Til skjalanna
Hlaðvarp Þjóðskjalasafns Íslands
0
Til skjalanna er hlaðvarp Þjóðskjalasafns Íslands. Í þáttunum er fjallað um forvitnileg skjöl, sögulega viðburði og nýjar rannsóknir sem byggja á efni safnsins. Farið er yfir hvað Þjóðskjalasafn Íslands er og hvernig gögnin varpa ljósi á íslenska sögu. Hver þáttur tekur fyrir ákveðið efni eða spurningar tengdar skjalasöfnun og rannsóknum.
Epizode
-
Dularfullt andlát við Draugatjörn 27.08.2026 25minSímon Sverrisson ræðir við Ólaf Valdimar Ómarsson skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um dularfullt andlát Kristmanns Jónssonar árið 1881. Kristmann Jónsson, gullsmiður, fannst látinn við Draugatjörn árið 1881. Hann hafði verið í skemmtiferð á Hellisheiði í byrjun ágústmánaðar. Misvísandi framburður samferðafólks hans og sönnunargögn sem fuku út í veður og vind gera málið allt hið undarlegasta. Hvað gerðist við Draugatjörn — og hvers vegna var aldrei hægt að komast að endanlegri niðurs... -
Berklar á Íslandi 08.07.2026 53minHelgi Biering ræðir við dr. Erlu Dóris Halldórsdóttur um bók hennar Berklar á Íslandi. Berklaveiki var mikið mein í íslensku samfélagi og var dánartíðni berklasjúklinga hér á landi meðal þeirra hæstu í Evrópu. Veikin lagðist einkum þungt á ungt fólk og voru ungar konur í meirihluta þeirra sem létust af völdum hennar. Í þættinum er farið yfir sögu berkla á Íslandi, afleiðingar veikinnar og baráttuna gegn þessum ömurlega sjúkdómi. -
Vorráðstefnur Þjóðskjalasafns Íslands 26.06.2026 19minÁrleg vorráðstefna Þjóðskjalasafns Íslands fór fram 3. júní síðastliðinn og var það í áttunda sinn sem ráðstefnan var haldin. Í þættinum ræða Heiðar Lind Hansson, fagstjóri gagnaskila og eftirlits og Njörður Sigurðsson, aðstoðarþjóðskjalavörður, um tilurð ráðstefnunnar, þróun hennar og fyrri ráðstefnur. Þemu vorráðstefnanna hafa verið fjölbreytt og endurspeglað þau mál sem hafa verið efst á baugi í stjórnsýslunni hverju sinni, meðal annars persónuvernd, stafræna umbreytingu og upp... -
Nýr gagnagrunnur um alþingiskosningar 1874-1903 06.05.2026 36minUnnar Ingvarsson fagstjóri ræðir við Hrafnkel Lárusson sagnfræðing um nýjan vefgagnagrunn um alþingiskosningar á árunum 1874–1903, sem opnaður var þann 1. maí á vef Þjóðskjalasafns Íslands. Þar má finna upplýsingar sem varpa ljósi á kosningar, frambjóðendur og stjórnmálaþróun á fyrstu áratugum íslensks lýðræðis. Í þættinum er fjallað um tilurð gagnagrunnsins, hvaða heimildir liggja honum að baki og hvernig hann getur nýst bæði fræðafólki og almenningi sem vill kynna sér sögu íslenskra kosninga. -
Strand spítalaskipsins Sankti Páls á Meðallandsfjörum árið 1899 30.03.2026 31minÍ þessum þætti ræðir Símon Sverrisson við Jóhönnu Þ. Guðmundsdóttur sagnfræðing og verkefnastjóra heimildaútgáfu á Þjóðskjalasafni Íslands um strand franska spítalaskipsins Sankti Páls. Sankti Páll var með glæsilegri skipum sem komu á Íslandsmið en það var þrímastra seglskip sem strandaði í sinni þriðju ferð til Íslands árið 1899. Hið fagra skip vakti eðlilega mikla athygli þar sem það lá í fjörunni í Meðallandi sem kölluð hefur verið skipakirkjugarður Evrópu. Jóhanna segir frá strandin... -
