Mennska

Mennska

Bjarni Snæbjörnsson
Država Islandija
Jezik IS
Epizode 45
Zadnja 23.11.2025

Mennska fjallar um fegurð fjölbreytileikans og það sem sameinar okkur. Ég fæ magnað fólk til mín sem er að gera heiminn að betri stað og við ræðum breyskleika manneskjunnar, mismunandi leiðir til sjálfsþroska og rannsökum mennskuna með berskjöldun að leiðarljósi. Flestir þættir eru á íslensku en sumir á ensku.

Epizode

  • "Berum virðingu fyrir öllum og tölum saman þaðan" - Kitty Anderson 23.11.2025 1h 17min
    Kitty er magnaður aktivisti sem hefur sannarlega sett sitt mark á baráttu hinsegin fólks á Íslandi og víða um heim. Hún sat í stjórn Samtakanna '78 frá 2014 til 2018 og í kjölfarið einbeitti hún sér að uppbyggingu evrópsku intersex hreyfingarinnar Organisation Intersex International – Europe (OII-Europe). Nú í haust fagnaði hún tímamótum á vegum OII-Europe sem hún segir okkur frá. Kitty er líka nýorðin amma og nýtur lífsins þessa dagana að huga að fjölskyldu sinni og halda áfram baráttu...
  • “Þá var ég á stað sem ég vissi ekki að væri til” - Kolbeinn Arnbjörnsson 09.11.2025 1h 10min
    Kolbeinn Arnbjörnsson er einstakur listamaður: leikari, myndlistarmaður og þúsundþjalasmiður, fyrir utan að vera faðir, kærasti og hið mesta gæðablóð. Í þessum þætti förum við í djúp samtöl um kulnun, sem Kolbein hefur reynt á eigin taugakerfi, við tölum um glansmyndirnar á samfélagsmiðlum, mataræði, sjálfsmildi og auðvitað listina. Kolbeinn er einstakur maður sem er óhræddur við að berskjalda sig og það var dásamlegt að setjast niður með honum og skilja ekkert eftir. @kolbeinnarnbjornsson --...
  • "Við þurfum meiri nánd" - Embla Guðrúnar Ágústsdóttir 20.10.2025 1h 10min
    Embla Guðrúnar Ágústsdóttir er m.a. akvívisti, dansari og móðir. Hún hefur verið virk í aktívisma frá unga aldri og er ein af stofnendum tabu (tabu.is). Embla er einnig með mastergráðu í félagsfræði og hlaut grímutilnefningu sem dansari ársins fyrir verkið Góða ferð inn í gömul sár sem sýnt var í Borgarleikhúsinu. Hún er líka ein af fyndnustu manneskjum sem ég þekki og ég fæ þann heiður að leika og dansa með henni um þessar mundir í leikverkinu Skammarþríhyrningurinn í Borgarleikhúsinu. @embl...
  • “Ég trúi því að leikhúsið geti bjargað heiminum” - Gréta Kristín Ómarsdóttir 13.08.2025 1h 12min
    Gréta Kristín er leikstjóri sem hefur sett sitt mark á íslenskar sviðslistir á aðeins níu ára ferli sínum. Hún hefur leikstýrt fjölda atvinnusýninga og verið tilnefnd þrisvar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, sem leikstjóri ársins. Auk þess að vera einstakur listamaður starfar hún einnig sem fagstjóri sviðshöfundabrautar Listaháskóla Íslands. Í þættinum ræðum við að sjálfsögðu listina og samstarf okkar Grétu sem spannar nú fjórar leiksýningar. Gréta segir okkur frá MA náminu sín...
  • "Fólk er ofboðslega fljótt að dæma" - Særún Lísa Birgisdóttir 10.07.2025 1h
