Tékk-inn með Helgu og Örnu

Tékk-inn með Helgu og Örnu

Helga María Finnbjörnsdóttir & Arna Ósk Arnarsdóttir
Krajina Iceland
Žánre Business
Jazyk IS
Epizódy 21
Najnovšia 01.06.2026

Þáttur um vinnustaðamenningu, leiðtogahlutverkið, stjórnun og hvernig meðvitund spilar inn í þetta allt saman.

Epizódy

  • #1 Tékkum okkur inn með Helgu og Örnu 21.09.2025 34min
    Fyrsti þáttur af Tékk-inn með Helgu og Örnu. Við segjum frá okkur sjálfum, hvernig kviknaði hugmyndin af podcasti og hvers er að vænta.
  • #2 Sveinbjörn Indriðason - "Við verðum að vera tilbúin að takast á" 22.09.2025 51min
    Gestur þáttarins er Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. Hann ræðir við okkur á persónulegum nótum um vegferð Isavia í áttina að uppbyggilegri menningu, af hverju var lagt í mikla umbreytingarvinnu og áskoranirnar sem hann og fyrirtækið hafa staðið frammi fyrir.
  • #3 Trausti Björgvinsson - "Árangurinn minn hefur margfaldast við það að sleppa aðeins tökunum" 22.09.2025 52min
    Við fáum til okkar Trausta Björgvinsson, framkvæmdastjóra Lotu verkfræðistofu og ráðgjöf. Hjá Lotu fara allir stjórnendur í markþjálfanám. Hann segir okkur frá því hvernig það hefur virkað og þeirr persónulegri þróun sem hann hefur verið að vinna að síðustu ár og hvernig það hefur styrkt hann í starfi.
  • #4 Maríanna Magnúsdóttir - "Þetta byrjar alltaf hjá okkur sjálfum" 06.10.2025 52min
    Maríanna Magnúsdóttir, ráðgjafi og leiðtogi breytinga, kom til okkar og ræddi við okkur um breytingastjórnun og hlutverk leiðtogans í stórum umbreytingaverkefnum. Hvað ber að hugsa vel og hvað ber að varast þegar breytingar eru annars vegar? Ef ykkur vantar innblástur fyrir breytingarnar framundan, þá er þetta þátturinn fyrir ykkur!
  • #5 Auður Ýr Sveinsdóttir - "Er ég að hlusta, heyra og finna hvað er að gerast með mig?" 20.10.2025 49min
    Í þessum þætti ræðum við við Auði Ýr Sveinsdóttur, leiðtoga sem segir frá hvaða aðferðir hún hefur notað til að styrkja og efla sig sem leiðtoga. Mjög áhugavert spjall við sterkan stjórnanda sem er óhrædd við að skoða inn á við allt með því markmiði að sjá aðra vaxa. Hversu geggjað er það? Skoða sjálfan sig og aðrir njóta góðs af? Auður talaði m.a. um bókina Lífsreglurnar fjórar sem hún hefur hlustað á ótal sinnum en við mælum líka heilshugar með lestri á þeirri bók!
  • #6 - Vangaveltur á sunnudegi 03.11.2025 53min
    Hér erum við tvær að fara yfir síðustu þætti, okkar vangaveltur og komum aðeins inn á okkar persónulegu þróun.
  • #7 - Helena Jónsdóttir hjá Mental um geðheilbrigði starfsfólks 17.11.2025 50min
    Í þessum þætti ræðir Helena við okkur almennt um geðheilbrigði, hvernig það hefur áhrif á vinnustaðnum okkar og hvernig fyrirtæki og stjórnendur geta betur stutt við starfsfólkið sitt. Þetta var virkilega fróðlegt og áhugavert samtal um mikilvægt málefni sem við vonum svo sannarlega að fái meiri skilning og umræðu í samfélaginu okkar.
  • #8 - Þórhallur Gunnarsson, "Það er mikilvægt að velja fólk sem er betra en þú sjálfur" 01.12.2025 1h 4min
