Seinni níu

Seinni níu

Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
Држава Iceland
Жанрови Sports, Golf
Језик IS
Епизоде 115
Последња 01.06.2026

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson.

Епизоде

  • #114 - Baddý og öll fjölskyldan hefur farið holu í höggi á sama golfvelli 01.06.2026 1ч 6мин
    Við fengum til okkar frábæran gest í vikunni því Bjarney Sonja Ólafsdóttir kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hún gengur alla jafna undir nafninu Baddý og er búsett í Frankfurt, Þýskalandi þar sem hún rekur veffyrirtækið 1xInternet.Baddý var skikkuð í golf sem barn en hún kemur úr mikilli golffjöldskyldu. Hún stundaði íþróttina fyrstu árin frekar af skyldurækni en af mikilli gleði enda var hún öflug í handbolta sem átti betur við hana á unglingsárum. Baddý fékk hins var golfdelluna á nýjan leik fyrir sex árum og er með um 16 í forgjöf.Baddý segir okkur frá því þegar hún fór holu í höggi á 18. holu Öndverðarnesvallar en svo kom í ljós að öll fjölskylda hennar hefur tekist að fara holu í höggi á þeim velli. Það er í raun alveg magnað.Við fáum líka að heyra hvernig golfið er í Þýskalandi en fjölmargir frábærir golfvellir eru í næsta nágrenni við Frankfurt.Frábær þáttur sem kemur á óvart!
  • #113 - Sindri Snær fór handarbrotinn í golfferð 25.05.2026 1ч 2мин
    Við fengum til okkar athafnamanninn Sindra Snæ Jensson til okkar í Seinni níu. Hann er í fjölþættum fyrirtækjarekstri alltfrá pizzastaðnum Flatey og yfir í næturklúbbinn Auto.Sindri hóf að leika golf fyrir sex árum þegar knattspyrnuferlinum lauk og hefur náð fínum tökum á íþróttinni. Hann varð algjörlega sjúkur í golf fyrstu árin og er í dag með ca. 13 í forgjöf.Í þættinum er aðeins farið yfir ferð Sindra ásamt góðum mönnum til Írlands þar sem leiknir voru margir af bestu völlunum á Dublin svæðinu. Sindri kom með frábært draumaholl og fór einnig yfir þá kylfinga sem honum þykir vera svalastir í atvinnumannagolfinu.Einnig ræðum við aðeins íslenska golffatamerkið Brutta en þar er Sindri stór hluthafi.Frábær þáttur á léttum nótum eins og alltaf.
  • #112 - Saklaus lygi kom Ólafi Hand í vandræði á Myrtle Beach 19.05.2026 1ч 10мин
    Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þegar Ólafur William Hand kom í heimsókn til okkar. Hann hefur lengi verið viðloðandi golfíþróttina og setið í stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur síðastliðin tíu ár.Í þættinum er komið víða við. Ólafur segir okkur aðeins frá golfinu sínu en hann hefur verið mjög víðförull og spilað á marga heimsþekkta golfvelli. Má þar einna helst nefna Pebble Beach, en einnig sagði hann okkur frá ótrúlegum golfvelli í Skotlandi sem toppar allt.Við fórum einnig aðeins yfir þær metnaðarfullu breytingar sem eru að eiga sér stað í Grafarholti og munu bæta völlinn til muna. Draumahollið er á sínum stað og svo fáum við kraftröðun yfir fimm bestu golfbækurnar sem Óli hefur lesið.Svo fengum við að heyra frábæra sögu þar sem saklaus lygasaga fór aðeins úr böndunum í Myrtle Beach.Frábær þáttur á léttum nótum að venju!
  • #111 - Bjarni beygir sig þúsund sinnum á dag 11.05.2026 1ч 23мин
    Við fengum afar fróðan gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því Bjarni Hannesson, vallarstjóri hjá Golfklúbbnum í Mosfellsbæ, fór yfir stöðu mála á golfvöllum landsins í skemmtilegu spjalli.Bjarni var mjög efnilegur kylfingur á yngri árum en slök frammistaða hans með pútternum varð honum oft að falli. Hann heillaðist snemma af því að starfa við golfvallaumhirðu og sótti sér menntun í Skotlandi í þeim fræðum.Í þættinum fer Bjarni yfir þessi fólknu fræði sem grasvallaumhirða er í raun. Hann segir okkur frá því hvað fer mest í taugarnar á golfvallarstarfsmönnum þegar kemur að framgöngu kylfinga á golfvellinum. Bjarni valdi einnig stórmerkilegt draumaholl þar sem nokkrir af helstu frumkvöðlum golfsins koma við sögu.Einn lengsti þátturinn í sögu Seinni níu en á fræðilegum og léttum nótum.
