Morðskúrinn

Morðskúrinn

mordskurinn
Krajina Island
Jazyk IS
Epizódy 300
Najnovšia 15.07.2026

Þú finnur okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn.

Epizódy

  • Tiffany Campbell og Melissa Chilton 15.07.2026 42min
    Árið 1996 höfðu vinkonurnar Tiffany og Melissa báðar starfað á ljósabekkjastofu sem var sérstaklega fyrir karlmenn - en þar gátu þeir sótt sér auka þjónustu sem ekki bauðst á hefðbundnum ljósabekkjastofum. En það var þar sem að lík þeirra beggja áttu eftir að finnast einn góðan veður dag en þær höfðu báðar verið stungnar til bana. Við tók rannsókn sem að leiddi lögreglu í margar áttir og enn er mörgum spurningar ósvarað.   Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn 
  • Orrin og Orson West 08.07.2026 35min
    Orrin og Orson voru tvær bræður sem höfðu fljótlega eftir fæðingu verið færðir í fósturkerfið sökum vanrækslu heima fyrir. Þeim var komið fyrir í fóstri hjá Jacqueline og Trezell West og þar átti lífið aldeilis að byrja. Fjölskyldan flutti frá Bakersfield til California City, en ekki löngu eftir það voru strákarnir tilkynntir týndir. Að sögn Trezell höfðu þeir verið úti í garði að leika sér þegar þeir hurfu, líklegast í gegnum hliðið í garðinum. Rannsókn lögreglu leiddi til tímalínu dularfullra atburða sem átti eftir að láta þá vilja breyta stefnu rannsóknarinnar.  Þátturinn er í boði Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum.  Þátturinn er í boði Heimaskipulag en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt á heimasíðu og í verslun. 
  • Sherita Williams 01.07.2026 37min
    Þegar hin 16 ára gamla Sherita Williams skilaði sér ekki heim úr snyrtitíma þá vöknuðu upp spurningar hjá foreldrum hennar. Sherita var öllu jafna mjög samviskusöm stelpa en átti það þó til að biðja foreldra sína um örlítið meira frelsi svo þau héldu ró sinni. En daginn eftir stóð þeim ekki á sama og úr varð leit.   Þátturinn er í boði HeimaskipulagDefine the Line Sport   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn   
  • Krim börnin 24.06.2026 31min
    Krim hjónin ákváðu að ráða inn barnfóstru þar sem fjórða barn þeirra var á leiðinni og það var nóg að gera hjá þeim, en sú ákvörðun átti eftir að reynast þeim ansi dýrkeypt.  Þátturinn er í boði - Define The Line - Heimaskipulag
  • Helen McCourt 17.06.2026 45min
    Þann 9. febrúar árið 1988 var hin 22 ára gamla Helen McCourt að drífa sig heim að borða kvöldmat því hún átti planað stefnumót með kærastanum sínum. Þennan dag hafði hún sérstaklega beðið móður sína um að hafa matinn tilbúinn þegar hún kæmi heim og var því afar óvenjulegt þegar Helen seinkaði. Fljótt var þó ljóst að Helen var ekki sein, hún var horfin.   Þátturinn er í boði Define the Line Heimaskipulag   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn  
  • Rey Rivera 10.06.2026 49min
    Árið 2006 hafði Allison, eiginkona Rey, ferðast út úr bænum í vinnuferð. Þegar hún ætlaði að heyra í eiginmanni sínum til að láta hann vita að hún væri komin á leiðarenda þá fékk hún engin svör. Morguninn eftir stóð henni ekki lengur á sama og ákvað að aka heim og þar með tilkynna hvarf hans. Sex dögum síðar fannst bíllinn hans lagður nálægt Belvedere hótelinu í Baltimore og ekki leið á löngu þar til lík hans kom til með að finnast innan þess svæðis.  HEIMASKIPULAG: Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.heimaskipulag.is DEFINE THE LINE: Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.definetheline.is 
  • Keeshae Jacobs 03.06.2026 50min
