Gigtarspjallið
sporxmedical
0
Gigtarspjallið er sex þátta fræðslusería frá SPOR fyrir fólk sem hefur nýlega greinst með bólgugigt og aðstandendur þeirra. Í þáttunum er á aðgengilegan hátt farið yfir það helsta sem gott er að vita við upphaf greiningar, allt frá einkennum og rannsóknum til meðferðar, hreyfingar og daglegs lífs. Læknirinn Berglind Bergmann ræðir við sérfræðinga úr ólíkum heilbrigðisstéttum sem miðla þekkingu sinni og svara algengum spurningum sem vakna eftir greiningu. Þættirnir eru gefnir út af SPOR og eru aðgengilegir bæði í hljóði og mynd.
Epizódy
-
Lyfjapennar í gigtarsjúkdómum 14.09.2026 10minHvernig á að nota lyfjapenna? Í þessum þætti Gigtarspjallsins ræðum við við Elínborgu Stefánsdóttur, hjúkrunarfræðing á göngudeild gigtarlækninga á Landspítala, um rétta notkun lyfjapenna. Elínborg fer skref fyrir skref yfir hvernig lyfjapenni er undirbúinn og notaður, hvar best er að sprauta lyfinu og hvað er gott að hafa í huga fyrir og eftir gjöf. Einnig er fjallað um algeng atriði sem geta komið upp við lyfjagjöf, svo sem sviða, marbletti eða óvissu um hvort allur skammturinn hafi farið inn. Þátturinn er sérstaklega ætlaður fólki sem er að hefja meðferð með lyfjapenna eða vill rifja upp rétta notkun hans. Gigtarspjallið er þáttaröð frá SPOR um bólgugigt, aðgengileg bæði í hljóði og mynd. -
Lyf við gigtarsjúkdómum 14.09.2026 15minGigtarspjallið – Lyf við bólgugigt Í þessum þætti Gigtarspjallsins ræðir Berglind Bergmann, læknir, við Elínborgu Stefánsdóttur, hjúkrunarfræðing á göngudeild gigtarlækninga á Landspítala, um helstu lyf sem notuð eru við meðferð bólgugigtarsjúkdóma. Við förum meðal annars yfir stera og methotrexate, hvernig lyfin eru notuð, algengar aukaverkanir og hvað þarf að hafa í huga meðan á meðferð stendur. Rætt er um mikilvægi reglulegra blóðprufa, hvað hægt er að gera ef aukaverkanir koma fram og hvers vegna mikilvægt er að breyta ekki eða hætta meðferð án samráðs við heilbrigðisstarfsfólk. Einnig er komið inn á líftæknilyf og hvenær þau geta orðið hluti af meðferðinni. Þátturinn er ætlaður fólki sem er að hefja lyfjameðferð við bólgugigt, aðstandendum þess og öllum sem vilja skilja betur tilgang og framkvæmd meðferðarinnar. Gigtarspjallið er þáttaröð frá SPOR um bólgugigt, aðgengileg bæði í hljóði og mynd. -
Fylgigigt 14.09.2026 10minÍ þessum þætti Gigtarspjallsins ræðir Berglind Bergmann, læknir, við Gerði Gröndal, gigtarlækni, um fylgigigt (e. reactive arthritis), bólgusjúkdóm í liðum sem getur komið fram í kjölfar sýkingar, oft þegar sýkingin sjálf er þegar gengin yfir. Hvað er fylgigigt og hvaða sýkingar geta komið henni af stað? Við ræðum hvernig greining fer fram, hvaða meðferðir eru í boði og hverjar horfurnar eru. Þátturinn er ætlaður fólki sem hefur greinst með fylgigigt, aðstandendum þess og öllum sem vilja öðlast betri skilning á sjúkdómnum. Gigtarspjallið er þáttaröð frá SPOR um bólgugigt, aðgengileg bæði í hljóði og mynd. -
Sóragigt 14.09.2026 15minÍ þessum þætti Gigtarspjallsins ræðir Berglind Bergmann, læknir, við Gerði Gröndal, gigtarlækni, um sóragigt (e. psoriatic arthritis), langvinnan bólgusjúkdóm sem getur haft áhrif á liði, hrygg og sinafestur og tengist húðsjúkdómnum psoriasis. Hvað er sóragigt og hvernig tengist hún psoriasis? Hvernig getur sjúkdómurinn lýst sér og hvaða einkenni ættu að vekja grun um sóragigt? Við ræðum meðal annars liðverki og liðbólgur, bólgur í sinafestum og fingrum eða tám, hvernig greining fer fram og hvaða meðferðir eru í boði. Einnig förum við yfir mikilvægi þess að greina og meðhöndla sjúkdóminn snemma og hvað fólk með sóragigt getur sjálft gert til að stuðla að góðri heilsu og lífsgæðum. Þátturinn er ætlaður fólki sem hefur greinst með sóragigt eða psoriasis, aðstandendum þess og öllum sem vilja öðlast betri skilning á sjúkdómnum. Gigtarspjallið er þáttaröð frá SPOR um bólgugigt, aðgengileg bæði í hljóði og mynd. -
Hryggikt 14.09.2026 11minÍ þessum þætti Gigtarspjallsins ræðir Berglind Bergmann, læknir, við Katrínu Þórarinsdóttur, yfirlækni göngudeildar gigtarlækninga á Landspítala, um hryggikt (e. ankylosing spondylitis), langvinnan bólgusjúkdóm sem leggst einkum á hrygg og spjaldliði. Hvað er hryggikt og hvernig lýsir hún sér? Hvernig greinum við bólguverk í baki frá algengari bakverkjum og hvernig fer greiningin fram? Við ræðum einkenni og rannsóknir, hlutverk hreyfingar og sjúkraþjálfunar, hvaða lyfjameðferðir eru í boði og hvað fólk með hryggikt getur sjálft gert til að halda sjúkdómnum í skefjum og viðhalda góðri færni og lífsgæðum. Þátturinn er sérstaklega ætlaður fólki sem hefur nýlega greinst með hryggikt og aðstandendum þess, en einnig öllum sem vilja öðlast betri skilning á sjúkdómnum. Gigtarspjallið er þáttaröð frá SPOR um bólgugigt, aðgengileg bæði í hljóði og mynd. -
Liðagigt 14.09.2026 13minÍ þessum þætti Gigtarspjallsins ræðir Berglind Bergmann við Katrínu Þórarinsdóttur, yfirlækni göngudeildar gigtarlækninga á Landspítala, um liðagigt (e. rheumatoid arthritis). Hvað er liðagigt og hvernig lýsir hún sér? Hvernig er sjúkdómurinn greindur og hvaða meðferðir eru í boði? Við ræðum fyrstu einkenni, rannsóknir og greiningu, markmið meðferðar og hvað tekur við þegar greiningin liggur fyrir. Þátturinn er sérstaklega ætlaður fólki sem hefur nýlega greinst með liðagigt og aðstandendum þess, en einnig öllum sem vilja öðlast betri skilning á sjúkdómnum. Gigtarspjallið er þáttaröð frá SPOR um bólgugigt, aðgengileg bæði í hljóði og mynd.
Obľúbený v
Tento podcast sa objavuje aj v rebríčkoch podcastov týchto krajín.