  • #110 - Liðleika Lilja þolir ekki óumbeðin ráð frá eiginmanninum 04.05.2026
    Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Lilja Sigurgeirsdóttir sem er þekkt sem Liðleikja Lilja kom til okkar. Hún hefur um nokkurra ára skeið sérhæft sig í að þjálfa fólk sem vill auka liðleika og bæta hreyfigetu sína.Lilja byrjaði sjálf í golfi fyrir tveimur árum og féll gjörsamlega fyrir golfíþróttinni. Hún er í dag í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og nær að koma golfi að í flest sín samtöl.Þó hún hjálpi meðal annars afrekskylfingum við að auka liðleika þá skilur hún ekki hversu langan tíma það tekur að verða góð í golfi.Í þættinum velur Lilja sitt draumaholl og kemur með kraftröðun yfir þau fimm atriði sem fara mest í taugarnar á henni.Frábær þáttur og mjög fróðlegur. Lilja fer meðal annars yfir þær teygjur sem kylfingar ættu stunda til að bæta liðleika og leysa úr læðingi aukinn kraft úr golfsveiflunni.Frábær þáttur og á léttum nótum að venju!
  • #109 - Hrafnhildur elskar að spila golf á nóttunni 27.04.2026 1ч 7мин
    Við fengum góðan gest í Seinni níu þessa vikuna. Hrafnhildur Skúladóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta, þjálfari og nú ökukennari kom í heimsókn til okkar.Hrafnhildur er búsett í Vestmannaeyjum og er fjórar mínútur á golfvöllinn frá heimili sínu. Við ræðum aðeins golfið í Eyjum og það frelsi sem fylgir því að komast nær alltaf í golf.Hrafnhildur segir okkur frá uppáhalds golfholunum sínum í Eyjum, hún kemur með skemmtilegt draumaholl og einnig mjög áhugaverða kraftröðun yfir þau golfsvæði sem hún væri til í að heimsækja í golfferðum á næstu árum.Stórskemmtilegur þáttur!
  • #108 - Jón Halldórsson vill langa golfhringi 19.04.2026 1ч 2мин
    Við fengum frábæran gest í Seinni níu því formaður HSÍ, Jón Halldórsson, heiðraði okkur með nærveru sinni. Jón er að snúa aftur á golfvöllinn eftir að hafa undirgengist hnjáliðaskipti og nú á að taka golfið með trompi í sumar.Jón segir okkur aðeins frá því hvernig hann endaði sem formaður HSÍ og því verkefni sem er framundan þar. Við ræddum þó aðallega um golf og þar kom í ljós Jón er með um 18 í forgjöf og byrjaði í golfi eftir veðmál við kunnan handboltaþjálfara.Við fórum að sjálfsögðu yfir draumahollið sem var mjög óvænt að þessu sinni. Jón kom einnig með kraftröðun á þeim landsliðsmönnum í handbolta sem hann telur líklegt að séu bestir í golfi í landsliðshópi karla.Frábær þáttur á mjög léttum nótum að venju.
  • #107 - Sigmundur gerði jafntefli við Rory árið 2005 13.04.2026 1ч 13мин
    Við gerðum upp Masters með frábærum gesti því Sigmundur Einar Másson kom í heimsókn til okkar. Hann er fyrrverandi Íslandsmeistari í golfi og mikill tölfræðigrúskari.Rory McIlroy fagnaði sigri á Masters annað árið í röð og Sigmundur sagði okkur frá því þegar hann mætti honum í Evrópumóti landsliða árið 2005. Keppni þeirra á milli endaði með jafntefli og við fórum aðeins yfir það afrek.Simmi er mikill tölfræðipælari og því var þátturinn á frekar tæknilegum nótum að þessu sinni. Hann kom með stórskemmtilega kraftröðun yfir erfiðstu par-3 holur landsins miðað við tölfræði PGA-leikmanna.Draumahollið á sínum stað og ýmislegt stórskemmtilegt!
