Lestin
RÚV
0
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Episodet
-
Í beinni á Listahátíð 01.06.2026 54minSameiginleg bein útsending Víðsjárog Lestarinnar frá Iðnó, sem hefur nú verið umbreytt í klúbb Listahátíðar í Reykjavík. Viðmælendur í þættinum eru Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, Hrefna Lind Lárusdóttir, Eygló Höskuldsdóttur, Kjartan Hólm, Rósa Jóhannesdóttir, Helgi Zimsen, Jóhannes Zimsen, Viðar Eggertsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Chloe Loftus og Florent Devlesaver.
-
Lestin á Feneyjatvíæringnum 28.05.2026 53minVið röltum um Feneyjatvíæringinn, eina elstu og vinsælustu myndlistarhátíð heims, sem hófst í byrjun maí. Við kíkjum inn í nokkra þjóðarskála, ræðum við listafólk og hátíðargesti, og veltum fyrir okkur pólitísku hitamálunum.
-
Ritlistarfnykur og grískir harmleikir 27.05.2026 55minLestin í dag er að mestu lögð undir umræður um stíl í bókmenntum, svokallaðan ritlistarstíl sem sumir telja sig geta greint í bókum fólks sem er menntað í skapandi skrifum í Amerískum háskólum. Við fáum innlegg frá Eiríki Erni Norðdahl sem reynir að setja fingurinn á þessa fagurfræði, og svo höldum við áfram með rithöfundunum Þórdísi Gísladóttur og Fríðu Ísberg og reynum að setja umræðuna í skandinavískt og íslenskt samhengi. Það eru tæplega 20 ár frá því að byrjað var að kenna skapandi skrif í Háskóla Íslands, og við ætlum að velta því fyrir okkur hvort og þá hvernig þetta nám hefur haft áhrif á íslenskt bókmenntalíf. Undir lok þáttarins hringjum við svo til Kýpur og spjöllum við Övru Sidiropoulou prófessor í leikhúsfræðum um gríska harmleiki. Þessi forna leikhúsgrein nýtur ennþá vinsælda og virðingar en í gær hlaut uppsetning Þjóðleikhússins á Óresteiu eftir Æskilos og í leikstjórn Benedict Andrews flest verðlaun á Grímuhátíðinni.
-
Fjord fær Gullpálmann, Veröld ný og góð, 20 og eitthvað 26.05.2026 56minKvikmyndin Fjord, í leikstjórn rúmenska leikstjórans Christan Mungiu, hlaut Gullpálmann um helgina. Hún stóð upp úr að mati dómnefndar af þeim 22 myndum sem voru í aðalkeppninni í ár. Búist er við að myndin muni skapa miklar umræður þegar hún fer í almenna sýningu, en í henni verður strangtrúuð rúmensk/norsk fjölskylda fyrir barðinu á norsku barnaverndarnefndinni. Myndin er í raun byggð á máli sem fór hátt í norskum fjölmiðlum fyrir 10 árum. Einar Már Jónsson, rithöfundur, flytur okkur pistil frá París, að þessu sinni um framtíðarbókmenntir og kjarnsæi. Brynja Hjálmsdóttir sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar rýnir í nýja íslenska grínþætti sem sýndir eru á RÚV og heita 20 og eitthvað.
-
Íslendingar í Cannes, línuleg saxskrá, Palantir tíska 21.05.2026 55minVið ræðum við nokkra íslendinga sem eru staddir í Cannes í ólíkum erindagjörðum, Dögg Mósesdóttir, framleiðandi, sem er að kynna myndina Eyríki. Ása Baldursdóttir og Hrönn Sveinsdóttir úr Bíó Paradís, sem eru að horfa á myndir og funa og velja hvað verður á dagskrá á komandi mánuðum í eina listabíói landsins. Við fræðumst um plönin þeirra og förum yfir nokkur mál er varða keppnina um Gullpálmann. Hera Guðmundsdóttir fer nokkrum sinnum á ári til Parísar að sjá nýjustu tísku, í síðustu heimsókn sinni til Parísar kom hún auga á alveg nýja týpu af tískuáhugamanni, týpu sem er algengari í Kísildalnum en á tískupöllum Parísar. Svo ræðum við við tónlistarmanninn Tuma Torfason, sem heldur tónleika í Iðnó á sunnudaginn, en með nokkuð sérstöku þema. Tumi, ásamt fleiri saxófónleikurum, mun flytja þekkt útvarps-og sjónvarpsstef.
