Lífið á meðan
Lífið á meðan
0
Lífið á meðan er hlaðvarp um aðstandendur krabbameinssjúklinga. Í þáttunum ræðir þáttastjórnandi við aðstandendur og fólk sem tengist þeim á einn eða annan hátt um lífið sem heldur áfram á meðan allt er í gangi. Samtölin fjalla um reynslu sem margir þekkja en fá sjaldan tækifæri til að tala um.
Epizódy
-
7. Rakel Þorsteins 20.05.2026 1h 34minÍ nýjasta þættinum af Lífið á meðan fæ ég til mín hana Rakel Þorsteins.Rakel segir svo fallega og einlægt frá pabba sínum sem lést eftir erfiða baráttu við krabbamein.Hún deilir með okkur hvernig það var að vera dóttir manns sem greindist ekki bara einu sinni heldur þrisvar og lifa með þeirri óvissu, ótta og sorg sem fylgir því að elska einhvern svona mikið.Það sem snerti mig mest var að heyra hana tala um sambandið þeirra á milli.Hversu náin þau voru og hvað hann var stór og mikilvægur partur af lífinu hennar ♥️Rakel talar líka svo einlægt um sorgina sem fylgir því að horfa á manneskjuna sína breytast í veikindum.Hvernig lífið verður aldrei aftur eins og hvernig maður þarf einhvern veginn að læra að lifa með nýjum raunveruleika sem maður bað aldrei um.Þessi þáttur hittir mjög nærri heim hjá mér.Ekki bara vegna umræðunnar sjálfrar heldur líka af því að við Rakel höfum verið vinkonur síðan við vorum litlar stelpur. Það var eitthvað svo sérstakt við að setjast niður með góðri vinkonu sinni og eiga þetta samtal á svona djúpum, hráum og einlægum nótum 🤍
-
6. Guðrún Alma 07.05.2026 1h 27minÍ nýjasta þættinum af Lífið af meðan sest ég niður með henni Guðrúnu.Það er eitthvað við sögu Guðrúnar sem ég tengi mjög sterkt við. Guðrún er mögnuð þriggja barna móðir, maki, í ábyrgðarfullu starfiog svo bætist það óumbeðið hlutverk við… að vera aðstandandi.Í þættinum ræðum við um hvernig hlutverkin snúast stundum við 👀óvissuna, ábyrgðina og lífið á meðan allt er í gangi.En það sem situr svo sterkt eftir hjá mér er viðhorfið hennar, styrkurinn og jákvæðnin gagnvart þessum “andstæðingi” 🤍
-
5. Margrét Rósa 24.04.2026 50minÍ þessum þætti af Lífið á meðan fæ ég til mín Margréti.Hún er ung kona sem er að ganga í gegnum það að mamma hennar er með ólæknandi krabbamein. Við tölum um það sem gerist þegar lífið breytist svona skyndilega – óvissuna, tilfinningarnar og það að þurfa samt einhvern veginn að halda áfram. Þetta er samtal um að vera aðstandandi, um sorg á meðan…en líka um tengsl, ást og von.
-
4. Guðlaug Ingibjörg 14.04.2026 1h 25minÍ nýjasta þætti af Lífið á meðan fæ ég til mín Guðlaugu.Á einni nóttu breyttist allt. Barn verður langveikt, foreldrar fara út af vinnumarkaði og lífið sem þau þekktu hverfur.Í þættinum ræðum við hvernig það er að standa í svona aðstæðum, þegar þú veist ekkert hvert lífið stefnir, þegar þú þarft að verða sérfræðingur barnsins þíns og halda áfram á sama tíma.Guðlaug hefur ótrúlega nálgun á lífið, mikla kómík og finnur þakklæti á stöðum þar sem maður myndi kannski ekki búast við því.Við ræðum líka:– álagið sem fylgir því að verða allt í einu “hjúkrunarforeldri”– hvað situr eftir þegar fólk er ekki nærgætið– hvernig tengsl og félagslíf breytast– og af hverju setningin „lífið er núna“ fær allt aðra merkingu
-
3. Tómas Þór 02.04.2026 1h 14minÍ þættinum sest ég niður með Tómasi Þór, og ræði við hann um að vera aðstandandi þegar lífið breytist á einu augnabliki.Þau voru stödd í ferli hjá Livio að reyna að eignast barn þegar maki hans greindist með mergæxli. Framtíðin breyttist og með henni allt sem þau höfðu séð fyrir sér. Í þættinum förum við yfir hvað er ómetanlegt að hafa góðan stuðning, hvernig tengslin geta bæði styrkst og stundum breyst og hvernig það er að lifa með þeirri vitneskju að krabbameinið muni koma aftur.
-
2. Arna Katrín 26.03.2026 1h 8minÍ þættinum sest ég niður með Örnu Katrínu, sem segir frá sinni reynslu af því að verða aðstandandi þegar maki hennar greindist með krabbamein.Við ræðum augnablikið þegar lífið breytist, tilfinningarnar sem fylgja og það sem gerist á bak við tjöldin.Hvernig hlutverkin í sambandinu geta breyst og hvernig það er að halda lífinu gangandi þegar allt er í óvissu.Við tölum líka um hvernig það er þegar lítil börn eru í kringum mann á svona tíma og hvernig maður reynir einhvern veginn að halda utan um daglegt líf á meðan allt er að breytast.Ég er Örnu ótrúlega þakklát fyrir að hafa komið í fyrsta viðtalsþáttinn og hjálpað mér að rífa plásturinn af.
-
1. kynningarþáttur 20.03.2026 6minÍ fyrsta þætti af „Lífið á meðan“ deili ég stuttlega minni eigin sögu sem aðstandandi krabbameinssjúklings síðustu tvö ár. Ég tala um hvernig lífið breyttist við greininguna, hvernig daglegt líf heldur áfram þrátt fyrir óvissuna.Þessi þáttur er fyrir þig sem ert að lifa lífinu „á meðan“ eitthvað stórt og oft sársaukafullt er í gangi og fyrir þá sem vilja skilja aðstandendur betur.