Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

RÚV
Krajina Island
Jazyk IS
Epizódy 596
Najnovšia 16.09.2026

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Epizódy

  • Örnefni á Íslandi, Geðveik mamma og vísindaspjallið um heilakrabbamein 16.09.2026 50min
    Örnefni hafa löngum haft áhrif á afstöðu okkar til landslags og sögu og markviss söfnun þeirr hér á landi hófst snemma á síðustu öld. Surtsey reis úr hafi haustið 1963 en þar gefst einstakt færi á að rannsaka nafngiftir svo að segja frá fyrsta degi. Birna Lárusdóttir íslensku- land- og fornleifafræðingur hélt fyrirlestur á mánudaginn þar sem hún talaði um rannsóknir sínar, bæði á vettvangi í Surtsey og á greiningu heimilda, til að skoða rekja ferli örnefna í eynni. Birna fræddi okkur um örnefni í þættinum. Hvaða hugmyndir höfum við um geðveikar mömmur? Hvers vegna breytast sum viðhorf en önnur ekki? Hera Guðmundsdóttir menningarmiðlari hefur gert þætti um mæður, geðsjúkdóma og sögurnar sem fjölskyldur segja eða segja ekki. Hera fléttar saman sögu langömmu sinnar sem send var á Klepp um miðja tuttugustu öldina, eigin reynslu af geðhvörfum og samtímasögur mæðra sem lifa með geðsjúkdómum. Sögur um móðurhlutverkið, skömm og þagnir en líka ást, nánd og nýjar raddir. Þessir þættir hafa vakið mikla athygli og þá er hægt að nálgast í spilaranum á ruv.is en við fengum Heru Guðmundsdóttur til okkar í dag. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í sitt vikulega vísindaspjall. Í dag sagði hún okkur frá rannsóknum sem vekja vonir um lækningu á krabbameini í heila. Tónlist í þættinum: Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus-Tómas Guðmundsson) Kramið hjarta / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson) Von / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson) Words / Bee Gees (Bee Gees) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Matsmannafélag Íslands, nálastungur fyrir hross og gæludýr og veðurspjallið með Einari 15.09.2026 52min
    Við fræddumst um Matsmannafélag Íslands í dag, en Ragnar Ómarsson formaður þess kom í þáttinn. Fasteignakaup eru stærsta fjárfesting sem flestir Íslendingar ráðast í. Samt eru enn uppi álitaefni um upplýsingagjöf við sölu fasteigna, réttindi kaupenda og seljenda og meðferð byggingargalla. Þarna koma matsmenn til sögunnar og Ragnar sagði okkur frá starfi þeirra og ráðstefnu Matsmannafélagsins sem verður á fimmtudaginn. Núna í október mun Líney Emma Jónsdóttir dýralæknir klára nám í nálastungum fyrir hross og gæludýr. Við heyrðum í henni í þættinum í dag og hún sagði okkur frá ráðstefnu sem haldin er hér á landi og hefst á morgun þar sem dýralæknar hvaðanæva að úr heiminum hittast og bera saman bækur sínar. Þar á meðal er hópur dýralækna sem notar nálastungur í sínum meðhöndlunum. Líney Emma vonast til að það takist að vekja athygli Íslendinga á viðurkenningu og útbreiðslu nálastungu í dýralækningum í heiminum í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í veðurspjallið. Það sem kom við sögu í dag var hitarnir í Evrópu sem hafa slegið öll met, afleiðingar El Nino sem er afar öflugur og svo eru haustlitirnir farnir að sýna sig hér heima, erum við með söknuð og trega í sumarlok eða hvað? Að lokum heyrðum við ljóðið Gangnadagsmorgunn eftir Sigurð Óskar Pálsson frá Borgarfirði Eystra. Tónlist í þættinum: Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson Litlir kassar / Þokkabót (Pete Seeger, texti Þórarinn Guðnason) Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson) Spánardraumur / Hljómsveit Ingimars Eydal (Caerts, Roozenstraten, texti Einar Haraldsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Leikárið í Tjarnarbíói, fréttaauki úr réttum frá 1963 og Rán Tryggvadóttir lesandi vikunnar 14.09.2026 52min
