Þetta helst

Þetta helst

RÚV
Krajina Island
Žánre Správy
Jazyk IS
Epizódy 694
Najnovšia 16.09.2026

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Epizódy

  • Ótengdir og óvirkir lífeyrissjóðir 16.09.2026 17min
    Hvenær er maður hæfur til að eiga banka? Hvernig geta menn verið ótengdir eigum sínum og jafnvel sér sjálfum á Íslandi? Hvers vegna virðast svokallaðar hlutfallstölur, það er að segja hversu stóran eignarhlut fjárfestar eiga í bönkum, þýða annað hér á Íslandi en víðast hvar annars staðar.? Þessu ætlum við að reyna að svara, í það minnsta velta upp í þætti dagsins. Lýður Guðmundsson, annar svokallaðra Bakkavararbræðra, hefur undanfarin misseri gert sig æ meira gildandi í íslenska fjármálakerfinu. Lýður er nú stærsti einkafjárfestirinn í tveimur íslenskum bönkum: Kviku banka og Arion banka. Félag Lýðs á núna 5,5% í Kviku banka, sem gerir hann að fimmta stærsta hluthafa bankans, en einungis fjórir lífeyrissjóðir eiga stærri hluti í bankanum. Stærstu hluthafar íslenskra banka eru þessir lífeyrissjóðir en þessir sjóðir eru hins vegar ekki mjög virkir hluthafar. Þannig geta einkafjáfestarnir, það er að segja þeir sem ekki eru lífeyrissjóðir, oft og tíðum ráðið talsvert meiru en hluthafallslegur eignarhlutur þeirra virðist bera með sér. Umsjón: Helgi Seljan
  • Herör gegn hraðtísku 15.09.2026 17min
    Í dag beinum við sjónum okkar að hraðtísku - og þeirri ákvörðun franskra stjórnvalda að setja sérstakt gjald á hverja flík sem tengist hluta þess iðnaðar. Rætt er við Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna, og Jóhannes Bjarka Urbancic Tómasson, sérfræðing hjá Umhverfis- og orkustofnun.
  • Roma-fólk í sögu Íslands 14.09.2026 15min
    Fyrstu skjalfestu heimildirnar um komu Roma-fólks til Íslands eru frá því í byrjun tuttugustu aldarinnar. Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur hefur stundað rannsóknir á sögu Roma-fólks hér á landi. Hann er þátttakandi í rannsóknarverkefni um þessa sögu þar sem hún er tengd við samtímann. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Svikin í Alicante 11.09.2026 15min
    Íslenskir ferðamenn hafa stigið fram og lýst reynslu sinni af því að hafa verið sviknir í viðskiptum með leiguhúsnæði í Alicante á Spáni. Fyrirtækið sem um ræðir heitir Sammlind og eigandi þess Samúel Jón Samúelsson. Fólkið hefur lýst því hvernig það borgaði mörg hundruð þúsund eða jafnvel milljónir fyrir leiguíbúðir sem það fékk svo aldrei. Gögn frá spænskum yfirvöldum og fréttir í þarlendum fjölmiðlum sýna hvers algeng slík svik í ferðamannageiranum í landinu eru. Rætt er við tvö af fórnarlömbum Sammlindar og fjallað um þetta leigusvikamál í víðara samhengi. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Umdeildu hafmeyjarbrotin sem enduðu sem stofustáss 10.09.2026 15min
    Tvö vegleg brot úr verkinu Hafmeyjunni eftir Nínu Sæmundsson eru þessa dagana til sýnis á Listasafni Reykjanesbæjar. Brotin hafa varðveist eftir að listaverkið var sprengt í loft upp á nýársnótt 1960. Á sýningunni kemur fram að brotin séu í einkaeigu en þó eru þau skráð sem eign Listasafn Reykjavíkur. Í Þetta helst verður sögð saga brota af einu umdeildasta listaverki Íslands, hvernig það var uppgötvað fyrir tíu árum að þau væru horfin úr geymslu listasafnsins og leitað svara hvort það sé rétt að listasafnið hafi ætlað að farga þeim fyrir aldarfjórðungi eða hvort það sé vegna misskilnings að brotin eru nú stofustáss á Suðureyri. Umsjón: Erla Björg Gunnarsdóttir
  • MAST fjarlægir búfé af sveitabæ í Eyjafirði í þriðja sinn 09.09.2026 15min