    Særún Lísa er þjóðfræðingur, kennari og móðir sem hefur unnið síðustu ár við að kenna unglingum íslensku. Þegar hún var í þjóðfræðinámi eyddi hún töluverðum tíma í að rannsaka birtingarmyndir homma allt frá landnámi og fram yfir síðari heimsstyrjöld. Þessar rannsóknir leiddu til útgáfu á bók hennar "Hættið þessu fikti strákar" þar sem hún skrifar um uppgötvanir sínar. Í þættinum förum við yfir þessar rannsóknir og skoðum hvernig hommar og annað hinsegin fólk birtist í ritum fyrr á öldum, hver...
  • “Maður var kannski vanari svipuhöggunum þá.” - Ragnhildur Sverrisdóttir 22.06.2025 48min
    Ragnhildur Sverrisdóttir er fyrrum blaðamaður hjá Morgunblaðinu og er einnig lögfræðingur, móðir, eiginkona og fjölmargt fleira. Í þessum þætti forvitnast ég m.a. um hvernig Ragnhildur upplifði alnæmisfaraldurinn og hvernig hún sér fyrir sér stöðu heimsmálanna í dag þegar kemur að málefnum hinsegin fólks. Svo ræðum við auðvitað ógleymanlega grein sem hún skrifaði í Tímarit Hinsegindaga árið 2022 þar sem hún sagði að mannréttindi okkar eru aðeins eins og "litrík olíubrák sem liggur yfir öllu, ...
  • "Orðið 'kynvilla' er svo jaðarsett - þegar þú ert villtur ertu ekki heima" - Hafdís Erla Hafsteinsdóttir 09.06.2025 1h 4min
    Hafdís Erla Hafsteinsdóttir er fyrrum afrekskona í sundi og sagnfræðingur. Hún hefur eytt töluverðum tíma í sagnfræðirannsóknir á jaðarsettum hópum. M.a. gerði hún MA rannsókn um ungar konur sem voru dæmdar fyrir lauslæti á ástandsárunum en þessi misserin einbeitir hún sér að því að klára doktorsritgerð um HIV faraldurinn á Íslandi. Í þættinum kynnumst við Hafdísi og fáum að heyra sögu hennar, hún segir frá afrekssundferli sínum og hvernig sagnfræði eignaðist hug hennar allan. Dás...
  • "Ég hafna alltaf yfirgangi" - Hörður Torfason 01.06.2025 1h 37min
    Þann 1. ágúst næstkomandi eru liðin 50 ár frá því að Hörður Torfason birtist í Samúel og opinberaði samkynhneigð sína fyrir alþjóð. Í þættinum fáum við að vita um aðdraganda þessa merka viðtals sem er einn af hornsteinum íslenskrar hinsegin sögu og við heyrum líka hvaða toll það tók af Herði og frama hans sem þjóðfrægur leikari og söngvaskáld. Auðvitað forvitnast ég aðeins um æsku hans í miðbænum, hvernig strákaævintýrin fóru fram í hans ungdómi og hvernig hann mætti fordómum og leiðindum með...
  • “Samkennd er fallegasta afl sem við eigum” - Lára Rúnarsdóttir 25.05.2025 1h 23min
    Lára Rúnarsdóttir er einstök kona með ótalmarga hatta. Þessi misserin er hún eigandi Móa jógastúdíós sem leggur ríka áherslu á andlega iðkun, eflir sjálfsvitundina, virðingu fyrir líkamanum, innri hlustun & samkennd. Tilgangur Móa er að skapa rými þar sem einstaklingar geta öðlast frið frá ytri kröfum samfélagsins og tengst sjálfum sér betur. Þetta er einstakt samtal og við vorum fljót að fara á dýptina varðandi líkamsvirðingu, sjálfsvirði, samkennd, sárin okkar, einmanakennd og fleira. H...
  • "Ég ákvað þá að leyfa listinni að eiga mig" - Aldís Amah Hamilton 18.05.2025 1h 9min
    Aldís Amah er mögnuð leikkona, höfundur og aktívisti. Hún hefur komið víða við á síðustu árum í listinni bæði á sviði og á skjánum. Svo er hún líka formaður Samtaka grænkera á Íslandi. Í þættinum spjöllum við auðvitað um listina, mýmargar tilraunir Aldísar til að eyðileggja fyrir sjálfri sér og svo komum við auðvitað inn á sameiginlega ástríðu sem er grænkeralífsstíllinn. Svo skemmtilegt og gefandi spjall við dásamlega manneskju. Aldís á instagram: @aldisamah ---- Bjarni Snæbjörnsson heldur ú...