    Keeshae Jacobs var 21 árs gömul þegar hún kvaddi mömmu sína kvöld eitt og sagðist ætla út að hitta vin. Keeshae hafði þennan dag rifist við kærastann sinn og var mamma hennar ekkert hissa á að hún vildi finna sér eitthvað skemmtilegt að gera. Það lág fyrir að hún ætlaði að gista en þegar næsti dagur rann upp og ekkert bólaði á Keeshae þá fóru áhyggjur að vakna. Við tók langt og flókið ferli sem skilaði fáum svörum.   Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag
  • Elyse Pahler 27.05.2026 30min
    Elyse var 15 ára þegar hún var aðeins farin að óhlýðnast reglum foreldra sinna. Eitt kvöld, eins og svo mörg önnur, setti hún kodda undir sængina og læddist út en kvöldið 22. júlí 1995 var frábrugðið öðrum kvöldum þar sem hún kom ekki til með að skila sér heim.  Áskriftarleiðin okkar kostar 1.390kr.- á mánuði og inniheldur yfir 200 aðgengilega þætti -> www.pardus.is/mordskurinn  Þátturinn er í boði:  - Define The Line en kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.definetheline.is - Heimaskipulag en kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.heimaskipulag.is     
  • Gillian "Jill" Meagher 20.05.2026 49min
    Jill Meagher hafði ákveðið að skella sér út á lífið með vinnufélögum í tilefni afmælis eins þeirra. Barinn sem hún kom til með að eyða kvöldinu á var í minna en km fjarlægð frá heimili hennar sem hentaði vel, endaði gat hún bara gengið heim. Jill átti þó aldrei eftir að skila sér heim.   Þátturinn er í boði  Define the Line Sport  Heimaskipulag   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn  
  • Joleen Cummings 13.05.2026 36min
    Joleen Cummings var farsæl hárgreiðslukona í Fernandina Beach, Flórída, allt til maí 2018 þegar hún hvarf sporlaust. Bíllinn hennar kom til með að finnast yfirgefinn ekki langt frá stofunni og beindist rannsókn fljótt að aðila sem var ekki sá sem hann sagðist vera.  - Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt á www.definetheline.is - Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt á www.heimaskipulag.is 
  • Lawrence "Larry" Scully 06.05.2026 44min
    Larry Scully var fullorðinn maður í litlum bæ í Minnesota og það má með sönnu segja að hann hafi verið með umdeildari mönnum. Larry átti sögu og fortíð sem olli því að fæstir voru hrifnir afþví að umgangast hann mikið - en Levi nokkur var þó með algjöra óbeit á Larry. Þátturinn er í boði Define the Line SportHeimaskipulagPrepp-barinn    Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn 
  • Kadie Major 29.04.2026 34min
    Kadie Major var 26 ára þegar hún fannst látin ásamt 10 mánaða gömlu dóttur sinni árið 2008. Kadie var barnshafandi á þessum tíma, en þær mægður urðu fyrir lest á Moncks Corner svæðinu í Suður-Karólínu. River dóttir hennar hafði þá kastast áfram og drukknað í læk við lestarteinana, og innan nokkurra daga var dánarorsök þeirra úrskurðað sem sjálfsvíg.  Þátturinn er í boði:  Define the Line en með kóðanum morðskúrinn farið þið 15% afslátt inni á www.definetheline.is  Heimaskipulag en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt inni á www.heimaskipulag.is 
  • Clare Bernal 22.04.2026 39min
    Clare Bernal hafði gert allt hvað hún gat til að láta drauma sína um að starfa sem snyrtifræðingur rætast.Markmiði hennar var náð þegar hún var 21 árs gömul og mátti hún vera stolt af því hvert hún var komin í lífinu þrátt fyrir ungan aldur. Lífið svoleiðis lék við hana, alveg þar til að hún mætti til vinnu eitt september kvöld árið 2005.    Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn 
