Meginlandið
Evrópuhreyfingin
0
Meginlandið er hlaðvarp Evrópuhreyfingarinnar í stjórn Helgu Völu Helgadóttur og Páls Rafnar Þorsteinssonar. Þau bjóða til sín góðum gestum til að ræða það sem er efst á baugi í Evrópumálum, heima og að heiman.
Epizode
-
Meginlandið XXII: Vextir og verðlag mun lækka 23.08.2026 1h 11minGauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown háskóla, er gestur Meginlandsins að þessu sinni. Hann fer rækilega yfir hávaxtastefnuna sem rekin er á Íslandi og segir að vextir og verðlag munu lækka á Íslandi við inngöngu í ESB. Aðildin mun skapa jákvæðari væntingar og hagfelldari skilyrði fyrir stjórnvöld til að uppfylla skilyrði um upptöku evru, sem mun með tímanum bæta kjör íslenskra heimila til mikilla muna. -
Meginlandið XXI: Hvar stendur Ísland efnahagslega? 16.08.2026 1h 8minÁsgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og ritstjóri Vísbendingar, svarar spurningum Meginlandsins um efnahagslega stöðu Íslands og hvernig hægt sé að segja á sama tíma að við séum eitt ríkasta land heims og allir hafi það svo gott en jafnframt að hér sé allt í kaldakolum. -
Meginlandið XX: Sterkari landsbyggð innan ESB 13.08.2026 55minMeginlandið í dag fjallar um byggðamál, atvinnumál í dreifðum byggðum, styrkjakerfi og landbúnað. Þau Páll Rafnar og Helga Vala fengu til sín þær Önnu Margréti Guðjónsdóttur, framkvæmdastjóra Evris ráðgjafar sem annast samninga um styrki íslenskra fyrirtækja og stofnana hjá Evrópusambandinu og starfaði áður á skrifstofu sambands sveitarfélaga í Brussel, og Ástu Magnúsdóttur, fv. ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra hjá EFTA. Þær fara yfir sviðið, ræða tækifærin sem felast í nýjum mörkuðum í Evrópu, ekki síst fyrir sprotafyrirtæki um allt land. -
Meginlandið XIX: Hafa smáríki rödd innan ESB? 06.08.2026Meginlandið fjallar að þessu sinni um stöðu smáríkja innan ESB. Dr. Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur, hefur rannsakað stöðu smáríkja og veit manna best hvernig þeim vegnar innan Evrópusambandsins. Hann segir að Ísland hefði ótvírætt rödd innan sambandsins. -
Meginlandið XVIII: Umhverfismál í ESB 26.07.2026 56minAðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindarétti við Háskóla Íslands, er gestur Meginlandsins að þessu sinni. Hún fræðir hlustendur um stöðu umhverfismála innan ESB en sambandið hefur verið leiðandi í umhverfisvernd á heimsvísu. -
Meginlandið XVII: BREXIT 19.07.2026 48minHvað varð til þess að meirihluti Breta kaus með útgöngu úr ESB og hvernig vegnar landinu eftir hana? Kristján Guy Burgess alþjóðatjórnmálafræðingur er gestur Meginlandsins að þessu sinni og fjallar um eitt afdrifaríkasta augnablik í sögu ESB - þegar Bretar gengu út úr sambandinu. -
Meginlandið XVI: Réttindi neytenda 12.07.2026 52minBreki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, er gestur Meginlandsins þessa vikuna. Stór hluti af íslenskri neytendalöggjöf er kominn frá ESB og vandséð að réttindi neytenda væru varin ef ekki væri fyrir þátttöku Íslands í EES samstarfinu. Breki fer rækilega yfir þetta í þættinum. -
Meginlandið XV: Sjálfstæði Íslandinga með Guðna Th. Jóhannessyni 05.07.2026 49minHr. Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti lýðveldisins er gestur Meginlandsins að þessu sinni. Sjálfstæðið og fullveldið eru helstu umræðuefni þáttarins en Guðni fer rækilega yfir sögu þjóðarinnar þegar kemur að þeim málum, í samhengi við þorskastríðin, Kalda stríðið og þátttöku Íslands í stofnunum á alþjóðavettvangi. -
Meginlandið XIV: Sjávarútvegurinn 28.06.2026 1h 5minAð þessu sinni siglum við út á fiskimiðin í kringum landið. Gestur þáttarins er Úlfar Hauksson stjórnmálafræðingur og sjómaður, með sérþekkingu á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. -
Meginlandið XIII: Efnahagsmálin 07.06.2026 1h 1minMeginlandið að þessu sinni er helgað efnahagsmálum og er gestur þáttarins, Guðrún Johnsen, hagfræðingur og prófessor í fjármálum. Við förum yfir nýja skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, sem unnin var af erlendum sérfræðingum, við spyrjum Guðrúnu út í kosti og galla óstöðugs gjaldmiðils, áhrif krónunnar á stöðu heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja og síðast en ekki síst spyrjum við Guðrúnu út í það hvort það hafi verið íslenska krónan sem bjargaði okkur út úr hruninu. -