    Í þessum þætti fer Þórhallur Gunnarsson um víðan völl, hann ræðir við okkur um æskuna og það sem mótaði hann þar, reynsluna sína sem stjórnandi í fjölmiðlabransanum og deilir því sem hann telur mikilvægt að stjórnendur spyrji sig reglulega. Þetta er lifandi og skemmtilegur þáttur en hér lærum við margt um Þórhall sem við vissum ekki fyrir!
  • #9 - María Rós Skúladóttir - "Það sem ég vildi að stjórnandinn minn vissi" 15.12.2025 43min
    Í þessum þætti ræðum við við Maríu Rós sem er ráðgjafi hjá KPMG en hún hefur m.a. mikla reynslu af stjórnun hjá sveitarfélögum og hefur bakgrunn í félagsráðgjöf. Spjallið fer inn á meðvirkni á vinnustöðum, hvað það er mikilvægt að setja skýr mörk og hvað hugrekkið er mikilvægt í stjórnunarhlutverkinu. https://vb.is/skodun/thad-sem-eg-vildi-ad-stjornandinn-vissi/
  • Slökunarhugleiðsla 23.12.2025 7min
    Hér er stutt hugleiðsla sem er hægt að nýta sér til að róa hugann í dagsins önn. Hugleiðslan er leidd af Örnu og við vonum að þið njótið vel.
  • #11- Tékk-inn konur og Sísí - "Gerum að normi að tala um hegðun" 05.01.2026 52min
    Við fengum spurningu frá hlustanda sem snéri að því hvernig stjórnendur geta unnið með starfsfólk sem eru ekki góðir liðsfélagar. Við fengum Sisí til liðs við okkur og gerðum tilraun til að svara þeirri spurningu með þeim ráðum sem við höfum í pokahorninu. Við fórum svo líka um víðan völl, tókum almennilegt tékk-inn og niðurstaðan varð gott og heiðarlegt samtal samstarfs- og vinkvenna.
  • #12 - Christian Grønbjerg - "We can´t seperate personal development from business development" 19.01.2026 1h 4min
    Hér ræðum við við Christian hjá Conscious Consulting um persónulega þróun og vöxt. Hvernig finnum við tilgang okkar? Hvað er l"óðrétt" markþjálfun (vertical coaching)? Hvað þýðir það að vera meðvitaður og til hvers að vera það? Við förum alveg á dýptina í þessum þætti og við fundum algjörlega kraftinn sem felst í því að spyrja sig góðra spurninga.
  • #13 - Valgerður Skúladóttir, - "Mér er ekki sama" 02.02.2026 1h 11min
    Þurfum við að vera klárasta fólkið í herberginu til að vera góðir stjórnendur? Hér ræðum við Tékk-inn konur við Valgerði Skúladóttur, fyrrum stofnanda og framkvæmdastjórai Sensa. Valgerður er brautriðjandi á sínu sviði, áttaði sig snemma á ferlinum á því hversu mikilvæg sjálfsskoðun er til að verða betri stjórnandi og styðja teymin sín til árangurs. Auðmýktin og heiðarleikinn leynir sér ekki í þessu einlæga samtali.
  • #14 - Dominic Gourley - "If we´re going to change culture we have to step out of the current culture" 16.02.2026 52min
    Dominic is an experienced consultant with Human Synergistics Australia and the host of our favourite podcast Culture Bites. He has worked with organizations around the world to build stronger, healthier, and more effective workplace cultures. In our conversation with Dominic, we hear his experience in working with culture and the challenges organizations face when leading culture change.
  • #15 - Ella Björnsdóttir - Þekkir þú þínar lífsgildrur? 02.03.2026 54min
    Í þessum þætti áttum við samtal við Ellu Björnsdóttur, stofnanda og ráðgjafa hjá Valhalla. Hún er reyndur leiðtogi og ráðgjafi sem leggur áherslu á mannlega nálgun, sjálfsþekkingu og meðvitaða forystu. Við krufðum aðeins svokallaðar lífsgildrur (blind spots), hvernig þær verða til, hvernig þær hafa áhrif á okkur í daglegu lífi og hvers vegna það er lykilatriði fyrir leiðtoga að vera meðvitaðir um sínar lífsgildrur og vinna með þær. Ella deildi einnig innsýn í bókina sem hún er að skrifa og kemur út á árinu. Bókin er sko komin á óskalistann okkar!
