Litli mallakúturinn
Gunnar Ásgeirsson
0
Litli mallakúturinn er hlaðvarpsþáttur Gunnars Ásgeirssonar þar sem hann ræðir við einstaklinga sem hafa gengist undir þyngdartengdar magaðgerðir, eins og hjáveitu, ermi eða magaband. Í þættinum er sagt frá reynslu fólks af aðgerðunum og lífinu eftir þær. Gunnar hvetur áheyrendur til að hafa samband ef þau vilja deila sinni sögu.
Epizode
-
#26 - Baldvin Þorláksson - Magahjáveitan sem breyttist í martröð 01.09.2026 13minÞað sem átti að vera einföld og hversdagsleg magahjáveituaðgerð á einkasjúkrahúsi í Noregi breyttist í lífshættulega martröð. Viðmælandi þáttarins er Akureyringurinn Baldvin Þorláksson, 69 ára fyrrverandi skipstjóri sem hefur búið í Noregi í aldarfjórðung. Eftir ævilanga baráttu við kílóin ákvað hann að fjármagna hjáveituaðgerð sjálfur. Undirbúningurinn var af skornum skammti — aðeins eitt stutt símtal á meðan hann stóð úti á bensínstöð. En á skurðarborðinu fór allt á versta veg. Baldvin vaknaði í sjúkraþyrlu á leið á háskólasjúkrahúsið í Osló með 3,7 lítra af blóði í kviðarholinu. Við tók tíu daga meðvitundarleysi í öndunarvél, sjö enduraðgerðir, blóðtappar, afturköllun á hjáveitunni og 55 daga samfelld spítalavist. Í þættinum ræðir Baldvin opinskátt um líkamlega og andlega áfallið, skort á eftirfylgni, lífstíðarafleiðingarnar sem fylgja því að missa hringvöðvann milli maga og vélinda, og hvers vegna einkavæðing í skurðlækningum má aldrei verða til þess að afsláttur sé gefinn af öryggi og fræðslu. -
#25 - Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar - Þriðji hluti - 11 mánuðir frá hjáveitu 05.08.2026 50minVið höldum áfram að fylgjast með Önnu Margréti Jakobsdóttir Hjarðar. Þetta er þriðja viðtalið sem ég tek við hana og hér segir hún okkur frá því hvernig lífið er í dag, 11 mánuðum frá magahjáveituaðgerð. Þegar ég spyr hana um stærsta sigurinn stendur ekki á svörunum. Hann snýst hvorki um þyngdina né fatastærðir – heldur um hugarfarið og lífsgæðin. Einlægt, opinskátt og hvetjandi samtal um nýtt líf.💬 Hafðu samband:Netfang: [email protected] á Instagram: @gunnsi.is (ef þig langar að deila þinni sögu í þættinum)Anna Margrét á Instagram: @annamhjardar -
#24 Hrafnhildur Valgarðsdóttir - Hjáveita - "Ég þurfti að sýna mér meiri mildi" 03.04.2026 52minÍ þessum 24. þætti ræði ég við Hrafnhildi Valgarðsdóttur, deildarstjóra í Laugalandsskóla á Hellu, sem fór í magahjáveitu fyrir níu árum.Hrafnhildur deilir því hvernig gamlar lífsreynslur og áföll mótuðu sjálfsmyndina og hvernig baráttan við kílóin tók óvænta stefnu eftir Long-COVID veikindi. Við ræðum opinskátt um „púkann í hausnum“, notkun Wegovy til að finna matarró og mikilvægi þess að mæta sjálfum sér af mildi frekar en hörku. Hrafnhildur segir einnig frá starfi sínu fyrir SFO og baráttunni fyrir bættum skilningi á offitu sem sjúkdómi. -
#23 Hjalti G. Hjartarson - Mini-Hjáveita - "Þú ert bara beisiklí að ryðga að innan" 30.09.2025 1h 6minHjalti G. Hjartarson ólst upp við mikla hreyfingu og líkamlega getu, en þegar hann hóf háskólanám breyttist allt. Hreyfingin féll út, lífstíllinn tók aðra stefnu og áherslan færðist alfarið yfir á námið. Það sem gerir sögu hans enn áhugaverðari er bakgrunnur hans: pabbi hans er hjartalæknir, mamma hans taugalæknir og hann sjálfur með sterkan íþróttagrunn. Hjalti hafði því öll verkfæri til að lifa heilbrigðu lífi – en lífið gerist, og stundum fjarlægjumst við það sem við vitum að er gott fyrir okkur. -
#22 - Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar - Annar hluti - Hjáveita 15.09.2025 50minVið höldum áfram að fylgjast með ferðalagi Önnu Margrétar Jakobsdóttur Hjarðar.Þegar við kvöddum hana síðast voru aðeins tíu dagar í að hún færi í magahjáveitu í Svíþjóð - þegar hér er komið við sögu er rúmur mánuður frá aðgerð og hér segir Anna okkur frá því hvernig aðgerðin sjálf gekk fyrir sig og hvernig henni líður í dag.Við fáum að heyra af lífinu á sjúkrahúsinu, fyrstu dagana eftir aðgerð og fyrstu skrefunum inn í þetta nýja líf sem hún er að byrja að byggja upp. -