  • #106 - Golf er kvíðalyfið hjá Rikka G 08.04.2026 1ч 29мин
    Við fengum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Útvarpsmaðurinn og íþróttalýsandinn Ríkharð Óskar Guðnason var gestur þáttarins sem var að hluta helgaður Masters. Rikki er ljómandi góður kylfingur með rétt tæpa fimm í forgjöf og byrjaði ungur að spila golf í Öndverðarnesi. Rikki átti að verða múrari og sagði okkur skemmtilega frá því hvernig hann endaði sem útvarpsmaður.Við spáðum í spilin fyrir Masters, Rikki kom með eitt draumaholl og annað alls ekki draumaholl, spurningar frá hlustendum og svo fengum við frábæra kraftröðun þar sem Rikki valdi topplista yfir hrun kylfinga á Masters.Frábær þáttur þar sem víða er komið við. Rikki fór yfir golfið sitt á mjög einlægum nótum.
  • #105 - Seinni níu x Steve Dagskrá 29.03.2026 1ч 24мин
    Vilhjálmur Freyr Hallsson og Andri Geir Gunnarsson, sem skipa tvíeykið í hlaðvarpinu Steve dagskrá, komu í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þeir hafa haldið úti sínu vinsæla hlaðvarpi frá árinu 2018 og hafa verið að færa sig upp á skaftið á golfvöllum landsins að undanförnu.Í þættinum er komið víða við enda er þetta lengsti þáttur af Seinni níu frá upphafi. Við hitum aðeins upp fyrir Masters, draumahollið á sínum stað og svo velja þeir félagar fimm bestu golfholur Hafnarfjarðar enda miklir Hafnfirðingar.Villi gerir upp átakanlega frammistöðu sína í ferð til Portúgal sem að Brutta sýndi á Youtube. Andri segir frá fjögurra daga fögnuði eftir að hafa farið holu í höggi á Hvaleyrinni.Frábær þáttur í alla staði og léttleikinn í fyrirrúmi.
  • #104 - Kristín Elfa er golfsjúkasta kona landsins 23.03.2026 1ч 7мин
    Við fengum golfsjúkustu konu landsins, að eigin sögn, í heimsókn í Seinni níu. Kristín Elfa Axelsdóttir, kylfingur í GKG, hóf að leika golf fyrir fimm árum og nú snýst líf hennar að stórum hluta um að komast í golf.Hún starfar hjá Festi, þar sem ríkir mikil golfmenning sem varð til þess að hún prófaði golf. Það var ekki aftur snúið og á síðasta ári lék Kristín yfir 100 átján holu golfhringi.Kristín er með um 24 í forgjöf og stefnir hún að því að komast undir 20 á árinu. Kristín sagði okkur frá þeirri merkilegu staðreynd að hún notar 8-járnið í löng pútt, sem hefur vakið mikla undrun meðal meðspilara hennar.Draumahollið er á sínum stað og svo kom Kristín með Powerrank, þar sem hún fer yfir þá hluti sem fara í taugarnar á henni á golfvellinum.Frábær þáttur sem kemur svo sannarlega á óvart!
  • #103 - Broddi er hnitmiðaður kylfingur 16.03.2026 1ч 1мин
    Við fengum heimsmeistara og ólympíufara í Seinni níu því badmintonmeistarinn Broddi Kristjánsson kom í heimsókn til okkar. Hann keppti á Ólympíuleikunum árið 1992 og var nánast ósigrandi í íþróttinni hér á landi á sínum tíma.Núna á golfið hug hans allan og leikur hann bæði í Nesklúbbnum og á Flúðum. Við ræðum um ferilinn bæði í badminton og hvað var það sem dró hann yfir í golfíþróttina. Broddi segir okkur skemmtilega sögu af því hvernig hann eignaðist fyrsta golfsettið.Boddi velur draumahollið og kom svo með frábært powerrank þar sem hann valdi fimm bestu pallanna við golfskála landsins.Stórskemmtilegur þáttur sem er auðvitað á léttu nótunum.
  • #102 - Golfneistinn hvarf hjá Ólöfu Maríu á hátindi ferilsins 10.03.2026 55мин
    Við fengum fjórfaldan Íslandsmeistara í heimsókn til okkar í Seinni níu. Ólöf María Jónsdóttir, fyrrverandi atvinnukona í golfi, kom í heimsókn til okkar og við fórum yfir ferilinn hennar.Ólöf María var brautryðjandi í íslensku golfi en hún var fyrst til þess að vinna sér inn keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna árið 2005. Hún spilaði í nokkur ár meðal þeirra bestu í Evrópu áður en hún ákvað að leggja golfkylfurnar á hilluna og spilar sáralítið golf í dag þar sem hún býr í Texas í Bandaríkjunum.Ólöf fer í þættinum yfir það hvernig hún missti hreinlega áhugann eða neistann fyrir golfíþróttinni þegar hún var á hátindi ferilsins. Mjög áhugaverð frásögn í meira lagi.Við rekjum sögu Ólafar og fáum hana til að tala um afrek sín í íþróttinni, slæman golfþjálfara á háskólaárunum, að vera eina stelpan að æfa með strákum á unglingsárum og margt fleira.Við fáum að heyra draumahollið hjá Ólöfu og einnig það helsta sem hún lærði á frábærum ferli.