    Matvælastofnun fjarlægði mörg hundruð dýr af sveitabænum Brimnesi í Eyjafirði í sumar vegna vanhirðu og slælegrar meðferðar. Bæði var um að ræða kindur, hross og hrúta segir bóndinn á bænum, Arnar Gústafsson. Hann segir stofnunina meðal annars hafa fjarlægt 450 kindur, 26 hrúta og 36 hross. Kindurnar voru færðar í sláturhús um helgina, segir Arnar, og hrútunum var lógað og þeir notaðir í moltu segir bóndinn. Matvælastofnun hefur reynt að selja hrossin eftir að þetta inngrip átti sér stað og einhverjum mun hafa verið lógað. Að mati Arnars fer MAST fram með ofríki og einelti í málinu og telur hann að ríkisstofnunin ætli sér að knésetja hann og hans búskap í Brimnesi. Rætt er við Arnar og forstjóra Matvælastofnunar, Hrönn Jörundsdóttur í þættinum. Hrönn segir sjaldgæft að stofnunin fari í vörslusviptingu á dýrum á sveitabæjum og að þetta sé þrautalending þegar önnur úrræði hafa ekki dugað. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Fyrsta skrefið í að draga úr vægi verðtryggingar 07.09.2026 14min
    Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá því í Vikulokunum á laugardaginn að frumvarp um að draga úr vægi verðtryggingar verði lagt fram í haust. Rætt er við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, og Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, um áhrif þess að takmarka lengri verðtryggð lán og setja skilyrði um lágmarks eignamyndun. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  • Fjárfestar deila um hlutabréfaviðskipti í Sýn 04.09.2026 14min
    Félag Reynis Grétarssonar, Gavia Invers, stærsta hluthafi Sýnar hefur stefnt eiganda félagsins Ursus hf, Heiðar Guðjónssyni. Heiðar Guðjónsson er fyrrverandi forstjóri Sýnar og áður stjórnarformaður, sem lét af störfum og seldi allan hlut sinn í Sýn árið 2022 fyrir 2,2 milljarða króna. Félag Grétars, Gavia, keypti hlut Heiðars. Reynir Grétarsson og meðeigendur hans í Gavia telja að Heiðar hafi leynt, bæði þá, aðra hluthafa og markaðinn allan dýrmætum upplýsingum sumarið 2022. Upplýsingar sem hefðu orðið til þess að Heiðar hefði fengið mun minna fyrir bréfin sem hann seldi Gavia. Fjallað er um þessa deilu í þætti dagsins og útskýrt um hvað hún snýst. Umsjón: Helgi Seljan
  • Eitt stærsta skattamál Íslandssögunnar: Gæti krafið bílaleigur um 25 milljarða 03.09.2026 14min
    Eitt stærsta mögulega skattamál Íslandssögunnar er nú á borði skattayfirvalda. Skatturinn hefur sent nokkrum bílaleigum hér á landi bréf og sagt þeim frá því að til skoðunar sé að krefja einhverjar þeirra um virðisaukaskatt af tekjum þeirra vegna sölu á vátryggingum aftur í tímann. Ef Skatturinn endurákvarðar skattgreiðslur þessara bílaleiga getur heildarupphæðin numið allt að 25 milljörðum króna. KPMG er að vinna fyrir nokkrar af stærstu bílaleigum landsins í málinu. Lögfræðingurinn Kristinn Jónasson, segir að bílaleigurnar hafi verið í góðri trú í málinu og að þæt hafa leitað ráðgjafar hjá bæði Skattinum og skattasérfræðingum í málinu. Rætt er við Kristinn um deiluna við Skattinn. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Kastljósið beinist að Íslandi og krísu Evrópusambandsins 02.09.2026 15min
    ,,Skilaboðin frá Íslandi”; ,,Þetta er synd fyrir Evrópu”; ,,Sterk tengsl Íslands við Evrópusamband fela í sér að niðurstaðan er ekki sambærileg við Brexit” eru nokkrar af þeim fyrirsögnum sem birst hafa í dagblöðum í Evrópu um þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi á laugardaginn. Ísland, og fréttir frá Íslandi, eru ekki til umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum á hverjum degi. Síðustu daga hefur þetta hins vegar verið raunin. Líklega þarf að fara aftur til ársins 2016 til að finna sambærilegt umfang af fréttum í erlendum miðlum um eitt mál sem tengist Íslandi og síðustu daga. Þetta var þegar íslenska landsliðið lagði enska landsliðið í Evrópukeppninni í fótbolta og