Draugaskipið Jamestown 24.02.2026 28minSímon Sverrisson ræðir við Helga Biering þjóðfræðing og skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um rannsóknir hans á strandi Jamestown árið 1881. Þann 26. júní árið 1881 strandaði seglskipið Jamestown við Hvalsnes á Reykjanesi. Skipið sem var á leið frá Bandaríkjunum til Liverpool á Englandi var fullt af timbri af mismuanndi tegundum svo sem harðvið. Ólukka virtist fylgja skipinu en úti á rúmsjó datt stýri skipsins af og endaði ferð skipsins eins og áður segir með strandi við Hvalsnes. En ... -
Vald hinna veiku 28.01.2026 48minUnnar Ingvarsson fagstjóri á Þjóðskjalasafni ræðir við Guðna Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseta Íslands, um rannsóknir hans á þorskastríðunum og væntanlega bók hans, Vald hinna veiku. Útfærsla efnahagslögsögu Íslands á 20. öld leiddu iðulega til átaka við Breta, sem mótmæltu þeim áformum harðlega. Deilurnar náðu hámarki þegar kom til átaka á fiskimiðunum sjálfum, þar sem togvíraklippurnar voru notaðar í fyrsta sinn. Í viðtalinu fjallar Guðni ... -
Fröken Dúlla: Ævisaga 18.12.2025 31minRagnhildur Hólmgeirsdóttir ræðir við Kristínu Svövu Tómasdóttur um nýjustu bók hennar sem nefnist Fröken Dúlla: Ævisaga. Í bókinni fer Kristín Svava yfir ævi og störf Jóhönnu Knudsen hjúkrunar- og lögreglukonu sem þekktust er fyrir vinnu sína fyrir lögreglu á árum seinni heimsstyrjaldarinnar. Kristín Svava segir í viðtalinu meðal annars frá heimildaöflun, vinnslu og aðdraganda bókarinnar. -
38 ár í Þjóðskjalasafni 11.12.2025 42minNjörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður ræðir við Kristjönu Kristinsdóttur skjalavörð, fyrrum sviðsstjóra í Þjóðskjalasafni og fyrrum lektor í skjalfræði við Háskóla Íslands. Kristjana hefur unnið á Þjóðskjalasafni Íslands frá árinu 1988 en mun í lok árs láta af störfum. Í þessum þætti ræðir Kristjana um það hvernig hún fór að vinna við skjalavörslu, viðhorf til skjalavörslu og hvað breyst hefur í gegnum tíðina. -
Vinnukona, ómagi, stúlka og frú 30.10.2025 53minHelgi Biering ræðir við sagnfræðinginn Atla Björn Jóhannesson um MA-ritgerð hans, Vinnukona, ómagi, stúlka og frú. Ritgerðin fjallar um konur sem skrifuðu undir áskorun Hins íslenska kvenfélags árið 1895 - fyrstu skipulögðu kvenréttindakröfuna á Íslandi á landsvísu. Konur úr öllum stéttum tóku þátt. Þátttakan var misjöfn eftir landshlutum og fór eftir einstaklingsframtaki á hverjum stað. Þátturinn varpar ljósi á upphaf íslenskrar kvenréttindabaráttu með því að greina hverjir þáttt... -
Minja- og sögufélag Grindavíkur. Að varðveita sögu og menningu. 03.06.2025 42minÍ þessum þætti ræðir Helgi Biering við Hall Jónas Gunnarsson, eina af driffjöðrum Minja- og sögufélags Grindavíkur. Farið er yfir upphaf félagsins, hið mikilvæga starf við söfnun, skráningu og miðlun heimilda og minja. -
Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna 28.04.2025 43minHelgi Biering ræðir við Þórunni Marel Þorsteinsdóttur sagnfræðing um rannsókn hennar á lausamennsku. Þórunn skrifaði BA ritgerð sem heitir Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna: Afbrot og siðferði á Akureyri 1810 – 1840. Eftir að einokunarverslun lauk og kaupstaðir tóku að myndast á Íslandi í upphafi 19. aldar, hófst þéttbýlismyndun þar sem atvinnuleit dró fólk að verslunarstöðunum. Þó svo að lausamennska væri ólögleg þá var fólk í þeirri stöðu samþykkt af samfélaginu sem sýn... -