  • Alyssa Burkett 15.04.2026 31min
    Þátturinn er í boði:  - Define the Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt inni á www.definetheline.is - Heimaskipulag en kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.heimaskipulag.is 
  • Hannah Pettey 08.04.2026 42min
    Hin 22 ára gamla Hannah Pettey hafði í nokkra mánuði átt við nokkuð óeðlileg og erfið veikindi áður en hún veiktist alvarlega og endaði á að fá flogakast. Við tók heljarinnar rannsókn en í ljós kom að veikindinn væru engin tilviljun heldur eitrun til lengri tíma.   Þátturinn er í boði Heimaskipulag Define the Line Sport   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn
  • Jennifer Jackson 01.04.2026 38min
    Hin 18 ára Noura Jackson hafði verið úti að skemmta sér með vinum sínum, og þegar hún kom heim einn morgun kom hún auga á móður sína Jennifer látna. Undarleg hegðun hennar átti eftir að gera það að verkum að hún varð varð grunuð um að hafa myrt móður sína, en gerði hún það?  Samstarfsaðilar þáttarins eru:  - Kóðinn morðskúrinn veitir ykkur 15% afslátt af öllum vörum hjá Define The Line - Kóðinn Morðskúrinn veitir ykkur 15% afslátt af öllum vörum hjá Heimaskipulag - Preppbarinn og Lamb Street Food
  • Charles Whitman - Texas Tower Shooting 25.03.2026 45min
    Þann 1. ágúst árið 1966 tók Charles Whitman afdrifaríka ákvörðun um að ganga upp í turn við Háskólann í Texas í Austin þungvopnaður. Á 20 mínútum var hann búinn að framkvæma einhverja alræmdustu fjöldaskotárás Bandaríkjanna á þessum tíma.   Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag Steinunn hjá Kosmetik   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn
  • Patricia Jeschke 18.03.2026 39min
    Þann 13. nóvember árið 1980 fannst lík Patricia í svefnherberginu á heimili hennar í St. Joseph, Missouri. Tveimur vikum síðar hringdi hjúkrunarfræðingur í lögreglu þar sem skjólstæðingur hennar á geðsjúkrahúsinu var inni á heimilinu hennar með hníf meðferðis, og tengdi lögreglan þessi tvö atvik strax saman. Hinsvegar voru sönnunargögn sem fundust á vettvangi í máli Pat sem bentu til þess að gerandinn gæti ekki verið kona.  Þátturinn er í boði:  Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum Heimaskipulag en með kóðanum Morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum  
  • Reagan Tokes 11.03.2026 52min
    Reagan Tokes var einhver harðduglegasta unga kona sem sögur fara af. Með skýr markmið og stóra drauma vann hún hörðum höndum að framtíð sínni. Meðfram háskólanámi vann hún í hlutastarfi á veitingarstað en þar hafði hún eytt síðasta kvöldi sínu á lífi. Eftir vaktina hafði hún gengið út í bílinn sinn og síðan ekki sést meir.   Þátturinn er í boði  Define the Line Sport Heimaskipulag Steinunn hjá Kosmetik   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn    
  • Vincent Viafore 04.03.2026 29min
    Vincent og Angelika ákváðu þrátt fyrir óveður að fara út á kajak en þau ætluðu að gera rómantíska ferð úr þessu á stað sem þau höfðu oft farið á áður. Hinsvegar kom annað þeirra aðeins til með að skila sér úr ferðinni og eftir rannsókn var ekki um neitt slys að ræða.  Þátturinn er í boði DEFINE THE LINE - Kóðinn morðskúrinn gefur 15% afslátt hjá Define The Line HEIMASKIPULAG - Kóðinn Morðskúrinn gefur 15% afslátt hjá Heimaskipulag STEINUNN HJÁ KOSMETIK PREPPBARINN LAMB STREET FOOD  

Obľúbený v

Tento podcast sa objavuje aj v rebríčkoch podcastov týchto krajín.