Búbblur & Bjór

Búbblur & Bjór

Búbblur & Bjór
Krajina Island
Jazyk IS
Epizódy 123
Najnovšia 12.07.2026

Birkir, Davíð og Þröstur hittast til þess að ræða um allt á milli himins og jarðar, Daði mætir við og við þegar það er ekki fótbolti í sjónvarpinu til þess að leggja málefnum misvel lið, sumt sem skiptir máli, annað sem skiptir engu máli, en oftast eitthvað sem skiptir ekki máli, en skiptir samt máli! Svo stundum gætu komið spennandi og áhugaverðir gestir í spjall. Podcastið sem er um allt og ekkert, skál!

Epizódy

  • Fríið er búið hjá Birki 12.07.2026 45min
    Strákarnir eru mættir til leiks eftir að Birkir fór í svaðalegu Ítalíuferðina sína. Í þessum þætti mætir Davíð of seint, Birkir fer yfir smá ferðasögu, og svo fara þeir yfir allt sem Birkir missti af í heiminum á meðan hann sat næstum rænulaus á sundlaugarbakka í ítölsku sveitinni í 40 stiga hita með búbbluglas í hönd. Umdeildustu bíómynd heimsins í dag, hvalveiðaævintýrin og fleira.
  • Horrible Deaths 05.07.2026 40min
    Davíð og Birkir renna bobsleða dagsins af stað og þeir fara yfir hræðileg dauðsföll, drungalegur þáttur en þeim er nokk sama og gera grín af nokkrum framliðnum....öllu er nú hægt að hlægja að.
  • Íslenskir grínþættir 28.06.2026 43min
    Birkir og Þröstur stýra bátnum í dag, Þröstur kemst að því hvað Birkir á mikið af skópörum...sem er súr niðurstaða. Svo fara þeir yfir íslenska grínþætti, hver af þeim er bestur? Heilsubælið, Fóstbræður, Steindinn okkar, Næturvaktin eða eitthvað allt annað?
  • Birkir fer til Ítalíu 21.06.2026 41min
    Skytturnar þrjár eru mættar á sólríkum degi í umdeildum þætti þar sem þeir fara yfir ýmis mál sem eru að gerast í heiminum og deila þar sínum krassandi skoðunum varðandi það allt saman. Birkir er að fara til Ítalíu á meðan Davíð og Þröstur hanga heima að vinna, alltaf sami lúxusinn á þessum Garðbæingum!
  • Dumb History 14.06.2026 47min
    Strákarnir eru mættir og fengu Daða í heimsókn og því ber að fagna. Talað er um heimskulega sögu eða dumb history þar fara þeir yfir til dæmis kanínuher sem réðst á Napoleon, þegar konum var bannað að fara í lestir og fleira gufuruglað og galið úr mannkynssögunni
  • Flott hönnun 07.06.2026 51min
    Birkir og Davíð eru mættir í banastuði og í þessum þætti fara strákarnir yfir flotta hönnun að þeirra mati. Hvað er flott hönnun og hvað er ljót hönnun allt frá bílum, húsgögnum, símum og fatnaði sem dæmi.
  • Gott fólk 31.05.2026 53min
    Skytturnar þrjár eru mættar í banastuði og ætla að fara yfir gott fólk, A.K.A. Amazing people! Það hefur verið margt gott fólk í gegnum tíðina, eins og til dæmis Leonardo Da Vinci, Robin Williams, og Birkir!
  • Topp 10 minjagripir 24.05.2026 46min
    Jæja, allir pungarnir fjórir eru mættir í þennan þátt til þess að ræða hvaða topp 10 minjagripi þeir myndu vilja eiga úr sögunni, sumir eru með sömu hlutina fyrir algjöra tilviljun, aðrir eiginlega ekki neitt, en á borðinu er til dæmis Indiana Jones svipan, Ghostbusters Proton Pack, DeLorean bíll og stórfurðulegur bátur....sem er ekki fyrir alla....
  • Urban Dictionary 17.05.2026 47min
    ATH: Þessi þáttur er EKKI við hæfi barna. Strákarnir fóru að skoða "The Urban Dictionary" sem er magnaður andskoti, segjum ekki meir nema að tala við lögfræðing fyrst, svo í lokin fékk Birkir email frá Daða sem hann fer yfir
  • Gervivísindi 10.05.2026 1h 1min
    Ripp, Rapp og Rupp eru mættir til leiks í þessum þætti til þess að ræða Pseudoscience, eða öðru nafni gervivísindi, það er nóg til af þeirri vitleysu, eins og blessuðu ímyndunarveiku miðlarnir sem lesa í spil og bolla, og auðvitað höfuðbeinaspjaldhryggjajöfnunin, hvur andskotinn er það???
