Lokalag
Benóný Arnórsson
0
Lokalag er tónlistar og viðtalsþáttur á léttu nótunum. Viðmælendur eru beðnir um að velja eina plötu til að hlusta á restina af ævinni, sem síðan er þrengd niður í eitt lag til eilífðarnóns. Þáttastjórnandi er Benóný Arnórsson.
Episodet
-
#9 - Jóhannes Óli Sveinsson - Ljótu Hálfvitarnir (appelsínugula platan) 11.09.2026 53minJóhannes Óli, húsvíkingur og forseti Ungs jafnaðarfólks mætti eiturhress í stúdíóið þar sem við ræddum hans lokaplötu, appelsínugulu plötuna eftir Ljótu Hálfvitana. Farið var um víðan völl þar sem var m.a. snert á sveitaböllum, græna hattinum og bestu leiðinni til að smygla sér inn á Sjallann. -
#8 - AUKAÞÁTTUR - Drake vs Kendrick stríðið 2024 08.09.2026 1h 35minFyrsti sóló þátturinn tekinn upp í airpodsgæðum. Drake á móti Kendrick kryfjað í þaula, ferlarnir þeirra bornir saman og afhverju hata allir hinir rappararnir Drake svona mikið? -
#7 - Birna Eyfjörð - The Art Of Loving 20.08.2026 1h 18minFrábært spjall við tónlistarkonuna Birnu Eyfjörð um hennar lokaplötu The Art Of Loving eftir Oliviu Dean og margt fleira. -
#6 - Friðrik Snær Björnsson - Í Miðjum Kjarnorkuvetri 13.08.2026 1h 25minFjörugt spjall við frumkvöðulinn og hlaðvarparann Friðrik Snæ um hans lokaplötu „Í Miðjum Kjarnorkuvetri” eftir Jóa Pé og Króla -
#5 - Jón Gunnar Vopnfjörð - The Great Divide: The Last Of The Bugs 20.07.2026 1h 6minLeikarinn Jón Gunnar Vopnfjörð mætti hress í stúdíóið þar sem við tækluðum hans lokaplötu - The Great Divide eftir Noah Kahan. -
#4 - kris - Who’s the clown? 14.07.2026 1h 1minYndislegt spjall við söngkonuna kris um hennar lokaplötu “Who’s the Clown” eftir Audrey Hobert -
#3 -Jóna Gréta Hilmarsdóttir - Bushido 05.07.2026 1h 4minFrábær þáttur með kvikmyndagerðarkonunni og gagnrýnandanum Jónu Grétu. Við ræddum hennar lokaplötu sem er Bushido eftir listamanninn Birni. Fórum um víðan völl í rappsögu þjóðarinnar og hvernig platan skaut Birni ennþá lengra upp á stjörnuhiminn. -
#2 - Vilhjálmur B Bragason - Goodbye Yellow Brick Road 29.06.2026 56minLeikarinn og tónlistarmaðurinn Vilhjálmur Bragason mætti í stúdíóið til þess að ræða sína lokaplötu - Goodbye Yellow Brick Road eftir Elton John. -
#1 - Ari Óskar - Graduation 21.06.2026 59minAri Óskar mætti ferskur í stúdíóið að ræða sína lokaplötu - Graduation eftir Ye
I/E popullarizuar në
Ky podkast shfaqet edhe në listat e podkasteve të këtyre shteteve.