  • #101 - Oddur var óvænt með 1,9 í forgjöf 03.03.2026 1ч 16мин
    Við fengum frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Oddur Þórðarson, fréttamaður á RÚV, kom í heimsókn til okkar og það kom okkur skemmtilega á óvart hversu hversu öflugur hann er í golfi. Oddur er með 7 í forgjöf og er að eigin sögn góður í að redda sér í kringum flatirnar. Hann byrjaði ungur í golfi og ólst upp á Korpúlfsstaðavelli. Um tíma vann Oddur einnig á Korpunni sem golfvallastarfsmaður og hefur verið meðlimur í GR lengi.Í þættinum er komið víða við en það stóð upp úr þegar Oddur valdi fimm bestu og fimm verstu merki golfklúbba landsins. Þar kom ýmislegt forvitnilegt í ljós og svigrúm til bætinga hjá mörgum golfklúbbum landsins.Frábær þáttur að venju og á sérstaklega léttum nótum.
  • #100 - Þór er með pútter úr dánarbúi 23.02.2026 1ч 6мин
    Það var mjög létt yfir okkur í Seinni níu og við fengum bæjarstjórann á Seltjarnarnesi, Þór Sigurgeirsson, í heimsókn til okkar. Þetta er þáttur númer 100 af Seinni níu og var auðvitað aðeins farið yfir þau tímamót.Þór er þokkalegur kylfingur með 22,2 í forgjöf en sér fram á að forgjöfin geti lækkað eftir að hafa fengið nýjar mjaðmir. Þór er auðvitað í Nesklúbbnum og er þar í virku samtali við kjósendur, bæði þá sem eru í golfi og svo þá vegfarendur sem hefur verið mjög nálægt því að slá í við Nesvöllinn.Í þættinum er komið víða við en Þór rekur skemmtilega tilkomu golftryggingar sem Vörður hefur selt á undanförnum árum. Þór var lengi starfsmaður hjá Verði áður en hann varð bæjarstjóri á Seltjarnarnesi og fór yfir það tjón sem tryggingafélagið varð fyrir þegar margir af vinum Þórs byrjuðu að fara holu í höggi.Draumahollið er á sínum stað og svo fáum við undarlega kraftröðun á bestu golfvöllunum sem Þór hefur leikið. Einnig segir bæjarstjórinn okkar sérkennilega sögu frá því hvernig hann eignaðist pútterinn.Frábær þáttur og auðvitað á léttum nótum.
  • #99 - Axel ætlar sér fleiri Íslandsmeistaratitla 16.02.2026 1ч 10мин
    Við fáum til okkar frábæran gest því Axel Bóasson, þrefaldur Íslandsmeistari í golfi, kemur í heimsókn til okkar í Seinni níu.Í þættinum förum við yfir ferilinn hjá Axel en hann er nýlega tekinn við sem yfirþjálfari hjá Golfklúbbnum Keili eftir atvinnumannaferil. Hann segir okkur frá hæðum og lægðum á keppnisferlinum og greinir okkur frá því hversu andlega erfið þess íþrótt er fyrir kylfinga sem eru að reyna að keppa meðal þeirra bestu með feta upp metorðastigann.Árið 2017 var hans besta keppnistímabil en hann varð þá Íslandsmeistari ásamt því að verða efstur á stigalistanum á Norrænu mótaröðinni sem tryggði honum keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni. Í kjölfarið fyldi erfitt ár þar sem honum tókst ekki alveg að finna taktinn en varði þó Íslandsmeistaratitilinn í Vestmannaeyjum.Í þættinum er komið víða við. Axel segir okkur frá því að hann púttar best með stuttum pútter eða helst þannig að hann þurfi að standa mjög gleiður þegar hann púttar. Draumahollið er á sínum stað og svo velur Axel þær golfholur á Íslandi sem honum finnst mjög krefjandi af öftustu teigum.Frábær þáttur sem gefur hlustendum innsýn inn í líf eins af okkar bestu kylfingum en Axel er ekki hættur og stefnir að því að vera sigursælasti kylfingurinn í sinni fjölskyldu.
