Silfrið
RÚV Hlaðvörp
0
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Epizode
-
Þessi þungu högg - sleggjan og hallalaus fjárlög 14.09.2026 47minFjárlagafrumvarpið og þingmálaskrá vetrarins verða efst á baugi í Silfrinu í kvöld. Eru hallalaus fjárlög lykillinn að lægri verðbólgu eða eru skatta- og gjaldskrárhækkanir olía á eldinn? Þingmennirnir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Sigurjón Þórðarson og Þórarinn Ingi Pétursson fara yfir stöðuna Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Ísland - hvað nú? Verkefnalistinn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 08.09.2026 58minÞjóðin hefur svarað spurningunni um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Svarið var neitandi, en þó standa eftir margar spurningar sem þarf að svara á næstu misserum. Silfrið verður helgað þeim verkefnum sem framundan eru í hagkerfinu og samskiptum Íslands við umheiminn, m.a. í gegnum EES-samninginn og Atlantshafsbandalagið.Gestir verða Benedikt Gíslason, forstjóri Arion banka, Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, Björn Bjarnason, fv. dómsmálaráðherra, Sigríður Mogensen, sviðstjóri hugverka og iðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins.Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Formenn gera upp þjóðaratkvæðagreiðslu 01.09.2026 56minMeirihluti kjósenda hafnaði í gær að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi gera þjóðaratkvæðagreiðsluna upp í Silfrinu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Kjör almennings og viðsjár í veröldinni 01.09.2026 52minKjósendur velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, hver áhrifin gætu orðið á kjör almennings í landinu, lífsgæði, verðlag og húsnæðismál. Þá bárust þær fréttir í vikunni að yfirhershöfðingi NATO vilji fast herlið á Íslandi. Gestir þáttarins eru Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, Helga Rósa Másdóttir formaður Félags hjúkrunarfræðinga, hagfræðingarnir Gauti B. Eggertsson og Jón Helgi Egilsson, og Sóley Kaldal sérfræðingur í alþjóðlegum öryggismálum.Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Atvinnulífið, fullveldið og Evrópusambandið 01.09.2026 1h 3minFólkið og fyrirtækin í landinu velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. En önnur verkefni bíða líka; forsendur kjarasamninga eru brostnar og óvíst hvernig megi berja í brestina svo samningarnir haldi. Þjóðaratkvæðagreiðslan hefur líka vakið þjóðina til umhugsunar um fullveldi sitt og sambandið við umheiminn. Gestir þáttarins eru Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands og sagnfræðingur, Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims hf., Halla Gunnarsdóttir formaður VR stéttarfélags og Sveinn Sölvason forstjóri Emblu Medical/Össurar.Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Formenn takast á um aðildarviðræður 01.09.2026 1hSilfrið hefur göngu sína á ný að loknu sumarleyfi. Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi - Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Inga Sæland, Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Lilja Alfreðsdóttir - mætast í beinni útsendingu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
36. þáttur: Um hvað yrði samið í nýjum aðildarviðræðum? 09.06.2026 58minHvað gerist ef þjóðin greiðir atkvæði með því að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst? Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum 2009-2013 segir frá samningaferlinu og því ferli sem tekur við ákveði Íslendingar að ganga aftur að samningaborðinu. Í síðari hluta þáttarins koma Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor við HÍ, Margrét Einarsdóttir prófessor í Evrópurétti við HR, Kolbeinn Árnason ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða helstu málefni sem þyrfti að semja um í aðildarviðræðunum. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
35. þáttur: Hvað myndi það þýða fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið 05.06.2026 50minÍ þætti kvöldsins verður rætt um hvað það myndi þýða fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið.Gestir þáttarins:Dagur B. Eggertsson þingmaður SamfylkingarinnarHanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úr ViðreisnLilja D. Alfreðsdóttir formaður FramsóknarflokksinsSigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
34. þáttur: Örmagna oddvitar gera upp kosningar 18.05.2026 57minSilfrið verður á sunnudagskvöldi í þessari viku vegna sveitarstjórnarkosninga.Oddvitar þeirra sjö framboða sem náðu kjöri í Reykjavík fara yfir kosningaúrslitin og ræða hugsanlegar meirihlutamyndanir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
33. þáttur: Um hvað er kosið? Sveitarstjórnarmálin í fókus 12.05.2026 45minÞjóðin gengur til kosninga eftir fimm daga, en um hvað er kosið? Reyndir sveitarstjórnarjaxlar spá í kosningaspilin og skiptast á reynslusögum; þau Birkir Jón Jónsson, Grímur Atlason, Heiða Kristín Helgadóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir.Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
