Veröld sem er

Veröld sem er

Evrópustraumar
Shteti Islandë
Zhanret Lajme, Politikë
Gjuha IS
Episode 6
I/E fundit 07.08.2026

Í Veröld sem er, hlaðvarpi Evrópustrauma hugveitu, er fjallað um alþjóðamál, Evrópumál og hagsmuni Íslands á alþjóðavettvangi. Með gestum af öllu tagi, sérfræðingum, stjórnmálafólki og álitsgjöfum er rýnt í stóru málin, fréttir líðandi stundar og þau atriði sem varða mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Episodet

  • EES-samningurinn: Tilurð, virkni og áskoranir í umrótinu 07.08.2026 47min
    Hvernig varð EES-samningurinn til og hvernig virkar hann í reynd? Hallgrímur ræðir við Hjalta Geir Erlendsson lögmann um sögu EFTA, Evrópusambandsins og EES, fjórfrelsið, tveggja stoða kerfið og aðkomu Íslands að mótun evrópulöggjafar. Einnig er fjallað um þær áskoranir sem EES-samstarfið stendur frammi fyrir þegar Evrópusambandið þróast, alþjóðaviðskipti breytast og mörkin milli innri markaðar og tollamála verða sífellt óskýrari. [Í upphaflegri útgáfu skarast hljóð í um 60 sekúndur á 10. mínútu en hefur verið lagfært.]
  • ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja 11.06.2026 28min
    Skýrsla Evrópustrauma um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja er komin út. Tollamálin, gjaldmiðlamálin og áherslubreytingar ESB eru til umfjöllunar í samtali við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda (FA). Þátturinn er sendur út á samtengdum rásum Veraldar sem er og Kaffikróksins, hlaðvarps (FA). Skýrsluna , sem unnin var fyrir FA og Íslensk-evrópska verslunarráðið, ásamt kynningarglærum má finna á vef Evrópustrauma og atvinnurekendur.is
  • Hvað myndi aðild að ESB þýða fyrir íslenskan sjávarútveg - Samtal við Hjálmar Vilhjálmsson 27.04.2026 1h 3min
    Hjálmar Vilhjálmsson er yfirmaður uppsjávarsviðs og aðstoðarmaður forstjóra hjá Brim, einu stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Áður starfaði Hjálmar í um tuttugu ár sem forstjóri eistnesku útgerðarinnar Reyktal, auk þess sem hann var talsmaður og nefndarmaður í eistneskum sjávarútvegssamtökum. Í þættinum ræðir Hjálmar hvað aðild Íslands að ESB gæti þýtt fyrir íslenskan sjávarútveg. Til umræðu er sameiginlega sjávarútvegsstefna ESB, fiskveiðistjórnun, ákvörðunarvald við kvótaúthlutun, veiðar úr deilistofnum, Haag-ákvæðið, kvótahopp, íslenskar sérreglur um erlent eignarhald, samkeppnismál, möguleg tækifæri og ógnir aðildar fyrir sjávarútveginn, rekstrarskilyrði og hvað Ísland þyrfti að semja um í aðildarviðræðum um inngöngu í Evrópusambandið.
  • Smáríki og stóra borðið - Samtal við danskan Evrópuþingmann 24.03.2026 21min
    Stine Bosse er danskur Evrópuþingmaður frjálslynda flokkahópsins Renew Europe. Í viðtali ræðir hún viðhorf Dana til Evrópusambandsins og áhrif Grænlandsmálsins, áhrif sín í Brussel, hvort minni ríki hafi einhver völd og þau ráð sem hún gefur íslenskum kjósendum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. 00:00 Inngangur og umfjöllun um viðtalið við Stine Bosse.06:40 Viðtalið í heild
  • „Að hafa áhrif er að tilheyra“ - Samtal við finnskan Evrópuþingmann og yfirferð á Evrópþinginu 09.03.2026 41min