  • #98 - Stebbi Hilmars er með plástur á pútternum 09.02.2026 55мин
    Við fengum til okkar meiriháttar gest í Seinni níu því söngvarinn ástsæli Stefán Hilmarsson kom í heimsókn. Við komum víða við í þættinum en Stefán segir okkur frá golfinu sínu og hvernig það kom til að hann hóf golfiðkun.Stefán hóf að spila árið 2001 en Eyjólfur Kristjánsson dró hann í íþróttina en þeir höfðu báðir fylgst með golfi í sjónvarpi löngu áður. Tony Finau er uppáhaldskylfingurinn hjá Stefán þessa dagana og er það þessi sérkennilega golfsveifla sem er að heilla.Við fengum stórskemmtilega kraftröðun en Stefán valdi sína eftirlætisvelli á Alicante svæðinu og valdi einnig nokkur draumaholl.Svo kom í ljós að Stefán hefur 10 sinnum orðið vitni af því þegar aðrir en hann hafa farið holu í höggi. Stórskemmtilegur þáttur á alveg sérstaklega léttum nótum.
  • #97 - Fúsi þarf extra þykk grip 02.02.2026 56мин
    Við fáum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því handboltahetjan Sigfús Sigurðsson kemur í heimsókn til okkar. Hann ræðir aðeins við okkur um handbolta en aðallega um golf.Sigfús er með um 15 í forgjöf og hóf ungur að leika golf. Hann hætti hins vegar á unglingsaldri þar sem það þótti ekki töff að spila golf á þeim árum.Fúsi er með stórar krumlur og lenti í vandræðum snemma á ferlinum með golfgripið sem hann kreisti aðeins of mikið. Nú er stefnan sett á að fá júmbó-grip á kylfurnar.Hann hóf að leika golf að nýju þegar handboltaferilinn var að baki. Fúsi spilar mikið golf og þá sérstaklega á kvöldin enda stendur hann vaktina í fiskbúðinni sinni í Skipholti flesta daga. Hann er félagi í GR og spilar mest þar.Við fáum að heyra af ótrúlegu pari hjá Fúsa og daumahollinu þar sem litríkir kappar koma við sögu. Svo fengum við að heyra ótrúlega sögu af dóttur Fúsa af golfvellinum - saga sem Logi kærði sig eiginlega ekki um að heyra.Skemmtilegur þáttur á léttu nótunum.
  • #96 - 4-járnið í uppáhaldi hjá Helgu Möller 26.01.2026 1ч 2мин
    Við fáum frábæran gest til okkar í Seinni níu því til okkar kom söngkonan ástsæla Helga Möller. Við komum víða við í þættinum en Helga hefur lengi spilað og var best með um 14 í forgjöf.Golf var stór þáttur í fjölskyldu Helgu en foreldrar hennar bjuggu til golfholur nærri sumarhúsi þeirra sem varð vísirinn að golfvellinum í Grindavík.Við fengum að heyra draumahollið hjá Helgu og einnig sagði hún okkur frá því þegar Helga fór holu í höggi á Islantilla golfvellinum.Jafnframt kemur fram að 4-járnið sem var hluti af fyrsta golfsettinu hjá Helgu er í sérstöku uppáhaldi.Frábær þáttur í alla staði á sérstaklega léttum nótum.
  • #95 - Sigmundur Ernir byrjaði sem kylfusveinn 19.01.2026 1ч 7мин
    Við fáum til okkar góðan gest í Seinni níu þessa vikuna því Alþingismaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson kom í heimsókn til okkar. Hann hefur leikið golf lengi og hóf ungur að leika golf á Akureyri. Í raun byrjaði hann ferilinn sem kylfusveinn og stundaði það af meiri krafti en sjálft golfið fyrstu árin.Sigmundur er með 14 í forgjöf og spilar að eigin sögn frekar tíðindalítið golf. Hann er frekar beinn af teig og fær fáar sprengjur.Í þættinum segir Sigmundur okkur aðeins frá sínum eftirlætis velli sem er La Gomera er staðsettur á eyju við hlið Tenerife.Sigmundur velur draumahollið og við fáum einnig kraftröðun yfir fimm vinsælustu velli ársins í golfhermi hjá Golfsvítunni.Skemmtilegur þáttur þar sem er komið víða. Meðal annars er rætt um hvort golfvöllur í Viðey gæti orðið að kosningamáli?

Популаран у

Овај подкаст се појављује и у подкаст листама ових земаља.