Álhatturinn
Álhatturinn
0
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum. Þátturinn kostar 1290 kr. á mánuði og veitir aðgang að yfir 50 þáttum af samsæriskenningaefni. Áskriftarhlekkur er aðgengilegur í gegnum pardus.is.
Epizódy
-
Artemis II tunglverkefnið var sviðsett 21.04.2026 27minÍ yfir hálfa öld hefur mannkynið beðið eftir því að stíga aftur fæti á tunglið. Við höfum verið fóðruð á sögum af týndum gögnum og þeirri ótrúlegu staðreynd að NASA hafi hreinlega „eytt“ tækninni sem kom okkur þangað árið 1969. Teikningarnar og leiðarvísarnir týndust eða glötuðust á einhvern undarlegan hátt. Það bara gleymdist að taka afrit. En nú er NASA mætt aftur og að þessu sinni með Artemis-áætlunina. Erum við að horfa á spánýtt og ótrúlegt vísindaafrek eða dýrustu og tæknilega fullkomnu... -
P2: Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar | Hluti 2 06.04.2026 33minÍ þessum síðari hluta Álhattarins um Vísindakirkjuna sökkva þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór sér enn dýpra ofan í hyldýpið í leit að svörum við því hvernig ein dularfyllstu samtök heims virka raunverulega, þegar glansmyndin fellur. Nú beina þeir vinirnir sjónum sínum að útsmogna manninum sem rændi völdum með klækjum og harðfylgi, David Miscavige, og hvernig hann breytti kirkjunni í sitt eigið persónulega einræðisríki, þar sem enginn er óhultur. Nokkuð sem virðist eiga ja... -
Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar 20.03.2026 28minFlest könnumst við við Vísindakirkjuna sem einhverskonar stórfurðuleg og dularfull samtök stjarnanna í Hollywood, þar sem Tom Cruise og John Travolta brosa framan í heiminn sem andlit hins andlega frelsis. En hvað dylst raunverulega á bak við glansmyndina, milljarða fasteignaveldið og loforðin um „að hreinsa“ mannkynið? Er mögulegt að undir yfirskini trúfélagsskráningar starfi í raun einhver þaulskipulagðasta glæpastofnun heims, sem nýtir heilaþvott, njósnir og hrottalega kúgun til að h... -
Trevor Moore úr gríneykinu Whitest Kids U' Know var komið fyrir kattarnef 06.03.2026 27minFlestir sem á annað borð höfðu aðgang að internetinu á fyrsta áratug þessarar aldar kannast við Trevor Moore, forsprakka grínhópsins The Whitest Kids U' Know. Trevor var ekki eingöngu ótrúlega hæfileikaríkur grínisti; hann var einn skarpasti samfélagsrýnir sinnar kynslóðar, sem notaði beittan og súran húmor til að rífa niður tjöldin hjá valdastéttinni og afhjúpa keisarann fyrir að vera ekki í neinum fötum. Allt þar til þann 6. ágúst 2021, þegar Trevor lagði frá sér hljóðnemann og þagnaði í ei... -
Mannkynið hefur komið upp leynilegum bækistöðvum á mars og tunglinu 20.02.2026 27minÍ þessum þætti af Álhattinum kafa Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í eina frumlegustu og furðulegustu samsæriskenningu samtímans. Hugmyndina um að mannkynið hafi í áratugi rekið háleynilegt geimáætlunarverkefni, komið upp bækistöðum á Mars og tunglinu og þjálfað svokallaða ofurhermenn(e.supersoldiers) til að þjóna í leynilegum geimhernaði. Er hugsanlegt að bandarísk yfirvöld, í samstarfi við önnur stórveldi og jafnvel einkafyrirtæki, hafi byggt upp heilan skuggaveruleika utan al... -
P2: Geimverur hafa heimsótt jörðina og yfirvöld hylma yfir tilvist þeirra | Hluti 2 05.02.2026 22minÍ þessum þætti af Álhattinum halda Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áfram þar sem frá var horfið og taka aftur fyrir stóru spurninguna sem enginn virðist mega, vilja eða geta svarað almennilega. Hafa geimverur heimsótt jörðina og eru yfirvöld að hylma yfir tilvist þeirra? Frá síðasta þætti hefur margt vatn runnið til sjávar og tíðarandinn verið dulítið skrýtinn. Hugtakið UAP hefur tekið við af UFO, herinn og allskonar dularfullar stofnanir hafa neyðst til að viðurkenna að eitthvað ó... -