#21 - Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar - Fyrsti hluti - Hjáveita "Já, og er það þess vegna sem þú ert að troða svona ofan í þig?" 02.08.2025 36minÍ þessum þætti kynni kynnumst við Önnu Margréti Jakobsdóttur Hjarðar – sveitastelpu frá Borgarfirði eystra.Anna Margrét stendur nú á stórum tímamótum í lífi sínu, því á næstu dögum fer hún í hjáveituaðgerð í Svíþjóð.Áratuga reynsla af fordómum innan heilbrigðiskerfisins hefur kennt henni að standa með sjálfri sér – en það var ekki fyrr en hún hitti Erlu Gerði Sveinsdóttur hjá Mín besta heilsa að hún fékk loks skýringar á því hvers vegna hún hafði ekki getað létt sig.Í þessum fyrsta þætti fáum við að heyra hennar sögu – allt frá æsku í sveitinni og til dagsins í dag, en þegar þetta viðtal er tekið upp eru aðeins nokkrir dagar í aðgerð.Við munum halda áfram að fylgjast með Önnu Margréti og hennar ferli og er planið að spjalla við hana aftur þegar um mánuður er liðinn frá aðgerðinni. -
#20 - Erla Gerður Sveinsdóttir - Sérfræðilæknir við meðferð offitu 28.05.2024 1h 19minErla Gerður Sveinsdóttir er viðmælandi í þessum tuttugasta þætti. En hún hefur lengi brunnið fyrir málefnum um offitu og hefur meðal annars starfað í offituteyminu á Reykjalundi, var ein af stofnendum Heilsuborgar og nú síðustu ár hefur hún starfað hjá Mín besta heilsa. Umræðuefni þessa þáttar er meðal annars aðgerðirnar frá sjónarhóli læknis. Og svo ræðum við einnig um þessi lyf við offitu en ávísun þessara lyfja hefur stóraukist á síðustu árum. -
#19 - Katrín Alexandra Helgudóttir - Hjáveita "Ég vaknaði og ég hef aldrei á ævinni upplifað annan eins sársauka" 22.05.2024 42minKatrín Alexandra Helgudóttir (Kata) starfar sem sjúkraliði á bráðamóttökuni hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Hún segir okkur frá hennar vegferð að betra lífi. Það var í apríl 2023 sem hún gekkst undir hjáveitu á Klíníkinni. Kata hefur verið opin með ferlið sitt og segir frá reynslu sinni og skrásetur ferlið á Instagram. En þar er hún undir notendanafninu @hjaveitu_lifid -
#18 Konráð Logi Fossdal - Mini-Hjáveita - "Ég fann það bara, ég gat ekkert hlaupið á eftir þeim" 07.05.2024 41minKonráð Logi Fossdal er Akureyringur í húð og hár. Árið 2022 fór hann í mini-hjáveitu í gegnum klíníkina. Ákvörðunina tók hann eftir að hann eignaðist börn og sá fyrir sér að líkamlegt ástand þyrfti að vera betra til þess að geta sinnt og leikið við börnin. Í þættinum ræðum við einnig kæfisvefn en Konni greindist með eins alvarlegan kæfisvefn og hann getur orðið. -
#17 Rafn Heiðar Ingólfsson - Hjáveita - "Púkinn á öxlinni á mér sagði mér það að ef ég færi nú í þessa aðgerð að þá yrði nú lífið bara miklu betra" 30.04.2024 48minRafn Heiðar Ingólfsson, matreiðslumeistari, eða Rabbi eins og hann er gjarnan kallaður ólst upp á Fáskrúðsfirði hjá ungri einstæðri móður. Árið 2008 flutti hann til Danmerkur og var á mjög slæmum stað andlega og taldi ástæðuna fyrir þessari vanlíðan vera ofþyngdin og var viss um að þegar hann væri orðinn grannur yrði allt betra. Árið 2011 gekkst hann undir magahjáveitu í gegnum danska heilbrigðiskerfið. Rabbi segir okkur frá því hvernig það var að fara í gegnum ferlið í Danmörku og ræðir opinskátt um baráttuna við fíknina. -
#16 Sólveig Sigurðardóttir - Hjáveita - "Þetta var sjokk þegar mér var sagt að þetta væri eini kosturinn fyrir mig" 23.04.2024 1h 24minSólveig Sigurðardóttir hefur lengi talað fyrir heilbrigðum lífstíl á blogginu sínu Lífstíll Sólveigar. Hún ætlaði aldrei í efnaskiptaaðgerð en fyrir tveimur árum greindist hún með vélindasjúkdóminn Barretts sem leiddi til þess að hún gekkst undir hjáveituaðgerð í Malmö í ágúst 2023. Hún er formaður SFO (Samtök fólks með offitu og aðstandendur þeirra) og ræðum við bæði hennar reynslu af magahjáveitu sem og því hvernig stóð á því að til urðu sérstök samtök fólks með offitu. -