  • Tuðbræður 03.05.2026 43min
    Tuðbræður, tuðmenn, Birkir og Davíð eru mættir í þennan þátt þar sem Birkir fer yfir nýliðna ferð til London á Prodigy tónleika, svo fara þeir yfir það sem hefur verið að gerast í heiminum undanfarið, eins og morðtilræði enn eina ferðina á Donald Trump, hvaða tíska/samsæriskenning er það?
  • The 27 Club 26.04.2026 42min
    Birkir, Daði og Þröstur eru mættir til þess að ræða einn alræmdasta klúbb heims, þessi klúbbur er með langdýrasta aðgöngumiðann, The 27 Club! Þeir ræða pælingar og samsæriskenningar varðandi þennan klúbb, hverjir eru í honum og hvernig þau dóu, einn er alveg á því að Kurt Cobain hafi verið myrtur, hinir eru ekki eins vissir, en þátturinn byrjar á því að Daði gerir Birki bálreiðan með einhverju tónlistarþvaðri, það verður aldrei þreytt að heyra Birki verða ponsu pirrí pú!
  • The Simpsons 19.04.2026 1h
    Í tilefni þess að í dag er hinn alþjóðlegi Simpsons dagur (19 apríl), þá ætla Birkir og Davíð að fara saman yfir þessa þætti sem hafa verið í miklu uppáhaldi hjá þeim í gegnum áratugina. Þeir renna yfir bestu þættina að þeirra mati, hvaða karakter þeim finnst bestur, hvaða karakterar hafa dáið í þáttunum, skoða Íslandstengingar og skoða svo hvort þátturinn sem Michael Jackson kom fram í hafi verið eitthvað loðinn ásamt mörgu öðru...einnig ætla þeir í skemmtilegan Simpsons spurningaleik.
  • Ketchup! 12.04.2026 31min
    Birkir, Daði og Þröstur er mættir saman til þess að tala um tómatsósur.....neeeeiiii, þessi þáttur fer út um allt þar sem þeir spjalla saman um daginn og veginn, hvað þeir gerðu yfir páskana, og eru svo auðvitað með almenn leiðindi hver við annan...  
  • Topp 10 skemmtilegast 05.04.2026 1h 4min
    Allur haugurinn er mættur í þennan þátt til þess að fara yfir Topp 10 skemmtilegustu hluti sem þeir hafa gert, þar er margt að finna, fallhlífarstökk, tónleikar, jöklaganga, birtast á bíótjaldi og margt fleira!
  • Páskafjör 29.03.2026 44min
    Sálufélagarnir Birkir og Þröstur taka snemma í gikkinn og er mættir í páskagír í páskaspjall. Þeir fara líka yfir nýliðna hluti eins og dauða Chuck Norris, Þröstur stenst ekki mátið og kastar fram nokkrum klassískum Chuck Norris bröndurum, Þeir fara svo auðvitað yfir páskana og komast svo að því að það veit enginn hvenær páskarnir eru á næsta ári.
  • Gamanmyndir 22.03.2026 43min
    Ripp,Rapp og Rupp eru mættir í þetta skiptið þar sem þeir fara yfir gamanmyndir, hver er uppáhaldsgamanmyndin, hvaða gamanmynd lætur þá hlægja sem mest og allt annað mögulegt um gamanmyndir!
  • Er Óskarinn dauður? 15.03.2026 49min
    Stutt er lýsingin í dag en snillingarnir þrír eru mættir í tilefni þess að Óskarsverðlaunin fara fram í nótt og fara yfir hvort að Óskarinn sé liðin tíð. Það eru engar kvikmyndastjörnur lengur eins voru í gamla daga.
  • Fréttir og spjall 08.03.2026 32min
    Fullt hús í dag með fjórum mismiklum snillingum. Það er farið yfir það helsta í fréttum, við ræðum aðeins stríðin sem eru í gangi, ótrúlega pólitískir. Förum yfir það hvort Jim Carrey sé orðinn klón, eftirherma eða hvort hann sé hreinlega bara til! Svo er rætt aðeins um gullnu árin þegar þáttastjórnendur voru ungir og mögulega aðeins meira sexý útgáfur af sjálfum sér!
  • Tíminn er skrítinn 01.03.2026 45min
    The Three Amigos, þeir Aragorn, Legolas og Gimli eru mættir í dag til þess að ræða tímann, fáránlegt hvað tíminn er fljótur að líða. Covid tímabilið setti allt tímavit úr skorðum, það eru komin 10 ár síðan Fidget Spinners voru málið, það eru meira en 40 ár síðan þáttastjórnendur fæddust og Pacman er orðinn 46 ára.....alveg eins og Davíð!