Morgunútvarpið
RÚV
0
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.
Epizode
-
14. jan. -Loftslagsmál, Bárðarbunga, pólitík og íþróttir 14.01.2025 1h 52minJóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamaður og mannfræðingur, verður gestur okkar í upphafi þáttar en hann skrifaði ítarlega úttekt á vef RÚV í gær þar sem spurt var hvort of margir erlendir leikmenn væru í íslenskum félagsliðum. Við ræðum um flugvöllinn og tilvist hans við Martin Swift og Margréti Möndu Jónsdóttur meðlimi í samtökunum Hljóðmörk. 2024 er hlýjasta ár síðan mælingar hófust. Það er enn fremur fyrsta árið þar sem meðalhiti er meira en 1,5° hærri en hann var fyrir iðnbyltingu. Anna Hulda Ólafsdóttir skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar kemur til okkar. Í gær var greint frá því að tjón hefði orðið á yfir tuttugu bifreiðum vegna hola í höfuðborginni. Við ræðum þau mál við Árna Friðleifsson, aðalvarðstjóra í umferðardeild lögreglunnar. Kröftug jarðskjálftahrina hófst í Bárðarbungu upp úr klukkan 6 í morgun. Hrinan líkist þeim sem verða við kvikuinnskot að sögn náttúruvársérfræðings. Það sé þó erfitt að staðfesta það á þessum tímapunkti. Við tökum stöðuna með Magnúsi Tuma Guðmundssyni prófessor í jarðeðlisfræði. Guðmundur Jóhannsson, tæknispekúlant Morgunútvarpsins. Við ræðum stöðuna í stjórnmálunum við Örnu Láru Jónsdóttur, þingmann Samfylkingar, og Þorgrím Sigmundsson, þingmann Miðflokksins.
-
13. jan - Gróðureldar, Grænland og happdrætti 13.01.2025 1h 52min24 hafa látist í það minnsta í eldunum miklu sem geysa í Kaliforníuríki. Við heyrum í Dröfn Ösp Snorradóttur sem er búsett þar og tökum stöðuna. Í gær var greint frá því að upplýsingar hefðu lekið um milljónir notenda ólíkra smáforrita á borð við Tinder og Spotify. Við ræðum þessi tíðindi við Guðmund Arnar Sigmundsson, sviðsstjóra netöryggissveitarinnar CERT-IS, og einnig Tik tok bannið í Bandaríkjunum sem á að taka gildi næstu helgi. Við höldum áfram að ræða stöðuna á Grænlandi í ljósi ummæla Donalds Trump en Financial Times birti í gær úttekt á efnahag landsins, stuðningi Dana og hækkanir á grænlenskum hlutabréfamarkaði undanfarna sólarhringa. Við ræðum þessi mál við Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og ritstjóra Vísbendingar. Stefán Pálsson, sagnfræðingur, verður gestur okkar eftir átta fréttir en hann heldur erindi á morgun í málstofu í félags- og hagsögu sem nefnist: Happdrætti: Hinn fullkomni skattur eða tól siðspillingar? Íþróttir helgarinnar. Við ræðum pólitísku hliðar eldanna í LA við Silju Báru Ómarsdóttur, prófessor og sérfræðing í málefnum Bandaríkjanna.
-
10. jan. -Heitavatnsskortur í Hveragerði, íþróttafélagsfræði, fuglaflensa o.fl. 10.01.2025 1h 52minÍbúar í Hveragerði hafa þurft að þola köld hús og kaldar sturtur í frostatíðinni vegna bilunar í aðalborholu bæjarins. Í kvöldfréttum í gær var rætt við íbúa og ljóst var að þetta hefur reynt á þolrifin. Pétur G. Markan, bæjarstjóri í Hveragerðisbæ, verður gestur okkar í upphafi þáttar. Íslenska karlalandsliðið í handbolta gerði gott jafntefli við Svíþjóð í fyrri æfingaleik liðanna í aðdraganda HM í gærkvöldi. Við ætlum að ræða við Viðar Halldórsson, prófessor og sérfræðing í félags- og sálfræði íþrótta, um væntingar um árangur og andlegu hliðina á stórmótum. Hverjar eru helstu leiðbeiningar til kattaeigenda vegna fuglaflensusmits sem greindist í heimilisketti á dögunum? Þóra J. Jónasdóttir fer yfir þau mál með okkur. Við höldum áfram umræðu um hugmyndir Donalds Trump um að ná yfirráðum yfir Grænlandi þegar Þórdís Ingadóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík og sérfræðingur í alþjóðlegum refsirétti, kemur til okkar. Við förum síðan yfir fréttir vikunnar með fjölmiðlamanninum Birni Inga Hrafnssyni og lögmanninum Helgu Völu Helgadóttur.
-
9. jan - Handbolti, kjaramál og hlutabréf 09.01.2025 1h 52minHvernig við tölum um mataræði, kúra og átök getur haft mikil áhrif á geðheilsu barnanna okkar. Berglind Lilja Guðlaugsdóttir næringafræðingur hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins kemur til okkar. Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM kemur til okkar og fer yfir stöðuna í kjarabaráttunni með okkur. Snorri Jakobsson, hagfræðingur hjá Jakobsson Capital, ræðir við okkur um bjartsýni á íslenskum hlutabréfamarkaði, og spá um 17 prósent hækkun líftæknifyrirtækja á árinu. Sigfús Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og nú fisksali, ræðir við okkur um HM í handbolta og vináttulandsleikinn gegn Svíþjóð í dag. Við ræðum skógareldana í LA við Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðing.
-
8. jan. -Varnarmál, pólitík, ritskoðun Meta o.fl. 08.01.2025 1h 52minGuðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun, verður gestur okkar í upphafi þáttar en stefnt að því að fyrsti leiðangur til loðnurannsókna á þessu ári hefjist um eða upp úr næstu helgi. Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi, kemur í sitt hálfsmánaðarlega spjall um fjármál heimilisins. Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, ræðir við okkur um aukinn áhuga Bandaríkjastjórnar á Grænlandi og öryggis- og varnarmál á norðurslóðum. Við höldum áfram að ræða stöðuna í stjórnmálunum, í þetta skiptið við Ingibjörgu Isaksen, þingmann Framsóknar, og Guðbrand Einarsson, þingmann Viðreisnar. Ljósufjöll halda áfram að bæra á sér. Í nótt varð jarðskjálfti af stærðinni 2,9 mældist við Grjótárvatn. Hvað vitum við um þetta kerfi og hvað gæti verið í vændum? Þorvaldur Þórðarson prófessor í eldfjallafræði kemur til okkar. Tryggvi Freyr Elínarson hjá Datera spjallar við okkur um breytingar sem Mark Zuckerberg kynnti á ritskoðun Meta í gær. Tónlist: Júníus Meyvant - When you touch the sky. Hljómar - Ég elska alla. Unnsteinn Manuel Stefánsson, Logi Pedro Stefánsson, Bríet - Íslenski draumurinn. Paul Simon- You Can Call Me Al. Metronomy - The Look. Sébastien Tellier - Divine. Grace, Kenya - Strangers.
Priljubljen v
Ta podkast je tudi v lestvicah podkastov teh držav.