Aðgerðaráætlun vegna hugsanlegs brottflutnings íbúa Vestmannaeyja frá 1964 27.03.2025 33minÍ febrúar árið 1964 var unnin aðgerðaráætlun vegna hugsanlegs brottflutnings íbúa Vestmannaeyja vegna mögulegrar hættu af völdum náttúruhamfara. Jón Böðvarsson iðnaðarverkfræðingur vann skýrsluna fyrir dr. Ágúst Valfells þáverandi forstöðumann almannavarna ríkisins. Skýrslan nýttist svo þegar gaus í Vestmannaeyjum þann 23. janúar 1973. Helgi Biering ræðir við þá Jón og dr. Ágúst varðandi skýrsluna, tilurð hennar og mikilvægi þegar á reyndi. Meðal þess sem fram kemur í þættinum er náttúr... -
Ættfræði og tækni 27.02.2025 51minÍslendingar hafa löngum haft mikinn áhuga á ættfræði, en hvernig geta tölvunarfræði og tæknilausnir auðveldað ættfræðirannsóknir? Í þessum þætti fara Helgi Biering og Agnar Guðmundsson, tölvunarfræðingur og áhugamaður um ættfræði út um víðan völl, um tengsl ættfræði og tækni, gagnagrunna, skjalavörslu og forvitnilegar uppgötvanir í ættfræðinni. -
Cornell háskóli. Saga, söfn og aðgengi. 16.01.2025 39minÓlafur Arnar Sveinsson sviðsstjóri fræðslu og rannsókna hjá Þjóðskjalasafni Íslands ræðir við Elaine L. Westbrooks yfirbókavörð Cornell háskólabókasafnsins. Á meðal þess sem rætt er um er traust til safna, Willard Fiske safnið sem hefur að geyma bækur og handrit á íslensku, aðgengi að gögnum og áhugaverða sögu Cornell háskóla. Þátturinn er á ensku. -
Jólasiðir þá og nú 16.12.2024 31minHelgi Biering ræðir við dr. Margréti Gunnarsdóttur skjalavörð um hefðir, siði og venjur Íslendinga í kringum jól og áramót. Margrét, sem er höfundur ævisögu Ingibjargar Einarsdóttur, eiginkonu Jóns Sigurðssonar, fræðir hlustendur um það til dæmis hvernig jólahaldi var háttað á heimili þeirra hjóna við Austurvegg í Kaupmannahöfn. Áhrif erlendis frá, einkum frá Danmörku, hafa augljóslega náð til landsins í gegnum tíðina og hjálpað við að móta siði og venjur. Meðal þess sem fram kemu... -
Fóðrun og hagaganga aðkomufjár í kvikfjártalinu 1703 27.11.2024 22minHelgi Biering ræðir við Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur, skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um BA ritgerð hennar frá árinu 2020 sem ber heitið Fóðrun og hagaganga aðkomufjár í kvikfjártalinu 1703. Kvikfjártalið er einstök heimild um búskarparhætti og samfélagsgerð á Íslandi í byrjun 18. aldar. Meðal þess sem fram kemur í þættinum er greiðsla vegna kúgjaldaleigu, sauðir með höfuðsótt, skattaafsláttur og heytollur. -
Blái skjöldurinn 23.10.2024 33minHelgi Biering ræðir við Heiðar Lind Hansson fagstjóra gagnaskila og eftirlits hjá Þjóðskjalasafni Íslands um Bláa skjöldinn. Blái skjöldurinn er alþjóðlegt tákn um vernd menningarverðmæta í vopnuðum átökum og er að ýmsu að hyggja í þeim málum í dag. Einnig koma við sögu viðbragðsáætlanir, rafræn gögn, rýmingarstefna og Norður-Kórea. -
Heimsókn til Gdansk í Póllandi 30.09.2024 44minHelgi Biering ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur lektor í skjalfræði um námsferð starfsmanna Þjóðskjalasafns Íslands til Gdansk í Póllandi. Tilgangur ferðarinnar var heimsókn í eitt af útibúum Þjóðskjalasafns Pólands, fræðast og kynnast þeim sem starfa við skjalavörslu. Einnig var rætt um áskoranir í skjalavörslu og bornar saman bækur. Meðal þess sem kemur við sögu í þættinum er þroskastig skjala, nýsköpun, miðlun gagna og minni þjóðar. -
Netógnir dagsins í dag 12.08.2024 38minHeiðar Lind Hansson ræðir við Bjarka Þór Sigvarðsson fagstjóra ástandsvitundar hjá CERT-IS um netöryggi í leik og starfi í dag. Gagnagíslataka, tvöföld fjárkúgun, árásarkeðjur og gagnaöryggi er meðal þess sem rætt er um í þættinum.
Priljubljen v
Ta podkast je tudi v lestvicah podkastov teh držav.