    Finnski alþjóðastjórnmálaprófessorinn Mika Aaltola situr á Evrópuþinginu fyrir flokkinn European People's Party (EPP). Í viðtalinu ræðir hann um sín áhrif í Brussel sem fulltrúi Finnlands, stöðu Evrópuþingsins í dag, fullveldismál, áhuga Finna á pólitíkinni í Brussel, og þau ráð sem hann getur veitt Íslendingum nú þegar þeir standa frammi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna. Í þættinum er einnig fjallað um þá flokka sem eiga sæti á Evrópuþinginu og hvar íslenskir stjórnmálaflokkar myndu eiga þar heimili. 00:00 Umfjöllun um Evrópuflokkana og hvar íslenskir stjórnmálaflokkar ættu heimili á Evrópuþinginu.11:14 Um Mika Aaltola og viðtal við hann í heild.
  • ESB-atkvæðagreiðsla í ágúst, tollar, Íran og Epstein 24.02.2026 44min
    Hallgrímur, Hjalti Geir Erlendsson og Hjörtur Ingvi Jóhannsson ræða um það sem efst er á baugi. Frétt Politico um að ESB-þjóðaratkvæðagreiðsla gæti farið fram síðsumars, tollar Trumps í ljósi dóms Hæstaréttar Bandaríkjanna um ólögmæti frelsis-tollana, stigmögnun í Íran, Epstein-skjölin, handtaka Peter Mandelson og fingraför hans á setningu hryðjuverkalaganna gegn Íslandi 2008 eru til umfjöllunar. 00:00 Frétt Politico um þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst10:35 Tollar Trumps22:07 Íran32:20 Epstein, Mandelson og Íslandstengingar
  • „Ég breyttist“ - Samtal við Þórdísi Kolbrúnu um Úkraínu, NATO, ESB-aðild og óvissutímana 20.02.2026 1h
    Þingmaðurinn og fyrrum utanríkisráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ræðir stöðu mála í Úkraínu, hvernig innrás Rússa fyrir fjórum árum hefur haft áhrif á hana sem manneskju, um þýðingu þess fyrir Ísland að vera bandamaður, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna, og Evrópusambandsumræðuna á Íslandi. www.evropustraumar.is00:00 Inngangur01:26 Þórdís Kolbrún breyttist og mun aldrei breytast til baka05:12 Stuðningur almennings við Úkraínu09:57 Vopnuð átök hefðu áhrif á Ísland14:45 Ræður JD Vance og Rubio í Munchen20:00 Pallborðsumræður með H. Clinton, Navalnia og Haddad21:44 Friðarviðræður við Rússa og framtíð Úkraínu27:02 Staða Nato og viðbrögð Evrópu við breyttri stefnu BNA29:28 Hvernig geta Evrópuleiðtogar talað um og við Bandaríkjastjórn38:00 Þátttaka Íslands á alþjóðavettvangi - hvað gerist bakvið tjöldin?45:23 ESB-umræðan á Íslandi: Ekki bara já eða nei
  • NATO, ESB og alþjóðamálin með Degi B. Eggertssyni 16.02.2026 58min
    Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingar, er fyrsti gestur í Veröld sem er, hlaðvarpsþáttum um alþjóðamálin og stöðu Íslands. Dagur ræðir við Hallgrím um NATO og stöðu þess í dag, stefnu Bandaríkjanna undir Trump og áhrifin í Evrópu, Evrópusambandsmál og valkosti Íslands á víðsjárverðum tímum. Evrópustraumar er sjálfstæð hugveita um Evrópumál. Greinar, útgefið efni og skráning á póstlista má nálgast á evropustraumar.is. 00:00 Kynning01:42 NATO, NATO-þingið og heimsmálin35:50 Evrópusambandsumræðan

I/E popullarizuar në

Ky podkast shfaqet edhe në listat e podkasteve të këtyre shteteve.