    Við héldum áfram að fara yfir sviðið, bókstaflega, og forvitnast um það sem er á leiksviðum landsins á nýhöfnum leikvetri. Í dag kom til okkar Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóri Tjarnarbíós. Tjarnarbíó hefur verið kallað heimili frjálsu leikhópanna og Snæbjörn sagði okkur frá fjölbreyttri dagskrá vetrarins í þættinum. Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, til okkar með gullmola af safni RÚV. Í dag kom hún með brot frá árinu 1963, þar sem Stefán Jónsson umsjónamaður fréttaauka fór í Skeiðarétt og ræddi við til dæmis fjallkóngana Magnús Árnason og Sigurgeir í Skáldabúðum, Guðmund Stefánsson gangnamann og Jónu Magnúsdóttur kvenfélagskonu auk þess sem við heyrðum kraftmikil tilsvor Páls Árnasonar sem var fjallkóngur í marga áratugi. Það er óhætt að segja að réttarstemningin skilar sér í þessu stórskemmtilega 63gja ára gamla innslagi. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Rán Tryggvadóttir, lögfræðingur og doktor í höfundarétti. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Rán talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ljóð Emily Dickinson Berhöfða líf eftir Magnús Sigurðsson Things in Nature Merly Grow e. Yiyun Li Sálarljóð - úrval erlendra ljóða í þýðingu Atla Harðarsonar Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu e. Olga Tokarczuk sem Árni Óskarsson íslenskaði Handmaid’s Tale e. Margret Atwood Gunnlaðarsaga e. Svövu Jakobsdóttur Circe eftir Madeline Miller Tónlist í þættinum: Þú ert / Helgi Pétursson (Þórarinn Guðmundsson, texti Gestur eða Guðmundur Björnsson) Á Mallorca / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason) Undir dalanna sól / Álftagerðisbræður (Björgvin Þ. Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Eyjólfur Kristjánsson föstudagsgestur og matarminningar um fisk 11.09.2026 53min
    Föstudagsgesturinn okkar í dag var engin annar en Eyfi, Eyjólfur Kristjánsson. Hann hefur víða komið við í íslensku tónlistarlífi og hefur verið einn af vinsælustu tónlistarmönnum landsins síðustu áratugi. Hann er að gefa út glænýja plötu og við heyrðum tvö lög af henni í þættinum. Eyfi ólst upp í Vogahverfinu, fór snemma að spila á gítar og spilaði snemma á kvöldvökum í Kerlingafjöllum þar sem íslendingar fóru gjarnan í skíðaferðir en þar vann hann sem skíðakennari. Hann var hluti af Vísnavinum og Hálft í hvoru. Eyfi tók þátt í fyrstu undankeppni Eurovision árið 1986 og hefur svo auðvitað staðið á stóra sviðinu í keppninni erlendis og lagið hans Nína er enn í dag sungið af öllum kynslóðum við hin ýmsu tækifæri. Bítlavinafélagið, sólóferillinn, bandarísk tónlist æskunnar, siglingar á skemmtiferðaskipum og margt fleira var rætt í spjallinu við Eyjólf í dag. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo á sínum stað og í dag ákváðum við að tala um matarminningar, góðar og slæmar og umræðuefnið var fiskur í þetta sinn. Tónlist í þættinum: Dagar / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Við getum allt / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson) Hang on baby / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Þjóðlistahátíðin VAKA og Jónatan Garðars um Magnús Eiríksson 10.09.2026 54min
    Á sunnudaginn hefst Þjóðlistahátíðin VAKA í menningarhúsum Kópavogs og það er mikil menningarveisla sem þarna mun fara fram, tónlist, þjóðdansar, hagyrðingakvöld, íslenskt handverk, harmónikkuball, námskeið fyrir börn og fullorðna, vinnusmiðjur, rímnafögnuður og margt fleira. Ragnheiður Gröndal og Bára Grímsdóttir komu í þáttinn og sögðu betur frá. Við héldum svo áfram spjalli um ávaxtaflugur, sem sér í rauninni engan enda á. Við lásum upp afskaplega skemmtilega sögu af geitungabúi í Svíþjóð og glænýrri Nilfisk ryksugu. Við þökkum Jósep Blöndal fyrir að senda okkur þessa skemmtilegu sögu. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskst tónlistarfólk. Í síðustu viku var það Gunnar Þórðarson en í þetta sinn sagði Jónatan okkur frá ferli Magnúsar Eiríkssonar, sem einnig féll frá í ár. Magnús átti langan farsælan feril, hann er einn af þessum stóru í dægurtónlist á Íslandi, bæði sem gítarleikari, lagasmiður og svo ekki síst sem textahöfundur. Við þekkjum öll fjölda laga sem hann samdi, auk þess sem hann rak hljóðfærabúðina RÍN ásamt fjölskyldu sinni. Við komum auðvitað ekki að tómum kofanum hjá Jónatani og svo fengum við einnig að heyra tvö af frábæru lögum Magnúsar. Tónlist í þættinum í dag: Hótel jörð / Egill Ólafsson (Heimir Sindrason, ljóð Tómas Guðmundsson) Göngur og réttir / Bára Grímsdóttir (Þjóðlag, texti Grímur H. Lárusson) Blús í G / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Samferða / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Ég kom til að gráta, um Svein Pálsson og skildinginn og vísindaspjall um leðurblökur 09.09.2026 50min
