Frjálsar hendur
RÚV
0
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Епизоде
-
Ódysseifskviða 10 31.05.2026 50минNú dregur heldur betur til tíðinda í Ódysseifskviðu því nú verður lesin ein allra frægasta frásögn kviðunnar, það er að segja þegar Ódysseifur og félagar hans lenda í klóm hinna eineygðu risa sem Kýklópar kallast.
-
Hvað þáði krisintómurinn frá trúarbrögðum Persa 3 24.05.2026 50минÞetta er framhald af tveimur þáttum um páska þar sem fjallað var um trúarbrögð sem spámaðurinn Zaraþústra í Baktríu stóð á bak við um árið 1200 fyrir upphaf tímatals okkar. Persar tóku þessi trúarbrögð upp á sína arma og þegar þeir lögðu undir sig Babýlon á 6. öld FT höfðu þau djúp og varanleg áhrif á trúarbrögð Gyðinga sem þangað höfðu verið herleiddir.
-
Séra Halldór Jónsson á Kleppi 17.05.2026 50минHalldór Jónsson (1873-1953) var prestur að Reynifelli og tónskáld. Á efri árum veiktist hann á geði og þurfti að leggjast inn á geðspítalann Klepp um tíma. Frá því sagði hann svo í æviminningabók sem út kom skömmu fyrir andlát hans og nefndi Ljósmyndir 1. Mjög sjaldgæft var að fólk talaði um þær mundir opinskátt um glímu sín við geðsjúkdóma og því er hin hispurslausa frásögn Halldórs mjög óvenjuleg.
-
William Somerset Maugham 1 - Kirkjuþjónninn og hin opna gröf 10.05.2026 49минLíkt og umsjónarmaður hafði áður lesið úr fyrstu smásögum Edgars Allans Poes og Antons Tsékovs er birtust á íslensku, þá leitar hann nú hófanna í smásagnasöfnum Williams Somersets Maughams (1874-1965) en hann var einhver vinsælasti rithöfundur heims á fyrri hluta 19. aldar og sérlega rómaður fyrir smásögur. Hér eru tvær sögur sem eru dæmigerðar fyrir Maugham, ein fislétt skemmtisaga og önnur sem getur nöturlega mynd af þjónum breska heimsveldisins.
-
Trippa-Sigga 2: Lífið í Reykjavík 03.05.2026 50минÖðru sinni er borið niður í ævisögu Jónu Sigríðar Jónsdóttur (1899-1997) sem jafnan var frá fullorðinsárum kölluð Trippa-Sigga. Nú segir frá unglingsárum hennar á Snæfellsnesi en síðan vist hennar í Reykjavík, þar sem kunni vel við sig en varð líka fyrir hinni dýpstu sorg.
-
Ódysseifskviða - 9 26.04.2026 50минÍ þessum kafla Ódysseifskviðu greinir enn frá veisluhöldum sem Ódysseifur er viðstaddur í höllu Fæeka. Þar flytur blinda skáldið Demódókus meðal annars heldur blautlegt kvæði um samskipti Aresar stríðsguðs og Afródítu ástargyðju. Spurningin er hvort Demódókus sé í aðra röndina sjálfsmynd skáldsins Hómers. Síðar segir meðal annars frá hinum einkennilegu Lótusætum sem Ódysseifur og menn hans hrekjast til.
-
Hestasögur eftir Þorgils gjallanda og Gest Pálsson 19.04.2026 58минGunnar Theódor Eggertsson hefur komist að því að Íslendingar séu að líkindum með þeim allra fyrstu sem skrifuðu dýrasögur á ofanverðri 19. öld. Þá er ekki átt við sögur þar sem dýrin tala eða hafa mjög mannlega eiginleika, heldur er reynt að lýsa ævi þeirra frá þeirra forsendum. Hér verða lesnar tvær sögur, önnur er Heimþrá eftir Þorgils gjallanda og hin Skjóni eftir Gest Pálsson.
-
Hvað þáði kristindómurinn frá trúarbrögðum Persa? - 2 12.04.2026 1чFramhald af síðasta þætti; hér verður athygli einkum beint að sögu ríkjanna Ísraels og Júda frá 800-586 FT, greint frá því hvað þau áttu sameiginlegt og hvað var ólíkt í trúarlegum efnum. Síðan segir frá örlögum íbúanna þegar Assyríumenn hernámu Ísrael og síðan Babýloníumenn Júda. Þá hyllir loks undir hernám Persa og þau áhrif sem þeir höfðu á trúarlíf Gyðinga.
-
Hvað þáði kristindómurinn frá trúarbrögðum Persa? 05.04.2026 50минÍ þessum páskaþætti verður fjallað um uppruna hinna svokölluðu Zaraþústra-trúarbragða í Persíu. Þar segir frá ungum Baktríumanni sem gerbylti hugmyndum landa sinna um guðdóminn og lagði grunn að nýrri trú sem var síðan við lýði í tvö þúsund árum. Og snemma í sögu þessara trúarbragða höfðu þau mjög afdrifarík áhrif á trú Gyðinga og þar af leiðandi kristinna manna líka. Fyrri þáttur.