-
Drake popplagakrufning, aðdáendur Ávaxtakörfunnar, biðröðin 20.05.2026 55minDrake er hratt og örugglega að jafna sig eftir rappbardagann við Kendrick Lamar fyrir tveimur árum. Í vikunni gaf hann ekki út eina endurkomuplötu heldur þrjár. Friðrik Margrétar Guðmundssson hjálpar okkur að kryfja einn slagara af plötunum þremur, Janice STFU. The Sopranos, Lykke Li og trapp-taktar frá Atlanta eru meðal þess sem poppmeinafræðingurinn veiðir upp úr laginu. Söngleikurinn Ávaxtakarfan á sér lítinn en harðan hóp erlendra aðdáenda, sem teikna myndir af persónunum, pæla í tónlist og boðskap leikritsins. Fríða Þorkelsdóttir, netblaðamaður Lestarinnar, segir frá. Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, er í biðröð en veit ekki hvað hann ætlar að gera þegar hann kemst á leiðarenda.
-
Brunað milli kvikmyndahátíða: Cannes, Zürich, Patreksfjörður 19.05.2026 56minVið ætlum að flakka milli kvikmyndahátíða í Lestinni í dag. Við verðum Í Suður-Frakklandi, í Sviss og á Patreksfirði. Við hringjum til Cannes þar sem einhver þekktasta kvikmyndahátíð heims stendur nú yfir, þar er Lóa Björk stödd og við tökum stöðuna á henni. Við heyrum líka í Kristínu Andreu Þórðardóttur sem er einn skipuleggjenda heimildamyndahátíðarinnar Skjaldborg sem fer fram venju samkvæmt á Patreksfirði um Hvítasunnuhelgina. Og svo heyrum við um svissnesku hátíðina Videoex sem er tileinkuð tilraunakenndri kvikmyndagerð, en íslenskar myndir verða í sérstökum brennidepli á hátíðinni í ár. Rithöfundurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Sjón segir frá, en hann sá um valið á tilraunakenndum islenskum myndum sem sýndar eru á hátíðinni.
-
Fasískir vindar í franskri bókaútgáfu og lífið er ennþá Kabarett, 18.05.2026 55minVið veltum fyrir okkur söngleiknum Kabarett og hvernig þemu hans birtast okkur í samfélagi samtímans, með Sigríði Jónsdóttur, leikhúsrýni og sérfræðingi hjá Leikminjasafni Íslands. Frönsk menningarumræða hefur logað síðustu vikurnar vegna fjárfestinga og afskipta milljarðamæringsins Vincent Bolloré. Hera Guðmundsdóttir, blaðamaður Lestarinnar, ræðir við Bergþóru Snæbjörnsdóttur og Jón Kalman Stefánsson um sviftingar í franska bókmenntaheiminum og hlutverk bókmennta á tímum pólitískrar skautunar.
-
Vilja kjósendur bara láta skemmta sér? Bókin, gangvirki Cannes 13.05.2026 52minHvað gerist á kvikmyndahátíðinni í Cannes? Grímar Jónsson og Sara Nassim, framleiðindur, eru stödd í Frakklandi og þekkja hátíðina út og inn. Við fáum að skyggnast inn í gangvirki Cannes og komast að því hvað framleiðendur gera þar. Eiríkur Örn Norðdahl veltir fyrir sér bókinni og blikkandi ljósi dópamínvélarinnar. Hvert er hlutverk rithöfundarins, á hann að vera í samkeppninni við símana og Netflix? Pétur Ólafsson er annar tveggja þáttastjórnanda hlaðvarpsins Korter í kosningar, nú er korter í kosningar og við veltum fyrir okkur hvað hefur einkennt þessa kosningabaráttu.