  • #16 - Lisa Richardson - "I´m sorry but it´s complex" 16.03.2026 56min
    Við ræddum við vinkonu okkar Lisu Richardson frá Conscious Consulting um hvernig margt þarf að haldast í hendur þegar kemur að umbreytingarverkefnum. M.a. þarf að stuðla að réttu hugarfari, réttu ferlunum, réttu hegðuninni og því miður er þetta ekki alltaf einfalt. Hér deilir hún reynslu sinni sem ráðgjafi og ræðir þær áskoranir sem hún hefur séð og upplifað í tengslum við umbreytingar hjá fyrirtækjum.
  • #17 - Helga Halldórsdóttir - "Maður þarf að vera í jafnvægi sjálfur" 30.03.2026 55min
    Helga Halldórsdóttir er forstöðumaður mannauðs hjá Arion og ræddi við okkur á persónulegu nótunum um hlutverk sitt sem stjórnandi, hvernig hún þróaðist í það hlutverk ásamt því að segja okkur frá þeim spennandi hlutum sem þau hafa verið að vinna að hjá Arion til að byggja upp góða liðsheild og sterka fyrirtækjamenningu. Þetta var virkilega gefandi og fróðlegt samtal og greinilega margt hægt að læra af Helgu og hennar teymi hjá Arion.
  • #18 - Uppbygging trausts samhliða árangri 20.04.2026 38min
    Við fengum tillögu að þessu skemmtilega umræðuefni og við höfum þó nokkra reynslu af því að vinna að þessu viðfangsefni með teymum. Við segjum frá nálgun Patrick Lencione um árangusrík teymi, eða það sem hann kallar á ensku; Five behaviors of a cohesive team. Fyrir áhugasama þá skrifaði hann bókina The Five disfunctions of a team sem við getum klárlega mælt með og einnig nefnir Arna bókina Overcoming the five disfunctions of a team í þættinum.
  • #19 - Brynjar Már Brynjólfsson - "Treystu ferlinu" 04.05.2026 1h 7min
    Brynjar Már er mannauðsstjóri Isavia er viðmælandi ékk-inn í þessum þætti og segir okkur frá því hvaða leiðir Isavia hefur farið við að vinna að uppbyggilegri menningu innan fyrirtækisins. Það er margt sem þarf að spila saman þegar kemur að því að breyta menningu í svo stóru og fjölbreyttu fyrirtæki og þá þarf þolinmæðin, ákveðnin og seiglan að vera til staðar. Þetta er fróðlegur þáttur og Brynjar kann svo sannarlega að koma vel fyrir sig orði þegar hann segirokkur frá því helsta.
  • #20 - Harpa Hödd Sigurðardóttir - "Hvað er það besta sem gæti gerst?" 18.05.2026 57min
    Harpa Hödd er framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs hjá Eimskip. Það sem ekki öll vita er að Eimskip er alþjóðlegt fyrirtæki með starfsemi í yfir 20 löndum, í nokkrum heimsálfum. Harpa segir okkur frá þeim fjölmörgu verkefnum sem falla til á hennar sviði sem hefur nýlega kynnt nýja stefnu fyrirtækisins og eru í miðri innleiðingu á henni. Fyrirtækið er með öfluga leiðtogaþjálfun, arftakaáætlanir og leggur mikið upp úr jöfnum tækifærum kynjanna. Á persónulegum nótum segir hún okkur frá hvernig hún hefur vaxið í starfi, talar um mikilvægi þess að grípa tækifærin og jafnvel skapa þau sjálf. Ekki missa af þessum fróðlega og áhugaverða þætti.

Obľúbený v

Tento podcast sa objavuje aj v rebríčkoch podcastov týchto krajín.