikahúsa sem gefur ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að koma fram á bestu tónleikasviðum Evrópu, þar á meðal í Hörpu. Við heyrum nánar af verkefninu og tónleikum þeirra Álfheiðar Erlu og Kunan í þætti dagsins. Við tökum einnig á móti Ásu Bríeti Brattaberg, fata og textílhönnuði, en hún býr í París þar sem hún starfar við prjónadeild Dior tískuhússins. Ása Bríet sýnir og segir frá masterslínu sinni frá París í tengslum við Hönnunarmars í Norræna húsinu á morgun, en sú lína er innblásin af tímabili í Íslandssögunni sem við köllum Ástandið. En við hefjum þáttinn á því að hringja til Feneyja, þar sem allt iðar af lífi, myndlist og spennu því stærsti myndlistarviðburður heims opnar dyr sínar á laugardag, 9.maí. Ásta Fanney Sigurðardóttir er fulltrúi okkar á æringnum, en við hringjum í fulltrúa menningarþátta Rásar 1 á svæðinu, Kristján Guðjónsson, til að heyra af stemningunni í aðdraganda opnunar.
  • Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður 06.05.2026 44мин
    Endurfluttur þáttur frá 2024: Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er fædd í Reykjavík árið 1960 en bjó um árabil í Frakklandi, Ítaliu og Bandaríkjunum. Hún stundaði nám í fatahönnun í París og við Parson School of Design í New York. Eftir útskrift starfaði hún hjá erlendum tískuhúsum á borð við Calvin Klein, Ralph Lauren, La Perla og Gucci, en ákvað árið 2000 að flytja heim til Íslands og stofna sitt eigið merki: Steinunn. Síðan þá hefur Steinunn einnig rekið verslun í verbúðunum á Granda, þar sem hún framleiðir í takt við eftirspurn vel sniðin föt úr hágæðaefnum. Hún segist lifa í núinu þökk sé fjölfötluðum syni sem hefur kennt henni meira um lífið en allt annað, hún klæðist ull frá toppi til táar alla daga, allan ársins hring og helst bara svörtu.
  • Forvitin rauð á Hönnunarmars, Freyja heimspekipistill, Innblástur-rýni 05.05.2026 50мин
    Síðastliðin misseri hafa tveir grafískir hönnuðir, þær Hólmfríður Benediktsdóttir og Una María Magnúsdóttir kafað ofan í heim tímaritsins Forvitin rauð, málgagn íslensku rauðsokkahreyfingarinnar. Tímaritið kom út einu sinni til tvisvar á ári frá 1972 til 1982, og voru umfjöllunarefnin jafnréttismál, stjórnmál og bókmenntir. Þær Hólmfríður og Una María opna sýningu á afrakstri rannsóknarvinnu sinnar á Hönnunarmars og þær segja frá vinnunni og áhrifum kvenna sem prenta saman í þætti dagsins. Trausti Ólafsson rýnir í Innblástur og Freyja Þórsdóttir veltir fyrir sér mikilvægi tungumálsins og sannleikans, m.a. í samhengi við tímana sem við lifum og einkennast af upplýsingaóreiðu, tíma eftirsannleikans.
  • Suðurríkjaherforingi frá Big Sur, Margot Gamm, Haukur Þorgeirs pistill#6 04.05.2026 50мин
    Í þætti dagsins ræðum við við Þórð Sævar Jónsson, þýðanda og skáld, um þýðingu sem hann var að senda frá sér á skáldsögu bandaríska rithöfundarins Richard Brautigans, Suðurríkjaherforingi frá Big Sur. Haukur Þorgeirsson fer með okkur aftur til hins kaþólska Íslands og heyrum við brot úr Katrínardrápum og öðrum kvæðum um heilagar meyjar. Við sláum einnig á þráðinn austur á Höfn í Hornafjörð en þar opnaði nýverið sýningin Hlýja og handverk í Svavarssafni þar sem gefur að líta verk eftir kennarann og handverkskonuna Margot Gamm en hún auðgaði líf menningarlíf Hornarfjarðar með listfengi sínu í áratugi.
  • Salka: Ástin og dauðinn 30.04.2026 55мин
    Í þættinum tökum við örlítið forskot á bókaklúbbinn Aldrei las ég Laxness og ræðum fyrsta hluta Sölku Völku og sýninguna Salka; Ástin og dauðinn, við leikkonuna, leikskáldið og leikstjórann Unni Ösp Stefánsdóttur. Sýningin er einleikur á vegum þjóðleikhússins og Landnámsseturs Íslands, byggður á fyrsta bindi skáldsögunnar og hefur vakið umtalsverða athygli undanfarna mánuði.
  • Alþjóðlegi dansdagurinn og svipmynd af Ástu Fanney 29.04.2026 53мин
    Í þættinum flytur Steinunn Ketilsdóttir, danshöfundur og framkvæmdastjóri Dansverkstæðisins, ávarp í tilefni af Alþjóðlega dansdeginum 2026. Einnig endurflytjum við svipmynd sem Víðsjá gerði af feneyjafara Íslands í ár Ástu Fanneyju Sigurðardóttur. Svipmyndin er frá 2024.
  • Þykjó, Sölvi Kolbeinsson, +1 og stígvél 28.04.2026 53мин
    Í Víðsjá dagsins hittum við Sigríði Sunnu Reynisdóttur, einn af hönnuðum Þykjó, og ræðum við hana um hönnunarteymið og hljóðfærasmiðju sem þær standa fyrir í Jazzþorpinu í Garðabæ. Við heyrum einnig af verkum Sölva Kolbeinssonar og Ingibjargar Elsu Turchi og Hróðmars Sigurðssonar en öll koma þau fram í Jazzþorpinu. Þá rifjum við upp fimm ára ráðgátu frá ströndum þar sem forláta stígvéli skolaði þar á land árið 2021.

Популярен в

Этот подкаст также попадал в подкаст-чарты этих стран.