-
Pólitískar vindvélar Evrópu, heimildarþættir um America's Next Top Model 12.05.2026 52minBrynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, segir frá þáttunum Reality Check, sem fjalla um raunveruleikaþættina America's Next Top Model. Þeir hófu göngu sína árið 2003 og í þeim kepptust ungar konur um að verða næsta ofurfyrirsæta Bandaríkjanna. En það var ýmislegt misjafnt sem gekk á. Gísli Marteinn Baldursson kemur og ræðir Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva, en fyrri undankeppnin fer fram í Vín í kvöld. Ísland er ekki með og er eitt fimm landa sem sniðganga keppnina vegna þátttöku Ísraels í henni. Við ræðum líka nýja þætti hans sem eru á dagskrá rásar 1, Pólitískar vindvélar Evrópu.
-
Nýtt tóma rými, Devil Wears Prada og ítök tískuprentmiðla 11.05.2026 58minDevil Wears Prada 2 er ein af stóru myndum vorsins, Hera Guðmundsdóttir, hönnuður og blaðamaður lestarinnar fór að sjá hana á dögunum og fór í kjölfarið að velta fyrir sér tískuprentmiðlum. Myndin er sjálfstætt framhald fyrstu myndarinnar, sem kom út fyrir tveimur áratugum, Devil Wears Prada. Sú mynd byggir á bók sem fyrrum aðstoðarkona Önnu Wintour skrifaði. Hera ræddi við Önnu Clausen sem er listrænn stjórnandi og aðjúnkt við fatahönnunardeild Listaháskólans. Við kíkjum í heimsókn á Grandann, þar eru meðlimir tóma rýmisins í óða önn að koma sér fyrir í nýju húsnæði. Tóma rýmið var áður til húsa í Skerjafirðinum, en starfseminn sprengdi það húsnæði utan af sér. í tóma rýminu eru sviðslistir iðkaðar og er það rekið af sjálfstætt starfandi sviðslistafólki.
-
Queer Situations, bylting frjálshyggjunnar, Apex og Michael 07.05.2026 54minHinsegin bókmenntir, langborðsumræður, fræðadagskrá og fjölbreyttur hópur alþjóðlegra höfunda, er það sem gestir bókmenntahátíðarinnar Queer Situations geta átt von á í næstu viku. 14.-17. maí fer hátíðin fram í annað sinn, og þær Eva Rún Snorradóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir, skipuleggjendur, eru gestir Lestarinnar í dag. Kolbeinn Rastrick rýnir í tvær nýjar bíómyndir, Apex í leikstjórn Baltasars Kormáks, sem skartar Charlize Theron í aðalhlutverki, og Michael, nýja myndin um poppstjörnuna Michael Jackson. Einar Már Jónsson, sagnfræðingur, flytur pistil um byltingu frjálshyggjunar og hvernig hugmyndir Antonio Gramsci höfðu þau áhrif að Ayn Rand, Milton Friedman og Friedrich Hayek, voru gerð að spámönnum þeirrar hugmyndafræði.
-
Gelluteknó, vanlíðan og bæld reiði 06.05.2026 52minVið heyrum um viðburðinn Bratzgat - sem er nýtt samsett orð, Bratz (eins og dúkkurnar) og gat - rassgat. Ísabella Lena og Lára kalla sig Fonky Events, og hafa það eina og háleita markmið að halda góð partý. Á föstudaginn mun Fonky Events taka yfir Lækjargötu 6A og stemmingin verður Bratzgat. Í dag hóf HönnunarMars göngu sína, Sandra Rós Björnsdóttir er ein af þeim sem taka þátt, verkið hennar er á auglýsingaskilti fyrir framan Tjarnarbíó. Hera Guðmundsdóttir hitti hana fyrir hönd Lestarinnar og ræddi við hana um bælda reiði, sem verkin hennar á HönnunarMars fjalla um. Eiríkur Örn Norðdahl man þegar búðarstarfsfólk fór að brosa. Í dag fáum við pistil frá honum um vanlíðan.