    Það styttist í jólabókaflóðið, hægt og bítandi fara nýskrifaðar bækur að koma í bókabúðir sem er alltaf tilhlökkunarefni. Nú er komin út glæný bók eftir Þorgrím Þráinsson rithöfund sem heitir Ég kom til að gráta. Bókin fjallar um mann á miðjum aldri sem er í tilvistarkreppu og fer til Ólafsvíkur í leit að sjálfum sér. Hvaða afleiðingar hafa áföll í æsku, brotin sjálfsmynd, brestir í hjónabandi eða óttinn við að horfast í augu við sjálfan sig. Þorgrímur kom í þáttinn í dag. Í vikunni var áhugaverð frétt á ruv.is um að fundist hefði 255 ára skildingur sem náttúrufræðingurinn Sveinn Pálsson átti og hafði komið fyrir í vörðu af grjóti í Kvískerjum í Öræfum og Sveinn skrifaði í ferðabók sinni frá árinu 1794 að hann hefði einmitt komið téðum dönskum eirpeningi fyrir í vörðu. En í framhaldi af þessari frétt vildum við kynna okkur aðeins betur hver þessi maður, Sveinn Pálsson náttúrufræðingur var? Það vill svo skemmtilega til að væntanleg er sjö binda heildarútgáfa á verkum hans og Kristjan B. Jónasson bókmenntafræðingur er einn þeirra sem hefur unnið að útgáfu bókanna og hann kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um þennan stórmerkilega mann, ferðir hans um landið og hans ævistarf. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag fræddi hún okkur um leðurblökur og þann eiginleika þeirra að geta borið veirur í sér án þess þó að sýkjast sjálfar af þeim. Og það getur einmitt verið talsvert hættulegt fyrir okkur mannfólkið. Tónlist í þættinum í dag: Það vantar spýtur / Olga Guðrún Árnadóttir (Ólafur Haukur Símonarson) Söknuður / Roof Tops (Oldham & Penn, texti Stefán G. Stefánsson) Rock’n roll öll mín bestu ár / Brimkló (Johnson, texti Þorsteinn Eggertsson) Styttur bæjarins / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • LEB skorar á stjórnmálin, árangursrík starfsmannaviðtöl og vatnslitahátíð á Akureyri 08.09.2026 52min
    Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa. Þetta er fyrirsögn greinar sem Björn Snæbjörnsson, formaður Landsambands eldri borgara, skrifaði. Hann segir að það sé kominn tími til að stjórnmálamenn hætti að tala um eldri borgara sem einsleitan hóp, því þeir eru fjölmennur og fjölbreyttur hópur þar sem sumir búa við ágæt kjör en aðrir þurfa að snúa hverri krónu og hafa verulegar áhyggjur af því að ná endum saman. Um 8.000 eldri borgarar eru með heildartekjur undir lægsta taxta á vinnumarkaði þrátt fyrir að hafa lagt sitt af mörkum til samfélagsins alla sína ævi. Björn kom í þáttinn í dag ásamt Oddnýju Árnadóttur, framkvæmdastjóra LEB, og þau fóru yfir stöðuna með okkur. Flest okkar sem eru á vinnumarkaði þurfum að taka starfsmannaviðtöl við starfsfólk og/eða yfirmenn og flestir gera þetta reglulega, td einu sinni á ári. Það er hægt að fara á námskeið í að eiga árangursríkt starfsmannaviðtal. Inga Þórisdóttir stjórnendaþjálfi er með hvorki meira né minna en þrjár gerðir af slíkum námskeiðum. Við heyrðum í henni í dag. Í lok þáttar tengdumst við við Ragnar Hólm Ragnarsson, þar sem hann var staddur í hljóðveri RÚV á Akureyri. En Ragnar stýrir Vatnslitahátíð Íslands sem hefst á Akureyri á fimmtudaginn, en þegar er uppselt á hana. Von er á ríflega hundrað manns til bæjarins, innlendum og erlendum, þar á meðal fimm heimsþekktir listamenn sem hafa helgað ævistarf sitt vantslitum. Ragnar sagði okkur betur frá vatnslitum og hátíðinni í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Angelía / Vilhjálmur Vilhjálmsson (W. Meisel, texti Theódór Einarsson) My Friend and I / Trúbrot (Magnús Kjartansson, texti Jóhann Hjálmarsson, þýðandi Rúnar Júlíusson) When the Rain Has Gone / Unni Birna Björnsdóttir (Unnur Birna Björnsdóttir og Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Unnur Birna Björnsdóttir) Yes sir I can boogie / Baccara (Rolf Soja & Frank Dostal) Tasko Tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Leikveturinn í Þjóðleikhúsinu og Laufey Sigurðardóttir lesandi vikunnar 07.09.2026 53min