Meginlandið XII: Að kíkja í pakkann 31.05.2026 1h 2minGestur þáttarins er Dr. Margrét Einarsdóttir prófessor og sérfræðingur í Evrópurétti við Háskólann í Reykjavík. Í þættinum ræða þær Helga Vala saman um það hvernig mögulegur samningur Íslands við Evrópusambandið gæti litið út. -
Meginlandið XI: Evrópudagurinn 10.05.2026 1h 1minÞað var á þessum degi árið 1950 sem Robert Schuman, þáverandi utanríkisráðherra Frakklands lýsti yfir fyrirhugaðri stofnun Kola- og stálbanalags, sem miðaði að því að samhæfa kola- og stáliðnað í sex Evrópuríkjum. Og þar með hófst sú vegferð sem síðan átti eftir að verða að Evrópusambandinu. Við tölum gjarnan um að þessi vefgerð sé drifin áfram af ákveðinni hugsjón – Evrópuhugsjónni. En til þess að hjálpa okkur að kryfja þá hugsjón og þær hugmyndastefnur sem hafa mótað Evrópu samtímans, höfum við fengið til okkar góðan gest: Guðmund Hálfdánarson, sem er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi forseti Hugvísindasviðs. Hann er sérfræðingur í stjórnmálasögu Evrópu og hefur m.a. rannsakað og ritað um þjóðhyggju og þjóðernishyggju. -
Meginlandið X: Samstarf Íslands við Evrópu 03.05.2026 1h 1minEvrópuumræðan er á fleygiferð og nýjar upplýsingar um Evrópusambandið birtast okkur daglega. Gestur þessa þáttar Meginlandsins er reynslubolti í stjórnmálum og jafnframt einn af virkustu greinahöfundum um Evrópumál. Þorsteinn Pálsson, fv. forsætis- og fjármálaráðherra, sjávarútvegs- sem og dómsmálaráðherra fer yfir fortíð og framtíð samstarfs Íslands og Evrópu í skemmtilegu og upplýsandi spjalli. -
Meginlandið IX: Allt um ESB 12.04.2026 1h 4minGestur þáttarins er Dr. Eiríkur Bergmann, prófessor við Háskólann á Bifröst sem hefur stundað rannsóknir á alþjóðamálum um áratugaskeið og meðal annars skrifað bókina Frá Evróvisjón til Evru. -
Meginlandið VIII: Aðildarviðræður 29.03.2026 54minGestur þáttarins er Ragnheiður Elva Þorsteinsdóttir lektur við Háskólann á Akureyri og sérfræðingur í stjórnskipunarrétti. Í umræðunni hefur borið á misskilningi um það hvernig aðildarviðræður fara fram og við hvern Ísland er að semja. Yfir þetta er rækilega farið í þættinum. -
Meginlandið VII: Þjóðaratkvæði 29. ágúst 08.03.2026 54minÞjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB fer fram 29. ágúst næstkomandi. Um þetta var tilkynnt á föstudag og kemur mörgum á óvart hve skammt er til kosninga. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er gestur þáttarins og talar meðal annars um upplýsingaóreiðu, afskipti erlendra ríkja og hvað sé í húfi fyrir okkur Íslendinga. -
Meginlandið VI: Aðildarviðræður 22.02.2026 52minAð þessu sinni ræðir Dr. Gunnar Þór Pétursson, deildarforseti lagadeildar HR, við þau Helgu Völu og Pál Rafnar um aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu, hvernig þær gætu mögulega litið út og hvort undanþágur séu á teikniborðinu eða ekki. -
Meginlandið V: Unga fólkið 08.02.2026 43minGestir þáttarins eru þau María Malmquist og Sverrir Páll Einarsson en María hefur verið virk innan Ungra Evrópusinna og Sverrir er forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Meginlandið að þessu sinni er helgað unga fólkinu og vangaveltum um áhugaleysi þeirra á Evrópusambandinu. -
Meginlandið IV: Efnahagsmálin 25.01.2026 53minGestur þáttarins er Gylfi Magnússon, prófessor í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra. -
Meginlandið III: Ísland á alþjóðasviðinu 28.12.2025 54minGestir þáttarins eru þær Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherrar. Í þessum sérstaka hátíðarþætti ætlum við að horfa til alþjóðlegs samstarfs í víðri merkingu og rödd Íslands í alþjóðakerfinu. Gestir þáttarins eru reynsluboltar í pólitík en koma einnig úr ólíkum áttum og hafa því líklega ólíka sýn á stöðu Íslands á alþjóðasviðinu.
Priljubljen v
Ta podkast je tudi v lestvicah podkastov teh držav.