-
Jeff Bezos á Met Gala, Ægir Sindri skilyrtur af reynslu 05.05.2026 54minEllen Loftsdóttir, stílisti, ræðir við okkur um það sem hefur lengi verið hápunktur tískuársins, frá því að Anna Wintour tók við skipulagninu á tíunda áratugnum. Fyrsta mánudaginn í Maí kemur ríka og fræga fólkið saman, klæðir sig upp og safnar fyrir búningadeild Metropolitan safnsins í New York. En viðvera og fjárhagslegur stuðningur tæknimilljarðamæringsins Jeff Bezos varpaði skugga á viðburðinn í ár. Ægir Sindri Bjarnason, trommari og tilranatónlistarmaður, gaf á dögunum út sína tíundu sólóplötu, ‘conditioned by experience’, skeytir hún saman áhrifum úr tveimur heimum sem Ægir hefur lifað og hrærst í um árabil; harðkjarnapönkinu og þungarokkinu sem hann ólst upp í og svo tilraunatónlistinni sem hann hefur fengist við undanfarin ár, bæði sem einyrki og með öðrum.
-
Ástin án Tinder, ást í Vesturbænum, hnökraleysi 04.05.2026 55minSalóme Júlíusdóttir, námsmaður í Árósum, þolir ekki Tinder, og verkefnið hennar í skólanum snýst um að hjálpa einhleypu fólki að finna ástina án stefnumótappa. Við ræðum því ástina án Tinder í þætti dagsins. Svo rifjum við upp facebook-grúppu færslu sem sló í gegn, hún þótti svo rómantísk. Anna Marsibil Clausen ræðir við Brynhildi Björnsdóttur. Fríða Þorkelsdóttir, bóksali og bókmenntafræðingur, skrifar um hnökraleysið sem við stefnum í áttina að.
-
Popplagakrufning: Harry Styles, vorlegt rifrildi, Feneyjatvíæringurinn 30.04.2026 52minHarry Styles byrjaði í strákahljómsveitinni One Direction en hefur þróast og þroskast á fjórum sólóplötum. Nýlega gaf hann út plöt með athyglisvert nafn: Kiss all the time. Disco, occasionally. Í popplagakrufningunni í þetta skiptið ætlum við fara í saumana á laginu American Girls. Okkur til halds og trausts er að venju Friðrik Margrétar Guðmundsson, tónlistarmaður og tónskáld. Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl flytur pistil. Hann er í vorskapi, finnur fyrir eigin ódauðleika og langar til að rífast ærlega. Svo fáum nýjustu fréttir af pólitísku deilumálunum á myndlistarhátíðinni Feneyjatvíæringnum sem við röktum fyrir nokkrum vikum í Lestinni. Já, og heyrum um framlag Vatíkansins á hátíðinni.
-
Konungssinnar í Kísildal #13 - Ellison-feðgar eignast allt 29.04.2026 55minLarry Ellison er einn ríkasti maður í heimi. Auður hans er mestallur í hlutabréfum fyrirtækis sem hann stofnaði í Kísildalnum árið 1977. Fyrirtækið heitir Oracle og sérhæfir sig í hýsingu og vinnslu gagna. Hann á eyju, orrustuþotur og börn sem hafa áhuga á kvikmyndum og hafa gert sig gildandi í Hollywood. Ef að kaup Larry og sonar hans David á Warner Bros Discovery ganga í gegn munu þeir feðgar ráða yfir fjölmiðlaveldi. Þeir eiga fyrir Paramount, stóran hluta í TikTok og CBS, og eignist þeir Warner Bros Discovery bætist við fréttastofan CNN, HBO og fleiri þekktar sjónvarpsstöðvar. Og Trump virðist lítast vel á þann ráðahag. Efni sem var notað við vinnslu þáttarins Bækur Softwar: An Intimate Portrait of Larry Ellison and Oracle (2003) eftir Matthew Symonds Viðtöl Larry Ellison Keynote on Oracle's Vision and Strategy: Oracle AI World 2025 https://www.youtube.com/watch?v=4eCFmbX5rAQ Viðtal hjá Charlie Rose árið 2013 