    Við héldum áfram yfirferð Mannlega þáttarins yfir það hvað verður á fjölum leikhúsanna á nýhöfnum vetri. Í dag var það Þjóðleikhússtjórinn Magnús Geir Þórðarsson sem fór yfir leikveturinn, þar verða m.a. tvö ný íslensk verk á Stóra sviðinu, Hetjur hafsins, eftir Ragnar Bragason og Rými fyrir ást eftir Tyrfing Tyrfingsson. Fyrsta frumsýning ársins á Stóra sviðinu er hins vegar breska leikritið Högg. Nýtt verk um átakanlega lífsreynslu og von í myrkri, sem hefur sópað að sér verðlaunum. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Laufey talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ítölsku skáldkonurnar Dacia Maraini og Elsa Morante Halldór Laxness, meira og minna allt hans höfundarverk Fjallkirkjan e. Gunnar Gunnarsson Astrid Lindgren og fíllinn Babar Við heyrðum svo í lokin ljóðið Mynd eftir Þorstein frá Harmi af diskinum Ljóðið ratar til sinna í upplestri skáldsins. Tónlist í þættinum í dag: Góða ferð heim / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson) Skák og mát / úr Ormstungu, Króli, Rán Ragnarsdóttir, Jakob van Oosterhout og Hallgrímur Ólafsson (Jóhannes Damian, texti Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson) Egils appelsín / Spilverk Þjóðanna (Spilverk Þjóðanna) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Benedikt Erlingsson föstudagsgestur og matarspjall um hafmeyju og kanínur 04.09.2026 54min
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn, leikstjórinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Benedikt Erlingsson. Hann er þessa dagana að leika á ný sýninguna sína Mr. Skallagrímsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi eftir 10 ára hlé. Við ræddum við hann um ferilinn, ást hans á að segja sögur, stöðu kvikmyndagerðar á Íslandi og margt fleira í skemmtilegu spjalli í þættinum í dag. Svo tókum við upp þráðinn í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti í dag. Hún sagði okkur frá ferð sinni til Napólí og eyjunnar Ischia og matarupplifun sinni þar. Sætabrauði, kaffihús, ricotta ostur, kanínukjöt, pasta, hafmeyja og fleira í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Sigling / Magnús Þór Sigmundsson (Magnús Eiríksson) Glor på vinduer / Trine Dyrholm (Anne Kristine Linnet) Kærleikur / Óðmenn (Jóhann G. Jóhannsson, texti úr kórintubréfi Páls postula) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • 30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans, búningahátíð í Firðinum og Jónatan Garðars um Gunnar Þórðarson 03.09.2026 51min
    Á laugardaginn fagnar Hótel- og matvælaskólinn í MK 30 ára afmæli sínu. Viðburðurinn er hluti af afmælishaldi skólans og markar mikilvægan áfanga í sögu hans. Með þessu vill forsvarsfólk skólans kynna starfsemi Hótel- og matvælaskólans, efla tengsl við gesti og samstarfsaðila og skapa ánægjulega samverustund fyrir alla aldurshópa. Það verður opið hús og fjölbreytt og fjölskylduvæn dagskrá í boði. Gestir geta fylgst með keppnum, heimsótt matarmarkað, kynnt sér fyrirtæki og samstarfsaðila, notið matar og tekið þátt í ýmiss konar afþreyingu. Við fengum til okkar góða gesti frá skólanum, nemann Janus Þorsteinsson Roelfs og kennarana Dóru Svavarsdóttur og Hinrik Carl Ellertsson, sem einnig er deildarstjóri. Og það verður líka gaman í Hafnarfirði um helgina því á bókasafninu á annarri hæðinni í Firðinum verður haldin í þriðja sinn hátíðin Heimar og himingeimar sem er búninga- og leikjahátíð þar sem saman kemur áhugafólk um búninga af öllum tegundum, allt frá búningum sem byggja á sögulegum grunni yfir í búninga úr vísindaskáldsögum eins og til dæmis Hringadrottinssögu og Stjörnustríðsmyndunum. Unnur