Æðstu ráðamenn í Minnesota eru viðriðnir milljarða svikamyllu í fylkinu 23.01.2026 25minÍ þessum þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í það sem sumir kalla “Minnesota svikamylluna”(e.minnesota scam). Barnagæsla sem virðist sífellt vera lokuð eða er í það minnsta með gluggum þökktum dökkum dúkum með engin raunveruleg ummerki um börn. Tugir meintra heilbrigðisþjónusta og góðgerðarstofnana, sem eru að öllum líkindum skúffufyrirtæki, skráð til húsa í sömu byggingu. Flutningaþjónusta sem á á pappír að vera burðarás kerfisins, en v... -
P4: Jeffrey Epstein er á lífi | Hluti 4 09.01.2026 21minNýlega birti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna fjöldan allan af skjölum tengdum viðurstyggðinni og viðrinu Jeffrey Epstein, vitorðsmönnum hans og viðbjóðnum sem þeir frömdu á eyju hans, í flugvél hans og víðar. Fjöldi og umfang yfirstrikana í skjölunum hefur vakið undrun og ugg meðal margra og fólk veltir því fyrir sér hvað sé eiginlega verið að fela og hverja sé verið að vernda. Er einungis verið að verja fórnarlömb eða heldur einhverskonar verndarengill hlífiskildi yfir áhrifamik... -
Guðjón Heiðar er Psyop 26.12.2025 21minGuðjón Heiðar Valgarðsson, borgarstjóra Samsæríu og Álhatt allra álhatta, þarf vart sérstaka kynningu meðal álhugafólks um samsæri. Í hugum margra er hann orðinn eins konar samnefnari fyrir samsæri og opinber fulltrúi íslenskra samsærissinna. Maðurinn sem stendur á horninu með gjallarhornið í hendi og reynir að vara grunlausan almenning við öllu því skuggalega sem gerist bakvið tjöldin. Hann hefur talað um 11. september, Íraksstríðið, innrásina í Lýbíu, fall Gaddafis, peningakerfið, hlý... -
Michael Jackson var hafður að rangri sök og var ekki barnaníðingur 12.12.2025 25minMichael Jackson þarf vart að kynna fyrir nokkrum.. Barnastjarnan úr Jackson 5 sem skein, líkt og Betlehemstjarnan, skærast allra stjarna. Hann skaust fram á sjónarsviðið eins og eldibrandur á barnsaldri og heillaði heimsbyggðina með bræðrum sínum og systrum. En þó Jackson 5 nytu hylli almennings þá var það ætíð Michael sem lýsti upp stjörnuhiminn og þaut um himinskautin líkt og halastjarna. Hann tók að endingu alfarið yfir sviðið og varð að stærstu poppstjörnu allra tí... -
P2: Allt sem þú telur þig vita um Suðurskautslandið er lygi | Hluti 2 28.11.2025 27minSuðurskautið hefur lengi verið sveipað mikilli dulúð og leyndardóm sem vakið hefur forvitni og furðu margra. Þetta ógnarstóra landsvæði sem er að mestu leyti hulið ís er óðafjarri öðrum löndum og svo virðist sem enginn búi á þessu annars gríðarstóra og auðuga landsvæði. Þó svo að þó nokkur lönd hafi reynt að gera tilkall til þess að eignast landið virðist svo vera sem að á einhverjum tímapunkti hafi þessi lönd öll sammælst um að ekkert þeirra mætti eiga Suðurskautið og þar mættu einung... -
P1: Allt sem þú telur þig vita um Suðurskautslandið er lygi | Hluti 1 14.11.2025 24minÞað má vera að sumir kunni að halda að Suðurskautslandið sé ekkert annað en auðn, ís og mörgæsir. En svo eru til þeir sem trúa því staðfastlega að mikil leyndarmál og heill huliðsheimur sé falin á suðurskautinu og að aðgengi að Suðurpólnum sé jafn takmarkað og það er til þess að fela risastór leyndarmál sem eru talin hættuleg almenningi. Huldar stórborgir falinna heimsvelda, gífurlega tæknivæddar herstöðvar eða bækistöðvar nasista og jafnvel heilt samfélag geimvera eða einhverskon... -
Ísraelar vissu af yfirvofandi áras Hamas 7. október og leyfðu henni að gerast 31.10.2025 24minHryðjuverkaárásir Hamas á Ísrael 7.Október 2023 eru einn svívirðilegasti og grimmilegasti gjörningur seinni tíma, ef ekki sögunnar. Þar sem fjöldinn allur af blásaklausum borgurum allt frá ungabörnum til gamalmenna var myrtur á hrottafneginn og viðrustyggilegan hátt af blóðheitrum öfgamönnum. Allt í nafni trúar. Síðan þá hafa geysað gífurleg átök á Gaza sem hafa kostað gífurlegt magn mannslífa úr báðum fylkingum. Átökin virðast bara ágerast og ágerast og ekki einu sinni Bandaríkin eða Trump v... -
Fyrirboðum um áform hulduaflanna er plantað í dægurmenningu áður en þau raungerast (e. Predictive programming) 17.10.2025 29minÍ þessum nýjasta þætti af Álhattinum ræða Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áhugavert fyrirbæri sem kallað hefur verið forvirk forritun(e.predictive programming), þar sem dægurmenning virðist spegla eða jafnvel undirbúa almenning fyrir atburði áður en þeir raungerast. Sagan er þannig ekki einungis skrásett og skjalfest af sagnfræðingum heldur einnig skrifuð og skipulögð af handritshöfundum, leikstjórum og fréttastofum sem móta sameiginlega sýn almennings á heiminn í gegnum undirmeðvit... -