  • "Alein - saman" Bragi Páll 10.04.2025 20min
    Bragi Páll er einn af okkar mögnuðu rithöfundum sem hefur gefið út fjölmargar bækur. Þátturinn er að þessu sinni óvenjulegur því ég fékk Braga til að lesa inn pistil sem hann skrifaði á facebook vegginn sinn í vikunni sem fjallar einfaldlega um mennskuna. --- Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð. www.bjarnisnae.com Instagram: bjarni.snaebjornsson Facebook: https://www.facebook.com/bjarn...
  • „Þessi aðför að trans konum bitnar beint á sís konum“ - Arna Magnea Danks 31.03.2025 1h 28min
    Arna Magnea er einstök listakona og aktívisti. Hún er leikkona og nýlega var frumsýnd bíómyndin Ljósvíkingar þar sem hún brilleraði í stóru hlutverki. Hún er einnig með sérhæfingu í sviðsbardögum, kennari, móðir og ljóðskáld. Í þættinum förum við mjög víða og Arna segir okkur frá æsku sinni sem var undirlögð af togstreitu og ofbeldi. Við ræðum raunveruleika trans fólks á Íslandi í dag og að sjálfsögðu förum við yfir stöðuna í heiminum öllum, sérstaklega í Bandaríkjunum þar sem mannréttindi ei...
  • „Risa hagsmunaöfl hagnast á því að halda upplýsingum frá okkur” - Rósa Líf Darradóttir 16.03.2025 1h 12min
    Rósa Líf er einstök baráttukona. Hún er formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi sem hefur látið til sín taka síðustu ár. Hún er einnig læknir, hestakona og almennt mikið hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl. Í þættinum tölum við að sjálfsögðu um grænkeralífsstílinn, sem er sameiginlegt grunngildi okkar beggja. Við förum einnig yfir hvernig við getum verið betri við dýrin og svo förum við að sjálfsögðu yfir af hverju Taylor Swift er ein magnaðasta tónlistarkona okkar tíma. Þetta er fallegt og e...
  • „Hún er þrálát hugmyndin um að fatlað fólk sé þiggjendur“ - Freyja Haraldsdóttir 02.03.2025 1h 16min
    Freyja Haraldsdóttir er einstakur aktivisti og doktorsnemi sem hefur komið víða við í baráttu sinni fyrir bættum heimi fyrir fatlað fólk. Í þættinum segir hún mér frá uppvextinum í Garðabæ, hvernig flutningur fjölskyldunnar til Nýja Sjálands mótaði hana og auðvitað hlæjum við okkur í gegnum unglingsárin. Við tölum um baráttu hennar fyrir NPA aðstoðinni, dómsmál sem hún höfðaði gegn barnaverndarstofu og móðurhlutverkið. Þetta er myljandi skemmtilegt spjall og það var svo gaman og lærdóms...
  • „Það þýðir ekki að breiða yfir allt sem er erfitt" - Inga Auðbjörg Straumland 13.01.2025 1h 12min
    Inga Auðbjörg er kona ekki einhöm. Hún vinnur vanalega sem verkefnastjóri og athafnastjóri og er einnig formaður Siðmenntar, félags siðrænna húmanista á Íslandi. Hún hefur óskaplega gaman af stjórnarsetu almennt og er mikill Eurovision-nörd. Það er gaman að ræða við Ingu um Siðmennt og hver krafa félagsins er varðandi jafnræði meðal trú- og lífsskoðunarfélaga. Svo deilum við reynslusögum úr athafnastjórastarfinu, hvernig það er að leika og syngja saman í söngleikjakórnum Viðlagi og hvernig vi...