Helga Möller viðburðarstjóri kom í þáttinn og sagði frá. Jónatan Garðarson verður áfram með okkur á fimmtudögum og fræðir okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Gunnari Þórðarsyni, sem lést í sumar. Jónatan rak magnaðan feril Gunnars frá því að hann byrjaði að spila kornungur á gítar, svo auðvitað hljómsveitirnar hans Hljómar, Trúbrot, Río tríó, Ðe lónlí blú bojs, og fleiri, sólóplöturnar og öll lögin sem hann hefur samið sem við öll þekkjum. Jóntan sagði okkur betur frá þessu í dag. Tónlist í þættinum: Það reddast / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik) Allt í fína / Raggi Bjarna og Katrín Halldóra og Karl Orgeltríó (Karl Olgeirsson) Bláu augun þín / Hljómar (Gunnar Þórðarson, Ólafur Gaukur Þórhallsson) Þitt fyrsta bros / Pálmi Gunnarsson (Gunnar Þórðarson, Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Bangsahátíð í Reykjavík, Haustsöfnun Barnaheilla og vísindaspjallið um áhrif sætuefna 02.09.2026 50min
    Reykjavík Bear hátíðin fer fram dagana 3.–6. september og sameinar bangsa, vini þeirra og gesti víðsvegar að úr heiminum í fjögurra daga hátíð. Bangsasamfélagið á rætur í menningu samkynhneigðra karla og varð til sem rými fyrir fólk sem fann sig ekki í ríkjandi útlitskröfum. Orðið bangsi hefur gjarnan verið tengt við stórvaxna, skeggjaða eða loðna karlmenn, en samfélagið er mun fjölbreyttara en sú staðalmynd gefur til kynna. Meðal hápunkta er val á Mr. Reykjavík Bear í Austurbæjarbíói laugardaginn. Sigurður Júlíus Guðmundsson, formaður Bangsafélagsins, og Jóhann Örn B. Benediktsson, sem vann titilinn Mr. Reykjavík Bear í fyrra, komu í þáttinn í dag. Svo brugðum við okkur til Síerra Leóne, en Barnaheill hefur staðið að byggingu skóla í þorpi þar. Ákvörðunin um að gera það var tekin eftir að blasti við að börnin á svæðinu gátu ekki nýtt sér aðstoð Barnaheilla því að það vantaði grunnstoðina, skólann. Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sagði okkur betur frá þessu, verkefnum samtakanna, haustsöfnuninni, Vigdísarstokknum og styrktartónleikum í Salnum í þætti dagsins. Edda Olgudóttir tók upp þráðinn frá miðvikudögum síðasta vetrar og kom í vísindaspjallið í dag. Nú fjallaði hún um rannsóknir sem sýna áhrif sætuefna á þarmaflóruna og fleira, jafnvel í nokkrar kynslóðir. Tónlist í þættinum í dag: Skítaveður / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason) Gangi þér allt að sólu / Armundur Ernst Backman Björnsson (Armundur Ernst Backman Björnsson) Seabird / Alessi Brothers (Billy Alessi, Bobby Alessi & Mike Melvoin) Fiskisúpa Sigríðar í Fjörhúsinu / Hilmar Oddsson (Hilmar Oddsson, texti Karl Roth) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • PingPongParkinson, að huga að öðrum og sjálfum sér og næturfrost í veðurspjallinu 01.09.2026 52min
    Við fræddumst í dag um heimsmeitaramótið PingpongParkison sem fer fram í Hannover í Þýskalandi í lok september. Hannes Guðrúnarson, borðtennisþjálfari og Vilborg Jónsdóttir, sem keppir fyrir hönd Íslands á mótinu, komu í þáttinn í dag. Borðtennis er, að þeirra sögn, eitt það besta fyrir fólk með parkinson. Parkinson hefur mörg ólík einkenni, eitt það þekktasta er skjálfti í höndum, en við borðtennisiðkun minnkar skjálftinn og ekki bara á meðan spilað er. Þau Hannes og Vilborg sögðu okkur betur frá þessu í dag. Er hægt að hlúa að sjálfum sér samhliða því að huga að öðrum og takast á við krefjandi verkefni? Rannsóknir sýna að einstaklingar sem sinna störfum sem fela í sér aðhlynningu fólks, geta verið útsettir fyrir neikvæðum heilsufarslegum áhrifum. Hins vegar sýna rannsóknir einnig fram á að samkennd getur dregið úr neikvæðum áhrifum. Við ræddum við Sólveigu Fríðu Kjærnested sérfræðing í klíniskri sálfræði í þættinum. Veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni var svo á sínum stað eftir sumarfrí og verður áfram í þættinum annan hvern þriðjudag. Við veltum fyrir okkur haustveðrinu, þó september sé skilgreindur sem sumarmánuður í veðurfræðinni hér á landi. Næturfrost, lægðarspá, monsúnvindar og skyndiflóð komu við sögu. Tónlist í þættinum í dag: Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarsson, texti Ólafur Haukur Símonarson) Óralangt / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Wrap Your Troubles in Dreams / Dean Martin (Moll, Barris & Koehler) Singing in the Rain / Dave Brubeck Trio (Brown & Freed) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Leikárið í Borgarleikhúsinu, pistill frá Kaupmannahöfn 1949 og Elínborg lesandi vikunnar 31.08.2026 52min