#15 Linda Skarphéðinsdóttir - Magaermi - "Já, þú fórst bara í aðgerð, þú ert ógeðslega löt." 16.04.2024 50minLinda Skarphéðinsdóttir fór í magaermi árið 2019 og í framhaldinu fór svo að læra einkaþjálfun. Linda segir sögu sína í þessum þætti. -
#14 Jóhannes Geir Númason - Hjáveita - "...þú þarft að drífa þig að gera þetta. Þetta er það sem þú átt að gera." 09.04.2024 1h 20minJóhannes Geir Númason er kjötiðnaðarmeistari sem vatt kvæði sínu í kross og gerðist grunnskólakennari. Hann hafði lengi haft fordóma fyrir því að fara í efnaskiptaaðgerð, taldi þetta auðveldu leiðina og hann gæti þetta alveg sjálfur. Árið 2019 sagði hann hingað og ekki lengra og fór í hjáveitu. -
#13 Íris Hólm Jónsdóttir - Magaermi - "Það kom svona lowpoint hjá mér þegar ég braut klósettsetuna heima hjá mér" 02.04.2024 49minÍris Hólm Jónsdóttir er söngkona úr Mosfellsbæ. En hún steig sín fyrstu skref í sjónvarpsþáttunum X-Factor og hefur síðan þá brallað ýmislegt. Sungið með Frostrósum, á jólatónleikum Siggu Beinteins, tekið þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins svo eitthvað sé nefnt. Í júní 2021 gekkst Íris undir magaermi á Klíníkinni. -
#12 Andrea Ævarsdóttir - Mini-Hjáveita - "...og svo segir ein þeirra: 'Við eigum því miður ekkert í þinni stærð.' Ég var 16 ára!" 26.03.2024 55minAndrea Ævarsdóttir er bókasafns- og upplýsingafræðingur og allskonar-nörd eins og hún segir sjálf. Hún hafði velt fyrir sér magahjáveitu í yfir 20 ár en taldi þetta ekki vera lausnina fyrir sig, var hrædd við svona aðgerð. Það er síðan í desember 2019 þegar hún stendur á stórum palli úti í Gvatemala að hún fær hugljómun: „Þú verður að fara í þessa aðgerð, þú ert ekki að ráða við þetta án aðstoðar“. Hún lendir á Íslandi 19. des og er floginn út til Eistlands í aðgerð 12. janúar. Andrea lítur björtum augum á framtíðina og sér ekki eftir neinu. Hægt er að fylgja Andreu á Instagram: andrea_wins_at_life -
#11 Ásgerður Arnardóttir - Magaermi - "Ég ligg bara hérna ber á borðinu eins og Jesú með blóð í annan handlegginn og næringu í hinn." 19.03.2024 43min„Ég ligg bara hérna ber á borðinu eins og Jesú með blóð í annan handlegginn og næringu í hinn. Og þá bara dett ég út aftur…“ Þetta er ekki venjubundin upplifun sem fólk sem gengst undir efnaskiptaaðgerðir verður fyrir á skurðstofunni en það var nú samt raunin í tilviki Ásgerðar Arnadóttur þegar hún fór á eigin vegum til Póllands í magaermi í febrúar árið 2023. Aðgerðin gekk ekki vel og missti hún t.a.m. miltað í aðgerðinni. Tveimur vikum eftir heimkomu til Íslands fór Ásgerður að veikjast. Ásgerður Arnardóttir segir okkur sögu sína í þessum þætti. -
#10 Hólmfríður Lovísudóttir - Mini-Hjáveita 12.03.2024 46minHólmfríður Lovísudóttir var í nóvember 2021 komin með fitulifur, of háan blóðþrýsting, sykursýki, liðverki og mikla mæði, þá orðin 150 kg þegar hún setti sig í samband við Aðalstein á Klíníkinni. Niðurstaðan var að hún fór í mini-hjáveitu í apríl árið 2022.Hólmfríður segir okkur sína sögu í þættinum. -
#9 Gíslunn Hilmarsdóttir - Hjáveita 05.03.2024 33minÁföllin gera ekki boð á undan sér. Gíslunn Hilmarsdóttir varð fyrir þeirri lífsreynslu árið 2017 að lenda í alvarlegu bílslysi sem varð til þess að hreyfing var ekki eins auðveld og áður. Hún fór í prógramm hjá Erlu Gerði árið 2021 og var svo ári seinna mætt til Svíþjóðar í hjáveitu. Gíslunn segir sína sögu í þessum þætti. -
#8 Guðbjörg Steinsdóttir Snædal - Mini-Hjáveita 20.02.2024 44minGuðbjörg starfar sem kennari á Fáskrúðsfirði. Hún fór í mini-hjáveitu árið 2021 í gegnum Klíníkina Ármúla og segir okkur hér hennar reynslusögu. -
#7 Vordís Baldursdóttir - Hjáveita 15.02.2024 1h 5minVordís Baldursdóttir ræðir um aðdraganda þess að hún fór í prógramm á Reykjalundi og síðan í aðgerð árið 2020 og hvernig lífið er í dag.
Priljubljen v
Ta podkast je tudi v lestvicah podkastov teh držav.