  • "Það eru byltingar og breytingar í kortunum" - Jara Gian Tara 29.12.2024 1h 18min
    Jara er kyngimögnuð. Hún er stjörnuspekingur, yogakennari, tónlistarkona, coach og margt fleira fallegt sem gerir heiminn að betri stað. Í þessum áramótaþætti dembum við okkur djúpt í stjörnuspekina og skoðum árið sem er að kveðja og það sem er að taka við. Það er alltaf jafn gaman þegar ég upplifi samhljóm með djúpum lestri á stjörnunum og raunverulegu lífi og það gerist sannarlega í þættinum. Fyrir utan stjörnuspekina ræðum við mörg önnur sameiginleg áhugamál eins og t.d. geimverur, EMDR, h...
  • "Að berjast fyrir betri heimi fellur aldrei úr gildi" - Þorvaldur Kristinsson 15.12.2024 1h 23min
    Þorvaldur Kristinsson hefur lifað tímana tvenna. Hann fæðist í Hrísey árið 1950 og nám leiddi hann erlendis og aftur heim nokkrum sinnum. Á viðburðarríkri ævi tók hann virkan þátt í mannréttindabaráttu hinsegin fólks og fyrir þá mikilvægu vinnu var hann sæmdur riddarakrossi Hinnar Íslensku fálkaorðu árið 2004. Fyrir utan það vann hann við ritstörf, m.a. sem útgefandi, höfundur og ritstjóri. Hann er enn að því sumar kom út bókin Herbergi Giovannis eftir James Baldwin í þýðingu Þorvaldar....
  • „Kerlingabylting mun sameina okkur“ - Eva Rún Snorradóttir 03.12.2024 1h 3min
    Eva Rún er mögnuð sviðslistakona og höfundur sem hefur komið víða við á litríkum ferli. Hún hefur gefið út ljóðabækur, skrifað leikrit og verið mjög virk í sjálfstæðum leikhópum eins og Kviss búmm bang og 16 elskendum. Hún er nýbúin að gefa út nýja skáldsögu sem nefnist Eldri konur. Í þættinum ræðum við að sjálfsögðu um listina, hvað drífur okkur áfram og baráttu okkar við að halda okkur á jaðrinum. Þetta er svo fallegt og skemmtilegt spjall við einstaka listakonu. ---- Bjarni Snæbjörnsson ...
  • “Það er ekki hættulegt að leyfa fólki að vera eins og það er” - Daníel E. Arnarsson 17.11.2024 1h 25min
    Daníel E. Arnarsson er magnaður hugsjónamaður og hefur komið víða við á stuttri ævi. Hann var um tíma framkvæmdastjóri Vinstri grænna og starfaði einnig sem framkvæmdastjóri Samtakanna '78 í 7 ár. Þar að auki hefur hann verið á þingi sem varamaður og freistar þess nú að komast inn í lögfræði í HÍ. Í þessum þætti fræðist ég mikið um Samtökin '78 og það magnaða starf sem þar er unnið. Við ræðum auðvitað líka pólitík, bakslagið og hvernig við getum haldið áfram að gera heiminn að betri stað. Það...
  • "Það er ekki til quick-fix" - Dögg Guðmundsdóttir 02.11.2024 1h 18min
    Dögg Guðmundsdóttir er mögnuð kona sem hefur mikla ástríðu fyrir næringarfræði og heilbrigðu sambandi við mat. Hún er á lokametrunum að klára MS í næringarfræði vinnur við ráðgjöf innan heilbrigðiskerfisins. Við förum vítt og breitt í hið stóra viðfangsefni sem er næringarfræðin og kemur í ljós að það er ekki til neitt eitt svar til að öðlast heilbrigt líf í gegnum mataræði (sem var ákveðinn skellur). Við ræðum m.a. mýturnar sem eru þarna úti, af hverju kolvetnin hafa verið máluð út í horn se...

Priljubljen v

Ta podkast je tudi v lestvicah podkastov teh držav.