Vísir
visirhladvarp
0
Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum skilningi. Frá stjórnmálum til poppkúltúrs – og öllu þar á milli.
Epizode
-
Hitað upp fyrir Bakgarðshlaupið 16.09.2026 43minGarpur I. Elísabetarson og Tinna Miljevic, sem munu lýsa Bakgarðshlaupinu um helgina, fengu Egil Trausta Ómarsson í spjall þar sem þau ræddu meðal annars um líklegan sigurvegara ofl. -
Í bóli Bjarnars - Gísli Marteinn 13.09.2026 1h 3minGísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður og vert þarfnast engrar kynningar. Hann er „stórasta“ sjónvarpsstjarna landsins og nú að fara af stað með Vikuna, sem hefur verið flaggskip Ríkissjónvarpsins um árabil. Engan bilbug er að finna á Gísla Marteini, hvorki hvað varðar Vikuna né Café Vest. Gísli hætti sér í ból Bjarnars. -
Í bóli Bjarnars - Guðni Th. Jóhannesson 06.09.2026 54minGuðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins og prófessor í sagnfræði, hefur tekist á hendur mikið verk sem er að skrásetja hvað gekk á í þorskastríðunum. Að efni til kallast bókin óbeint á við nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðna finnst þægilegt að fela sig í fortíðinni öfugt við annan fyrrverandi forseta sem heitir Ólafur Ragnar Grímsson. Honum finnst hann enn fulltrúi afla sem hann er ósammála og geti því ekki tjáð sig fyrirvaralaust. Jakob Bjarnar og forsetinn fyrrverandi settust niður á dögunum í bóli Bjarnars. -
Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ 28.08.2026 1h 26minÞótt að Kjartan Sveinn Guðmundsson úr Ungum vinstri grænum og Ármann Leifsson úr Ungu jafnaðarfólki staðsetji sig báðir vinstra megin í lífinu eru þeir ósammála um það hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Kjartan hefur áhyggjur af réttindum verkafólks innan sambandsins og utanríkisstefnu Íslands hvað varðar meðal annars málefni Palestínu. Ármann sér tækifæri í efnahagsmálum, svo sem með upptöku evru, og telur meinlaust að fara í samningaviðræður við ESB. -
Ungt hægri fólk tekst á: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ 27.08.2026 1h 9minÍ Vísi að viðræðum tekst ungt fólk sem staðsetur sig hægra megin í stjórnmálum á um það hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. Ungur viðreisnarmaður segir stöðugleika felast í upptöku evru en ungur sjálfstæðismaður segir það á dýru verði keypt „að missa stjórn á okkar peningamálum“. Nei-sinninn segir að hátt í 99 prósent af því sem felist í aðild að Evrópusambandinu liggi fyrir en já-sinninn telur ljóst að það sé „fullt sem hægt er um að semja“. -
Snorre Rein - EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ 27.08.2026 38minFrændur okkar í Noregi fylgjast grannt með atkvæðagreiðslunni á Íslandi 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið, sérstaklega útvegsmenn í Noregi. Snorre Rein, norskur stjórnmálaáhrifavaldur úr röðum sósíaldemókrata, er viðmælandi dagsins í Vísi að viðræðum. Hann segir að viðsnúningur gæti orðið í afstöðu norskra sjávarútvegsmanna til Evrópusambandsins skyldi Ísland ná einhvers konar undanþágum í hugsanlegum aðildarviðræðum. -
Margrét Ágústa - Eins og að biðja um að hafa fimmtán menn inni á vellinum 26.08.2026 1h 11minMargrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, er gestur dagsins í Vísi að viðræðum. Hún telur að eina leiðin sem íslenskur landbúnaður gæti virkað innan Evrópuregluverks væri með undanþágu frá landbúnaðarstefnu sambandsins eins og hún leggur sig. Það sé ólíklegt að fá það samþykkt, og í raun eins og að biðja um að fá að keppa í fótbolta með fimmtán liðsmenn inni á vellinum, frekar en ellefu. -
Þorsteinn Gunnarsson - Íslendingar voru alræmdir í Brussel og lítið traust á milli 25.08.2026 1h 20minGestur dagsins er Þorsteinn Gunnarsson, fræðimaður, fyrrverandi rektor HA og síðast en alls ekki síst: varaformaður samninganefndar Íslands á árunum 2009 til 2013. Í ítarlegu samtali fórum við yfir það sem raunverulega fór fram á meðan viðræðunum stóð, hvernig afstöður voru mótaðar, hvernig samskiptum var háttað við ráðherra og framkvæmdastjórnina. Hvernig tók Brussel í kröfur Íslands um þessar margumtöluðu varanlegu undanþágur? -
Katrín Júlíusdóttir - Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ 24.08.2026 1h 7minKatrín Júlíusdóttir var iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur þegar Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu 2009. Hún telur það raunsætt að hafið við Ísland geti orðið „sérstakt stjórnsýslusvæði“ innan ESB, en segja má að Katrín hafi skrifað samningsmarkmið Samfylkingarinnar í sjávarútvegsmálum árið 2001 þegar flokkurinn gerði sérstaka Evrópuúttekt. Hún ræðir við Agnar Má Másson fréttamann um ESB, sjávarútveginn, „gömlu“ Samfylkinguna og fleira í nýjasta þætti af Vísi að viðræðum. -