    Mannlegi þátturinn fór aftur í gang í dag eftir sumarfrí og þátturinn Sumarmál hefur runnið sitt skeið. Eins og undanfarin haust munum við á næstu mánudögum fara í svokallaðan leikhúsrúnt, þar sem við fáum að heyra hvað verður á fjölum leikhúsanna í vetur. Við byrjuðum í dag á því að ræða við Egil Heiðar Anton Pálsson Borgarleikhússtjóra og það sem verður þar á fjölunum í vetur. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar með gullmola úr safni RÚV, pistil frá árinu 1949 sem Geir Aðils, fréttaritari RÚV í Kaupmannahöfn sendi heim. Geir segir þar t.d. frá því þegar skömmtun var aflétt eftir Heimsstyrjöldina, Fegrunarfélagi Kaupmannahafnar og fleiru. Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina: Systkinaerjurnar e. Moa Herngren Kæri fáviti e. Virginie Despentes Jakaranda e. Gael Faye Salka Valka, Vefarinn mikli frá Kasmír og Sjálfstætt fólk Tónlist í þættinum í dag: Reykjavík / Spilverk þjóðanna (Spilverk Þjóðanna) Þrisvar í viku / Bítlavinafélagið (Jón Ólafsson) Greidd skuld er glatað fé / Fánar (Magnús R. Einarsson, Ásgeir Óskarsson og Haraldur Þorsteinsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Gunnar Helgason föstudagsgestur og matarspjall um útimáltíðir 26.06.2026 54min
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn, rithöfundurinn og leikstjórinn Gunnar Helgason. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar úr Hvassaleytinu í Vogahverfið, hvar hann eyddi öllum stundum í fótbolta eða á skíðum. Hvenær leiklistin kom inn í líf hans og svo bókaskrifin og leikstjórnin, en Gunnar hefur leikstýrt leiksýningum víða um lönd og skrifað um þrjátíu bækur. Nú síðast var hann að auglýsa á samfélagsmiðlum eftir frægum „Bo“-frösum sem verða notaðir á minningartónleikum um Björgvin Halldórsson í haust. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag veltum við því fyrir okkur hvort og hvernig er hægt að sitja úti, jafnvel heilt kvöld á Íslandi og hvað sé best að borða við slíkar aðstæður? Tónlistin í þættinum: Óbyggðirnar kalla / KK og Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) Hringd’í mömmu / Stefán Hilmarsson (Yeary, Mille & Green, texti Stefán Hilmarsson) Póstnúmer / Flott (feat.KR!$$!) (Vigdís Hafliðadóttir og Regnhildur Veigarsdóttir, texti Vigdís Hafliðadóttir og Arnór Björnsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Svava í Hugarhlýju, Hveragerði 80 ára og Jónatan um Ragga Bjarna 25.06.2026 54min
    Svava Bjarnadóttir sagði upp vinnunni sinni sem sjúkraliði á geðsviði og opnaði lítinn stað þar sem allt sem viðkemur mannlegri sjálfsrækt er í fyrirrúmi. Hún er sjálf með ýmis námskeið og er nýbúin að kaupa slatta af hengirúmum sem hún notar í hugleiðslur og og stundir fyrir hópa sem vilja slaka á og njóta. Staðurinn er í Hveragerði og við hittum Svövu þar, en hún er andlegur einkaþjálfari, reikimeistari og geðsjúkraliði. Og við stöldruðum lengur í Hveragerði en það eru merk tímamót þegar bæjarfélag fagnar 80 ára afmæli og Hveragerði fagnar einmitt slíku afmæli allt þetta ár og dagskráin er glæsileg. Við hittum menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa bæjarins, Sigríði Hjálmarsdóttur, en hún hóf störf fyrir þremur árum og á þeim tíma hafa þrír bæjarstjórar vermt bæjarstjórastólinn. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði Jónatan um Ragnar Bjarnason, eða okkar eina sanna Ragga Bjarna, sem var auðvitað einn ástsælasti dægurlagasöngvari íslenskrar tónlistarsögu. Tónlistin í þættinum: Ég skal bíða þín / Helgi Björns og reiðmenn vindanna (Micheal Legrand, texti Hjördís Morthens) Hveragerði / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir) Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig / Ragnar Bjarnason (Monaco, McCarthy & Johnson, texti Jón Sigurðsson) Þannig týnist tíminn / Ragnar Bjarnason og Lay Low (Bjartmar Guðlaugsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Með lífið í lúkunum, Listasumar á Akureyri og vísindaspjall um heilann 24.06.2026 53min