32. þáttur: Kosningabaráttan á fullu 05.05.2026 49minÍ fyrri hlutanum rýnum við sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram eftir tæpar tvær vikur. Gestir:Sunna Sæmundsdóttir fréttastjóri á fréttastofu SýnarEva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði Magnús Geir Eyjólfsson þingfréttamaður RÚVBryndís Ísfold Hlöðversdóttir ráðgjafiÍ seinni hlutanum er rætt við blaðamanninn og rithöfundinn Evan Osnos um stöðuna í bandarískum stjórnmálum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
31. þáttur: Umhverfisumræðan sem hvarf 28.04.2026 46minUm 2500 manns eru talin hafa tekið þátt í Grænu göngunni 2026 á sumardaginn fyrsta. Stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd fyrir áherslur sínar í umhverfis- og orkumálum, og fyrir að standa ekki vörð um íslenska náttúru. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mætir í Silfrið ásamt Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur formanni Landverndar, Höllu Hrund Logadóttur þingmanni Framsóknarflokksins og fyrrverandi orkumálastjóra, og Finni Beck framkvæmdastjóra Samorku. Umsjón hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
30. þáttur: Dökk mynd dregin upp af sjávarútvegi 21.04.2026 45minGestir Silfursins eru Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins, Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Prís, Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins og Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vg. Umfjöllun Berlinske um íslenskan sjávarútveg vakti mikla athygli um helgina. Þar dregin upp dökk mynd af greininni og pólitískum ítökum útgerðarinnar. Það styttist í sveitastjórnarkosningar, en ekki er örgrant um að þær hafi fallið í skuggann af áformum um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB í sumarlok. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
29. þáttur: Forsætisráðherra ræðir efnahagsmálin 14.04.2026 46minKristrún Frostadóttir forsætisráðherra er í viðtali í fyrri hluta þáttarins um stöðu efnahagsmála.Í seinni hlutanum höldum við áfram að ræða við oddvita framboða í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík.Gestir:Silja Sóley Birgisdóttir, Sósíalistaflokkur ÍslandsIngimar Þór Friðriksson, Góðan daginn framboðiðSigfús Aðalsteinsson, Borgin okkar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
28. þáttur: Bjarni Benediktsson kallar eftir þjóðarsátt 01.04.2026 46minBjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, er nýráðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann fer yfir stöðuna í efnahagsmálum, forsendur kjarasamninga, og hvað þurfi að gerast að hans mati til að kveða niður verðbólgu og stýrivexti. Efnahagsmálin eru áfram til umræðu í vettvangi dagsins. Gestir eru Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar Katla DMI, og Guðmundur Steingrímsson, auðlinda og umhverfisfræðingur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
27. þáttur: Vextir hækka á ný og oddvitar ræða borgarmálin 24.03.2026 55minSeðlabankinn hefur hækkað vexti í fyrsta sinn í tvö og hálft ár. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri kemur til að ræða ákvörðunina og hvert stefnir í efnahagsmálunum. Síðari hluti þáttarins er helgaður borgarpólitíkinni með oddvitunum Ara Edwald frá Miðflokki, Einari Þorsteinsson frá Framsóknarflokki, Kristni Jóni Ólafssyni Pírata og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur frá Vinstrinu. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir, útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
26. þáttur: Oddvitar í borgarstjórnarkosningum og uppgangur atNorth á Íslandi 19.03.2026 44minÍ dag eru tveir mánuðir í sveitarstjórnarkosningar og í þætti kvöldsins er rætt við oddvita þriggja framboða í Reykjavík.Björg Magnúsdóttir oddviti ViðreisnarHildur Björnsdóttir oddviti SjálfstæðisflokksinsPétur H. Marteinsson oddviti SamfylkingarinnarÍ seinni hluta þáttarins er rætt við Eyjólf Magnús Kristinsson forstjóra atNorth. Fyrirtækið rekur gagnaver hér á landi og á Norðurlöndunum og var nýlega selt fyrir 485 milljarða króna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
25. þáttur: Stefnt að kosningu um ESB í sumar 10.03.2026 54minRíkisstjórnin stefnir á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB í sumarlok. Reikna má með að Evrópumál verði fyrirferðarmikil þangað til en hart var tekist um þau á Alþingi í dag. Fulltrúar allra flokka á þingi koma í Silfrið að þessu sinni: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Lilja Dögg Alfreðsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
24.þáttur: Stríð í Miðausturlöndum 03.03.2026 45minStríð er hafið í Miðausturlöndum eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Hverjar eru ástæðurnar, og hverjar gætu afleiðingarnar orðið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
23. þáttur: Gervigreind þróast á áður óþekktum hraða 25.02.2026 44minÞróun gervigreindar verður sífellt hraðari og áhrif hennar á samfélagið og vinnumarkaðinn að verða greinilegri. Vitum við hvert stefnir og erum við tilbúin? Gestir:Andri Snær Magnason rithöfundur Anna Sigríður Islind, prófessor í tölvunarfræði við HRLilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Priljubljen v
Ta podkast je tudi v lestvicah podkastov teh držav.