eins var talsverð umfjöllun um Ísland erlendis út af Panamaskjölunum svokölluðu skömmu áður. Túlkanir og greiningar á niðurstöðunni hafa verið allt frá því að Íslendingar hafi hafnað Evrópu og yfir í það að Ísland sé alls ekki að gera það þar sem landið sé þegar í djúpri samvinnu við Evrópusambandið í gegnum EES-samninginn og Schengen. Rætt er við hagfræðinginn og ritstjórann Ásgeir Brynjar Torfason og alþjóðastjórnmálafræðinginn Guðbjörgu Ríkeyju Thoroddsen um viðbrögðin í erlendum fjölmiðlum við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Eldsneytisverðið hækkar á ný 01.09.2026 17min
    Eflaust hafa hlustendur tekið eftir því að bensinverðið er hærra í dag en í gær – því tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi á miðnætti. Rætt er við Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra FÍB, Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, og Hjalta Óskarsson, hagfræðing. Þá er rætt við ökumenn á bensínstöðvum. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  • Sýn hættir með kvöldfréttir eftir að ekkert varð af viðskiptum við Símann 31.08.2026 18min
    Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir að sú ákvörðun stjórnenda Sýnar að hætta með sjónvarpsfréttir sé gríðarleg vonbrigði. Sýn greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallar Íslands núna í morgun. Síðasti kvöldfréttatími Sýnar verður í kvöld. Með þessu lýkur 40 ára samfelldri sögu kvöldfrétta á Sýn og fyrrirennara Sýnar, Stöðvar 2. Fyrsti fréttatíminn á Stöð 2 var sendur út þann 9. október árið 1986. Fjallað er um þessa ákvörðun og hún sett í samhengi við þá ákvörðun að Sýn seldi ekki stóran hluta af fjölmiðlum sínum til Símans fyrir 5,25 milljarða króna líkt og til stóð. Sýn skilaði árshlutauppgjöri í síðustu viku sem Björn Steinar Birgisson greinandi ræðir um. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Lykilinnviðir og hættan af eldgosum 28.08.2026 14min
    Nýtt langtímahættumat vegna Reykjanesskaga sem Veðurstofa Íslands gerði sýnir að áhrifasvæði eldgosa ná allt frá Reykjanestá að Ölfusá og Hvalfirði. Á þessu svæði eru lykilinnviðir, meðal annars allar fjórar, stjóru jarðmarmavirkjanirnar á svæðinu: Reykjanesvirkjun, Svartsengisvirkjun, Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun. Eldgos í Hengli gæti haft mikil áhrif á þær. Halldór Halldórsson, öryggisstjóri Landsnets og formaður neyðarsamstarfs raforkukerfisins, og Þráinn Friðriksson, se, leiðir jarðhitarannsóknir hjá Orkuveitunni, segja Þetta helst frá þeim sviðsmyndum sem gerðar hafa verið og áhrifum þess ef þær rættust.
  • Slorævintýrið á Nýbýlaveginum 27.08.2026 15min
    Á Nýbýlaveginum í Kópavogi er matvöruverslunin Fiska þar sem yfirleitt er örtröð síðdegis og um helgar. Verslunin selur matvöru frá öllum heimshornum sem yfirleitt er ekki til í öðrum búðum. Tekjuaukningin hjá Fisku hefur verið ævintýraleg síðustu ár og hefur verslunin nú sprengt af sér húsnæðið í Kópavogi og er verið að tvöfalda það. Eigandinn, Árni Elvar Eyjólfsson, segir að veltan hafi sexfaldast frá árinu 2020 þegar Fiska opnaði á Nýbýlaveginum í miðjum Covid-faraldrinum. Saga Árna sem kaupmanns nær aftur til ársins 1994 þegar hann byrjaði að selja fisk frá vinnslu ömmur sinnar og afa í Grundarfirði í Kolaportinu þegar hann var sautján ára menntaskólanemi. Í þættinum í dag er FISKA heimsótt og rætt er við Árna Elvar og nokkra af viðskiptavinum verslunarinnar. Umsjón: Ingi Freyr Viilhjálmsson
  • Stórveldið sem keypti fyrirtækið af skattakóngi Íslands 26.08.2026 15min