https://charlierose.com/videos/17259 Greinar New York Times: Paramount Throws Party for Trump as It Awaits Approval of Warner Bros. Deal https://www.nytimes.com/2026/04/24/business/media/david-ellison-trump-cbs-news.html Variety: Trump Makes Unconfirmed Claim Skydance Will Give Him $20 Million in ‘Advertising, PSAs or Similar Programming’ After Paramount Merger Goes Through https://variety.com/2025/tv/news/trump-unconfirmed-claim-skydance-20-million-advertising-psas-paramount-deal-1236467234/ Wikipedia um samskipti Donalds Trump við fjölmiðla https://en.wikipedia.org/wiki/Donald_Trump%27s_conflict_with_the_news_media Wired: Larry Ellison Is a ‘Shadow President’ in Donald Trump’s America https://www.wired.com/story/larry-ellison-is-a-shadow-president-in-donald-trumps-america/ https://www.tampabay.com/archive/2000/11/24/the-paradox-behind-oracle/ Hlaðvörp https://play.cdnstream1.com/s/kcrw/question-everything/are-we-captured-yet-now-014a04 https://www.theguardian.com/news/audio/2026/apr/06/move-over-murdochs-here-come-the-ellisons-podcast
-
Sound of Falling, gljúp dramatúrgía 28.04.2026 53minHvernig kemstu inn í kvikuna á fólki? Við endurheimsækjum samtal við sviðslistakonuna Steinunni Knúts Önnudóttur í þætti dagsins. Við kynnumst gljúpri dramatúrgíu og listrannsóknum Steinunnar, þar sem stóra spurningin er: Hve lítið er nóg? Kolbeinn Rastrick rýnir í kvikmyndina In die Sonne Schauen eða Sound of Falling, eftir þýska leikstjóran Mascha Schilinski sem er sýningu í Bíó Paradís. Myndin hlaut dómnefndarverðlaun á Cannes í fyrra og er mikið listaverk.
-
Greindarpróf, Enn ein U-beygjan hjá Havarí 27.04.2026 55minVið heyrum um sögu greindarprófa og tilraunum til að mæla gáfur fólks í pistli Einars Más Jónssonar í dag. Hann veltir fyrir sér hvernig sumir valdamestu menn heims, forstjórar tæknirisanna í Ameríku, eru farnir að leggja síaukna áherslu gáfur sem mælikvarða á manngildi. Við ætlum kíkja í Skeifuna og heimsækja nýtt heimili Havarí. Undanfarin sautján ár hefur það verið regnhlíf utan um allt það sem Berglind Häsler og Svavar Pétur Eysteinsson heitinn, eða Prins Póló, hafa tekið sér fyrir hendur. Plötuútgáfu, plötusölu, myndlistarsýningar, matvælagerð, rekstur gistiheimilis, tónleikastaðar, framleiðslu á peysum og plakötum og svo framvegis. Berglind hefur haldið nafni Havarís gangandi eftir að Svavar Pétur lést árið 2022. Við rifjum svo upp gamalt viðtal úr Lestinni við Svavar, sem hefði orðið 49 ára í gær.
-
Bestu bíómyndir aldarinnar, Lena Dunham, regnbogafánar 22.04.2026 53minVið skoðum glænýjan lista yfir bestu kvikmyndir 21. aldarinnar hingað sem birtist á vefiritinu Hugrás í byrjun vikunnar. Tæplega 150 álitsgjafar komu að gerð listans. Við setjumst yfir listann með Birni Þór Vilhjálmssyni, dósent í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands og öðrum hvatamanninum að listanum. Eins og margir aðrir er Eiríkur Örn Norðdahl að velta fyrir sér merkingu regnbogafánans þessa dagana. Hann flytur pistil um regnboga og umburðarlyndi. Nýlega kom út bókin Famesick, sjálfsævisaga Lenu Dunham sem er þekktust fyrir að gera hina goðsagnakenndu sjónvarpsþætti Girls. Lóa segir frá bókinni og bókaspjalli með Dunham sem hún mætti á í London um helgina.