    Við fræddumst um átakið Með lífið í lúkunum hér á eftir. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli þeirri hættu sem fylgir kyrkingartökum, bæði sem hluti af kynlífi eða sem hluti af öðru ofbeldi. Ranghugmynda hefur gætt um slíkt, en rannsóknir leiða í ljós meiri hættu en áður hefur verið talið. Hver einasta sekúnda sem flæði blóðs er heft hefur áhrif á heilann og lítið átak þarf til að valda skemmdum. Ástþóra Kristinsdóttir, sérfræðingur í ofbeldismálum hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, og Drífa Snædal, talskona Stígamóta, komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá. Stefnumót við fortíðina, svangar ruslaverur og dansiball í göngugötunni er allt partur af Listasumri á Akureyri sem hefst á morgun og stendur til 18.júlí. Við slógum á þráðinn norður og töluðum við Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur verkefnastjóra menningarmála hjá Akureyrarbæ. Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið og í dag talaði um rannsóknir á heilanum og heilaheilsu. Tónlist í þættinum í dag: Vor í Reykjavík / Uppáhellingarnir (Andri Ólafsson, texti Þórarinn Már Baldursson) Ást og friður / Halli Reynis og Vigdís Jónsdóttir (Halli Reynis) Refur / Svavar Knútur (Svavar Knútur) Við gengum tvö / Ingibjörg Smith (Friðrik Jónsson og Valdimar Hólm Hallstað) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Jensína Reykvíkingur ársins, Branislav Bédi og veðurspjall um hitabylgju í Evrópu 23.06.2026 50min
    Reykvíkingur ársins var kynntur á dögunum, hann er valinn út frá tilnefningum, einstaklingar sem hafa með háttsemi sinni eða atferli verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. Eftir yfirferð á tilnefningum var tekin ákvörðun um að veita Jensínu Eddu Hermannsdóttur titilinn, en hún er þekkt fyrir framlag sitt til uppeldismála og jákvæðrar sálfræði í skólastarfi og hefur starfað af heilindum að málefnum barnanna í leikskólanum Laufásborg. Jensína kom í þáttinn í dag. Í sumar eru fjörutíu ár liðin frá því að fyrsta alþjóðlega sumarnámskeiðið í íslenskri tungu og menningu var haldið við Háskóla Íslands. Námskeiðið var sérstaklega hannað fyrir námsmenn sem komu hingað frá erlendum háskólum. Branislav Bédi kom í þáttinn í dag, en hann kemur frá Slóvakíu og er doktor í annarsmálsfræðum við Árnastofnun og hefur kennt íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur var svo með okkur í dag í veðurspjallinu í beinni útsendingu úr hitanum í Rómarborg. Í dag horfði hann einmitt til hitabylgjunnar í Evrópu, hvað hefur mælst hár hiti og hverjar eru horfurnar? Í því samhengi fræddi hann okkur um rauða hitaviðvörun, hvað þýðir hún? Hverjar eru ástæður þessa og hvað er hitahvelfing? Og hver er tengingin á milli hitabylgjunnar og kalds sjós og lofts suðvestan Íslands? Í restina fór Einar svo aðeins yfir horfurnar hér heima framundan. Tónlist í þættinum í dag: Í huga mér / Brimkló (Quillan Pierce, texti Jón Sigurðsson) Allt það góða / Helgi Pétursson (Kris Kristoferson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Á úthafsins öldum / Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) Turistens klagan / Cornlis Vreeswijk (Cornelis Vreeswijk) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Söngleikir án vettvangs, hreinlæti í Reykjavík frá 1968 og Grétar Halldór lesandi vikunnar 22.06.2026 53min