-
Kropotkin fursti - 3 29.03.2026 50минKropotkin fursti skrifaði rómaða sjálfsævisögu sem áður hefur verið gluggað í í Frjálsum höndum. Nú er hann kominn á táningsár og farinn að komast í kynni við hirðlífið í hinu feyskna ríki Romanov-keisaraættarinnar. Þrælahaldið heldur áfram að varpa skugga yfir þjóðlífið allt.
-
Ódysseifskviða 8 22.03.2026 49минNú er Ódysseifur gestur Alkinosar konungs Fæeka sem lofar honum aðstoð við að komast heim til sín. Ekki gerir kappinn þó uppskátt um hver hann er. Haldin er mikil íþróttakeppni við hirð Alkinosar og nærvera Ódysseifs vekur mikla athygli.
-
Trippa Sigga 1: Uppeldi á Snæfellsnesi 15.03.2026 50минHér verður gluggan í ævisögu Jónu Sigríðar Jónsdóttur (1899-1997) sem varð svo fræg fyrir hestamennsku og hestaferðir að hún var jafnan kölluð Trippa Sigga. Hér segir þó fyrst og fremst af uppeldi hennar fram að fermingu en hún ólst upp á Snæfellsnesi og bjó við vægast sagt misjafnt atlæti í æsku. Meðal annars var henni stranglega bannað að læra landafræði.
-
Anna á Moldnúpi, Ólafur Jóhann og Ásta vitlausa - 2 08.03.2026 50минHér segir frá gagnrýni sem Anna á Moldnúpi ("fjósakona sem fór út í heim") setti fram á skáldsögu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, Fjallið og draumurinn, árið 1944. Hún taldi bókina skelfilega lýsingu á sveitalífi og höfundi ekki til sóma. Ólafur Jóhann svaraði fyrir sig fullum hálsi og Anna svaraði þá enn. Í ritdeilunni birtist ólíka afstaða þeirra til bókmennta og samfélags og kynjaviðhorf koma og við sögu.
-
Anna á Moldnúpi, Ólafur Jóhann og Ásta vitlausa 1 01.03.2026 50минÁrið 1944 gaf Ólafur Jóhann Sigurðsson út skáldsöguna Fjallið og drauminn sem hlaut yfirleitt mjög góða dóma, þótt sumir væru upp og ofan, t.d. dómur Halldórs Laxness. En ein persóna bókarinnar, niðursetningurinn Ásta vitlausa, varð sérlega umdeild enda lýsing á ævi hennar sérlega ofboðsleg. Undir lok þáttar víkur svo að alþýðukonunni Önnu frá Moldnúpi sem nánar segir af í næsta þætti.
-
Kravténko og ógnarárið 1936 - 4 22.02.2026 50минKravténko þarf að berjast á hæl og hnakka til að hverfa ekki inn í Gúlag-eyjaklasa Stalíns eða hreinlega vera tekinn af lífi þegar hreinsanir í Sovétríkjunum standa sem hæst.
-
Kravténko og ógnarárið 1936 - 3 15.02.2026 49минHreinsunaræði Stalín náði æ fastari tökum á sovésku samfélagi árið 1936. Viktor Kravténko segir frá örlögum ýmissa samstarfsmanna sinna og loks stendur hann sjálfur í eldlínunni.
-
Kravténko og ógnarárið 1936 - 2 08.02.2026 50минÓgnir hreinsana Stalíns og hans manna færast æ nær Kravténko sem reynir að halda velli sem yfirmaður verksmiðjunnar í Nicopol. Allt í kringum hann falla jafnvel eldheitir kommúnistar í valinn og svo gerist hið óumflýjanlega, röðin kemur að honum.
-
Kravténko og ógnarárið1936 - 1 01.02.2026 50минÚkraínumaðurinn Viktor Kravténko kom síðast við sögu í Frjálsum höndum haustið 2024 en þá var hann orðinn forkólfur í iðnframleiðslu þeirri sem stjórn Stalíns hrinti af stokkunum á fjórða áratug síðustu aldar. Á ýmsu gekk í iðnvæðingunni en jafnframt færðist ofsóknaræði Stalíns í aukana. Og árið 1936 hófust nýjar "hreinsanir", grimmari en nokkru sinni fyrr.
-
Ódysseifskviða 7 25.01.2026 50минEnn er litið í Ódysseifskviðu og borið niður í sjöttu kviðu. Nú er Ódysseifur kominn í land Fæaka og hittir fyrir prinsessuna Násíku sem hefur farið að boði guðanna til að þvo þvotta í laug nálægt heimili foreldra sinna og ákveður að liðsinna hinum prúða Ódysseifi. Hún ráðleggur honum hvernig skuli ganga á fund kóngs og drottningar.
-
Höskuldur Jónsson, Bólu-Hjálmar og Eyvindur duggusmiður 18.01.2026 49минHér lýkur að segja frá Höskuldi Jónssyni, sem Bólu-Hjálmar skrifaði um, en síðan er gluggað í frásögn Hjálmars af Eyvindi Jónssyni bónda og smið á 17. öld en hann var sérlega frægur fyrir bátasmíði sína og eru af því rómaðar sögur sem Hjálmar skráði mjög skemmtilega.
Популаран у
Овај подкаст се појављује и у подкаст листама ових земаља.