38 umferðir

38 umferðir

38umferdir
Krajina Island
Žánre Šport, Futbal
Jazyk IS
Epizódy 44
Najnovšia 23.09.2026

38 umferðir er íslenskt hlaðvarp um Fantasy Premier League (FPL) í enska boltanum. Þáttastjórnendurnir Albert Guðmundsson og Sindri Kamban fjalla um draumaliðsleikinn, gefa ráð og ræða stöðuna í deildinni. Þættirnir fjalla um helstu atriði og brellur fyrir þátttakendur.

Epizódy

  • Er Thierno Barry næsti Thierry Henry? 23.09.2026 1h 18min
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín og gáfu hlustendum góð ráð til að nýta í landsleikjahléinu. 
  • Pascal engan undra hversu góður Groß er í Fantasy 16.09.2026 1h 14min
    Uppgjör á 4. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Er The blue man group Þríeykið í Chelsea ómissandi, Er einhver Wissa í Newcastle liðinu og er nóttin ennþá ung fyrir þau okkar sem erum í sætum sem telja 6 tölustafi.
  • Kominn tími á að Hull fái á sig mörk 09.09.2026 1h 23min
    Þeir Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á sunnudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og ótrúlega frammistöðu Hull City.
  • Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu? 02.09.2026 1h 24min
    Er hægt að selja Bruno eftir svona frammistöðu? Barcola, er það eitthvað? Og Verða Chelsea meistarar eftir að Martinez er kominn á milli stangana? Albert og Sindri leituðu meðal annars svara við þessum spurningum ásamt því að fara heilt yfir stöðuna í síðasta degi leikmannagluggans.Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 3 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich og Liverpool kl 19:00 á föstudagskvöld
  • Chelsea kom, João og sigraði 26.08.2026 1h 20min
    Albert og Sindri tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í fyrstu umferð náði sér í 102 stig hvorki meira né minna. Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule léttöl, Visitor, Bullseye, Boltamaðurinn, World Class, Íslenski barinn og Matarkjallarinn. Taktu þátt í fantasy deild 38 umferða og fótbolta.net - Kóðinn er 10k1ov
  • Síðasti upphitunarþátturinn áður en fantasy fer af stað á föstudag 18.08.2026 1h 26min
    Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov Þriðji þátturinn af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á helstu leikmönnum sem þeir eru að íhuga fyrir umferð 1 og fóru yfir liðin sín eins og þau líta út í dag, þó vissulega muni margt breytast þar þangað til fresturinn til að gera breytingar rennur út kl 17:30 á föstudag.Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov
  • Haaland, eða ekki Haaland, þarna er efinn... 12.08.2026 1h 34min
    Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á öllum 20 liðunum í deildinni og fóru yfir tvær mismunandi uppstillingar hvor sem þeir sjá fyrir sér að stilla upp í fyrstu umferð, eitt lið með Haaland og eitt lið án Haaland.Einnig tilkynntu félagarnir um gjafaleik sem er að fara af stað á Instagram og Tiktok miðlum 38 umferða. Glæsilegir vinningar frá Happatreyjum, Thule, Bullseye og Matarkjallaranum. Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule, Visitor, Bullseye, World Class, Íslenski barinn og Matarkjallarinn.
  • 38 umferðir framundan 06.08.2026 52min
    Í fyrsta þætti tímabilsins settust strákarnir niður í Coke stúdíóinu og kynntu reglur leiksins fyrir hlustendum og fóru yfir sín fyrstu viðbrögð við breytingum leiksins í ár og verðlagningu lykilleikmanna. Félagarnir ræddu helstu félagsskiptin í enska boltanum sem munu hafa áhrif á komandi tímabil og helstu orðróma sem gætu fengið spilara til að endurskoða sína taktík fyrir tímabilið.
  • Lokauppgjör 26.05.2026 1h 24min
    Þá eru tímabilinu lokið og Albert og Sindri mættu í stúdíóið til að horfa yfir farin veg.
  • 38. umferðum síðar 22.05.2026 1h 19min
    Þeir segja að þetta sé ekki búið fyrr en feita konan syngur, og þrátt fyrir að Arsenal hafi orðið sófameistarar í síðustu umferð þá hefur hún ekki upp raust sína fyrr en á næstkomandi sunnudag. 
  • Tími til kominn að taka sénsa. 14.05.2026 51min
    Nú þegar það eru bara tvær umferðir eftir af tímabilinu ræddu Albert og Sindri um hvaða lið hefðu eitthvað til að spila uppá og hvað lið væru mætt á ströndina.
  • Þessi tvöfalda umferð er tálsýn 06.05.2026 42min
    Tvöföld umferð er yfirleitt fagnaðarefni í fantsy-heimum en er komandi tvöfalda umferð tálsýn ein?
  • Allt í járnum á öllum vígstöðvum (Bombuspecial) 29.04.2026 1h 14min
    Albert fékk engan annan en Gunnar Hilmar Kristinsson eða Gunna bombu í settið til að taka stöðuna á milli 34. og 35. umferðar. 
  • Við fengum ekki að João Pedro 23.04.2026 1h 16min
    Nú er umferð 33. að baki og eftir situr að takast á við þynnkuna sem kemur í umferð 34. en þar leynast gullin tækifæri til að skjóta sér upp töfluna.
  • Stórasta umferð í heimi. 14.04.2026 1h 21min
    Þá er Albert mættur aftur og ekki seinna vænna því loksins er komið að því, stærsta umferð tímabilsins er handan við hornið. Sex lið spila tvöfalda umferð og því nauðsynlegt að taka "deep dive" á það.
  • Lognið á undan storminum. 08.04.2026 47min
    Eftir langt landsleikjahlé tökum við upp þráðinn og rýnum í stöðuna fyrir umferð 32. Líkt og salt og pipar fara umferðir 32 og 33 saman, svo við horfum einnig fram á veginn og metum möguleikana þar. Hvernig ætlar þú að stilla upp chip-strategíunni? Gestastjórnandi er Daníel Franz Davíðsson, markaðsfulltrúi HSÍ og fantasý spekúlant.
  • Einn dagur í einu. 18.03.2026 49min
    Nú þegar óvissan er alltumlykjandi varðandi hvenær verða tvöfaldar umferðar er mikilvægt að taka einn dag í einu, og gott að hafa bandið á okkar áreiðanlegasta manni, Bruno Fernandes.
  • What to Expect When You're Expecting 12.03.2026 1h 14min
    Deadline fyrir næstu umferð er laugardaginn 14. mars. kl 13:30. Aron Fantabragðabróðir mætti í stúdíóið til að þessa að spá í spilin í fjarveru Alberts. 
  • Góður, betri, bestur. 02.03.2026 1h 9min
    29. umferð hefst þriðjudaginn 3. mars og lokar fyrir breytingar á liðunum kl 18:00. Fórum yfir allt það helsta ásamt því að fara yfir hver væri góður, betri, og bestur sem fyrirliði fyrir umferðina.
  • Šeško Time 24.02.2026 50min
    Næsta umferð hefst föstudaginn 27. febrúar og er Deadline-ið því klukkan 18:30. Ef þú ert að velta fyrir þér hvern þú átt að hafa sem fyrirliða þá fórum  við yfir hvað væri góði pakkinn, betri pakkinn og besti pakkinn í þeim efnum. Pedro vaktin var á sínum stað og svo er spurning hvort það sé ekki að bresta á með Šeško Time!

Obľúbený v

Tento podcast sa objavuje aj v rebríčkoch podcastov týchto krajín.