Vilborg Ása Guðjónsdóttir - Undanþága á borði en ekki í orði 21.08.2026 1h 29min„Ég tel að það sé útilokað að fá varanlega undanþágu frá stefnunni í heild sinni. Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina innan, þannig að við erum de facto með full yfirráð,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingur og fyrrverandi ritstjóri Evrópuvefsins. Vilborg Ása er gestur dagsins í Vísi að viðræðum, þar sem Evrópumálin og komandi atkvæðagreiðsla um aðildarviðræður eru krufin til mergjar. Vilborg var ráðgjafi í alþjóðadeild Alþingis á árunum 2012-2018 og var starfsnemi hjá Evrópuþinginu 2010-2011. -
Sonja Ýr Þorbergsdóttir - „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ 20.08.2026 35minVerkalýðsforystan er klofin í afstöðu sinni til þess hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið í lok ágústs. Það breytist nánast ekkert í íslenskri vinnumarkaðslöggjöf með inngöngu í Evrópusambandið, að mati Sonju Ýrar Þorbergsdóttur formanns BSRB, enda löggjöfin að miklu leyti innleidd í gegnum EES. Sonja á erfitt með að skilja hvers vegna fólk haldi að staða og réttindi verkafólks myndu versna til muna með inngöngu, en vill samt ekki fullyrða hvort hún muni batna. -
Guðmundur Hálfdánarson - Jón Sigurðsson talaði aldrei um sjálfstæði 19.08.2026 1h 8minGuðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur er gestur dagsins en hann hefur helgað stóran part starfsævinnar því að rannsaka þjóðernisvitund Íslendinga og sögu hennar. Hvernig sú merking sem landar leggja í hugtök á borð við fullveldi og framsal á því, hvað Evrópa er í augum okkar og hvort við teljum okkur hluta af henni eður ei. Já, og svo hvað það þýðir eiginlega þegar til kastanna kemur. -
Birgir Ármannsson - Salami-aðferðin, stjórnarskráin og málskotsrétturinn 18.08.2026 49minFáir þekkja íslensku stjórnarskránna betur en Birgir Ármansson, lögmaður og fyrrverandi forseti Alþingis, en hann var áður þingmaður Sjálfstæðisflokksins en er nú viðloðinn nei-hreyfinguna Áfram Ísland. Hann útskýrir að gera þurfi ýmsar breytingar á stjórnarskránni ef Ísland ætli að ganga inn í Evrópusambandið og slíkar breytingar þurfi eins konar tveggja þátta auðkenningu frá Alþingi. Málskotsrétturinn yrði enn á sínum stað en myndi þó ekki ná til Evrópulöggjafar. Hann fer um víðan völl og talar meðal annars um „salami-aðferðina“ en þannig lýsir hann aðlögunarferlinu að Evrópusambandinu. -
Jón Bjarnason - Kvótinn gerði allt vitlaust í Brussel 17.08.2026 1h 33minVorið 2009 tók við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Eitt umdeildasta verkefni hennar varð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Jón Bjarnason sat í stjórninni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þótt hann væri sjálfur eindreginn andstæðingur aðildar. Í þessum þætti rekur Jón þessa sögu frá sínu sjónarhorni: stjórnarmyndunina, varnagla Alþingis, umsóknarbréfið, makrílinn, óþægilega rússíbanareið og hótelið fræga í Kaliforníu. -
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 13.08.26 13.08.2026 47minÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, kveðst ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg aðspurð um hvort hún myndi ráðleggja þjóðinni að hafna aðildarsamningi, fáist ekki undanþágur í sjávarútvegi, þrátt fyrir þann mikla ávinning í öryggismálum, sem hún telur að felist í aðild að Evrópusambandinu. Elísabet Inga settist niður með ráðherra. -
Kristrún Frostadóttir - 23.06.26 13.08.2026 22minKristrún Frostadóttir forsætisráðherra var gestur Íslands í dag þar sem hún settist niður með Elísabetu Ingu Sigurðardóttur fréttamanni og fór meðal annars yfir störf þingsins á liðnum vetri, efnahagsmálin og þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst. -
Borgarlínan: Hvað er verið að byggja — og af hverju? 02.07.2026 1h 12minAtli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum, fer yfir Borgarlínuverkefnið í heild. Hvað er Borgarlínan? Hvaða vandamál á hún að leysa? Hvað kostar hún? Hvaða framkvæmdir fylgja henni? Af hverju á að fækka akreinum á sumum stöðum ef bílaumferð á samt eftir að aukast samkvæmt líkönum? Við ræðum fyrstu lotuna, Suðurlandsbraut, áhyggjur íbúa og fyrirtækjaeigenda, þjóðarhöllina í Laugardal og stóru spurninguna um framtíð samgangna á höfuðborgarsvæðinu. -
Reykvíkingar muni finna fyrir breytingum á næstunni 16.06.2026 51minHildur Björnsdóttir fagnaði á dögunum stórafmæli á sama tíma og hún tók við sem borgarstjóri. Í glænýju hlaðvarpi Vísis ræðir Oddur Ævar Gunnarsson við Hildi um næstu skref í borgarstjórastólnum og en líka um æskuna og fjölskyldulífið. Síðasta kjörtímabil, meirihlutaviðræður og ósætti Miðflokksmanna auk fyrirhugaðra breytinga í borginni eru meðal þess sem fær að fljóta með. -
Hlaðvarp Vísis - Kynning 11.06.2026Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum skilningi. Frá stjórnmálum til poppkúltúrs – og öllu þar á milli.
Priljubljen v
Ta podkast je tudi v lestvicah podkastov teh držav.