P2: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 2 03.10.2025 21minKæru Álhattar! Álhatturinn er kominn yfir á Pardus Hlaðvarps samfélagið og alla þætti má finna á eftirfarandi slóð: www.pardus.is/alhatturinn Við munum halda áfram að setja teasera fyrir þættina á Spotify og Apple en fyrir þau sem vilja heyra okkur kryfja málefnið til mergjar þá eru þættirnir fullri lengd á Pardusnum. Bestu kveðjur, Guðjón, Haukur og Ómar ---- Charlie Kirk var ekki bara einhver gaur með sterkar skoðanir og hlaðvarp. Hann var táknmynd heillar kynslóðar ungs íhaldsfólks. Stráku... -
P2: Við búum í hermiveröld (e. simulation) og raunveruleiki okkar er sýndarveruleiki | Hluti 2 21.08.2025 2h 3minHvað ef veruleikinn er ekki raunverulegur og við sitjum föst í meingallaðir hermiveröld? Í þessum síðari þætti Álhattsins um hermiveröldina og sýndarveruleikann kafa strákarnir enn dýpra ofan í kanínuholuna og draga fram stórfurðuleg og fremur ótrúleg dæmi sem virðast benda til þess að kóðinn sjálfur sé farinn að hiksta. Eins Brady Feigl og Brady Feigl, hafnabolta mennirnir tveir með sama nafn og sama útlit sem fóru meiraðsegja í sömu skurðaðgerð hjá sama lækni án þess... -
P2: Leynileg klíka stefnir að New World Order eða hinni nýju heimsskipan | Hluti 2 08.08.2025 2h 48minÍ þessum síðari hluta um hina svokölluðu nýju heimsskipan, e:New World Order, halda þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór lengra ofan í kanínuholuna og skoða djúpt ofan í kjölin á kenniingunni. Hvað er eiginlega málið með alla þessa undarlegum fundi duldra áhrifavalda með skrýtna framtíðarsýn sem virðist ætluð okkur öllum án þess að nokkur hafi nokkurn tíma spurt okkur álits eða að kosið hafi verið um hana. Fundir á borð við Bilderberg, WEF, Club of Rome og Trilateral C... -
P1: Leynileg klíka stefnir að New World Order eða hinni nýju heimsskipan | Hluti 1 25.07.2025 2h 11minTil er fólk sem trúir því staðfastlega að heimurinn sé í óreiðu vegna vankunnáttu, mistaka vanhæfni stjórnmálafólks eða einhverskonar náttúrulegs glundroða. En svo eru aðrir, sem sumir hafa útnefnt Álhatta, sem telja að heimurinn sé í raun þaulskipulagður af myrkum og illum öflum og að heimurin sé vísvitandi að versna vegna áætlana þessara afla. Kenningin um hina svokölluðu nýju heimsskipan „New World Order“ (NWO) er líklega ein sú langlífasta og yfirgripsmesta af þeim öllum. Þar er því... -
P2: Mannleg losun gróðurhusalofttegunda hefur lítil sem engin áhrif á hitastig jarðar (e. climate change) | Hluti 2 21.02.2025 2h 10minHver hefur ekki heyrt um gróðurhúsaáhrifin, loftslagsbreytingar og hamfarahlýnun? Hina meintu og svokölluðu ógn við allt lífríki jarðar sem mun grilla mannfólkið, drekkja öllu landi undir sjó og gera gjörsamlega út af við allt sem kvikt er á jörðu niðri á næsta stundarfjórðungi, ef við förum ekki öll að hugsa okkar gang og bæta um betur. a Al Gore, Greta Thunberg, Björk og Thom Yorke geta varla öll haft rangt fyrir sér er það? Að ógleymdum öllum vísindamönnunum, sem samkvæmt hamfarhlýnunar ha... -
P1: Mannleg losun gróðurhúsalofttegunda hefur lítil sem engin áhrif á hitastig jarðar (e. climate change) | Hluti 1 07.02.2025 2h 36minÞað eru líklega fá málefni sem hafa verið jafn áberandi í umræðunni undanfarin ár og hlýnun jarðar. Já, eða öllu heldur loftslagsbreytingar eða hamfarahlýnun eða hvað sem að fólk vill kalla þetta fyrirbrigði. Loftslagsmótmæli barna og ungmenna hafa farið fram um allan heim með hina sænsku Gretu Turnberg í broddi fylkingar. Almenningur hefur verið varaður við óafturkræfum og stóirfenglegum breytingum á veðurfari jarðar sem séu ekki bara yfirvofandi heldur þegar hafnar og nauðsynleg...
Obľúbený v
Tento podcast sa objavuje aj v rebríčkoch podcastov týchto krajín.