    Í ár var maður að nafni Daníel Sigurðsson skattakóngur Íslands. Hann greiddi 932 milljónir í fjármagnstekjuskatt í fyrra og var því með fjármagnstekjur upp á 4,3 milljarða króna. Ástæðan fyrir þessum himinháu fjármagnstekjum og skattgreiðslum í fyrra er sú að Daníel seldi 70 prósenta hlut í fyrirtæki sem hann stofnaði. Þetta fyrirtæki heitir DS Lausnir og sérhæfir sig í útleigu og þjónustu við byggingarkrana sem notaðir eru til að reisa fasteignir. Fyrirtækið sem keypti meirihluta í DS Lausnum heitir Fagkaup og er það í jafnri eigu hjónanna Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur. Hvaða fyrirtæki er Fagkaup og hver er saga þess og eigenda þess? Farið er aftur til aldamótanna þegar Bogi stóð í deilum út af viðskiptum með Húsasmiðjuna og fjallað um hvernig veldi Fagkaupa hefur vaxið stöðugt í tvo áratugi með uppkaupum á byggingar- og iðnfyrirtækjum. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Úrslitastund um líftíma kjarasamninga 25.08.2026 14min
    Á fimmtudaginn kemur í ljós hvort forsenduákvæði kjarasamninga haldi en þá birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst. Rætt er við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing hjá Íslandsbanka, og Sigurð Pétursson, sagnfræðing, um stöðu mála. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  • Þrefalda þyrlupallinn í Surtsey 24.08.2026 16min
    Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í síðustu viku umsókn Surtseyjarfélagsins um að stækka þyrlupallinn í Surtsey úr 36 fermetrum í um 100. Bærinn fer með skipulagsvald í eynni og skipulagsfulltrúa verður falið að gefa út framkvæmdaleyfi - en hvers vegna að stækka pallinn og hvernig myndu slíkar framkvæmdir vera skipulagðar með tilliti til náttúruverndar? Rætt er við Magnús Tuma Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, Sigurð Wiium, yfirflugstjóra hjá Landhelgisgæslunni, og Hildi Sólveigu Sigurðardóttur, formann umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyjabæjar. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
  • Aska látinnar konu grafin upp í skjóli nætur 21.08.2026 15min
    Gröf Kristjöna Jónsdóttur Dinse í Sóllandi í Fossvogskirkjugarði var opnuð í skjóli nætur í júní í fyrra. Duftkerfið með jarðneskum leifum Kristjönu var grafið upp og stór hluti öskunnar var tekinn úr því eftir að kerið hafði verið brotið upp. Kristjana lést í nóvember 2024, rúmlega áttræð að aldri. Ummerki sáust við leiðið daginn eftir og var málið kært til lögreglu í kjölfarið. Að raska grafarhelgi er brot á almennum hegningarlögum á Íslandi. Rætt er við barnabarn Kristjönu, Aðalbjörgu Jónsdóttur, um þennan atburð og hvaða afleiðingar hann hafði á fjölskylduna. Samkvæmt upplýsingum frá Kirkjugörðum Reykjavíkur er um að ræða mál sem er án hliðstæðu á Íslandi. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
  • Fiskur dagsins - loðna 20.08.2026 14min
    Af hverju borga Færeyingar og Norðmenn miklu hærra verð fyrir loðnu og makríl en Íslendingar? Er það vegna þess að á Íslandi kaupa sömu menn fisk og selja hann? Er verið að svindla á sjómönnum, sveitarfélögum og ríkissjóði, eða erum við bara með öðruvísi kerfi, sem skilar sömu niðurstöðu? Umsjón: Helgi Seljan
  • Er æskilegt að framleiða bætiefni úr hvalkjöti? 19.08.2026 12min
    Morgunblaðið greindi frá því í upphafi viku að Hvalur hf. ætlaði að hætta að selja Japönum hvalkjöt í bili en nýta kjöt af langreyðum þess í stað til framleiðslu á járnbætiefni. Í þætti dagsins beinum við sjónum að járnskorti og þeirri hugmynd að framleiða járnbætiefni úr hvalkjöti. Viðmælendur: Jóhanna Eyrún Torfadóttir, dósent í næringarfræði og verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu Edda Elísabet Magnúsdóttir, hvalasérfræðingur og lektor í líffræði Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Obľúbený v

Tento podcast sa objavuje aj v rebríčkoch podcastov týchto krajín.