    Þór Breiðfjörð tónlistarmaður er nýútskrifaður úr meistaranámi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Meistararitgerðin hans heitir Vinsældir án vettvangs, staða söngleikjalistformsins á Íslandi sem menningarvettvangs. Þór kom í þáttinn og sagði okkur betur frá efni ritgerðarinnar, enda hefur hann heldur betur lifað og hrærst í söngleikjaforminu í gegnum tíðina. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn leyfði hún okkur að heyra hluta af spjalli Stefáns Jónssonar við Gústaf Pálsson borgarverkfræðing úr þættinum Hálftíminn: Um hreinlætið í Reykjavík frá árinu 1968. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Grétar Halldór Gunnarsson, prestur við Kópavogskirkju. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Grétar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Skrifað í sand - æviminningar Karls Sigurbjörnssonar Sálumessa syndara - æviminningar Esra Péturssonar geðlæknis (Ingólfur Margeirsson ritaði) Siddharta e. Hermann Hesse (íslenskuð af Haraldi Ólafssyni) Páll postuli Sigurbjörn Einarsson Tónlist í þættinum í dag: Bjartsýni / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) (Café Song) Empty Chairs and Empty Tables / Þór Breiðfjörð (Alain Boublil, texti Claude-Michel Schönberg, Úr Vesalingunum) Út á stoppistöð / Stuðmenn ( Jakob Frímann Magnússon) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Andrea Róbertsdóttir föstudagsgestur, og leikfimi, sítrónur og fótalykt í matarspjallinu 19.06.2026 52min
    Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu var föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Hún var tilnefnd til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísis 2026 en þau verðlaun eru veitt stjórnendum sem hafa skarað framúr á sínu sviði og sýnt framúrskarandi hæfni í starfi. Andrea hefur komið víða við í atvinnulífinu og hefur mjög gaman af lífinu. Hún er þekkt fyrir lífsgleði og jákvæðni og við töluðum við hana um lífið og tilveruna og ferðuðumst aftur í tímann og svo aftur til dagsins í dag. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo á sínum stað og áætlunin var að tala um sumarsólstöður sem eru á sunnudaginn og mat sem er við hæfi að borða þá og í dag á kvenréttindadaginn. Aftur á móti festumst við í spjalli upp úr Eldhúsbókinni gömlu, yfir greinum um líkamsrækt húsmæðra, sítrónur og táfýlu. Tónlist í þættinum í dag: Má ég / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Hakk og spaghettí / Árný Margrét (Svavar Pétur Eysteinsson) Fyrrverandi / Una Torfa (Una Torfadóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Ofbeldi gegn öldruðum, skaðleg efnaáhrif á líkama og húð og Jónatan um Kristján Kristjánsson 18.06.2026 50min
    Á mánudaginn var alþjóðadagur vitundarvakningar um ofbeldi gegn öldruðum af því tilefni kom varaformaður Landssambands eldri borgara, Sigurður Ágúst Sigurðsson, í þáttinn í dag. Hlutfall einstaklinga 60 ára og eldri mun aukast um tæp 40% á heimsvísu frá 2019-2030 og ofbeldi gegn öldruðum er vanmetið og getur birst í margvíslegri mynd. Sigurður sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag. Una Emilsdóttir er sérnámslæknir í atvinnu og umhverfislæknisfræði og er við nám og störf í Danmörku. Una segir mikilvægt að vera upplýstur neytandi og að það skipti máli að forðast skaðleg efnaáhrif á líkama og húð með þekkinguna að vopni. Við heyrðum í Unu í dag og forvitnuðumst til dæmis um hvað atvinnu- og umhverfislæknisfræði felur í sér. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk og í dag var komið að KK eða Kristjáni Kristjánssyni saxófónleikara, en hann er kunnastur fyrir hljómsveit sína KK sextettinn sem hann starfrækti í um fimmtán ára skeið. Sveitin var vinsælasta danssveit landsins og með henni sungu þekktir söngvarar, til dæmis Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms. Tónlist í þættinum í dag: Í bláum skugga / Stuðmenn (Sigurður Bjóla Garðarsson) Á Mallorca / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason) Lukta-Gvendur / Alfreð Clausen, Sigrún Jónsdóttir og KK sextett (N. Simon, texti Eiríkur Karl Eiríksson) 9:20 Special / KK sextett (J. Palmer, Earle Warren & W. Engwick) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Obľúbený v

Tento podcast sa objavuje aj v rebríčkoch podcastov týchto krajín.